Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JULÍ 1990 . . . að óska eftir fari. TM Reg. U.S. Pat Off.—all rights reserved © 1990 Los Angeles Times SyndÆate llb Hvernig er þetta? Sami póst- urinn hér og fyrir austan áður en við fluttum hingað suður? ímyndunarveiki. Já, ég vissi að það var eittlivað sem amaði að .. tónlistarhús MUN RÍSA Verður lítið um tónleika á því svæði sem tónlist- arhúsi er ætlaður staður Sjónvarps- vísir Stöðvar 2 ekki á rétt- um tíma Til Velvakanda. Mig langar til að koma með fyrir- spurn til Stöðvar 2. Hvernig stend- ur á því að Sjónvarpsvísir er ekki enn kominn nú þegar júlímánuður er löngu byrjaður? Þegar ég skrifa þetta er þriðjudagurinn 10. júlí og er vísirinn ekki enn kominn í húsið sem ég bý í hér í Þingholtunum. Það er lítið gagn að slíku blaði sem Sjónvarpsvísir er þegar það kemur ekki á þeim tíma sem því er ætlað. Og þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sjónvarpsvísirinn kemur ekki á réttum tíma, undanfarna mánuði hefur sama sagan endur- tekið sig, blaðið kemur ekki fyrr en langt er liðið á þann mánuð sem dagskrárkynningarnar eru fyrir. Það hlýtur að vera hægt að ráða bót á þessu og ræða við þá sem sjá um dreifingu blaðsins. Með von um að Sjónvarpsvísir fyrir ágústmánuð verði kominn á réttum tíma. Kona í Þingholtunum Þessir hringdu . . . Fann nælu Víravirkisnæla fannst í Grímsbæ við Bústaðaveg. Upplýs- ingar í síma 32382. Ekki lóga köttunum Kattavinur hringdi: „Ég er mjög ósammála mannin- um sem hringdi um daginn í Vel- vakanda og vildi að fólk lógaði frekar köttunum en að gefa þá. Ég vil ekki að köttunum sé lógað og er rosalega á móti þessu sem maðurinn var að segja. Ég vil hafa kettina." Til Velvakanda. Fyrir nokkrum árum var blásið ‘í lúðra og mikill handagangur því nú skyldi byggja tónlistarhús. Farið var af stað með happdrætti sem fylgdi mikill áróður og sú nýjung tekin upp að „selja“ stóla í húsinu. Gömul kona hringdi: „I Velvakanda 21. júní sl. spyr Jóna Vilhjálmsdóttir á Skaga- strönd um höfund Faxakvæðis. Kvæði þetta sem heitir Þijú á ein- um hesti er eftir Sigurð Júlíus Jóhannesson og er í lítilli kvæða- bók eftir hann sem heitir Sólskin. Bókin er gefin út í Reykjavík 1930. Kvæðið Þijú á einum hesti inniheldur sjö vísur. En ég veit ekki hveijir eru höfundar hús- ganganna sem Jóna spyr um.“ Köttur í óskilum Grásvartur stálpaður fress- kettlingur með hvíta bringu, hvítar loppur og hvít veiðihár er í óskilum. Upplýsingar í síma 43094. Tapaði hálsfesti Þreföld hálsfesti úr gulagulli, rauðagulli og hvítagulli tapaðist. Finnandi vinsamlega hringi í síma 42711 eftir kl. 18. Allt var þetta til að afla fjár til byggingarinnar. Milljónir, jafnvel tugir milljóna söfnuðust. Lóð á besta stað fékkst og haldin var ijöl- þjóða samkeppni um hönnun húss- ins. Tónlistarmenn voru jafnvel farnir að rífast innbyrðis um hvers konar tónlist fengi þarna inn; óper- ur, sinfóníur, kammer, kórar, popp, rokk o.s.frv. Svo líður tíminn og menn gleyma að tala um tónlistarhús þar til sam- tökunum sem stofnuð voru til bygg- ingar hússins tókst að skrapa sam- an fyrir veigamiklu skilti sem var rekið niður á þeim stað sem menn höfðu ætlað að reisa húsið. Vissara var að hafa skiltið veglegt því fyrir- séð er að það fái að standa um langa framtíð. Samkeppnin og happa- drættið voru dýr og allir peningar búnir. Forráðamenn samtakanna segja: Nú á ríkið næsta leik. Við erum búin að útbúa skiltið, nú má ríkið koma með húsið. Ég er hræddur um að það verði lítið um tónleika eða tónlist á því svæði þar sem húsinu er ætlaður staður/ Ekki nema einstaka ketti dytti í hug að syngja sín ástarljóð þar en skiltið er svo fínt að þeir fyllast eflaust feimni. Það er líka ástæða þess að ekki verður húsið byggt í bráð. Það væri hreinasta bruðl að rífa niður svona dýrt og fínt skilti, það verður ekki gert fyrr en eftir svo sem 20 ár. • Tónlistarunnandi Þrjú á einum hesti Víkverji skrifar Heimsmeistarakeppninni á ít- alíu er nýlokið með verð- skulduðum sigri þýzka liðsins. Eng- inn íþróttaviðburður nýtur jafn mik- illar athygli jarðarbúa og HM í knattspyrnu og má segja að heim- urinn hafi staðið á öndinni þann mánuð sem keppnin stóð yfir. Víkverji var í sumarleyfi á ftalíu á meðan keppnin stóð yfir og það var mikil upplifun. Ohætt er að fullyrða að allt hafi snúist um knatt- spyrnu. Að sjálfsögðu voru allir leikir í keppninni sýndir beint og að auki voru sjónvarpsstöðvarnar með langa þætti um keppnina bæði kvölds og morgna, þar sem helstu atburðir leikjanna voru sýndir aftur og aftur og sérfræðingar spáðu í spilin. XXX Víkveiji var í sumarleyfi á Spáni þegar heimsmeistarakeppnin fór þar fram 1982 og hefur því samanburð milli keppna. Italirnir gerðu miklu meira úr keppninni en Spánveijarnir fyrir átta árum enda er knattspyrna vinsælli þar en í nokkru öðru landi að því talið er. Ekki spillti fyrir að ítalir voru með mjög gott lið og allir spáðu því sæti í úrslitum keppninnar. Það var mjög gaman að fylgjast með fagnaðarlát- um ítala eftir sigurleikina. Þeir þustu um göturnar á bílum og mótorhjólum með ítalska fána og bílflauturnar ætluðu alla að æra. Ekki var síður athyglisvert að fylgjast með viðbrögðunum þegar Ítalía var óvænt slegin út úr keppn- inni af Argentínu. Víkveiji fylgdist með leiknum á veitingahúsi ásamt Tjölda ítala. Sumir þeirra höfðu málað andlitið í fánalitunum. Mikil stemmning ríkti á veitingahúsinu og allt ætlaði um koll að keyra þegar ítalir tóku forystuna. En síðan dofnaði yfir mannskapnum þegar Argentína jafnaði og fjöl- margir gestanna höfðu ekki taugar til að horfa á vítaspyrnukeppnina. Skelfingarhróp bergmáluðu um veitingahúsið þegar heimamenn misnotuðu vítaspyrnur og í leikslok grét fólkið. Svo mikil voru vonbrigð- in. Sigurhátíðin mikla varð að mar- tröð. xxx Víkveiji fór á tvo leiki í keppn- inni, leiki Argentínu og Bras- ilíu í Tórínó og írlands og Rúmeníu í Genúa. Það var ógleymanleg lífsreynsla. Oiyggisgæzla var gífur- lega mikil og leitað á hveijum ein- asta vallargesti. Ekki var annað að sjá en framkvæmd leikjanna væri óaðfinnanleg. Víkvetja fannst sér- staklega gaman að fylgjast með áhangendum írska liðsins.' Hver rúturfarmurinn af öðrum af græn- klæddum og rauðbirknum írum kom á leikinn. Fléstir virtust við ská) en engin vandræði voi-u heldur nutu menn augnabliksins. Fögnuð- ur írana í leikslok var ósvikinn og íbúar Genúa tóku þátt í gleðinni þegar írarnir gengu syngjandi um götur borgarinnar í átt að rútunum, sem biðu til að flytja þá á næsta leik.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.