Morgunblaðið - 17.06.1990, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ FJÖLMIÐLAR SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1990
C 19
Hallar undaii feeti
hjá Observer
BRESKA vikublaðið The Obs-
ervcr mun hafa til athugunar
að segja upp starfsfólki. Halli á
rekstri blaðsins hefur aukist
síðan tvö ný sunnudagsblöð
komu til sögunnar í Bretlandi
og samkeppnin á þessum mark-
aði hefur harðnað. Tapið mun
nema 15-18 milljónum punda á
þessu ári og uppsagnirnar
munu spara eina milljón.
Observer hefur orðið harðar úti
en Sunday Times og Sunday Tele-
grapb í samkeppninni við nýju
blöðin - Sunday Correspondent,
sem dagblaðið Guardian hefur
fjárfest í, og Independent on
Sunday. Observer selst í fleiri ein-
tökum en bæði nýju blöðin til sam-
ans, en salan það sem af er þessu
ári er 22% minni en á sama tíma
í fyrra. Blaðið selst nú í aðeins
rúmlega 500.000 eintökum.
Sumir telja að bresku sunnu-
dagsblöðin - að Sunday Times
UllUclIlblAliUU
IIlUIll
tapci uiu ukj
milljónum punda á þessu ári.
FURÐUHEIMAR
FJÖLMIÐLANNA
(Óttaslegna deildin)
Þó hér sé ekki um að ræða mikla
hækkun né umfram það sem forsend-
ur kjarasamninga gerðu ráð fyrir
hafa ýmsir ótta af því að aðrir kunni
að hækka sínar vörur og þjónustu í
kjölfar þessarar hækkunar .. . Leifur
Guðjónsson sem hefur með verðlags-
mál að gera hjá Verkamannasam-
bandi Islands kvaðst hafa'ótta af því
að ýmsir myndu nota tækifærið til
að hækka sína vöru eða þjónustu.
Alþýðublaðið 13/6
Eitt ár frá stofiiun Upplýsingasíma 991000:
Reynslan sýnir að
þörfin er fyrir hendi
Morgunblaðið/Emilía
Pétur S. Hilmarsson starfsmaður Upplýsingasíma 991000 við
tækjakost þann sem gerir þjónustuna mögulega.
- segir Árni Zop-
honíasson, fram-
kvæmdastjóri
Miðlunar hf.
„Reynslan af þessu eina ári
sýnir að það er vissulega þörf
fyrir þjónustu sem þessa,“ sagði
Arni Zophoníasson, fram-
kvæmdasljóri Miðlunar hf., í
samtali við Morgunblaðið í til-
e&ii þess að eitt ár er nú síðan
fyrirtækið hóf starfsemi Upp-
lýsingasíma 991000. Arni sagði
að samkvæmt úttekt á notkun
síðastliðna tíu mánuði hefðu að
meðaltali 23.585 símnotendur
hringt á mánuði, eða um 786 á
dag.
Þjónusta Upplýsingasíma
991000 er í fimm liðum og geta
símnotendur valið hveija línu með
því að setja tölustafina frá einum
og upp í fimm aftast í símanúmer-
ið. Þannig fá menn dagskrárlínu
með því að velja 991001 en þar
eru veitta upplýsingar um dag-
skrá sjónvarpsstöðvanna. Númer
tvö er lukkkulína, en þar eru veitt-
ar upplýsingar um lottó og get-
raunir. Popplína er númer þijú
og er hún tvískipt. Annarsvegar
er um að ræða kynningar á nýjum
hljómplötum og ýmsar fréttir úr
dægurtónlistarlífinu. Hins vegar
geta menn spreytt sig á poppget-
raun. í íþróttalínunni, númer fjög-
ur, fá menn upplýsingar um úr-
slit leikja í 1. og 2. deild og
kvennaboltanum og að sjálfsögðu
frá heimsmeistarakeppninni með-
an á henni stendur. Þá eru veittar
upplýsingar um helstu íþróttavið-
burði næstu daga og ennfremur
er hægt að fá upplýsingar um
hvað er á dagskrá í íþróttaþáttum
sjónvarpsstöðvanna. Fimmta
línan er bíólína, þar sem sagt er
frá þeim kvikmyndum sem sýndar
eru í kvikmyndahúsum á höfuð-
borgarsvæðinu hveiju sinni.
Þjónusta Upplýsingasíma
991000 byggist á nýrri tækni og
samvinnu við Póst og síma, sem
leggur fram tækjakost og annast
innheimtu, en símtöl við Upplýs-
ingasímann kosta um 15 til 16
krónur á mínútu. Árni Zophonías-
son sagði að þjónustan hefi ekki
verið auglýst mikið til þessa enda
hefðu menn vilja fá reynslu af
starfseminni áður. Hún er nú fyr-
ir hendi og þykir lofa góðu, ef
marka má þann fjölda sem nú
þegar notfærir sér þessa þjonustu.