Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 1
56 SIÐUR B
206. tbl. 78. árg.
MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Persaflóadeilan:
Varað við hermd-
arverkum Iraka
Nicosiu, Bagdad, Washington. Reuter, Öaily Telegraph, dpa.
DICK Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, scgir vaxandi hættu
á að hryðjuverkamenn á vegum fraka geri árásir á bandarísk skot-
mörk víða um heim. Ráðherrann, er svaraði fyrirspurnum þingmanna
I gær, hvatti til aukinnar árvekni og sagði bandarískum embættismönn-
um hafa verið hótað með sprengjuárásum. Þúsundir íraka æptu slag-
orð utan við bandaríska sendiráðið í Bagdad, höfuðborg íraks, í gær
og brenndu brúðumyndir af George Bush Bandaríkjaforseta, Fahd,
konungi Saudi-Arabíu og Hosni Mubarak, forseta Egyptalands.
Reuter
480 flóttamenn frá Bangladesh, er starfað hafa í Kúvæt, sitja á dýnum í farmrými risastórrar, sovéskr-
ar flutningavélar af gerðinni An-124 á flugvellinum í Amman í Jórdaníu. Farangrinum er staflað upp
til hliðar og strengd hafa verið reipi um rýmið til að fólkið geti haldið sér.
íraskir flölmiðlar sögðu að Bush
hefði mistekist að þvinga Sovétmenn
til að samþykkja bandaríska hernað-
aruppbyggingu við Persaflóa á Hel-
sinki-fundinum á sunnudag. Sovét-
menn hefðu einnig snúist gegn hug-
myndum um árás á írak. Breska
útvarpið BBC sagði í gærkvöldi að
stjórnin íhugaði að senda landherlið
til Saudi-Arabíu.
Fimm ríki ákváðu í gær að láta
stjórnarerindreka sína í Kúvæt yfir-
gefa sendiráðin og halda til Bagdad
þar sem ekki væri mögulegt að halda
uppi eðlilegri starfsemi. Óljóst er hve
mörg sendiráð eru enn starfandi í
Kúvæt-borg.
Bandaríska stórblaðið The New
York Times segir að Bandaríkja-
stjórn sé reiðubúin að íhuga ráð-
stefnu um málefni Mið-Austurlanda
bg koma þannig til móts við Sovét-
menn. Ný skoðanakönnun blaðsins
Washington Post og ABC-sjónvarps-
stöðvarinnar gefur til kynna að nær
80% Bandaríkjamanna styðji stefnu
Bush forseta í Persaflóadeilunni og
stuðningur við hernaðaruppbygging-
una virðist fara vaxandi.
Sjá einnig fréttir á bls. 21.
Róttæk umskipti samþykkt á þingi stærsta lýðveidis Sovétríkjanna:
Markaðskerfí tekið upp
í Rússlandi á 500 dögum
Deilt um einkavæðingu á sovéska þinginu og staða Ryzhkovs forsætisráðherra talin veik
Moskvu. Reuter. b __ .
ÞING Rússlands, stærsta lýðveld-
is Sovétríkjanna, samþykkti í gær
drög að róttækri áætlun er kveð-
ur á um að frjálst markaðskerfí
verði innleitt í lýðveldinu á næstu
500 dögum. Á vettvangi Æðsta
ráðsins, þings Sovétríkjanna, er
deilt um hvort taka beri áætlun
þessa upp í landinu öllu og þykja
þær umræður allar hafa grafíð
undan stöðu Níkolajs Ryzhkovs
forsætisráðherra.
Taismaður þingheims sagði að
aðeins einn fulltrúi hefði lýst sig
andvígan áætluninni, sem kennd er
við hagfræðinginn Staníslav Sjat-
alín. Þykir þessi niðurstaða mikill
sigur fyrir Borís Jeltsín, forseta
Rússlands, og þekktasta leiðtoga
róttækra umbótasinna í Sovétríkj-
unum. Hann hefur ákaft hvatt til
þess að horfið verði frá þeirri al-
gjöru miðstýringu sem einkennir til-
skipanaveldi kommúnismans og
jafnframt farið hörðum orðum um
umbótastefnu Míkhaíls S. Gorb-
atsjovs, leiðtoga sovéska kommún-
istaflokksins. Rússland er lang-
stærst og fjölmennast lýðveldanna
sovésku og talið er að um 75% af
auðlindum Sovétríkjanna sé að finna
þar í landi. Þykir þessi niðurstaða
ekki síst söguleg í ljósi þessa.
Á sama tíma og atkvæðagreiðsl-
an fór fram var ákaft deilt á fundi
Æðsta ráðs Sovétríkjanna um hvort
iveuter '
Níkolaj Ryzhkov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, ræðir við
blaðamenn í Moskvu í gær en að
baki honum getur að líta málverk
af Vladímír Lenín, sem stjórnaði
valdaráni bolsjevikka í Sovétríkj-
unum árið 1917.
samþykkja bæri áætlun Sjatalíns
þannig að hún tæki til allra lýðvelda
Sovétríkjanna eða hvort hrinda bæri
í framkvæmd tillögum Ryzhkovs
forsætisráðherra er kveða á um mun
hófstilltari umskipti á vettvangi sov-
éskra efnahagsmála.
Gorbatsjov lýsti yfir því á fundi
Æðsta ráðsins að hann væri hlynnt-
ur tillögum Sjatalíns, sem m.a. gera
ráð fyrir einkavæðingu ríkisfyrir-
tækja og afnámi verðstýringár.
Hann hélt hins vegar uppi vörnum
fyrir Ryzhkov en þótti jafnframt
sigla milli skers og báru. Lét hann
þess m.a. getið að óhæfum mönnum
bæri að víkja úr embætti „með eðli-
legum hætti“ og þótti lítill vafi leika
á því að þessum orðum væri beint
til forsætisráðherrans. Reiði bæði
stjórnmálamanna og almennings í
Sovétríkjunum vegna ömurlegra
lífskjara og sívaxandi skorts á nauð-
synjum hefur einkum beinst að
Ryzhkov. Hafa róttækir umbóta-
sinnar gagnrýnt slælega framgöngu
forsætisráðherrans á þessum vett-
vangi og krafist afsagnar hans.
Ryzhkov fékk fremur kuldalegar
móttökur er hann kynnti tillögur
sínar í gær en hann er þeirrar skoð-
unar að áætlun Sjatalíns auki bæði
á fjárlagahallann í Sovétríkjunum
og hleypi af stað óðaverðbólgu.
Tveir þingmenn kröfðust þess að
Ryzhkov léti af embætti og annar
þeirra gat þess í framhjáhlaupi að
það ætti Gorbatsjov einnig að gera.
Ryzhkov hótaði afsögn í gær og
þykir líklegt að sú verði raunin hafni
þingheimur tillögum hans en Gorb-
atsjov boðaði í gær að málamiðlun-
artillaga yrði kynnt í dag, miðviku-
dag.
Líbería:
Ástralía:
Elsta land-
nám hvítra?
Sydney. Daily Tclegraph.
LÍKLEGT er að skipbrots-
menn frá Hollandi, Þýska-
landi og Norðurlöndum hafí
sest að í Ástralíu meira en 70
árum áður en Bretar komu til
Botany-flóa árið 1788.
Vísbendingarnar eru m.a.
gömul tóbaksdós, er fannst við
vatnsból norðan við Perth og
sjaldgæfur, arfgengur sjúk-
dómur sem greinst hefur í
frumbyggjum.
Flak hollenska skipsins Zuyt-
dorp, sem brotnaði í klettum við
Hákarlaflóa, 48 km frá vatnsból-
inu, árið 1711, fannst fyrir
mörgum árum. Nýlega fundust
svo skjöl í Amsterdam sem
greindu frá því að Zuytdorp og
annað skip voru í leigusiglingum
fyrir Hollenska Austur-Indíu fé-
lagið. Efnaskiptasjúkdómur,
porfyria variegata, kom upp á
báðum skipum og 112 af 286
manna áhöfnum dóu áður en
skipin náðu höfn í Höfðaborg á
leiðinni austur á bóginn. Sjúk-
dómur þessi hefur nú greinst í
afkomendum frumbyggja sem
•bjuggu við umrætt svæði.
Stuðningsmenn Doe
forseta eltir uppi
Freetown. Reuter.
SKÝRT var frá hörðum bardöguni í Monróvíu, höfuðborg Líberíu,
í gær. Uppreisnarmenn eltu uppi hermenn úr liðsafla Samuels Doe
forseta sem sagður er hafa verið felldur. Margir gáfust upp og af-
klæddust einkennisbúningum sinum en nokkur hópur" varðist enn
af liörku í rammlega víggirtri forsetahöllinni.
Framkvæmdastjóri Efnahags-
bandalags V-Afríkuríkja (ECOW-
AS), hvatti Charles Taylor skæru-
liðaforingja og menn hans, er ráða
mestöllu landinu, til að hætta að
beijast þar sem þeir hefðu náð tak-
marki sínu; að koma Doe frá völd-
um. Talið er að menn annars upp-
reisnarforingja, Prince Johnsons,
hafi drepið Doe eftir að hafa hand-
samað hann í aðalstöðvum 4.000
manna friðargæsluliðs sem er í
Líberíu á vegum ECOWAS-ríkja.
Framkvæmdastjórinn sagði
gæsluliðið ekki bera ábyrgð á hand-
töku Doe og vísaði á bug að hann
hefði verið ginntur í launsátur.
Ekki er vitað af hveiju Doe hélt til
stöðva friðargæsluliðsins.