Morgunblaðið - 17.06.1990, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 17.06.1990, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JUNI 1990 C 15 De Gaulle í London (1940): í liðskönnun. sprengjusvæði, biluðu og týndust. Þótt sókninni miðaði hægt urðu Þjóðveijar felmtri slegnir og hófu undirbúning brottflutnings frá Abbevilie. Frönsku hermennirnir börðust vasklega, en de Wailly segir að „ýmis neikvæð skapgerðareinkenni“ de Gaulles hafi komið í ljós. Aðferðir hans í skriðdrekahernaði hafi reynzt „afturhvarf til fyrri tíma“, þegar Frakkar hafí oft glutrað niður tæki- færum til glæsilegra sigra í orr- ustum með fífldirfskulegum og óstuddum riddaraliðsárásum — eins og við Waterloo 1815. Fullur sigurvissu De Wailly telur að versta skap- gerðareinkenni de Gaulles hafi „ef til vill verið það að hann neitaði að viðurkenna mistök“. Þegar harðna hafi tekið á dalnum hafí hann snúizt gegn undirmönnum sínum og hótaði að draga þá fyrir herdómstól fyrir hugleysi. Eftir fyrsta daginn lágu ónýtir skriðdrekar og lík fallinna hermanna Frakka og Þjóðveija eins og hráviði út um allt. „Varnir okkar gegn skrið- drekunum brugðust,“ sagði þýzkur heimildarmaður, Gehring majór, þegar hann lýsti viðureigninni síðar. Orrustan við Crécy (1346): Svipaður franskur ósigur. Gagnrýnir de Gaulle: Henri de Wailly hjá fallbyssu úrtundurspilli sem var sökkt við Dunkirk. skyggði á bardagana við Abbeville, sem er um 25.000 manna einangrað- ur og syfjulegur iðnaðarbær skammt frá vígvöllunum við Somme úr fyrra striði. Orrustan'vakti litla athygli. Jafn- vel frönsk blöð sögðu ekki frá bar- dögunum við Abbeville, en ástæðan var sú að þau fengu ekki nauðsyn- lega aðstöðu til að fylgjast með þeim. De Wailly segir að í orrustunni hafi verið teflt fram fleiri skriðdrekum en dæmi séu um þangað til í Rúss- landsherferðinni ári síðar — rúmlega 500 skriðdrekum í þremur sóknarlot- um. Að mati Pauls Websters leiðréttir de Wailly ýmsan misskilning í bók sinni. Ef til vill komi mest á óvart' að allir skriðdrekamir í orrustunni hafi verið Bandamanna megin og varla hafi sézt til þýzkra steypiflug- véla, þar sem stríðið í lofti hafi far- ið háð yfir Dunkirk. Þá kveðst de Wailly vilja leiðrétta þann misskilning að de Gaulle hafi sigrað. De Gaulle hafi sjálfur ýtt undir þá hugmynd með lýsingu sinni á orrustunni í stríðsendurminningum sínum. Að sögn de Waillys segir de Gaulle með góðum rökum að engin önnur sókn Frakka hafi borið eins góðan árangur. De Gaulle hélt því fram að hann hefði neytt Þjóðverja til að hörfa rúmlega 14 kílómetra á 30 kílómetra breiðu svæði, sem þeir höfðu náð fótfestu á sunnan Somme — tekið 500 fanga og náð 12 þorpum á sitt vald. De Wailly segir hins vegar að samkvæmt rannsóknum sínum hafí fangarnir aðeins verið 242 og Frakk- ar hafi sótt sjö en ekki 14 kíló- metra. Þó hafi þetta verið bezti árangur Frakka 1940. De Wailly „afsakar ýkjur de Gaulles" með því að benda á að hann hafi ekki stuðzt við minnismiða þegar hann samdi endurminningar sínar úr stríðinu. Góðir skriðdrekar Sókn de Gaulles hófst í þorpi ná- lægt Limeux suður af Somme. A svæðinu þaðan til Mont de Caubert eru þorp, akrar og skóglendi. De Gaulle leit fyrst yfir vígvöllinn 28. maí af hól, sem er merktur með járn- krossi og kallaður Croix de Maréc- hal. Með honum var yfirmaður brezkrar stórdeildar, sem hafði misst flesta skriðdreka sína, 185 að tölu. De Gaulle lét það ekki á sig fá, því að léttir skriðdrekar Breta voru einskis virði. Sjálfur réð hann yfir einhveijum beztu og þyngstu skrið- drekum Evrópu, m.a. „Bl“ og „B2“, sem stóðu skriðdrekum Þjóðveija fyllilega á sporði, og auk þess léttum Renault-skriðdrekum. Þar sem de Gaullc gat ekki kom- ið óvininum í opna skjöldu réðst hann þegar í stað til atlögu til að fipa hann. Honum gafst ekki ráðrúm til að endurskipuleggja lið sitt áður en til tíðinda drægi og hermenn hans voru uppgefnir eftir þrotlausar göngur. Að dómi de Waillys var verkefni de Gaulles við Abbeville viðráðan- legt. Þó bendir hann á að brynfylki hans hafl verið sundurleitur nýgræð- ingaher. Hann segir að de Gaulle hafi getað beitt alls 20.000 mönnum, en aðeins um 4.500 fótgönguliðar hafi ráðizt til atlögu. Frakkar áttu í höggi við 47. bæverska fótgöngu- fylkið, sem var skipað tveimur stór- sveitum (battalions) miðað við sex stórsveitir Frakka. Orrustan hófst snemma kvölds, eins og við Crécy forðum, og enginn tími gafst til njósna. Talstöðvum frönsku skriðdrekanna var lokað og við það jókst ærinn vandi, sem við var að stríða vegna slæms fjar- skiptasambands milli yfirmanna á vígvellinum og aðalstöðva de Gaull- es. Léleg fjarskipti juku á mikla ring- ulreið, sem varð þegar skriðdrekar Frakka urðu fyrir skotum úr 88 mm fallbyssum Þjóðveija, óku inn á jarð- „Fótgöngulið okkar varð að viður- kenna ósigur.“ Fullur sigurvissu sendi de Gaulle Paul Reynaud forsætisráðherra einkaskeyti um fyrirsjánlegan árangur og fór að skipuleggja annan dag orrustunnar, 29. maí. Hann stóð í þeirri trú að hann réði enn yfir rúmlega 100 skriðdrekúm, en varla helmingurinn var nothæfur að sögn de Waillys. Næstu tvo daga tóku hver vonbrigðin við á fætur öðrum hjá Frökkum. Þó komust nokkrir hermenn þeirra í námunda við bæki- stöð Þjóðveija á Mont de Caubert. Að kvöldi fýrsta dags hafði 4. herfylkið náð Huppy í vestri og Limeux í miðjunni. Að svo búnu hafði de Gaulle ráðizt á Moyenne- ville og Bienfay til vinstri, Huch- enneville og Villers í miðjunni og Mareuil til hægri. Almennt hefur verið talið að de Gaulle hafi síðan ætlað að sækja með þungum skrið- drekum sínum frá Mareuil aftur fyr- ir Mont de Caubert nálægt bökkum Somme til að flæma Þjóðveija burtu af ásnum (sjá kort). De Wailly er ósammála því að þetta hafí verið ætlun de Gaulles sjálfs. Hann segir að alvarlegustu mistök de Gaulles hafi verið þau að hlíta ekki ráðum hins gamla skrið- drekakennara síns á lokafundi, þeg- ar framhald sóknarinnar var skipu- lagt 29. maí. Þá vissu frönsku skrið- drekaforingjarnir að þeir áttu ekkert svar við 88 mm fallbyssum Þjóð- vetja á Mont de Caubert. Skipti liðinu Að sögn de Waillys sagði de Gaulle þegar honum var ráðlagt að ráðast á Þjóðveija frá hlið meðfram Somme til að komast aftan að byssuvígjum þeirra: „Ég hef gefíð mínar skipanir og þeim verður ekki breytt." De Tlaulle hafði sjálfur kennt að safna ætti skriðdrekum á einn stað, en hann skipti liðsafla sínum í þrennt 30. maí og Þjóðveij- ar gereyddu þeim skriðdrekum Frakka, sem eftir voru. Tuttugu og fimm árum síðar gagnrýndi næstráðandi de Gaulles hann harkalega í bréfi til vinar síns að sögn de Waillys. í bréfínu átaldi næstráðandinn „bráðabirgðalausn“ de Gaulles við Mont de Caubert, þá yfirsjón hans að láta ekki stórskota- lið veija skriðdrekana þegar þeir réðust til atlögu og þau mistök að samstilla ekki sóknaraðgerðir skrið- dreka og fótgönguliðs. Þjóðveijar fengu liðsauka á öðrum degi orrustunnar og annan liðsauka daginn eftir. Samt réðst de Gaulie aftur til atlögu og ménn hans sóttu upp hlíðar Mont de Caubert, en kom- ust ekki upp á tindinn. Þjóðveijar gerðu gagnárásir, en Frakkar héldu því svæði, sem þeir höfðu náð. Bret- ar leystu Frakka af hólmi með 51. hálandaherfýlki sínu frá Skotlandi og de Gaulle hörfaði með 4. franska herfylkið til Beauvais sunnan vígstöðvanna og endurskipulagði lið sitt. Stuðningsmenn de Gaulles sögðu að hann hefði stjórnað einu sókn Frakka í orrustunni um Frakkland og unnið eina sigur þeirra á óvinin- um. Viðureignin við Abbeville væri eina dæmi þess að frönsku land- svæði hefði aftur verið náð af skrið- drekum Þjóðveija og haldið. De Gaulle var hins vegar í engum vafa um að hann hafði tapað orrustunni, en ákvað að halda baráttunni áfram — frá „nýlendum Frakka handan hafsins" eða hvaðan sem væri. „Frakkar hafa tapað orrustu, en . ekki stríðinu," sagði hann skömmu síðar og leit á sig sem frelsara Frakklands. Keppinauturinn Aðeins munaði tveimur kílómetr- um að de Gaulle tækist að ná tak- markinu við Abbeville með lokaárás. Hann var leystur af hólmi og við tók ofursti, sem var keppinautur hans og almennt fyrirlitinn. Ofurstinn stjórnaði öðru brynfylki í lokasókn- inni gegn Mont de Caubert. Hálandaherfylki Skota leysti fót- göngulið Frakka af hólmi og tók Mont de Caubert með áhlaupi 4. júní. Frakkar og Skotar röbbuðu saman í bróðerni á hæðarkambinum og biðu eftir skipunum, en þær bár- ust aldrei. Þeir hörfuðu þegar Þjóð- veijar gripu tækifærið til þess að ná aftur fótfestu sunnan Somme við Abbeville. Þá var Abbeville orðin algert aukaatriði. Þýzki herinn var aftur kominn á hreyfingu eftir hléð við Dunkirk, sveigði suður á bóginn, sótti viðstöðulaust til Bordeaux í Suðvestur-Frakklandi og Lyon í Mið-Frakklandi og tók tæplega tvær milljónir Frakka til fanga á leiðinni. Keppinautur de Gaulles — „ofurstinn sigursæli" — flúði til Vichy, þar sem hann varð yfirmaður lífvarðar Péta- ins marskálks, leiðtoga frönsku kvislingastjórnarinnar. Hann stjórn- aði síðan árásum á frönsku and- spyrnuhreyfinguna og var hnepptur í fangelsi 1945 fyrir samstarf við Þjóðveija í stríðinu. Glæstari framtíð beið Charles de Gaulles hershöfðingja, þótt hann hefði beðið ósigur. Orrustuskýrslur hans voru svo sannfærandi, segir de Wailly, að hann var sæmdur heið- ursmerkjum. Hann var tekinn í frönsku stjórnina og skipaður vara- hermálaráðherra. I því starfi hitti hann Winston Churchill og de Wailly segir: „Churchill stóð frammi fyrir vígreifum herforingja, sem hafði skipulagt viðnám löngu áður en Frakkland féll, aðdáunarverðum manni, ekki sízt vegna hugrekkis, sem hann hafði sýnt þegar hann lét kúlur og skot sem vind um eyru þjóta á vígvellinum. Á sama tíma og örvænting ríkti alls staðar annars staðar gerði Abbeville hann frægan og allar dyr stóðu honum opnar. í London fann hann loks sitt rétta hlutverk." De Gaulle varð leiðtogi „Fijálsra Frakka," sem neituðu að gefast upp. Eftir margra ára sjálfskipaða innan- landsútlegð að stríði loknu hófst annar kafli hans í sögu Frakklands þegar hann stofnaði Fimmta franska lýðveldið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.