Morgunblaðið - 17.06.1990, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.06.1990, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ MIIMNINGAR SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1990 24 C____ Hjónaminning: Nanna H. Einars- dóttir — Sigiujón Sæmdundsson Nanna fædd 9. maí 1931 Dáin 9. júní 1990 Sigurjón íæddur 24. júlí 1927 Dáinn 9. júní 1990 Hvers vegna, spyr maður sig þegar góðir vinir eru kallaðir burtu skyndilega án nokkurs fyrirvara. Hversu oft sem sþurt er verður svarið ávallt ráðgáta. Hann einn veit sem öllu ræður. Full tilhlökkun- ar voru þau á leið suður eftir heim- sókn á æskustöðvar Nönnu í Bakka- firði. Sonur þeirra og tveir sonar- synir voru væntanlegir um kyöldið frá Svíþjóð eftir árs dvöl. Höfðu kútarnir litlu sem svo oft höfðu hjúfrað sig í fangi afa og ömmu breyst mikið? Stundin stóra kom áður en svar fengist. Hvers vegna? spyr maður sig aftur. Ekkert svar. Nanna Höjgaard var borin og barnfædd austur í Bakkafirði í stór- um systkinahópi. Móðir hennar var Ólöf Stefanía Davíðsdóttir og faðir Einar Ásmundur Höjgaard. 9 systk- ini komust á legg. Einn bróðir dó á barnsaldri. Efnisleg auðæfi voru ekki mikil en þeir sem kynntust Nönnu fundu fljótt að úr föðurhús- um kom hún með þann auð sem mölur og ryð fá ekki grandað. Nanna var margfróð kona og hag- mælt vel. í gegnum glettni hennar og gamansemi mátti glöggt sjá þunga alvöru og lífsskilning þess sem margt hefur reynt. Siguijón fæddist í Blönduhlíð í Skagafirði. Foreldrar hans voru Guðný Jónsdóttir og Sæmundur Jóhannsson frá Saurbæ. Siguijón var yngstur fjögurra systkina. Hálf- systkini átti hann fimm. Sex ára mátti hann sjá á bak móður sinni. Við fráfall hennar leystist heimilið upp og Siguijóni var komið í fóstur hjá hálfbróður sínum. Þar var hann fram yfir fermingu. Enginn sem kynntist Siguijóni efast um að strax í æsku hefur hann þurft að taka til hendinni. Viljugri og liprari starfsmanni var vart hægt að hugsa sér. Hann stundaði fjölbreytt störf bæði til sjós og lands og þótti ávallt mikill fengur af hans lið- veislu. Nú síðustu árin vann hann sem afgreiðslumaður á bensínstöð. Þaðan munu margir eftir þessum síkvika og ötula manni. Ekki hvað síst ungu mennirnir en þeim var hann ávallt fús að gefa holl ráð og lét þá gjarnan fylgja með hæfilegan skammt af gamansemi. Hanna og Siguijón kynntust austur í Bakkafirði sumarið 1947 en þangað var Siguijón kominn til að taka þátt í hafnargerð. Þeir sem muna sumarið ’47 minnast veð- urblíðunnar sem lék um Norður- og Norðausturland á sama tíma og hver regnskúrinn af öðrum helltist yfir Suðurlandið sumarið út. i sumarblíðunni blast hin fagra ver- öld við ungum elskendum sem gáfu hvort öðru allt sem þau áttu, þau sjálf. Saman hófu þau búskap í Múlakampnum í Reykjavík. Flutt- ust síðan til Vestmannaeyja þar sem Siguijón stundaði sjómennsku. Það- an til Þorlákshafnar og síðan til Hafnarfjarðar árið 1973. Nanna ól manni sínum níu börn. Eitt fæddist andvana. Þau sem upp komust eru: Sæmundur Örn vél- stjóri á Selfossi, giftur Nönnu Þor- láksdóttur. Reynir viðskiptafræð- ingur í Reykjavík, giftur Henný Herbertsdóttur. Úlfar lagermaður hjá Odda, búsettur í Hafnarfirði, giftur Ragnheiði Ingadóttur. Guðni verkamaður í Rjós, giftur Margréti Bjarnadóttur. Olafur Stefán skrif- stofumaður í Hafnarfiði, giftur Huldu G. Guðlaugsdóttur, Grettir skrifstofumaður, búsettur í Svíþjóð, giftur Öldu M. Hauksdóttur. Alda saumakona og Jökull öryggisvörður voru enn í föðurhúsum. Þessum stóra barnahóp voru þau hjónin einstaklega samhent við að koma til vits og ára. Öllum má vera ljóst að ekki hafa frístundirnar verið margar. Hlutur sjómannskon- unnar er ávallt viðamikill í uppeldi barnanna enda fann maður það glöggt hversu djúp og sterk tengsl hún hafði skapað við börn sín. Kynni mín af þeim hjónum hófust þegar dóttir mín giftist syni þeirra. Ég eignaðist þá strax góða vini þar sem þau hjónin voru. Nú þegar svo snögg umskipti verða með brott- hvarfí þeirra eru allir ættingjar og vinir þeirra harmi slegnir. Með þess- um fátæklegu orðum vil ég votta þeim hjónum dýpstu virðingu mína og senda öllum ættingjum þeirra mínar innilegustu samúðarkveðjur. Haukur Helgason Afi og amma í Hafno eru látin. Það er erfitt að átta sig á þeirri staðreynd að heimsóknirnar til afa og ömmu á Hraunkambinn verða ekki fleiri. Það hefði aldrei hvarflað að mér að þau yfirgæfu þennan heim svo fljótt. Reyndar hafði ég aldrei leitt hugann að öðru en að afi og amma yrðu ávallt til staðar og að ég gæti alltaf heimsótt þau. Ég er því þakklát Guði fyrir þau sautján ár sem ég fékk að vera með þeim. Þær eru margar góðar minning- arnar sem ég á um afa og ömmu í Hafnó og samverustundirnar sem við áttum, en þær voru ófáar. Skemmtilegast fannst mér þegar ég var lítil og fékk að dvelja hjá þeim yfir helgi. Þá dunduðum við amma okkur við að spila löngu vit- leysu og stundum spilaði afi fyrir mig á munnhörpuna. Einnig kom það fyrir á góðviðrisdögum að við amma fórum í vinnugalla út í garð til að huga að plöntunum og gróður- settum jafnvel nokkur sumarblóm. Að þeim verkum loknum komum við inn ijóðar í kinnum og settumst öll við eldhúsborðið, ég afi og amma, og dáðumst að dagsverkinu. Á sunnudeginum komu svo öll föð- ursystkini mín og þá var aldeilis kátt í höllinni, hlegið og gamansög- ur sagðar. Alltaf ríkti kátína og gleði á Hraunkambnum og mátti oft greina það í nokkurri fjarlægð frá húsinu. Mér er minnisstæð síðasta heim- sókn mín til afa og ömmu en þá óraði mig ekki fyrir því að þetta yrði okkar síðasti fundur. Þetta var eitt sumarkvöldið og sólin var ekki sest. Við sátum við eldhúsborðið afi, amma, faðir minn og ég ásamt vinkonu minni og gerðum að gamni okkar. Þetta var yndislegt kvöld, afi og amma rifjuðu upp skondna atburði liðinna tíma og öll hlógum við dátt. Ég man að ég var ákaf- lega hreykin af þeim, þau voru svo skemmtileg, einlæg og samkvæm sjálfum sér. Þegar við yfirgáfum Hraunkambinn það kvöldið man að ég kvaddi þau óvenju innilega, ég kyssti afa tvisvar og faðmaði þau að mér af því mér þótti svo vænt um þau. Ég vildi vera lengur því þetta var reglulega skemmtilegt kvöld sem ég mun aldrei gleyma. Sennilega hefur þetta alltaf átt að vera svona, að þessi fundur yrði sá síðasti. Sú hefð hefur myndast í gegnum árin að á aðfangadagskvöld eftir að hátíðin er gengin í garð og liðið er á kvöldið að fjölskyldan hittist öll á Hraunkambnum. Þá koma börnin með gjafirnar og eldra fólk- ið spilar og talar saman. Stuttu eftir komu manna er svo sest við kaffiborðið og bragðað á indælis kökum frá ömmu. Þessi boð gáfu jólunum gildi og mér fannst ekki vera jól nema við færum til afa og ömmu í Hafnó eftir að gjafir höfðu verið teknar upp. Þessa hefð verður erfitt að leggja niður og víst er að jólin verða heldur tómleg án þess- ara boða. Þrátt fyrir ákafan söknuð og sorg verðum við að halda áfram okkar daglega lífi og ég veit að það hefðu þau bæði viljað. Enginn veit hvenær kallið kemur en afi og amma fengu að fara saman og víst er að þau eru nú á góðum stað. Blessuð sé minning elskulegs afa míns og ástkærrar ömmu. Heiður Reynisdóttir Það er erfitt að trúa að þau Nanna okkar og Siguijón séu dáin svo skyndilega. En þau létust af slysförum 9. júní sl. Og það sannast að slysin gera ekki boð á undan sér því kvöldið áður en þetta hörmulega slys var höfðum við setið öll saman eftir skemmtilega vinnuviku í sumarhús- inu okkar systkinanna í Bakkafirði, öll ákveðin í að koma þangað aftur í sumar. En enginn ræður sínum náttstað, margar minningar eigum við frá liðnum ái-um, og ekki síst lifa þær minningar Iengi frá þeim tíma þeg- ar Nanna og Siguijón bjuggu í Þorlákshöfn. Fórum við þá oft til þeirra og var mikil gleði sem ríkti þar, þegar þau léku sér saman okk- ar 8 börn og þeirra 8 börn. En Nanna og Siguijón áttu 7 syni og eina dóttur sem nú háfa misst sína ástkæru foreldra. Ökkar hinstu kveðjur og hafi þau þökk fyrir allt hið liðna. Kæru Örn, Reynir, Úlfar, Guðni, Óli, Grettir, Jökull, Alda og fjöl- skyldur, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Guð styrki ykkur og blessi. Pála, Kaj og börn Það er erfitt að trúa því að afí og amma séu horfín. Það var alltaf gaman að hitta þau af því að þau voru svo hress og kát. Þau voru aldrei óþolinmóð þó að við krakk- arnir værum mörg þar og hver og einn þyrfti sína athygli frá þeim. Þau gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að enginn yrði útundan. Hjá þeim var ævinlega margt um manninn og oft var glatt á hjalla og mikið hlegið í eldhúsinu á Hraun- kambinum. Ef einhver var í vand- ræðum eða vantaði einhvern til að tala við leitaði sá hinn sami til afa og ömmu, þau voru ráðagóð og skilningsrík. Elsku ömmu og afa er sárt saknað og enginn getur fyllt upp í það skarð sem þau skilja eft- ir sig. Við viljum þakka þeim sam- fylgdina og fyrir ást og hlýju í okk- ar garð. Megi góður guð geyma þau. Barnabörnin Okkur vinnufélögunum brá mjög er við fréttum að vinnufélagi okk- ar, Siguijón hafi látist í umferðar- slysi norður í Hrútafirði, laugar- dagskvöldið 9. þ.m. Dauðinn kemur oft mjög óvænt og til þeirra sem maður síst ætlar. Það er erfítt að sætta sig við, að fá ekki lengur að vinna með Sigur- jóni, en svona er lífið. Siguijón var einstakt ljúfmenni og samvinnuþýður, og er mikil eftir- sjá í slíkum samstarfsmanni. í allri umgengni var Siguijón ljúfur, með gamanyrði á vörum og gott hjarta, enda vi.nsæll á meðal allra starfsfélaga sinna. Við starfsfélagar Siguijóns vott- um börnum hans, tengdabörnum og barnabörnum okkar dýpstu sam- úðarkveðjur. Guð blessi góðan dreng. Starfsmenn bensínstöðvar Esso Lækjargötu, Hafharfírði. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐMUNDUR SIGURÐSSON, Möðruvöllum, Kjós, lést í Borgarspítalanum 5. júní. Bálför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum innilega auðsýnda samúð. Guðrún Jónsdóttir, Sigurður Guðmundsson, Eydís Egilsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. t GUÐLAUGUR MAGNÚSSON frá Kolsstöðum, sem andaðist föstudaginn 8. júní, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 18. júní kl. 15.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jóhann Guðlaugsson. t Bróðir okkar, JÓNJÓNSSON frá Deild, Hrafnistu, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju þriðjudaginn 19. júní kl. 13.30. Guðfinna Jónsdóttir, Guðmundur Jónsson. t Jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR HARALDSDÓTTUR frá Firði, Seyðisfirði, Dalbraut 27, Reykjavík, fer fram frá Áskirkju þriðjudaginn 19. júní kl. 13.30. Halldóra Jóna Stefánsdóttir, Karl Bóasson, Árni Stefánsson, Ingibjörg Rafnsdóttir, Georg Scheving, Anna H. Scheving, Garðar Scheving, Hulda A. Scheving, barnabörn og barnabarnabörn. t Hjartkær móðir mín, dóttir, systir, mág- kona og frænka, SIGURLAUG JÖKULSDÓTTIR, Dalalandi 9, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 19. júní kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er vinsam- legast bent á Krabbameinsfélagið. Jökull Ulfarsson, Helgi Jökulsson, Jón Heiðar Helgason, Guðrún Sigfúsdóttir, Gréta F. Kristinsdóttir, Guðrún Helgadóttir. t Eískuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, GUÐNÝ ÓLÖF MAGNÚSDÓTTIR, Hrafnistu, áður til heimilis á Holtsgötu 21, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju miðvikudaginn 20. júní kl. 13.30. Brynjólfur Bjarnason, Jóhanna Brynjólfsdóttir, Einar Sigurjónsson, Jón O. Brynjólfsson, Erla Steingrímsdóttir, Bára Brynjólfsdóttir, Ásthildur B. Cates, James M. Cates, barnabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.