Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 12.07.1990, Blaðsíða 52
«RETLAiOl fZallaéMíH 1 MERKI UM GÓBAN ÚTBÚNAÐ 1 8 1 VEIÐIHJÓL OG STANGIR FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990 VERÐ í LAUSASÖLU 90 KR. Súluhlaup- ið er búið TALIÐ var að hlaupið sem hófst Súlu í fyrradag væri búið í gærkvöldi, en þá átti eftir að sjatna í ánni. Að sögn Gylfa Jóhannessonar, starfsmanns Vegagerðarinnar í Vík, var um fremur lítið hlaup að ræða í ánni að þessu sinni. Engar skemmdir urðu af völdum hlaupsins og ekki er kunnugt um að ferða- menn hafi lent í vandræðum vegna þess. Borgarfjörður: „JFjöldi fólks ók fram hjá manni sem hafði meiðst Hvannatúni, Andakíl. RÚMLEGA tvítugur Borgfirð- ingur, Jón Eiríkur Einarsson í , Mófellsstaðakoti, varð fyrir því •*6happi í fyrri viku að fjórhjól, sem hann ók eftir Borgarljarðar- braut milli félagsheimilisins Brúnar og Fossatúns, bilaði með þeim afleiðingum að hjólið steyptist ofan í skurð. Morgunblaðið/Einar Falur Grisjun íKjarnaskógi Tveir flokkar úr vinnuskólanum á Akureyri hafa síðustu tvær vikur verið að tína þau tré sem felld voru við grisjun í Kjarnaskógi síðasta haust. Sjá Akureyrarsíðuna bls. 30. Umræður um að halda framfærsluvísitölunni innan rauða striksins í september: Yaxandi líkur á úrskurði um launahækkun í Það tók Jón um hálfa klukku- stund að komast upp úr skurðinum á vegabrún. En þar með var bið hans ekki á enda. A næstu þremur stundafjórðungum óku allmargir bílar hjá án þess að neinn sæi ástæðu til.að sinna stöðvunarbeiðni hans. Útlit hans bar þess glöggt merki að hann var í nauðum stadd- ur en samt stöðvaði enginn bíl sinn til að athuga, hvort hann þyrfti á Jhálp að halda. Það var ekki fyrr en innansveit- armaður kom að, sem bar kennsl á Jón, að hjálpin barst. Við rannsókn á meiðslum hans, reyndust kross- bönd, liðbönd og liðpoki við annað hnéð slitin og kann hann að eiga í þessum meiðslumn í allt að eitt ár. Líðan hans hefur ekki verið góð þar sem hann fékk ekki sjúkrarúm held- ur hefur þurft að fara milli sjúkra- stofnana á Akranesi og í Reykjavík. - D.J. í Bretlandi voru seld tæp 16 þús- »md tonn af þorski fyrstu sex mánuð- ina í ár, eða 13% meira en á sama tíma í fyrra. Sigurbjörn Svavarsson sagði að þar sem þorskkvótinn væri 10% minni í ár en í fyrra mætti bú- ast við að hlutfalislega meira yrði flutt út af óunnum þorski í ár en í fyrra. „Það má hins vegar benda á að ^•áður en Aflamiðlun tók við, það er að segja á fyrstu tveim mánuðum 'þessa árs, var útflutningur á þorski VAXANDI líkur eru á að sam- komulag takist ekki um aðgerðir til að halda framfærsluvísitölunni innan rauða striksins í september og að Iaunanefnd aðila vinnu- markaðarins þurfi að úrskurða um launahækkanir i samræmi við hærri framfærsluvísitölu en ráð- gert var. Miðað við fyrirliggjandi spár gæti sú launahækkun orðið tvö þúsund tonnum meiri en á sama tíma í fyrra. Þá fluttu Vestmannaey- ingar og fleiri út óunninn fisk um- fram heimildir í mai, enda mátti verð- ið ekki fara neðar í þeim mánuði," sagði Sigurbjörn Svavarsson. I Bretlantíi hafa í þessari viku verið seld 319 tonn af óunnum, íslénskum þorski fyrir 1,40 sterlings- punda, eða 149,21 krónu, meðalverð fyrir kílóið, sem er hæsta meðalverð, sem fengist hefur í Bretlandi frá því í apríl síðastliðnum, að sögn Vil- á bilinu 0,5-1,0% og ræðst það að nokkru af því í hversu miklum mæli gripið verður til aðgerða af hálfu ríkisvaldsins, sem boðað- ar hafa verið í þeim efnum. Hugmynd fjármálaráðherra um gengishækkun hefur verið tekið mjög iila af vinnuveitendum og er sá möguleiki með öllu afsagður af þeirra hálfu. Telja menn að ef ríkis- hjálms Vilhjálmssonar framkvæmda- stjóra Aflamiðlunar. Vilhjálmur sagði að í þessari viku hefði fengist 1,30 punda, eða 138,55 króna, meðalverð fyrir kílóið af kola í Bretlandi, sem er hæsta meðalverð, sem þar hefur fengist fyrir kola frá því í apríl síðastliðnum. Þá hafa ver- ið seld 173 tonn af ýsu í Bretlandi í þessari viku fyrir 1,43 punda, eða 151,97 króna, meðalverð. Vilhjálmur sagði að aðalástæðan fyrir þessu háa verði væri lítið framboð af fiski í Bretlandi, bæði frá heimaskipum og héðan frá íslandi. í Bretlandi fékkst 1,25 sterlingspunda meðalverð fyrir kílóið af þorski íýrstu sex mánuði þessa árs, sem er 42% hærra verð en á sama tíma í fyrra, 1,36 punda meðalverð fyrir ýsu, eða 33,3% hærra verð en í fyrra, og 1,11 punda meðal- verð fyrir kola, sem er 29% hækkun. stjórnin grípi til þess ráðs sé um svik ríkisvaldsins að ræða hvað varði þær forsendur sem gengið var út frá við gerð kjarasamninganna. Þá er talið alls óvíst að gengis- hækkun myndi skila sér út í verðlag sem skyldi og hún þyrfti því að vera talsverð til að vega upp hækk- un vísitölunnar. Það sama gildi raunar um lækkun jöfnunargjalds á innfluttan iðnvarning um helm- ing, sem einnig hefur verið nefnt í þessu sambandi, auk þess sem nokkra mánuði taki fyrir áhrif þess- ara aðgerða að koma að fullu fram. Sú launahækkun sem Launa- nefnd úrskurðar, eftir að fram- færsluvísitala septembermánaðar liggur fyrir, kemur til framkvæmda 1. október, samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins mun ekki vera neinn ágreiningur milli aðila um að bæta það sem vísitalan fer fram úr rauða strikinu í september, þó að verðbólga kunni að aukast eitthvað í kjölfarið. Aðilar meta það þannig að samkomulag hafi verið um það í kjarasamningunum að tryggja þann kaupmátt sem þá samdist um og vinnuveitendur segja að þeir muni ekki skorast undan því að standa við þá kaupmáttar- þróun, þó betri kostur hefði verið að rauða strikið hefði haldið. „Málið snýst um að ná verðlags- þróuninni sem lengst niður, en það er ekki eins og musterið falli þótt við verðum ekki nákvæmlega á punktinum og skeiki broti úr pró- senti. Það er viðfangsefni sem menn haust verða að horfast í augu við á þeim tíma. Meginmálið er koma þessu eins langt niður og kostur er,“ sagði Þórarinn V. Þórarinsson, fram- kvæmdastjóri VSÍ, í samtali við Morgunblaðið. Geysir í Haukadal: Hellulögn göngustíga að ljúka Á VEGUM Geysisnefhdar hefúr verið unnið að lagningu göngustíga um hverasvæðið við Geysi í Haukadal. Hannaðir voru sérstakir steinar og steyptir í lit- um hverasvæðisins til þess að göngustígarnir falli sem best að svæðinu. Hafa verið lagðir nær 3.000 fermetrar af hellum í stígana. Þá hefur Geysisnefnd látið merkja helstu hveri á hverasvæðinu og verð- ur frekar unnið að því á næstunni. Einnig verða lagðir göngustígar eða litlar göngubrýr um þann hluta hverasvæðisins þar sem vatnselgur er mikill og hætta á ferðum, en með því móti ætti að draga úr slysatíðni á svæðinu. Um 20 brunaslys verða þar að meðaltali árlega. Áformað er að setja sápu í Geysi laugardaginn 14. júlí kl. 15.00 fyrir gesti og gangandi. Steftit að svipuðum útflutningi "á óunnum fiski í ár og í fyrra - segir Sigurbjörn Svavarsson stjórnarformaður Aflamiðlunar „ÞAÐ er stefnt að því að útflutningur á óunnum fiski verði svipaður í ár og í fyrra en við höfúm þó tekið mið af því að verðið hefúr verið ansi hátt að undanförnu,“ sagði Sigurbjörn Svavarsson, stjórnarformað- ur Aflamiðlunar, í samtali við Morgunblaðið. Fyrstu sex mánuðina í ár voru seld 33.700 tonn af óunnum físki í Bretlandi, sem er 10,4% meira en á sama tíma í fyrra, og um 17.700 tonn til Vestur-Þýska- lands, eða 3,2% meira en í fyrra. Sigurbjörn sagði að verð á óunnum físki erlendis yrði örugglega hátt í haust vegna lítils framboðs.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.