Morgunblaðið - 17.06.1990, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ VELVAKANDI SUNNUDAGUR 17. JÚNÍ 1990
C 29
✓ _
Morgunblaðið/Þorkell
Asgeir Svanbergsson
mest er þetta þó útivinna. Okkur
iíkar ágætlega að vinna hérna þótt
veðrið geri stundum strik í reikning-
inn. Sumarið í fyrra var hræðilegt
en oftast er engin ástæða til að
kvarta. Það var oft sólskin og blíða
í maí en það er eins og sumarið
hafi komið á sama tíma og venju-
lega í ár, 1. júní, með roki og rign-
ingu,“ sögðu stúlkurnar. Aðspurðar
sögðu þær að launin væru ekkert
sérstaklega há en þó væri hægt að
skrimta á sumarhýrunni til vors
með sparsemi og vinnu í jólaleyfinu.
Að loknu þessu stutta spjalli fóru
stöllurnar inn í kaffistofu til að ylja
sér eftir rokið, rigninguna og kuld-
ann uppi á Hólmsheiði. Af hlátra-
sköllunum úr kaffistofunni mátti
ráða að unga fólkið léti ekki reyk-
víska sumarveðrið spilla lífsgleð-
inni.
Burt með
stöðumælana
Til Velvakanda.
erslunareigendur við Laugaveg
og í miðbænum kvarta sáran
yfir því að lítið sé að gera. Hver
verslunin á fætur annarri hættir
og ljölmargt verslunarhúsnæði
stendur autt. Hver er ástæðan?
spyrja þeir sjálfa sig. í nútímaþjóð-
félagi skipar bifreiðin stóran sess í
lífi flestra og það verða verslunar-
eigendur að athuga. Þeir sem eiga
bifreið vilja fara á bíl sínum í bæinn
og fá stæði sem næst þeim stað sem
þeir ætla að sækja þjónustu til.
Veðráttan á efiaust sinn þátt í því.
Á sínum tíma var lengdur tími
stöðumælanna þannig að fyrir
fimmtíu krónur fæst klukkutími og
átti það að vera hluti af lausn
vandamáls miðbæjarins. En það er
súrt að borga fimmtíu krónur þegar
ekki þarf að nota nema örfáar
mínútur af klukkustundinni. Og enn
súrara að fá stöðumælasekt ef
manni verður á að vera nokkrar
mínútur umfram klukkustundina.
Afleiðingar þessa eru að flestir leita
í Kringluna eða á aðra þá þjónustu-
staði þar sem næg bílastæði eru
og ekki þarf að greiða sérstaklega
fyrir bifreiðina.
Hvernig væri að nema á brott
alla stöðumæla við Laugaveginn og
í miðbænum? Hver verslun gæti
borgað leigu fyrir þrjú til fjögur
stæði svo borgin fengi einhverjar
tekjur af bílastæðunum. Það nægir
ekki að byggja stórar og glæsilegar
bílageymslur í nágrenninu þegar
fólk sem sækir verslun og þjónustu
vill komast sem næst staðnum sem
það sækir í, sérstaklega þegar um
skamma viðdvöl er að ræða.
Það þýðir ekki lengur að segja
að það sé leti að nenna ekki að
ganga allan Laugaveginn eða að
fólk geti bara tekið strætó eða dreg-
ið fram hjólin og hjólað í miðbæinn.
Þetta hefur verið sagt lengi en eng-
inn er tilbúinn að fara eftir því.
Þrátt fyrir mengun og önnur þau
vandamál er bifreiðum fylgir er það
staðreynd að bifreiðin er stór hluti
af lífi flestra og verslunareigendur
og aðrir í miðbænum verða að horf-
ast í augu við þá staðreynd.
FÖRÐUNARNÁMSKEIÐ
íslandsmeistari í förðun, Lína Rut, kennir dag- og kvöldförðun
á kvöld- eða helgarnámskeið. Rík áhersla verður lögð á
persónulega tilsögn og því ein.ingis 6 saman i hóp.
Einnig er möguleiki á einka- eða hóptímum í almennri förðun,
Ijósmyndaförðun, tískusýningaförðun, fantasíuförðun o.fl.
Innritun og nánari upplýsingar hjá Förðunarmeistaranum,
Laugavegi 33b, í síma 620040 alla virka daga milli kl.
12.00-18.00.
MAKE UP
FOR EVER
PROfESSIONAL MAKE UP
Hjá Förðunarmeistaranum er einnig hægt að panta tíma í
förðun fyrir öll tækifæri.
Listahátíð á
Islandi frek-
ar en Lista-
hátíð í Rvík
Til Velvakanda.
Það er allt svo mikið hjá mér,“
sagði karlinn. Þetta datt mér í
hug þegar ég las þau ummæli form-
anns Listahátíðar, Valgarðs Egils-
sonar, að aðsókn hefði verið áber-
andi góð að tvennum tónleikum
Vínardrengjakórsins. Honum láðist
að geta þess að fyrstu tónleikar kórs-
ins hérlendis voru haldnir á Akur-
eyri þar sem var troðfullt hús, nærri
600 manns af Norðurlandi og Aust-
flörðum.
Það er nokkuð merkilegt dæmi
um áherslur fjölmiðlanna að í þeim
skuli ekki hafa verið minnst á þessa
tónleika, en þá tekur steininn úr
þegar sjálfur formaður hátíðarinnar
þykist ekki muna eftir þeim.
Af hveiju er þetta annars kallað
Listahátíð í Reykjavík, en ekki Lista-
hátíð á íslandi, fyrst það er ríkissjóð-
ur sem borgar brúsann?
Ragnhildur Kristjánsdóttir
Leitar að
fjölskyldu
Yelvakanda hefur borist bréf frá
Brian Thomas sem búsettur
er í Bretlandi. Faðir hans, Cyril J.
Thomas, starfaði í Reykjavík sem
útvarpsvirki með RAF í síðari
heimsstyijöldinni og á þeim tíma
kynntist hann fjölskyldu í
Reykjavík. Faðir hans lést 1950 en
móðir hans, Sylvia 80 ára, kemur
til Reykjavíkur snemma í júlí og
langar til að hitta einhveija af vin-
um föður hans. Þess má geta að
uppáhaldslag föður hans var
„Beautiful Dreamer“. Þau hafa í
fórum sínum nöfn, bréf og póst-
kort, en engin heimilisföng. Nöfnin
sem móðir hans man eftir voru
Stína og Pétur Sigurðsson, líklegt
heimilisfang Lindargata 39. Börn
þeirra voru Gísli, Geir, Svava og
Sigurður. Geir mundi nú vera um
47 ára og Sigurður um 49 ára. Ef
einhver skyldi muna eftir Cyril J.
Thomas fylgir heimilisfang og
símanúmer svo hægt væri að kom-
ast í samband við Brian Thomas:
2, Rutland Place,
Newport,
Gwent. NP 2EL.
Great Britain.
Sími: 633-259703.
Af hvetju ekki að prófa að af-
nema gjald í stöðumælana og sjá
hver árangurinn yrði? Reyndar
myndi borgin missa einhveijar tekj-
ur á þeim tíma en er það ekki þess
virði til að fá fólkið til að sækja á
ný í þau fyrirtæki sem eru í mið-
bænum?
Bifreiðaeigandi
Royal
í rjomatertuna
ROYAL vanillubúðingur sem millilag í tertuna.
Sjá leiðbeiningar
á pakkanum.
ENSKUNAM
sól ogsum
Angloschool
hefur notið ómældra vinsælda
íslendinga um árabil en hann er einn virtasti
enskuskóli í London. Þangað sækir fólk á öllum
aldri, byrjendur jafnt sem lengra komnir.
Kennsluvikan er 30 stundir og búa nemendur á
völdum einkaheimilum. Morgun- og kvöldverður
fylgir en fullt fæði um helgar. Angloschool er í
skemmtilegu umhverfi, íþróttaaðstaða er frábær
| .rflíÖWTTr °g félagslífið blómstrar.
3. vikna námskeið hefjast:
18. júní, 25. júní, 23. júlí, 20. ágúst
Kostnaður utan flugfargjalda í 3 vikur er 612 pund
TíTfllYr*' Innifalið er 3 vikna nám með kennslugögnum,
'l|||' ’ dvöl í einkaherbergi með Va fæði, akstur frá flug-
velli í London, skattar, leyfisgjöld og skráning.
Tilvalið er að nýta sumarleyfið til að auka við
kunnáttuna - og það er öruggt að sá tími verður
jafnframt skemmtilegur!
Frekari
upplýsingar
0
20620 • 44122
C