Morgunblaðið - 12.07.1990, Side 30

Morgunblaðið - 12.07.1990, Side 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990 ^CO Atvinnulífið: Fyrirtæki lok- uð eða verður lokað vegna sumarleyfa STARFSEMI margra af stærstu fyrirtækjunum á Akureyri verð- jir í lágmarki eða jafiivel engin næstu vikur vegna sumarleyfa. Álafoss, K.Jónsson, Slippstöðin og Utgerðarfélag Akureyringa loka ýmist að öllu eða nokkru leyti vegna sumarleyfa. Birgir Marínósson, starfs- mannastjóri Álafoss hf., sagði að starfsemi vefdeildar lægi nú niðri vegna sumarleyfa starfsfóiks sem hófst síðasta mánudag og næsta mánudag hefjast sumarleyfi hjá starfsfólki sauma- og pijóna- deilda. Sumarleyfin standa í þijár til fímm vikur og verður engin framleiðsla á meðan. - í Birgir sagði að á undanförnum árum hefði starfsemin legið niðri vegna sumarleyfa, en tíminn not- aður til að lagfæra húsnæði og fleira. Starfsemi Slippstöðvarinnar verður í lágmarki frá og með næsta mánudegi, 16. júlí þegar starfsmenn stöðvarinnar taka sumarleyfí. Lokað verður vegna sumarleyfa _ vfram yfír verslunarmannahelgi, en éinhver starfsemi verður í gangi á þeim tíma, m.a. verður byijað á viðhaldsverkefnum tveggja skipa og þá verður bráðaþjónustu einnig sinnt. „ Morgunblaðið/Einar Falur I gær var 500 eldislöxum sleppt í Leirutjörn og 50 hafbeitarlöxum sem eru 12-19 pund að stærð, áður var búið að sleppa 500 eldislöxum í tjörnina. Um næstu helgi verður eftit til veiðikeppni á milli fjölskyldna og eru vegleg verðlaun í boði. Eldis- og haf- beitarlaxi sleppt í Leirutjörn Fj ölsky ldu veiði- keppni um helgina „TJÖRNIN iðar af lífi,“ sagði Gísli Jónsson hjá Ferðaskrif- stofu Akureyrar, en í gær var mikill handagangur í öskjunni er löxum var sleppt í Leirut- jörn. Alls var 550 löxum sleppt í tjörnina og um næstu helgi verður efiit til fjölskyldukeppni í laxveiði og verðlaun veitt þeirri fjölskyldu sem mest veið- ir. Fyrir skömmu var um 500 eldislöxum sleppt í Leirutjörn og hafa um 150 þeirra verið veiddir. Til viðbótar var 500 eldislöxum á bilinu 3-5 pund sleppt í tjörnina í gær og að auk 50 hafbeitarlöx- um sem eru 12-19 pund að stærð. Um næstu helgi, dagana 14. og 15. júlí, verður efnt til veiði- keppni á milli fjölskyldna og veiði- leyfí boðin á sérkjörum, eða 1.250 krónur á stöngina og 400 krónur fyrir hvem veiddan físk. Sú fjöl- skylda sem flesta fiska veiðir hlýt- ur að launum helgarferð til Reykjavíkur og bílaleigubíl í tvo daga. Fjölskyldustærð er miðuð við þijá. Veiðileyfi eru seld hjá versluninni Eyfjörð, Esso-nesti við Leiruveg og á veiðistað. 650 tonnum landað hjá ÚA í vikunni: Sumarfrí hófst hjá starfsmönn- um niðursuðuverksmiðjunni K. Jónsson á mánudag í þessari viku og stendur það í fímm vikur. Skólafólk sem starfar hjá verk- smiðjunni fer ekki í frí og sagði Kristján Jónsson að um 40 nemar væru við störf í verksmiðjunni í sumar. Skólafólkið vinnur einkum í rækjuvinnslu. Kristján sagði að ‘íindanfarin ár hefði sá háttur ver- ið hafður á að starfsfólk færi í sumarfrí á sama tíma. Engin starfsemi verður hjá Ut- gerðarfélagi Akureyringa í rúmar tvær vikur, síðasti vinnudagur fyr- ir frí verður 20.júlí og vinna hefst aftur 8.ágúst. Þetta er annað sumarið sem lokað er vegna sumarleyfa hjá ÚA og er það m.a. gert til að drýgja kvótann. Undanþága veitt frá helgarvinnu banni svo takist að vinna aflann Utgerðarfélagi Akureyringa hefur verið veitt undanþága frá helgarvinnubanni og verður unnið í frystihúsinu á laugardaginn, en í þessari viku hefur verið landað um 650 tonnum af fiski. Svo miklum fiski hefur ekki verið landað í einni viku hjá ÚA í Iangan tíma. Skýringin á þessum mikla afla er sú að í lok næstu viku hefjast sumarleyfi hjá starfsmönnum og eru togararnir því að tínast til hafiiar einn af öðrum. Á fyrstu sex mánuðum ársins var búið að veiða tæplega helming af úthlutuðum kvóta félagsins, eða um 9 þúsund tonn. „Við verðum að hafa okkur alla við svo við náum að vinna aflann. Það hefur veríð geysimikið að gera hjá okkur í þessari viku, enda höfum við tekið á móti um 650 tonnum af físki. Það er orðið mjög langt síðan við höfum fengið jafn mikinn físk á einni viku til vinnsl- unnar,“ sagði Gunnar Lórenzson, yfirverkstjóri í fiystihúsi ÚA. Síðustu daga hefur vinna hafist kl. 6 á morgnana í frystihúsinu og er unnið til kl. 17 á daginn. Undanþága hefur fengist frá Ingi Björnsson ráðinn framkvæmdastjóri FSA INGI Björnsson hefúr verið ráðinn framkvæmdastjóri Fjórð- ungssjúkrahússins á Akureyri til næstu fjögurra ár og mun hann væntanlega taka við stöðunni 1. ágúst næstkomandi. Ingi tekur við stöðunni af Halldóri Jónssyni sem ráðinn hefúr verið bæjarstjóri á Akureyri. Ingi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1977, BS- prófí í hagfræði frá háskólanum í Gautaborg árið 1982 og mastersprófí árið 1984. Ingi kenndi við Menntaskól- ann á Akureyri 1983-’84 og var stundakennari við Verkmennta- skólann á Akureyri 1984-’86 og Háskólann á Akureyri 1987-’88. Hann starfaði hjá Iðnþróunarfé- lagi Eyjafjarðar á árunum 1984-1988, fyrst sem rekstrar- ráðgjafí og síðan sem fram- kvæmdastjóri. Þá gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra Fisk- eldis Eyjafjarðar á árinu 1987 samhliða framkvæmdastjóra- stöðunni hjá IFE. Ingi tók við stöðu framkvæmdastjóra fjár- mála hjá Álafossi hf. 1. jánúar 1988 og hefur gegnt þeirri stöðu síðan. Hann var nýlega ráðinn framkvæmastjóri Krossanes- verksmiðjunnar en vegna óvissu um framtíð verksmiðjunnar afréð hann að hætta við að taka því starfí. Morgunblaðid/Einar Ealur Ingi Björnsson hefiir verið ráð- inn framkvæmdastjóri FSA. helgarvinnubanni sem í gildi er í sumar og verður unnið í frystihús- inu allan næsta laugardag til að vinna aflann sem hefur borist að landi í vikunni. Þá hefur einnig verið bætt við nokkrum starfs- mönnum í frystihúsið. Landað var úr Kaldbak í gær, rúmum 250 tonnum, og Sólbakur beið löndunar, en hann var með um 140 tonn. Á mánudag landaði Harðbakur 253 tonnum, þannig að um 650 tonnum hefur verið landað í vikunni. Þrír ísfísktogarar eru á veiðum og munu þeir landa á næstu dög- um, eða í síðasta lagi á fímmtudag í næstu viku, en á föstudag, 20. júlí, er síðasti vinnudagur starfs- manna fyrir sumarfrí. í síðustu viku lönduðu tveir togarar, Hrímbakur á þriðjudag 156 tonn- um og Svalbakur 252 tonnum á fimmtudag. Þá kom Sléttbakur inn með 136 tonn af unnum físki á mánudag í síðustu viku, að verðmæti 31,8 milljónir króna. Einar Óskarsson hjá ÚA sagði að afli skipanna hefði verið blandaður, bæði karfi og þorskur. Einar sagði að fyrstu sex mán- uði ársins hefðu ísfisktogararnir fimm veitt samtals 9.013 tonn, en á sama tíma á síðasta ári höfðu þeir veitt um eitt þúsund tonnum meira, eða 10.025 tonn. Frystitog- arinn Sléttbakur hefur veitt svipað magn og hann gerði fyrri helming síðasta árs. Minni afli á fyrrí helmingi árs- ins stafar m.a. af því að Svalbakur var frá veiðum fyrstu sex vikur ársins en afli hans það sem af er árinu er um 630 tonnum minni en var á sama tíma í fyrra. Veiði- heimildir skipa Útgerðarfélags Akureyringa eru 18.580 tonn í ár. Nýtt leiksvæði í Kjarnaskógi Á útivistarsvæðinu í Kjarna- skógi er hafin undirbúnings- vinna vegna gerð nýs leiksvæð- is. I sumar verður unnið að ja.rð- vegsskiptum á svæðinu, leik- tæki og fleira smíðað næsta sumar og svæðið opnað fyrir almenning að tveimur árum liðnum. Aðalsteinn Svanur Sigfússon, verkstjóri á útivistarsvæðinu, sagði að á nýja leiksvæðinu yrði gerð tjörn sem börn gætu svamlað í á góðviðrisdögum. Þá væri draumur- inn að gera þar veglega rennibraut og koma upp góðri grillaðstöðu. „Það er mikið um að bæði hópar og fjölskyldur komi í skóginn til að grilla og hingað til hefur ekki verið nein sérstök aðstaða fyrir grill á svæðinu. Við höfum í hyggju að bæta þar úr og er meiningin að gera þarna nokkuð stóra og góða aðstöðu sem að einhverju leyti yrði yfirbyggð,“ sagði Aðalsteinn. Undirbúningsvinna vegna fram- kvæmda við svæðið er nýlega hafin og verður unnið að jarðvegsskiptum í sumar. Næsta sumar verða leik- tæki smíðuð og aðstaða fyrir „grillara“ og sumarið þar á eftir á svæðið að verða tilbúið til notkunar. Aðalsteinn sagði að margir nýttu sér aðstöðuna í Kjarnaskógi og á sólskinsdögum eins og var í gær fylltist skógurinn af fólki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.