Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990 KNATTSPYRNA / EVROPUMOTIN Fáttum fína drætti DREGIÐ var ífyrstu umferð Evrópumótanna í knattspyrnu í Genf í gær. Nýjar reglur gera það að verkum að stórlið mætast ekki — liðum er raðað í flokka eftir styrkleika. Því er fátt um fi'na drætti, en leikirnir eiga að fara fram 19. september og 3. október. Franska liðið Marseille, sem beið lægri hlut fyrir Benfica í fyrra, mætir að þessu sinni Dinamo Tirana frá Albaníu í fyrstu umferðinni, en að sögn forráðamanna liðsins hyggjast þeir athuga það mál nánar, þar eð grunur leikur á að nokkrir liðsmanna albanska liðsins séu meðal þeirra sem nú dvelja í er- lendum sendiráðum í höfuðborg landsins í von um að geta flust úr landinu. Sá orðrómur komst á kreik í gær að albönsku liðin drægju sig ef til vill til baka úr keppninni vegna þess ótrygga ástands sem nú ríkir í landinu. Forráðamenn Marseille hyggjast í það minnsta ráðfæra sig við frönsk stjórnvöld vegna fyrir- hugaðrar heimsóknar til Albaníu. Dragi félög sig úr keppni eiga þau á hættu háar fjársektir og mótheijinn fer vitaskuld sjálfkrafa í aðra umferð. Enginn fulltrúi frá Albaníu var viðstaddur dráttinn í gær. „Ég er því að velta því fyrir mér hvern- ig mér tekst að ræða þetta við þá. Það verður ekki 1 auðvelt," sagði fulltrí grísks liðs, sem dróst gegn liði frá Albaníu. Sá var ekki hress með það ef albönsku liðin yrðu ekki með. „Við missum af peningum og fólk fær ekki leik til að fylgjast með.“ Hvorki England né Holland eiga lið í keppni meist- araliða. Liverpool er enn í banni, eins og fram kom í blaðinu í gær, og hollensku meistararnir í Ajax voru dæmdir í eins árs bann frá Evrópukeppni í vor vegna skrílsláta áhangenda liðsins á sl. keppnistímabili. Þess má geta að FH dróst á undan Dundee Un- ited, en þar sem Fram á einnig heimaleik á undan var leikjum FH snúið við. Sá fyrri fer fram í Skotlandi. „Verðum að taka þessu eins og öðru - sagði Guðjón Þórðarson um mót- herja KA í Evrópukeppni meistaraliða u GUÐJÓN Þórðarson, þjálf- ari KA, var ekki yfir sig ánægður með mótherjana í Evrópukeppni meistara- liða, CFKA Sredets frá Búlgaríu. „Þetta lið er ekki það sem ég hefði helst vilj- að óska mér sem mót- herja. Það hefði verið skemmtilegra að fá lið sem trekkti betur. En við verðum að taka þessu eins og öðru,“ sagði Guðjón. CFKA Sredets er frá Soffíu í Búlgaríu og hefur verið eitt besta liðið þar í landi und- anfarin ár. Unnið búlgarska meistaratitilinn 27 sinnum alls frá því 1948 og 17 sinnum bikarkeppnina. I liðinu, sem er í eigu búlgarska hersins, eru fjölmargir landsliðsmenn. Liðið hefur oft tekið þátt í Evrópukeppni og í keppninni 1987 tapaði liðið fyrir Bayern Múnchen 4:0 í Múnchen og 0:1 í Búlgaríu. Þekktustu leik- menn liðsins eru; Christo Sto- ichkov, var nýlega seldur til Barcelona á Spáni, Mladenov, Bezinski, Janchev, Kirov og Penev. „Það er alveg ljóst að.leikur- inn verður erfiður því þetta er mjög sterkt lið, „alvöru lið“. Það er einnig fyrirsjáanlegt að ferðalagið verður bæði dýrt og erfitt og það kemur líklega ekki mikið í peningakassann hér heima. Það eina jákvæða við þennan drátt er að leik- menn fá tækifæri til að ferð- ast á ókunnar slóðir," sagði Guðjón. KA-menn ætla að leika heimaleik sinn á Akureyri 19. september, en síðari leikurinn fer fram í Soffíu 3. október. Leikvangur CFKA Sredets heitir Norodna Armia og tekur 35.000 áhorfendur. Guðjón Þórðarson Evrópukeppni meislaraliða Evrópumeistarar AC Milanó (Ítalíu) sitja hjá í 1. um- ferð. Rauða stjarnan (Júgóslavíu) * — Grasshopper (Sviss) Marseille (Frakklandi) * — Dinamo Tirana (Albaníu) Swarovski Tíról (Austurríki) * — Kuusysi Lahti (Finnlandi) Lilleström (Noregi) — Club Briigge (Belgíu) * Sparta Prag (Tékkóslóvakíu) — Spaitak (Sovétríkjunum) * Napólí (Ítalíu) * — Ujpesti Dozsa (Ungveijalandi) Malmö (Svíþjóð) * — Besiktas (Tyrklandi) Dinamo Búkar. (Rúm.) * — St Patrick’s Athletic (írlandi) US Lúx. (Lúxemborg) — Dynamo Dresden (A-Þýskal.) * Porto (Portúgal) * — Portadown (N-írlandi) Real Madrid (Spáni) * — Óðinsvé BK (Danmörku) Lech Poznan (Póllandi) * — Panathinaikos (Grikklandi) Glasgow Rangers (Skotlandi) * — Vallettá (Möltu) Bayern Múnchen (V-Þýskal.) * — Apoel Nicosia (Kýpur) KA (íslandi) — CFKA Sredetz Sofia (Búlgaríu) * (* merkir að liðið er í 1. styrkleikaflokki). „Líst vel á þetta“ Y Evrópukeppni bikarhafa Forkeppni: Bray Wanderers (írlandi) — Trabzonspoit (Tyrklandi) 1. umferð: Legia Varsjá (Póllandi) * — Swift Hesperange (Lúxemborg) Wanderers/Trabzonspoit (Tyrkl.) — Barcelona (Spáni) * Viking Stavanger (Noregi) — Liege (Belgiu) * FC Sliven (Búlgaríu) — Juventus (ítaliu) * Manchester United (Engl.) — Pecsi Munkas (Ungveijal.) * Dynamo Kiev (Sovétr.) * — Kuopion Palloseura (Finnlandi) Schwerin (A-Þýskalandi) — Vienna (Auslurríki) * Sliema Wanderers (Möltu) — Dukla Prag (Tékkóslóvakíu) * FC Famagusta (Kýpuij — Aberdeen (Skotlándi) * Montpellier (Frakklandi) — PSV Eindhoven (Hollandi) * Olympiakos (Grikklandi) * — Flamuitari Vlora (Albaníu) Glentoran (N-írlandi) — Steaua Búkaresl (Rúmeníu) * Wrexham (Wales) * — Lyngby (Danmörku) Estrela da Amadora (Port.) — Neuchatel Xamax (Sviss) * Fram (íslandi) — Djurgardens IF (Svíþjóð) * Kaiserslautem (V-Þýskalandi) — Sampdoria (Ítalíu) * (* merkir að liðið er í 1. styrkleikaflokki.) - sagði Ásgeir Elíasson. Fram gegn sænska liðinu Djurgárden Framarar eiga fyrst heimaleik gegn sænska lið- inu Djurgárden í Evrópukeppni bikarhafa. „Mér líst vel á þetta,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjáif- ari Fram. „Við höfum yfirleitt dregist gegn liðum frá Austur-Evrópu og því verður gaman að breyta til og mæta liði frá Norðurlöndum. Þetta er ágæt- is dráttur og við eigum þægilegt ferðalag fyrir höndum." Fram hefur reyndar mætt liðum frá Norðurlönd- um áður. 1980 lék liðið gegn danska liðinu Hvidovre í sömu keppni, tapaði 2:0 heima og 1:0 úti. 1977 var leikið gegn Start frá Noregi í UEFA- keppninni og þá tapaði Fram 6:0 úti og 2:0 heima. „Við fengum hræðilega útreið gegn Start, en nú erum við með mun betra iið og ég vona að við eigum möguleika á að komast áfram." Asgeir Elíasson Gunnar Gíslason: „Fram á góða möguleika" Gunnar Gíslason, landsliðsmaður hjá H"cken í Svíþjóð, missti af úrslitaleik Hácken og Djurgaarden í sænsku bikarkeppninni vegna meiðsla, en horfði á félaga sína tapa 3:0. „Framarar eiga góða möguleika á að komast í 2. umferð," sagði Gunnar aðspurður um sænska liðið. „Þetta lið hefur valdið miklum von- brigðum í Allsvenskan í sumar og er í neðri hlutanum, en í ví eru tveir góðir einstaklingar — miðheijinn, sem gerði tvö mörk gegn okkur og lagði upp eitt, og annar bakvörður- inn.“ Gunnar sagði að liðið léki eins og öll sænsk lið og legði áherslu á að loka svæðum. „En ég á leikinn gegn okkur á spólu og ef Framararnir vilja, geta þeir fengið hana lánaða." ÓlafurJóhannesson „Ernrn alls ekkerf feimnir við Skotana“ - segirÓlafurJóhannesson, þjálfari FH „ÞAÐ er alveg nýtt fyrir okkur alla að taka þátt í Evrópukeppni, en við erum alls ekkert feimnir við Skotana," sagði Ólafur Jóhann- esson, þjálfari FH, sem mætir Dundee United frá Skotlandi í Evr- ópukeppni félagsliða. Þetta er í fyrsta sinn, sem FH leikur í Evrópu- keppni. íslandsmótið í tennis 1990 26.-31. júlí og 8.-12. ágúst Mótið fer fram í Reykjavík á félagssvæðum Víkings og Þróttar. Unglingaflokkar keppa 26.-29. júlí. Tvenndarleikur og forkeppni karla og kvenna fara fram 26.-31. júlí. Tvíliðaleikur karla og kvenna, lokakeppnin og öðlinga- keppni fara fram 8.-12. ágúst. Skráning og nánari upplýsingar á tennisvöllum Víkings eða í síma 91-33050 kl. 12-22. FH átti rétt á að leika fyrri leikinn heima, en samið var um að skipta á leikdögum. Ólafur hafði ekki frétt af því, en sagði að í raun skipti það ekki öllu máli. '„Aðalatriðið er að vera með í þessu, gera sitt besta og sjá hvað gerist.“ Þjálfarinn var ánægður með mótheijana. „Við höfum farið í fjórar keppnisferðir til útlanda á síðustu tveimur árum, spilað við fjölda erlendra liða og staðið okkur ágætlega. Það hentar okkur ágætlega að leika gegn breskum liðum og því held ég að þetta sé ágætt dæmi hjá okkur.“ Ólafur sagði að mikil spenna væri í mannskapn- um vegna keppninnar. „Þetta verður mikið ævin- týri og um leið lyftistöng fyrir félagið á allan hátt.“ f Evrópukeppni félagsliða Bröndby (Danm.) — Eintracht Frankfurt (V-Þýskalandi) * Dnepropetrovsk — (Sovétríkjunum) — Hearts (Skotlandi) * Vitesse Arnhem (Hollandi) — Derry City (írlandi) MTK Búdapest (Ungverjalandi) — Luzern (Sviss) Sporting (Portúgal) — Mechelen (Belgíu) * Lausanne (Sviss) — Real Sociedad (Spáni) * Avenir Beggen (Lúxemb.) — Int. Bratislava (Tékkóslóvakíu) B. Dortmund (V-Þýskalandi) — Chemnitzer (A-Þýska.) IFK Norrköping (Sviþjóð) — Köln (V-Þýskalandi) * Dundeo United (Skotlandi) * — FH (Islandi) Anlwerpen (Belgíu) — Ferencvaros (Ungveijalandi) Zaglebic Lubin (Póllandi) — Bologna (Ítalíu) Glenavon FC (N-írlandi) — Bordeaux (Frakklandi) * Torpedo Moskva (Sovétríkjunum) * — GAIS (Svíþjóð) Aston Villa (Englandi) — Banik Ostrava (Tékkóslóvakíu) Magdeburg (A-Þýskal.) — Rovaniemen Palloseura (Finn. ) Vejle BK (Danmörku) — Admira Wacker (Austurn'ki) * B. Leverkusen (V-Þýskal.) * — Twente Enschede (Hollandi) Chern. Odessa (Sovétnkjunum) — Rosenborg BK (Noregi) Katowice (Póllandi) — Turun Palloeseura (Finnlandi) Heraklis Saloniki (Grikklandi) — CF Valencia (Spáni) * Anderlecht (Belgíu) * — Petrolul Ploiesti (Rúmeníu) Atalanta (Ítalíu) — Dinamo Zagreb (Júgóslavíu) Slavia Sofia (Búlgaríu) — Omonia Nicosia (Kýpur) AS Róma (Ítalíu) — Benfica (Portúgal) * SV Roda (Hollandi) * — Mónakó (Frakklandi) FC Sevilla (Spáni) - PAOK Saloniki (Grikklandi) Partizani Tirana (Albaníu) — Univcrs. Craiova (Rúmeníu) Poli. Timisoara (Rúmeníu) — Atletico Madríd (Spáni) * Rapid Vienna (Austurríki) — Inter Mílanó (Italíu) * Fenerbahce (Tyrklandi) — Vitoria Guimaraes (Portúgal) Hibernians FC (Mölt.u) — Partizan Belgrade (Júgóslavíu) ^ (* merkir að liðið er í 1. styrkleikaflokki.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.