Morgunblaðið - 17.06.1990, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.06.1990, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MEIMNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1990 C 21 í í skugga Zeppelin LED Zeppelin breytti ásýnd breskrar rokktón- listar með sinni fyrstu plötu og enn eru áhrif sveitarinnar töluverð. að er erfitt að hafa verið í slíkri sveit og ætla að reyna að spreyta sig á eigin spýtur. Það hefur Robert Plant reynt. Plant hefur gert fjölmargar tiiraunir til að koma undir sig fótunum eftir að Zeppelin hætti, en það er eins og menn séu alltaf að bíða eftir því að sveitin byiji aftur. Á blaðamannafundi sem Plant hélt í New York fyrir skemmstu til að kynna Robert Plant í skugga Led Zeppelin. nýjustu plötu sína, Manic Nirvana, var fyrsta spurning- in einmitt hvort Zeppelin myndi byrja aftur. Plant svar- aði því með þjósti og sagði það af og frá og vildi frekar ræða um plötuna nýju, en löngu dauða hljómsveit. Manic Niiwana þykir al- mennt eitt besta plata Plants. Sveitin á plötunni er nú með Plant á ferð um Bandaríkin að kynna hana, en þess má til gamans geta að Manic Nirvana er tekin upp í Olympic-hljóðverinu í Lund- únum, sama hljóðveri og Led Zeppelin I var tekin upp í. Upptökutími er þó ólíkur á þessum tveimur plötum, því það tók 60 daga að vinna Manic Nirvana, en Led Zepp- elin I var tekin upp á 36 tímum. Salif Keita í Hótel íslandi S ALIF KeiLi hélt hér á andi eftirminnilega tón- leika í síðustu viku í Hótel Islandi. Svo virtist sem frá- bærar undirtektir áheyr- enda kæmu honum á óvai-t. Istuttu spjalli sagðist Salif og ekki hafa átt von á slíkum viðtökum. Hann hefði ekki gert sér háar vonir um að Islenski áheyrendur þekktu vel • til tónlistar hans, en meðbyrinn hefði gert hljóm- sveitina enn betri en hún væri jafnan; hann hefði seint eða aldrei heyrt í sveit sinni betri en þetta kvöld og hann hefði spilað mun lengur en hann ætti venju til. DÆGURTONLIST Hver erBreathless Mahoney? DRAUMURMADONNU í SUMAR verður sýnd bíó- myndin Dick Tracy í Bandaríkjunum og al- mennt talið að þar sé kom- in vinsælasta mynd sum- arsins þar vestra, sem þýðir milljónatuga veltu. Með aðalhlutverk í inynd- inni fara tvær sljörnum sem þurfa mjög á slíkri velgengni að halda; Warr- en Beatty og Madonna. Madonna er tvímælalaust .vinsælasta og fremsta poppsöngkona þessa ára- tugar og ekkert bendir til annars en að vinsældir hennar eigi enn eftir að aukast. Henni er þó ekki nóg að vera bara popp- stjarna; helsti draumur hennar er að slá í gegn á hvíta tjaldinu. Kvikmyndimar hafa löngum heillað popp- ara, þó fæstir hafi þeir náð teljandi árangri þar. Eina poppstjarnan, sem náð hef- ur lengra í kvik- myndum en að leika í oinni eða tveimur myndum er EIvis eftir Árna Presley, Matthíosson en varla er hægt að telja hann með. Dæmi upp stjömur sem hafa slegið í gegn í einni mynd og síðan nánast horfið eru Sting, David Bowie, Prince og Madonúu sjálfa, því á eftir þokkalega heppnaðri mynd (Desperately Seeking Susan) kom mynd sem var gjörsamlega misheppnuð (Shanghai Express). Mad- onna leggur því mikið undir í Dick Traey, því ef henni tekst ekki vel upp að þessu sinni má telja kvikmynda- ferilinn búinn. í myndinni leikur Mad- onna söngkonu á nætur- klúbb á fjórða áratugnum, Breathless Mahoney. Hlut- verk Breathless var samið sérstaklega fyrir hana, því engin slík var upphaflega í Madonna Búningana í Blonde Ambition-ferð- inni teiknaði Jean Paul Gaultier teiknimyndaseríunni sem myndin er byggð á. Á plötu sem kom út með Madonnu fyrir skemmstu, I’m Breat- hless, syngur hún einmitt lög úr myndinni sem Steven Sondheim samdi og eru mjög í ætt við mjúka sveiflu þeirra tíma. í þeim bregður Madonna sér í hlutverk tæi- andi klúbbasöngkonu og leikur það svo vel að erfitt er að greina hina raunveru- legu Madonnu á bak við satínið og reykinn. Segja má að þar skipi hún sér að bekk með Marlene Dietrich, Marilyn Monroe og fleiri kyntákna hvíta tjaldsins. Til að tryggja plötusölu er svo á plötunni lagið Vogue, sem hefur verið vel vinsælt; framúrskarandi nútímalegt danslag og nokkuð á skjön við annað á plötunni. Það fer ekki á milli mála að Madonna er framúrskar- andi hæfileikamikil söng- kona sem virðist geta ' 1 > x . t f'. > Breathless Mahoney Hin raun- verulega Madonna? Að duga eða Sveitasveifla Knopflers DIRE Straits var lengi að vinna sér álit hjá almenn- ingi, en þegar það tókst varð sveitin, undir leiðsögn Marks Knopflers, ein fremsta poppsveit heims. egar síðast plata sveit- arinnar, Brothers in Arms, hafði selst í risaupp- lagi lýsti Knopfler yfir því að hann væri að íhuga að leysa sveitina upp. Fyrir tveimur árum fékkst hann við að stýra upptökum á plötu gamalla kunningja, Steve Phillips og Brendans Crokers. Fjórði var hljóm- borðsleikari Dire Straits, Guy Fletcher, og svo skemmtu þeir félagarnir sér að til varð sveitin The Notting Hillbiilys og platan Missing ... Pres- umed Having a Good Time. Missing ... er plata Knopfl- ers fyrst og fremst, því þó hinir leggi drjúgt af mörkum, þá er það Knopfler sem hafði ávallt síðasta orðið og gítar- leikur hans sem skín hvar- vetna í gegn á plötunni. Dire Straits segist hann ætla að endurreisa í haust, en starfið með Notting Hillbillys eigi eftir að skila sér í tónlist Dire Straits. brugðið sér í hvaða gervi sem er og víst er að hún hefur hæfileikana til að ná á toppinn í kvikmyndaleik, en það er víst ekki alltaf nóg. Því er svo við að bæta að Madonna hyggst gera sjálf mynd eftir að hún hef- ur lokið tónleikaferð til að íýlgja eftir plötunni og á Warren Beatty að stýra gerð þeirrar myndar. Einnig gengur fjöllum hærra að hún hyggist leika í mynd sem dóttir Davids Lynch er að gera og þykir alldjörf. Reyndar hefur tónleika- ferðin, sem farin er undir því viðeigandi heiti ljós- hærður metnaður (Blonde Ambition), sem hófst í Jap- an fyrir skemmstu minna á ævintýraheim ekki síðri en þann sem birtist í Dick Tracy og klæðaburður stjörnunnar, sem hannaður er af Jean Paul Gaultier, þykir í rneira lagi djarfur. Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir Geiri Sæm Það má ekkert klikka. eiri og félagar gerðu fyr- stuttu svokallaðan „demó“-samning við stórfyr- irtækið A&M í Bretlandi. Björninn er þó ekki þar með unninn, því mikið er eftir, en þetta er þó jafnan fyrsta skrefíð fyrir hljómsveitir og ekki það minnsta. Geir sagði í spjalli að hljóm- sveitin væri að undirbúa sig fyrir kynningartónleika sem til stæði að halda fyrir menn frá A&M, sem kæmu hingað til lands til að hlusta á sveit- ina, en einnig kæinu einhveij- ir frá öðrum fyrirtækjum, til að halda öllu opnu. Hann sagði að sveitin æfði fjóra til sex tíma á dag, enda væri verið að æfa inn tvo nýja menn og ný lög. Hann sagði sveitina hafa verið ytra og hljóðritað nokkur lög, sem mönnum hjá A&M hefði litist afskaplega vel á, en þeir ættu enn eftir að sjá hljómsveitina á sviði og því erfitt að sjá fyrir framhaldið. „Það er komið að því að vinna af al vöru og við leggjum nótt við dag til að undirbúa sveitina fyrir þessa kynningartónleika og förum utan fljótlega eftir þá.“ Tónleikamir verða um miðjan júlí eða lok jfllí, eftir því hvernig sveitinni gengur að undirbúa sig. „Það er bara að duga eða drepast. þetta er komið þetta langt og nú má ékkert klikka.“ Sveitasveiflusveit Steve Phillips, Mark Knopfler, Guy Fletcher og Brendan Croker. drepast ÞAÐ er mikil vinna við að koma sér áfram ytra og gerist ekki fyrir tilviljun. Einn þeirra sem reynt hefur að ná samningi við erlend plötufyrirtæki er Geiri Sæm með sveit sípa og hon- um hefur orðið nokkuð ágengt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.