Morgunblaðið - 17.06.1990, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1990
C 13
Afmæliskveðja:
Pétur M. Jónasson,
Kaupmannahöfti
Dr. Pétur Mikkel Jónasson, pró-
fessor í vatnalíffræði við Hafnarhá-
skóla, verður sjötugur á morgun
18. júní. Hróður hans hefur borist
víða um heim vísindanna, en ekki
er víst að allir hér heima viti deili
á manninum eða afrekum hans.
í meira en hálfa öld hefur hann
dvalist á erlendri grund, en verið
jafnan tryggur ættjörð sinni og vitj-
að hennar eins oft og færi hefur
gefist. Að loknu stúdentsprófi árið
1939 hélt Pétur utan til náms við
Háskólann í Kaupmannahöfn og
varði þar doktorsritgerð sína 1972
um Esrom-vatnið á Norður-Sjá-
landi. Hann .var ráðinn lektor við
skólann 1969 og prófessor í vatna-
líffræði 1977, sá eini sem þeirri
stöðu gegnir við Hafnarháskóla.
Vatnalíffræðistofnunin hefur aðset-
ur í Hillerod og þar hefur Pétur
haldið um stjórnvölinn við góðan
orðstír eins og fram hefur komið
við úttektir á deildum skólans.
Pétur er nú kominn að þeim
vatnamótum í lífi sínu þegar flestir
hægja á ferðinni eða láta staðar
numið og róa í land. En það á ekki
við um Pétur. Hann er einlægur
athafnamaður og kemur mörgu í
verk sem öðrum vex í augum. Og
sennilega hefur hann aldrei haft
eins mörg járn í eldinum og einmitt
nú. Árið 1979 lauk margháttuðum
rannsóknum á Mývatni undir stjórn
Péturs og voru þær kynntar sama
ár í vönduðu riti og hefur síðan oft
verið í það vitnað í greinum um
lífríki vatna. Frá 1974 hefur hann
einnig staðið fyrir svipuðum, en
öllu viðameiri, rannsóknum á vist-
fræði Þingvallavatns og sér brátt
fyrir endann á þeim. A næsta ári
má búast við að út komi mikil bók
um vatnið með ritgerðum vísinda-
manna og verða nokkrar þeirra
lagðar fram til doktorsvarnar.
Hér eins og ævinlega hefur Pétur
verið driffjöðurin því að honum er
einstaklega lagið að hrífa menn til
samstarfs hvert sem viðfangsefnið
er.
Fyrir afrek sín í vsindum hefur
Pétri verið sýndur margs konar
sómi og er þess enginn kostur að
tíunda það allt. Hann er einn fárra
íslendinga sem valdir hafa verið í
Norsku vísindaakademíuna og er
einnig félagi í Hinu konunglega
danska vísindafélagi og Vísindafé-
lagi íslendinga. Arið 1987 hlaut
hann Naumann-Thienemann verð-
launin fyrir „framúrskarandi rann-
sóknir í vatnalíffræði“ og er þetta
æðsta viðurkenning'sem vísinda-
manni í þeirri grein getur hlotnast.
Á síðastliðnu ári var hann kjörinn
forseti heimssamtaka vatnalíffræð-
inga á þingi þeirra í Munchen í
Þýskalandi.
Á tímum aukinnar sérhæfingar
er gott til þess að vita að Pétur er
ekki við eina fjölina felldur þegar
vísindi eru annars vegar. Um leið
og hann er í forystusveit vatna-
líffræðinga í heiminum hefur hann
reynst ötull liðsmaður hugvísinda
sem forseti Hins íslenska fræðafé-
lags í Kaupmannahöfn. Hann tók
við því embætti að Jóni Helgasyni
prófessor látnum. Það var stofnað
árið 1912 til að gefa út rit um
íslenskt efni, einkum bókmenntir
og sögu. Fyrir dugnað Péturs og
brennandi áhuga hefur nú tekist
að gefa út í Ijósprenti öll ellefu bindi
Jarðabókar Árna Magnússonar og
Páls Vídalíns ásamt tveimur viðbót-
arbindum.
Við viljum færa hinum síunga
vísindamanni og húmanista árn-
aðaróskir okkar og einnig Dóru
Gunnarsdóttur konu hans og dætr-
um þeirra tveimur.
Gunnar F. Guðmundsson
Gunnar Steinn Jónsson
Ragnheiður Þorláksdóttir
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Sportjakkar
Verð frá kr. 6.800,- Margir litir
v/Laugalæk, s. 33755.
ANYLENDUVORUM
á vegum þrotabús Grundarkjörs hf.
veröur haldin á Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði.
ALLAR VÖRUR SELJAST MEÐ
Salan stendur yfir í takmarkaðan tíma
Salan hefst mánudaginn 18. júní n.k. kl. 9.00.
Opið verður frá kl. 9.00 tii kl. 18.00.
Skútustaðahreppur:
Fyrsti fundur
sveitarstjórnar
Björk, Mývatnssveit.
FYRSTI fundur nýkjörinnar
sveitarsljórnar Skútustaðahrepps
var haldinn 13. júní. Við kosning-
arnar 26. maí fékk F-listinn þrjá
fulltrúa kjörna og hreinan meiri-
hluta. H-listinn fékk einn fúlltrúa
og K-listi einn.
Á fundinum var Sigurður Rúnar
Ragnarsson kosinn oddviti og Þuríð-
ur Snæbjarnadóttir varaoddviti,
bæði af F-lista. Fulltrúar minnihlut-
ans höfðu með sér samvinnu við
kjör í nefndir á vegum sveitarfélags-
ins. Ákveðið var að auglýsa starf
sveitarstjóra. Jón Pétur Líndal sem
gegnt hefur starfi sveitarstjóra í
Mývatnssveit síðastliðið kjörtímabil
lætur af störfum næstu mánaðamót
samkvæmt eigin ósk. Ástæða er til
að færa honum þakkir fyrir ágæt
störf á undanförnum árum.
Kristján
Þú svalar lestrarþörf dagsins
ásíöum Mogeans!
FEGRIÐ GARDINN OG BÆTIÐ
MEÐ SANDI,GRJÓTI OG ÁBCIRÐI
SANDUR
SIGURSTEINAR VÖLUSTEINAR HNULLUNGAR
Pú færð sand og allskonar cjrjót hjá okkur
Vlð mokum þessum efnum a bíla eöa
í kerrur og afgreiðum líka í smærri
einingum, traustum plastpokum sem
þú setur í skottið á bílnum þínum.
Afgreiöslan við Elliðaár er opir
mánud.-föstud: 7.30-18.0
)in:
.00
lauaard:7.30-17.00
Ath. loKað í hádeginu
Nú bjóðum við enn betur: Lífrænan og ólíf-
rænanáburð, hænsnaskít, skeljakalk
og garðavikur. Öll þessi úrvals efni
eru sekkjuð í trausta plastpoka og
tilbúin til afgreiðslu.
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 13
SÍMI:68 18 33
EB. NÝR DAGUR .SlA