Morgunblaðið - 12.07.1990, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 1990
33
Minning:
Vilhjálmur Schröder
framleiðslumaður
Fæddur 1. júní 1916
Dáinn 4. júlí 1990
Enn hefur verið höggvið skarð í
raðir félaga okkar. Vilhjálmur
Schröder lést í Landakotspítalanum
aðfaranótt 4. júlí sl.
Vilhjálmur var fæddur í Hainau,
Schlesien, Þýskalandi 1. júní 1916
og var 74 ára þegar hann lest. Vil-
hjálmur hóf nám í framreiðslu á
Hótel Borg haustið 1930 og starf-
aði þar um það bil eitt ár, en fór
þá yfir á Hótel ísland og starfaði
þar í tvö ár (í millitíðinni starfaði
hann einnig á Hótel Skjalbreið).
Árið 1933 hóf Vilhjálmur siglingar
og sigldi þá á gamla Gullfossi til
ársins 1936, en þá fór hann á Brú-
arfoss gamla og sigldi með honum
til áramóta 1939-1940, en þá hóf
hann að starfa aftur á Hótel lBorg
og vann þar til ársins 1946, eða í
6 ár, þar til Sjálfstæðishúsið í
Reykjavík hóf starfsemi sína, en
þá fór Vilhjálmur að vinna þar og
starfaði til ársins 1963 eða í 17 ár.
Klúbburinn var hans næsti vinnu-
staður, síðan dvaldi hann um tíma
á Siglufirði og vann einnig um tíma
í Sigtúni, síðan í Klúbbnum aftur.
Árið 1968 hóf hann að starfa sem
yfirframreiðslumaður á Hótel Sögu
(Súlnasal) og starfaði þar til ársins
1970, þá fór hann á Gullfoss og
var þar til ársins 1972 og aftur á
Hótel Sögu til 1975. Hann starfaði
á Fríhafnarbarnum frá 1975 til
1988, núna síðustu árin starfaði
hann á Veitingastaðnum Rán í
Keflavík.
Vilhjálmur var kvæntur Svein-
jónu Vigfúsdóttur og eignuðust þau
sex börn. Sveinjóna lést í apríl 1988.
Vilhjálmur var mikill félagsmað-
ur og starfaði og hafði mikinn
áhuga fyrir málum Félags fram-
reiðslumanna, hann var endurskoð-
andi félagsins í mörg ár. Þeir sem
þekktu Vilhjáim og störfuðu með
honum bera honum allir góða sögu
og þeir sem hann tók í læri segja
að hann hafí nánast verið eins og
pabbi, vakandi fyrir velferð þeirra
bæði í námi og utan þess.
Félag framreiðslumanna þakkar
Vilhjálmi fyrir vel unnin störf fyrir
félagið og að málefnum fram-
reiðslumanna almennt og sendir
aðstandendum dýpstu samúðar-
kveðjur.
F.h. Félags framreiðslumanna,
Kristinn Guðmundsson
Það er skrítin tilfinning að þekkja
sama og ekkeit einhvern, en finnast
engu að síður að sá hinn sami
gæti allt eins verið faðir manns.
Það er fyrst og fremst þessi tilfinn-
ing sem fær mig til að skrifa þess-
ar fáu línur í minningu Villa vinar
míns. Ég lá með Villa heitnum í
tvígang á Landakotsspítala, þar
sem hann dvaldi síðustu vikur ævi
sinnar, þá mikið veikur. Ég segi
mikið veikur vegna þess að það
vissu allir, Villi líka. En það sem
snart mig mest og sagði mér allt
um þennan mann var að ekki var
hægt að heyra þetta þegar við
töluðum saman, hvort heldur þegar ‘
ég leit inn í herbergi til hans og
ræddi málin eða þá á kvöldin þegar
við sátum, eða öllu heldur lágum
fyrir framan sjónvarpið, reyktum
og horfðum á leiki heimsmeistara-
keppninnar. Alltaf gat Villi séð já-
kvæðu hliðarnar og það eitt kenndi
mér og eflaust fleirum sem með
okkur voru merkingu orðsins
„þakklæti". Ekki þurfti nein orð
yfir það hvernig faðir Villi hefur
verið, það sýndu heimsóknirnar og
vil ég að öllum öðrum ólöstuðum,
nefna í því sambandi hana Önnu
vinkonu mína. Villi minn, um leið
og ég kveð þig vil ég þakka þér
fyrir að hafa fengið að kynnast þér
og þínum. Eins og staðan var orðin
veit ég innst inni að hann var
hvíldinni feginn, elsku karlinn minn.
Ég sendi öllum börnum, barnabörn-
um og barnabarnabörnum samúð-
arkveðjur.
Einar Pálmi
EFLING SJALFSVITUNDAR
OG PERSÓNUSTYRKS
Dr. Paula Horan heldur námskeið í Reykjavík 27. til 30. júlí
um ofanskráð efni.
Sérstök áhersla lögð á að þátttakendur nái tengslum við
eigið sjálf og læri að virkja jákvæð öfl innri vitundar; breyta
hugsanamynstri sínu til aukinnar vellíðunar og lífsfyllingar.
Upplýsingar og skáning: Hugræktarhúsið, Hafnarstræti 20,
sími 91-620777. Opið frá 14.30-16.30 virka daga.
Skráníngu lýkur 20. júlí.
Gœðanna vegna!
FERÐAFELAG
# ÍSIANDS
ÖLDUGÖTU 3 S: 11798 1953?
Kynnisteigin landi í
sumarleyfisferðum
Ferðafélagsins
1. 12.-17. júlí (6 dagar) Aðalvfk.
Siglt á föstudegi að Sæbóli og
dvalið til mánudags. Tjaldbæki-
stöð. Fjölbreyttar gönguleiöir,
m.a. á Rit, að Látrum og víðar.
2. „Laugavegurinn“, gönguleið-
in vinsæla milli Landmanna-
lauga og Þórsmerkur. Gist i
skálum Fl. í Laugum, Hrafntinnu-
skeri, Álftavatni, Emstrum og í
Þórsmörk. Gönguferðirnar hefj-
ast á miðvikudagsmorgnum (5
daga ferðir) og föstudagskvöld-
um (6 daga ferðir) frá 6. júli til
24. ágúst. Gönguleið, sem allir
ættu að kynnast. Veljið ykkur
ferð tímanlega.þvi margar eru
að fyllast nu þegar. Næstu ferð-
ir þar á eftir:
A. 13.-18. júlí (6 dagar). Farar-
stjóri: Páll Ólafsson.
B. 18. -22. júlí (5 dagar). Farar-
stjóri Leifur Þorsteinsson.
C. 20.-25. júlí (6 dagar). Farar-
stjóri: Hilmar Þór Sigurðsson.
D. 25.-29. júlí (5 dagar). Land-
mannalaugar - Þórsmörk.
3. 16.-21. júlí Suðurlandsferð
(6 dagar). Fjölbreytt öku- og
skoöunarferð. Ýmsir merkis-
staðir skoðaðir á leiðinni. Gist i
svefnpokaplássi. Fararstj. Sig-
urður Kristinsson.
4. 20.-26. júlí (7 dagar) Nán-
faravíkur - Flateyjardalur -
Fjörður. Góð bakpokaferð i sam-
vinnu við Feröafélag Akureyrar
um svæði ekki síður spennandi
en Hornstrandir.
5.20.-28. júlí (9 dagar) Miðsum-
arsferð á hálendið. Þetta er
örugglega hálendisferð sumars-
ins. Megináhersla er lögð á
svæðið noröan Vatnajökuls með
Herðubreiðarlindum, Öskju,
Kverkfjöllum, Hvannalindum,
Snæfelli o.fl. Ekið norður um
Sprengisand og heim um Suður-
firðina. Einnig litið á Jökulsár-
gljúfur (Dettifoss), Fljótsdal
(Hengifoss) og Hallormsstað.
Gist í svefnpokaplássi. Farar-
stjóri: Jón Viðar Sigurðsson.
6. 27. júlí-1. ágúst (6 dagar)
Hvítárnes - Þverbrekknamúli -
Hveravéllir. Fararstj. Dagbjört
Óskarsdóttir.
7. 1.-6. ágúst (6 dagar) Græn-
land. Ný og óvænt ferð á slóöir
- Eiriks rauöa á Suður-Grænlandi.
'' Ódýrt.
8. 2.-6. ágúst (5 dagar) Eldgjá
Strútslaug - Álftavatn.
Skemmtileg bakpokaferð frá
Eldgjá að „Laugaveginum".
9.3.-11. ágúst (9 dagar) Nýidal-
ur - Vonarskarð - Hamarinn -
Jökulheimar. Bakpokaferð sum-
arsins. Sætum fækkar óðum.
Fararstjóri: Jóhannes I. Jónsson.
10. 3., 8. og 10. ágúst Lónsör-
æfi.
Árbók Ferðafélagsins 1990 er
komin út, glæsileg að vanda.
Hún nefnist „Fjalllendi Eyjafjarð-
ar að vestanverðu". Árbókin
fæst á skrifstofunni gegn
greiðslu árgjalds kr. 2.500. Ger-
ist félagar i FÍ., félagi allra lands-
manna.
Árbókarferð verður 9.-15.
ágúst. Fariö um svæði sem
tengist efni árbókarinnar. Tveir
möguleikar: A. Öku- og skoðun-
arferð. Skagafjörður, Siglufjörð-
ur. Sigling í Héðinsfjörð. Ólafs-
fjörður, Svarfaðardalur og jafn-
vel Grimsey.
B. Gönguhópur. Dagsganga yfir
Heljardalsheiði. Bakpokaferð:
Siglufjörður - Héðinsfjörður -
Ólafsfjörður.
Pantið tímanlega í sumarleyfis-
ferðirnar. Upplýsingar og far-
miðar á skrifstofunni, Öldugötu
3. Hægt er að greiða sumar-
leyfisferðirnar með raðgreiðsl-
um Visa, Euro og Samkorts.
Verið velkomin.
Ferðafélag íslands.
Skipholti 50b, 2. hæð
Samkoma i kvöld kl. 20.30.
Þú ert velkomin(n)!
i kvöld kl. 20.30 er almenn sam-
koma í Þríbúðum, Hverfisgötu
42. Mikill og fjölbreyttur söngur.
Vitinisburðir Samhjálparvina.
Ræðumaður verður Gunnbjörg
Óladóttir. Allir velkomnir.
Samhjálp.
Hjálpræðisherinn
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Kapteinarnir Ann Merethe
og Erlingur Níelsson tala og
syngja. Allir velkomnir.
L’Alliance Francaise
L’association des amis de
la langue Francaise
í tilefni þjóðhátiðardags Frakka
14. júlí býður l’Alliance Franca-
ise, ásamt Vinafélagi frönsku
tungunnar, á dansleik, sem
verður haldinn eftir opinbera
móttöku franska sendiráösins.
Þátttökugjald fyrir sal og kalt
borð verður kr. 600 á mann.
Dansleikurinn hefst kl. 21.00 í
salarkynnum Tæknigarðs við
Dunhaga.
Verið velkomin.
Nefndin.