Morgunblaðið - 14.03.1990, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 14.03.1990, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARZ 1990 41 SANNLEIKUEINN OG SAGA MANNKYNS Til Velvakanda. Saga mannkyns er dulítið öðru- vísi, en áherslur eru á lagðar og venja að halda fram. Tilfærð örfá dæmi um þetta. Biblían og mörg önnur tímarit eru margumrituð og endurskoðuð, að undanskildum Qumran-bókroll- um sem af og til finnast ennþá af Palestínu-bedúínum í eyðimerkur- torleiði nálægt Dauðahafi. Atburðir Biblíu gerðust öldum áður en hún var skrifuð. Sama er að segja með íslendingasögur, þar er fyrirþjóðar að engu getið. Enginn þarf að vera hlessa á þessu. Ljósir íbúar Suður- Afríku hafa sambærilegar skoðanir. ISéð hef ég myndskreytta bók, um 200 bls., er fjallar um Kanada. Af bók mátti ráða í einum dálksenti- metra smáleturs, að evrópsku land- nemarnir komu ekki að mannauðu landi. Smáletursklausan var sam- felldur rógur um irókesaþjóð. Mannkyn breiddist hratt út um jörð alla að afskekktum smáeyjum, Svalbarða og Suðurskautslandinu undanskildu, en íslandi meðtöldu. Einna síðast komu menn til Nýja Sjálands, var það þjóð Pólynesa, maóríar. Eyðing lífríkja og mengun orsak- ast ekki af þörf manna fyrir fæðu, klæði og húsaskjól, heldur löngun þeirra til að undiroka allt og ráðsk- ast með, guð ekki undanskilinn. Islendingum var hótað gíslatök- um, limiestingum og fjöldamorðum, létu þeir ekki skírast, Jaust fyrir árið eitt þúsund. Margir íslendingar staddir í Noregi, hefðu orðið kon- ungi auðtekin bráð. Viðskiptabanni var einnig hótað. Vandi Þorgeirs Ljósvetningagoða undir* feldinum var sá einn að finna leið til að fá menn sína til að fallast á algeran ósigur án þess að glata virðingu sinni. Siðaskipti á sextándu öld komu að ofan, því Marteinn Lúther hafði lofað sí-stríðandi þjóðhöfð- ingjum klaustureignum. Villandi er að kalla breytingu þessa siðbót, því trúarofstæki, uppræting þjóðdansa, alræði konungs, viðskiptaófrelsi, galdrabrennufár og Stóri dómur, komu á eftir. íslendingar lentu í útrýmingarhættu um tíma. Þjóðríki tungu og þjóðernis voru ekki til á miðöldum í Evrópu í nútímaskilningi. Hollusta einstakl- ings var bundin við þjóðhöfðingja, landaðal og kirkju. Fjarstæða er að telja Gizur Þorvaldsson eða aðra íslenska hirðmenn Noregskonungs landráðamenn. Vestrænt lýðræði er vestrænt í orðsins fyllstu merkingu, komið frá frumbyggjum Bandaríkjanna sem eru uppfærsla á irókesasamband- inu. Sameinuðu þjóðirnar áttu sér fyrirmynd í bandalagi sléttuþjóða og vetrardvöl í Svarthæðum. Stríðsmenn innfæddra voru allir sjálfboðaliðar, málfrelsi í heiðri haft og tímalengd erfiðisvinnu takmörk- uð. Hjá nokkrum þessara þjóða var kvennaveldi og fólk þetta þvoði líkama sinn. Allt þetta lærðu Evr- ópumenn af áðurtöldum þjóðum á löngum tíma. Einna hægast gekk að læra hreinlætið, menn fóru ekki að þvo sér svo heitið sé í Evrópu fyrr en í byijun 19. aldar. (Aðall barokktíma gerði þarfir sínar í skúmaskotum og bak við hallar- tjöld, og menn jusu yfir sig ilm- vötnum til að fela óþefinn.) Sá sem fyrstur hreyfði þeirri hugmynd að ísland ætti að vera sérstakt þjóðríki var Dani, Jörgen Jörgensen að nafni, er íslendingar uppnefndu hundadagakonung. Sá sem fyrstur vildi varðveita íslenska tungu og gerði eitthvað í þá veru, var einnig Dani, Christian Rasmus Rask. Eitt af því fáa sem kínverskum kommúnistum hefur verið fært til gildis með innrásinni í Tíbet 1950, er að þeir hafi létt oki alltof fjöl- mennrar munkastéttar af þjóðinni. En þá ber þess að geta að lama- búddisminn er tíbetsku þjóðinni einkar kær og hlutfall munka á þjóðarframfæri var ekki hærra en hlutfall menntamanna á skrifstof- um Vesturlanda, sem eru þar eng- um að gagni, öðrum en sjálfum sér og sínum. Fullkomnasta stóra landbúnaðar- ríkið bæði fyrr og síðar var inkaríki Andesíjalla. Með í dæminu er um- gengni við jarðveg og náttúruleg lífríki án mengunar. Þetta var einn- ig eina stóra velferðarríkið sem staðið hefur undir nafni. Óheiðar- leiki, græðgi og sviksemi voru út- læg gjör úr inkaríki. Engin þjóð gerði hlut aldraðra, sjúkra, fatlaðra og þroskaheftra meiri en þessi. Mannkynssagan úir og grúir af þverstæðum og núna eru einmitt líkur á að ein bætist við. Engin þjóð hefur hatað Rússa meira en Pólverjar, þó getur sú staða komið upp að pólsk stjórnvöld æski áfram- haldandi veru Rauða hersins sov- éska í landi sínu. Bjarni Valdimarsson Um gæðamismun hvítlauks Til Velvakanda. Vegna greinar í Velvakanda 1. þ.m. langar mig til að upplýsa eftir- farandi. Höfundur þeirra skrifa seg- ir umræddan hvítlauk vera betri en allt fáanlegt og leggur áherslu á að vera víðiesinn um þessi efni. Undarlegt að þessi aðili hefur ekki komist yfir þekkingu á lang- mest selda og þekktasta hvítlauk veraldar, nefnilega Kyolic, japanska hvítlauknum. Framieiðendum Ky- olic var einum alira hvítlauksfram- leiðenda undir sólinni boðin þátt- taka í ráðstefnu WHO, Alþjóða- heilbrigðismálastofnunarinnar, um lækningajurtir. Segir það eitt sína sögu um álit vísindamanna á Kyolic. Það þarf ekki annað en að lesa utaná glas með Kyolic og bera sam- an magn til að sjá að Kyolic-hvít- laukurinn hefur 5-6 sinnum meira magn hvítlauks í einingu í hylkjum eða töflum heldur en llja Rogoff- hvítlaukur. Kyolic hefur 270-300 mg hvítlauks í hverju hylki en Ilja Rogoff minna en 50 mg í hverri sykurhúðaðri perlu. Kyolic í fljót- andi formi er ennþá virkara eða um það bil 10 föld virkni og þó að fljót- andi Kyolic sé fyrst og fremst tii inntöku er líka hægt að nota það útvortis. Reyndar er efnamagn og gæði Kyolic margfait meira en mismunur þessara talna gefur til kynna. Allar aðrar hvítlauksvörur eru hitaðar einhvern tíma á vinnsluskeiðinu. Hiti eyðileggur viðkvæma hvata, ensím og efnasambönd hvítlauks- ins. Kyolic er hins vegar kælitækni- unninn og þarf að fara gegnum 250 gæðaprófanir til að tryggja hrein- asta efnið, jöfnustu framleiðsluna og hæstu gæði nokkurrar hvítlauks- afurðar sem nú býðst. Þessar gæða- eftirlitsaðferðir eru hinar ströng- ustu sem þekkjast í framleiðslu lækningajurta. Dr. Benjamin Lau, læknir og prófessor í örveru- og ónæmisfræði við Loma Linda læknaháskólann í Kaliforníu, er einn þeirra fjölmörgu vísindamanna, sem m.a. leggja stund á hvítlapksrannsóknir í Bandaríkjunum. Utdráttur úr þess- um rannsóknum kom út í bók á sl. ári undir heitinu Garlic for health (Hvítlaukur og heilsa). Bókin er fáanleg hjá bókabúð Eymundsson- •ar. Við þessar rannsóknir er Ky- olic-hvítlaukur eingöngu notaður, þar sem vísindamenn hafa staðfest að hann er mun virkari, með hærra efnainnihaldi og efnastöðugri en hráhvítlaukur. Síðan Kyolic kom fram á sjónar- sviðið hafa vísindarannsóknir farið fram á efninu á vegum mikils- metinna háskóla og rannsókna- stofnana. Þessar rannsóknir hafa sýnt, svo óvefengjanlegt er, afburða næringargildi Kyolic-hvítlauksins og yfirburði hans yfir venjulegan hvítlauk. Fólk sem metur heilsu sína mikils, veit að lyktarlausi hvítlauk- urinn Kyolic er sennilega þýðingar- mesta bætiefni í fæðuna sem völ er á. Fróði Skipstjórnarmenn: Verið ávallt mjnnugir ábyrgðar ykkar á öryggi skipveija. Sjáið um að öll öryggistæki séu í lagi og að hver einasti skipveiji kunni meðferð þeirra og viti hvernig og hvað hann eigi að gera á neyðar- stundu. Þakkir Öllum vinum minum, sem glöddu mig og Grétu konu mína á sextugsafmœli mínu, sendi ég alúðarkveÖjur og þakkir. Sverrír Hermannsson. ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA ÓÐINSG. 2 S. 13577 ÚTSALA ÚTSALA ÚTSALA Royal -uppáhaldið mitt! Byggingaverktakar Tilboðsverð á járnaklippum KLIPPUR fyrir 26 mm járn: Rétt verð kr. 180.400,- Tilboðsveri) kr. 135.300,- KLIPPUR fyrir 32 mm járn.- Rétt verð kr. 230.300,- Tilboösverö kr. 172.700,- Tilboðið gildir til 17. mars. Fallar hf. VINNUPALLAR - STIGAR - VÉLAR - VERKFÆRI DALVEGI 16, FIFUHVAMMI, KÓPAVOGI, SÍMI 641020 t

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.