Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 3

Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 3 Niðurstöður Ríkisendurskoðunar: Sjálfstæðisflokkurinn fengi 50,1% atkvæða í Aiþingiskosning- um, væri kosið nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Fé- lagsvísindastofnun Háskólans hef- ur gert fyrir Morgunblaðið. Fylgi flokksins hefur ekki mælst áður yfir 50% í skoðanakönnunum stofnunarinnar, en það mældist 45,5% í síðustu könnun í mai. Alþýðuflokkurinn bætir einnig við sig fylgi frá síðustu könnun, hækkar úr 8,1% í 11,5%. Fylgi Framsóknar- flokks minnkar úr 16,4% í 15,8%, Fylgi Alþýðubandalags minnkar úr 11,9% í 9,4% og fylgi Kvennalista minnkarúr 14,5% í 9,4%. Aðrir flokk- ar eru með 1% fylgi eða minna. í skoðanakönnuninni voru menn spurðir hvaða flokk eða lista þeir kysu ef Alþingiskosningar væru á morgun. Ef svarið var: „veit ekki“ voru menn spurðir hvaða flokk væri líklegast að þeir kysu. Ef svarið var enn óráðið, var spurt hvort líklegra væri að þeir kysu Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern annan flokk. Með þessu móti fór hlutfall óráðinna niður í Fprstöðumaimi Mó- gilsár gert að endur- greiða 170.000 krónur RÍKISENDURSKOÐUN hefur komist að þeirri niðurstöðu að Jóni Gunnari Ottóssyni, fyrrverandi forstöðumanni Rannsóknastöðvar Skóg- ræktar ríkisins að Mógilsá, beri að endurgreiða 170 þúsund krónur í ríkissjóð, sem hann hafi notað í heimildarleysi meðan hann var forstöðu- maður rannsóknastöðvarinnar, meðal annars til að greiða simakostn- að, ferðakostnað, stöðumælasektir og gistikostnað á hótelum í Reykjavík. Kemur þetta fram í endurskoðunarskýrslu um athugun á bókhaldi og ársreikningum Rannsóknarstöðvarinnar að Mógilsá, sem Ríkisendurskoðun gerði að beiðni landbúnaðarráðherra. Hefur ríkis- endurskoðun óskað eftir því við ríkisféhirði að Jón Gunnar verði kraf- inn um greiðslu á umræddri upphæð. Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar: Sjálfstæðisflokkurinn með hreinan meirihluta 7,3%, en fylgi Sjálfstæðisflokksins, meðal þeirra sem tóku afstöðu, lækk- aði úr 54,1% í 50,1%. Sjá' niðurstöður könnunarinnar á bls. 20. I skýrslu ríkisendurskoðunar, sem nær yfir tímabilið 1. janúar 1989 til 1. júní 1990, kemur fram að Jóni Gunnari Ottóssyni beri að greiða símreikninga að upphæð rúmlega 50 þúsund krónur, sem hann hafi fengið endurgreidda, en þar af eru tæplega 18 þúsund krónur vegna reikninga sem hann hafi fengið tvígreidda. Þá beri honum að endurgreiða 12 þús- und krónur vegna ferðakostnaðar innanlands, 11 þúsund vegna stöðu- mælasekta, rúmlega 33 þúsund krón- ur vegna gistikostnaðar á hótelum í Reykjavík og 50 þúsund vegna tvígreiðslu ritlauna. Fram kemur í skýrslunni að Jón Gunnar hafi stofnað til ýmissa út- gjalda rannsóknastöðvarinnar, sem Ríkisendurskoðun telur að hann hafi skort heimildir til. Þar er meðal ann- ars um að ræða 600 þúsunda króna kostnað vegna myndbandsgerðar og kaup á tölvubúnaði fyrir tæplega eina milljón króna. Þá kemur einnig fram í skýrslu ríkisendurskoðunar áð á árinu 1989 hafi verið farið 539 þúsund krónur fram úr fjárheimildum Rannsókna- stöðvarinnar að Mógilsá, og frá 1. janúar til 31. maí 1990 hafi kostnað- ur stofnunarinnar umfram framlög numið 1.241 þúsund krónum. Jón Gunnar Ottósson sagði í sam- tali við Morgunblaðið að hann teldi rekstrarumfang rannsóknastöðvar- innar hafa verið innan fjárheimilda Áform um áliðnað í Miðausturlöndum: ísland gæti nýtt sér óvissuna Ztirich. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. ÁSTANDIÐ í Miðausturlöndum getur haft jákvæð áhrif á framtíð áliðn- aðar á Islandi og annars staðar. Fjölmörg fyrirtæki sem höfðu áform um að framleiða samtals um milljón tonn af hrááli í þessum heimshluta á ári hafa lagt áætlanir sínar á hilluna að sinni. Ódýr orka vegur ekki á móti óvissunni sem þar ríkir þar. Stöðugt stjór'narfar og vatnsorka kynni að hafa aðdráttarafl fyrir einhver þessara fyrirtækja. Þetta kom fram í samtali við að reisa álver á íslandi hafi aukist starfsmann Alusuisse-Lonza (A-L) á síðan Irakar réðust inn í Kúvæt og þriðjudag. Hann telur líkurnar á að er þeirrar skoðunar, að verinu verði fyrirtækin í Atlantal-hópnum ákveði valinn staður á Keiíisnesi. ríkisins á því tímabili, sem skoðun ríkisendurskoðunar nær til, og hefur hann í bréfi til landbúnaðarráðherra farið fram á vegna frétta í sumar um rekstur stöðvarinnar umfram fjárheimildir, að ráðuneytið sendi frá sér yfirlýsingu þar sem sá misskiln- ingur sé leiðréttur. Þá óskar hann eftir að 'samanburður verði gerður við aðrar stofnanir sem heyri undir ráðuneytið. Á móti kröfu ríkisendur- skoðunar um endurgreiðslur bendir Jón Gunnar á að hann eigi inni hjá ráðuneytinu 111 þúsund krónur vegna ógreiddra reikninga, auk ógreiddra launa tímabilið júní til september 1990. „Þessar niðurstöður ríkisendur- skoðúnar eru í raun og veru pantað- ar af landbúnaðarráðuneytinu. Ég hef engu að leyna, og ég vil að farið verði ofan í saumana á Skógrækt ríkisins á sama hátt til að staðfesta að það sem hér er um að ræða er nákvæmlega það sem tíðkast hjá Skógræktinni", sagði hann. Álverð hefur hækkað um 30% síðan í júlí í framhaldi af óvissunni við Persaflóa. Eftirspurn hefur auk- ist þar sem álnotendur hafa aukið birgðir sínar en þær voru áður í lág- marki. Lágt verð á áli hafði í för með sér að afkoma A-L á fyrri helm- ingi þessa árs var mun verri en á sama tíma í fyrra. Fyrirtækið var þó rekið með hagnaði. Páll Eiríks- son skipaður yfirlög- regluþjónn Dómsmálaráð- herra hefur skip- að Pál Eiríksson til að gegna starfi yfirlög- regluþjóns við lögreglulið Reykjavíkur. Páll var einn 19 umsækjenda um starf Guðmundar Hermannsson- ar, sem sagt hefur starfi sínu lausu. Páll Eiríksson hóf störf í lögregl- unni í Reykjavík 1. febrúar 1943, þá 21 árs gamall. Hann varð varð- stjóri 1961, aðalvarðstjóri 1966 og aðstoðaryfirlögregluþjónn 1978. Páll Eiríksson. Morgunblaðið/Sverrir Ráðhúsið senn fullbúið að utan Ráðhús Reykjavíkur verður fullbúið að utan í haust og þegar er farið að taka utan af því vinnupalla, eins og sést á myndinni sem tekin er frá mótum Vonarstrætis og Tjarnargötu. Gluggar hafa verið gleijaðir og gengið frá þaki hússins. Innan dyra er meðal annars unnið við múi-verk, pípulagnir og loftræstikerfi. Fremst á myndinni sést hellulagður botn tjarnar sem verður við norðurenda hússins. Lóðin verður frágengin í haust að undanskilinni fyllingu í Tjörninni sem fjarlægð verður næsta haust. Fjóla Kjartansdóttir í Birtinga- holti ánægð með glænýjar kart- öflur úr akrinum. í afmæliskaffí á kartöfluakrinum. Eymundur Kjartansson aðstoðar- maður, Sigurður Ágústsson bóndi, Fjóla Kjartansdóttir, Sigríður Eiríksdóttir og Ágúst: Sigurðsson bóndi. ar, reiddi fram pönnukökur, myndar- lega brauðtertu og ljúffenga hrístertu með ijóma. Það var engin kaffilaut í nágrenninu svo það var búið um sig á kerruvagni í skjóli við jeppann. Brauðtertan var skorin og öðru ljúffengu kaffimeðlæti skolað niður með kaffinu sem var hressandi því vatnskuldi var í loftinu. Sigurður var hinn ánægðasti með uppskeruna, sem auðvitað var umræðuefnið, og gat þess svona í leiðinni að það væri síst verra að drekka afmæliskaffið undir þessum kringumstæðum. Stóra Laxá rann hljóðlega í ná- grenninu, heyra mátti vélarhljóð frá upptökuvélum nágrannanna á næsta akri og í fjarlægð blöstu við reisuleg- ir bæir Hrunamanna. Þetta var góð stund. Það er smitandi ánægja að gleðjast yfir góðri uppskeru. - Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.