Morgunblaðið - 17.06.1990, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1990
C 25
Minning:
Guðlaugur Magnús-
son frá Kollsstöðum
Fæddur 31. ágúst 1893
Dáinn 8. júní 1990
Á morgun verður til moldar bor-
inn Guðlaugur Magnússon frá Kols-
stöðum í Dalasýslu. Hann fæddist
31. ágúst 1893, á. Gunnarsstöðum
í Hörðudal. Langlífi átti Guðlaugur
ekki langt að sækja því móðir hans
varð hundrað ára. Hún andaðist á
101. aldursári.
Foreldrar Guðlaugs voru hjónin
Ingiríður Kristjánsdóttir og Magnús
Magnússon bóndi á Gunnarsstöð-
um. Magnús mun hafa verið fjöl-
hæfur og mjög athafnasamur.
Hann var gildur bóndi, stundaði
járnsmíði og rak sveitaverslun um
30 ára skeið.
Guðlaugur ólst upp í föðurgarði
og stundaði að sjálfsögðu hin hefð-
bundnu sveitastörf og nam járn-
smíði af föður sínum. Snemma mun
hans handlagni hafa komið í ljós.
í þá daga var ekki auðvelt að verða
sér úti um menntun, hvorki til
munns né handar. Guðlaugur fór
ungur til Reykjavíkur og vann við
söðlasmíði hjá hinum þekkta söðla-
smið Baldvini Einarssyni. í
Reykjavík kynntist hann glæsilegri
mannkostakonu, Jóhönnu Magnús-
dóttur frá Bálkastöðum í Hrúta-
firði. Þann 16. júní 1921 gengu þau
í hjónaband og hófu búskap á Gunn-
arsstöðum.
Árið 1925 keyptu þau hjón jörð-
ina Kolsstaði í Miðdölum í Dala-
sýslu og bjuggu þar í 22 ár, eða
til ársins 1947.
Kolsstaðir var annálað rausnar-
heimili og þar var oft mikill gesta-
gangur. Þau hjón voru líka samtaka
í því að rétta hjálparhönd þeim sem
voru minni máttar og þurftu á hjálp
að halda.
Um árabil fjölmenntu Hrútfirð-
ingar ríðandi á hið árlega hesta-
mannamót að Nesodda. Margir
gistu þá á Kolsstöðum. Þá var
margt skrafað og glatt á hjalla.
Veitingar voru bornar fram af mik-
illi rausn og ekkert til sparað að
gera sem best við gestina. Ég veit
—.að margir eldri Hrútfirðingar minn-
ast Kolsstaðaheimilisins með þakk-
látum huga.
Ég held að blómaskeið þeirra
hjóna hafi verið á Kolsstöðum. Þar
fæddust börn þeirra og af gömlum
kunningjum voru þau alltaf kennd
við Kolsstaði.
Fyrir nærri hálfri öld, á fögru
hausti 1941, var undirritaður kom-
inn á nýjar slóðir til að takast á
við nýtt verkefni. Ég var ráðinn
farkennari í Miðdölum í Dalasýslu.
Ég er afar þakklátur öllum Miðdæl-
ingum fyrir hve vel þeir tóku mér
og vildu ætíð allt fyrir mig gera.
Guðlaugur kvaddi þennan heim
síðastur þeirra bænda er þá bjuggu
í Miðdölum.
Á Kolsstöðum byijaði ég minn
Sæmundur Friðriks-
son - Kveðjuorð
Fæddur 22. mars 1962
Dáinn 3. maí 1990
í harmanna helgilundum
hugur minn unir sér.
Þar líða í laufinu bleika
Ijóðin sem kvað ég þér.
Að æskunnar yndisfegurð
var enginn líki þinn.
I gáskans léttúð og leiki
þú leiddist seinna inn.
Minningarsjóður
Skjnls
Sími 688500
í harmanna helgilundum
hugur minn unir sér.
Ég krýp þar á hverju kvöldi
í kyrrðinni og bið fyrir þér.
(Tómas Guðmundsson)
Ég votta ástvinum hans einlæga
samúð og þakka Sæma fyrir vin-
áttu og kynni.
Elfa K. Sigurðardóttir
LEGSTEIIMAR
GRANÍT - MARMARI
Helluhrauni 14, 220 Hafnafjörður,
pósthólf 93, símar 54034 og 652707.
LEGSTEINAR
MOSAIK H.F.
Hamarshöfða 4 — slmi 681960
kennsluferil. Aldrei get ég fullþakk-
að þá miklu umhyggju og uppörvun
sem ég fékk á því heimili.
Fyrsta búskaparárið á Kolsstöð-
um lenti Guðlaugur í mikilli þrek-
raun. Framan af vetri var einmuna-
tíð og féð var frammi í svonefndum
Geldingadal. Skyndilega snemma í
desember (6. des.) skipast veður í
lofti og síðdegis brestur á norðan
stórhríð. Guðlaugur fór ásamt eldri
manni, Þorsteini Daðasyni, að
reyna að koma fé í hús. Þeir félag-
ar voru komnir langleiðina heim
með féð er Þorsteinn gafst upp og
ekki um annað a_ð ræða en láta
skefla yfir hann. (í þessu ofsaveðri
urðu a.m.k. tveir Dalamenn úti.)
Guðlaúgur vakti alla nóttina yfír
félaga sínum og reynda að halda
honum vakandi. Um morguninn
rofaði til og Guðlaugi tókst að koma
Þorsteini heim ósködduðum. Þarna
sýndi Guðlaugur miklá karl-
mennsku og þrautseigju. En ör bar
hann eftir þennan atburð alla ævi
því hann kól í andliti.
Guðlaugur hafði yndi af hestum
og kunni á þeim góð tök og ekki
sparaði hann við þá fóður. Mér er
minnistætt hvað mér fannst reið-
hestar á Kolsstöðum vera stríðaldir.
Árið 1928 var hestamannafélag-
ið „Glaður“ í Miðdölum stofnað og
var Guðlaugur meðal stofnfélaga.
Hann vann mikið fyrir það félag
og sá m.a. í mörg ár um veitingar
á hestamannamótum að Nesodda.
Guðlaugur var gerður að heiðursfé-
laga hestamannafélagsins 1972.
Eins og áður hefur komið fram,
vann Guðlaugur við söðlasmíði áður
en hann hóf búskap. Hann var sér-
lega handlaginn og smíðaði töluvert
af hnökkum og gerði við ýmsa hluti
fyrir nágrannana. Einnig var hann
góður járnsmiður og smíðaði mikið
af skeifum. Þessi aukavinna kom
sér vel þegar mæðiveikin illræmda
tók að höggva stórt skarð í bústofn-
inn.
Árið 1947 bregða Kolsstaðahjón-
in búi og flytja til Reykjavíkur.
Fyrst vann Guðlaugur við uppsetn-
ingu landbúnaðarsýningar, sem
haldin var þá um sumarið. Þegar
því verkefni var lokið fór hann að
vinna í frystihúsinu Herðubreið og
síðar inni á Kirkjusandi hjá Afurða-
sölu Sambandsins. Eftir að hann
hætti um sjötugt hjá Afurðasölunni
vann hann mörg ár hjá Reykjavík-
urborg.
Jóhanna, eiginkona Guðlaugs,
andaðist 1979. Síðustu tvö árin átti
hún við mikla vanheilsu að stríða,
en lá lengst af heima. Það var að-
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
J) blómaverkstæðil
PINNAatl
Skólavörðustíg 12
á horni Bergstaðastrætis
sími 19090
Bi fa
Friðfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opi&öllkvöld
tll kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Það var mikið áfall þegar Magna,
hin glæsilega þróttmikla kona, and-
aðist í blóma lífsins. Við þetta mót-
læti sýndu þau hjón mikinn sálar-
styrk.
Fljótlega eftir að Guðlaugur varð
ekkjumaður fékk hann inni á Dval-
arheimili aldraðra að Dalbraut. Þar
undi hann hag sínum vel. Hann var
nægjusamur og þakklátur fyrir allt
sem fyrir hann var gert.
Þegar ég spurði hann um að-
hlynningu og starfsfólk brosti hann
sínu sérkennilega brosi og sagði:
„Það getur ekki verið betra og ég
held það sé ekki til betra fólk.“
Þetta lýsir Guðlaugi vel, hann var
sáttur við allt og alla og yfir honum
hvíldi innri friður og ró.
Guðlaugur var gæddur mikilli
seiglu og styrk, sem kom best í Ijós
þegar mest á reyndi. Það kom fram
í líkamlegri þrekraun í bylnum forð-
um og miklum sálarstyrk í þungum
harmi við fráfall dóttur og eigin-
konu.
Guðlaugur var sérlega heilsu-
hraustur fram á tíræðisaldur. En
síðustu árin voru kraftar þrotnir
og hann hættur að geta tjáð sig.
Þá naut hann góðrar umönnunar á
hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Guðlaugi fyrir einlæga vináttu og
allt sem hann gerði fyrir mig. Ég
kveð þennan hógværa, iðjusama og
þrautseiga öldung með virðingu og
þökk.
Aðstandendum færi ég samúðar-
kveðjur.
Þorsteinn Ólafsson
+
INGIBJÖRG JÓHANNSDÓTTIR,
Eskihlíð 18 a, Reykjavík,
lést á heimili sínu 13. júní sl.
Útförin fer fram í Fossvogskapellu 22. júní kl. 1 5.
Ragnheiður Jóhannsdóttir,
Guðmundur Gunnarsson, May Gunnarsson,
Jóhann Gunnarsson,
Friðrik Bergsveinsson, Sigrún Olgeirsdóttir,
Guðmundur J. Bergsveinsson, Ásgerður Ágústsdóttir,
Gréta B. Bergsveinsdóttir, Stefán Kristjánsson,
Kristín Þ. Bergsveinsdóttir, Hjörleifur Kristjánsson.
t
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og vinar-
hug vegna andláts og jarðarfarar
INGIBJARGAR BJARNADÓTTUR JACOBSEN,
Gilsbakka,
Blesugróf.
Sérstakar þakkirfærum við starfsfólki á deild 11G á Landspítalanum.
Gunnar Björnsson,
Jacob Jacobsen, Þórunn Lárusdóttir,
Kristjana Jacobsen, Björgvin Björgvinsson,
Björn Gunnarsson, María Gunnarsson
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
SNORRA MAGNÚSSONAR
rafvirkjameistara,
Furugerði 11,
Reykjavík.
Svava Snorradóttir,
Magnús Snorrason,
Elínbjörg Snorradóttir
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, er sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og minningarathöfn ástkærs eiginmanns,
föður, sonar, bróður og tengdasonar,
ÞÓRÐAR MÁS ÞÓRÐARSONAR,
Rauðási 21,
Reykjavfk,
sem lést af slysförum laugardaginn 12. maí. Sérstakar þakkir
færum við þeim fjölmörgu, er þátt tóku í leit og björgunarstarfi
á slysstað.
Arndis V. Sævarsdóttir,
Ruth Þórðar,
Unnur Haraldsdóttir, Þórður Þ. Kristjánsson,
Kristján Þórðarson, Helga Þórðardóttir,
Unnur Þórðardóttir, Ómar Þórðarson,
Haraldur Þórðar Guðmundsson,
Júlíana Ruth Woodward, Árni Guðmundsson.
dáunarvert hvernig Guðlaugur ann-
aðist hana og hversu vel honum
háöldruðum fórust heimilisstörfín
úr hendi.
Jóhanna og Guðlaugur eignuðust
tvö börn; Mögnu f. 1928, d. 1969,
en hún var gift Þorleifi Björnssyni
símvirkja, og Jóhann f. 1930, bif-
reiðastjóri, giftur Steinunni Magn-
úsdóttur. Barnabörnin eru 7, allt
drengir. Mér er minnistætt að
síðustu skiptin sem ég heimsótti
Guðlaug á Dalbraut þá fannst mér
hugur hans snúast mikið um barna-
börnin, duglegu drengina. Með
glampa í augum og bros á vör tal-
aði hann urn velgengni þeirra.