Morgunblaðið - 17.06.1990, Side 11
I
I
MORGUNBLAÐIÐ MANNLIFSSTRAUMAR SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1990
C 11
VÍN/ Hvert er vidhorfÞjódverja til víns?
Þrúgusykur skiptir öllu nuUi
ÞÝSK vínlöggjöf í núverandi formi er að stofni
til frá árinu 1971. Þá var vínlöggjöfin tekin í
gegn og þýsk vín sett í tvo flokka, Borðvín
(Tafelwein) og Gæðavín (Qualitatswein).
Nokkru síðar, eða árið 1982, var enn einum
flokkinum bætt við, nefnilega Sveitavíni (Lant-
wein) en sá flokkur er byggður upp á samsvar-
andi hátt og vin de pays-vín í Frakklandi. Þessi
löggjöf er í sjálfú sér mjög einföld í uppbygg-
ingu en flestum hættir til að fallast hendur
þegar þeir reyna að kynna sér útkomuna í
raun. Viðhorf Þjóðverja til víns er t.d. allt
annað en í öðrum ríkjum Evrópu og þótt víðar
væri leitað. Engar hömlur eru til dæmis á því
hve uppskeran má vera mikil til að vínunum
sé skipað í hæstu flokkana (líkt og með A.O.C.-
vínin í Frakklandi). Þvert á móti hafa þýskir
vínbændur rúmlega fjórfaldað uppskeru á hekt-
ara frá síðustu aldamótum. Það er líka helsta
ástæða þess að þýsk vín eru samkeppnishæf
innan EB hvað verð varðar.
Vínrækt setur oft svip á þýsk sveitahéruð eins og hér í Baden í Suður-Þýskalandi.
að sem skiptir öllu máli varð-
andi mat á þýskum vínum er
hvert sé hið náttúrulega sykurmagn
í vínþrúgunum þegar þær eru
tíndar, þ.e. hve miklum þroska þær
hafa náð. Er þýska
löggjöfin öll
grundvölluð á
þessu atriði.
Sá fiokkur þý-
skra vína sem lang
mestu máli skiptir
er gæða-vínin.
Hann skiptist í tvo
undirflokka, ann-
ars vegar Gæðavín úr ákveðnu hér-
aði (Qualitátswein bestimmter An-
baugebiete — QbA) og Gæðavín
með einkunn (Qualitátswein mit
Prádikat — QmP). Er munurinn á
þessum tveimur flokkum sá að leyft
er að bæta sykri við framleiðslu á
QbA-vínum en þær vínþrúgur sem
notaðar eru við framleiðslu á QmP-
vínum verða að hafa náð það mikl-
um náttúrulegum þroska að ekki
þarf að bæta við sykri.
„Einkunnirnar“ eða „Prádikatið"
sem QmP vínin fá byggir líka á
þroska þrúgnanna. í vín sem fá
einkunina Kabinett fara vel þrosk-
aðar þrúgur úr hinni venjulegu upp-
skeru. Spátlese eru vín sem gerð
eru úr þrúgum sem tíndar eru síðar
og hafa því náð meiri þroska og
Auslese þýðir að þrúgurnar hafa
verið valdar sérstaklega úr þeim
þrújgum sem síðar voru tíndar.
A þýskum vínflöskum er ávallt
að finna nákvæmlega sömu upplýs-
ingarnar í sömu röðinni, ef um
Gæðavín er að ræða. Fyrst kemur
nafnið á þeim stað þar sem vínið
er framleitt, getur verið þorp eða
lítið hérað, síðan það sem Þjóðveij-
ar kalla Lage, eða legu, sem getur
verið hvort sem er eitt lítið vínfjall
(Einzellage) eða ijöldinn allur sem
sett eru undir sama hatt (Gross-
lage). Hvernig legu um er að ræða
er ekki tekið fram. Síðan kemur
einkunn vínsins (ef um QmP-vín er
að ræða) og svo um hvaða þrúgu
er að ræða (t.d. Riesling). Einnig
er oftast tekið fram hvort um sætt
vín sé að ræða (lieblich) eða þurrt
(trocken). Flöskumiði gæti því litið
svona út: „Bernkasteler Badstube
Kabinett. Riesling — trocken.
Vínhéruðin þýsku eru alls ellefu
og skera fjögur þeirra sig úr hvað
magn varðar. Þau eru Rheinhessen,
Rheinpfalz, Baden og Mosel-Saar-
Ruwer. Önnur þýsk vinhéruð eru
Franken, Wiirttemberg, Nahe,
Rheingau, Mittelrhein, Ahr og
Hessische Bergstrasse. Þessum ell-
efu héruðum má síðan skipta í fimm
flokka. Rínardalurinn er lang
stærsta vínræktarhérað Þýskalands
og eru innan hans marka héruðin
Rheinpfalz, Rheinhessen, Rhein-
gau, Hessische Bergstrasse, Nahe
og loks héraðið Ahr sem kennt er
við samnefnda á sem rennur í Rín
við Bonn. Móseldalurinn nær frá
þýsk/frönsku landamærunum í
suðri til borgarinnar Koblenz, þar
sem Rín og Mósel mætast, og er
hann annað stærsta vínræktarhérað
Þýskalands. Vín úr þesum tveimur
héruðum eru lang þekktust þýskra
vína utan Þýskalands. Þriðja
stærsta vínhérað Þýskalands er
Baden sem nær frá borginni Heidel-
berg til svissnesku landamæranna.
Þó að þau vín séu lítið þekkt enn
sem komið er utan Þýskalands njóta
þau mikillar virðinga innanlands og
eru talin hvað best þýskra vína.
Fjórða stærsta héraðið er Franken
í Bæjaralandi og það fimmta og
minnsta er Wúrttemberg.
Lang stærsti hluti þýskrar
vínframleiðslu er hvítvín enda eru
það þau vín sem Þjóðveijum tekst
hvað best upp með. Vissulega má
hér og þar finna þýsk rauðvín en
neysla þeirra er oftast óskemmtileg
upplifun. Það er helst að í héraðinu
Baden takist bændum að framleiða
rauðvín sem standast alþjóðlegan
samanburð. Lang bestu þýsku
hvítvínin eru unnin úr Riesling-
þrúgunni þó að margar aðrar
þrúgutegundir megi finna. Þær ná
þó sjaldan sömu gæðum og Riesl-
ing-vínin. Hvað gæði varðar hafa
þýsk vín tekið mikið stökk upp á
við á undanförnum árum og áratug-
um enda leggja menn sig nú fram
við að ná því óorði af þýskum
vínum; sem enn loðir við þau, að
þau séu sæt sykurvella. Byggir
þetta fyrst og fremst á þvi að þýsk
vín hafa löngum verið flutt út í
miklu magni, blönduð saman, sæt
og án nokkurra sérkenna (t.d. Lieb-
fraumilch).