Morgunblaðið - 12.09.1990, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990
Forseti Islands í Lúxemborg:
„Það er g*ott að vera Is-
lendingnr í Lúxemborgu
Lúxemborg, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
Annar dagur opinberrar heimsóknar Vigdísar Finnbogadóttur,
forseta Islands til Lúxemborgar var í gær. Forseti heimsótti meðal
annars klaustrið í Clervaux þar sem Halldór Laxness ól manninn
um tíma og hélt móttöku fyrir íslendinga sem búsettir eru í Lúxem-
borg. í gærkvöldi hélt forseti veislu til heiðurs stórhertogahjónunum.
Dagurinn hófst á því að ekið
var til Clervaux sem er í norður-
hluta Lúxemborgar. Þar tók ábóti
klaustursins.á móti forseta og
leiddi hana um kapellu klausturs-
ins og inn í bókasafn þess. Þar
lágu frammi ritverk tengd íslandi
auk Nonnabókanna ástsælu. For-
seti ritaði nafn sitt í gestabók
klaustursins og færði bókasafni
þess að gjöf Heimsljós, Kristni-
hald undir Jökli og íslandsklukk-
una eftir Halldór Laxness í
franskri þýðingu. Að því loknu tók
borgarstjóri bæjarins á móti for-
seta og sýndi henni Clervaux kast-
ala.
Frá Clervaux hélt forseti ásamt
fylgdarliði til bæjarins Echternach
þar sem snæddur var hádegis-
verður í boði lúxembúrgískra
stjórnvalda. Jacques Santer for-
sætisráðherra rifjaði upp í ávarpi
sínu dvöl íslenska Nóbelskáldsins
í Clervaux og fór nokkrum orðum
um sérstakt og náið samband ís-
lands og Lúxemborgar.
Vigdís Finnbogadóttir þakkaði
hlý orð í sinn garð og íslensku
þjóðarinnar og fjallaði í ávarpi
sínu um nauðsyn íslendinga á
góðum tengslum við umheiminn.
Forseti vísaði til sagnarinnar um
Óðin sem með fulltingi Hugins
og Munins sá um veröld alla. Þá
hélt forseti til Betzdorf og skoð-
aði og fræddist um jarðstöð em
dreifir sjónvarpsefni margra
stöðva um gervihnött vítt um
Evrópu.
Síðdegis var móttaka fyrir ís-
lendinga búsetta í Luxemborg.
Rumlega 300 gestir komu í mót-
tökuna og var forseta fagnað inni-
lega. Þorbjörg Jónsdóttir for-
maður íslendingafélagsins bauð
Vigdísi Finnbogadóttur velkomna
á Islendingaslóðir í Lúxemborg
og afhenti forseta 35.000 franka
að gjöf til skógræktar á íslandi
með þeirri ósk að það mætti duga
til að gróðursetja eitt tré fyrir
Morgunblaðið/Gunnar Vigfússon
Forseti ritaði nafn sitt í gestabók klaustursins og færði bóka-
safni þess að gjöf Heimsljós, Kristnihald undir Jökli og íslands-
klukkuna eftir Halldór Laxness í franskri þýðingu.
hvern Islending sem búsettur er þjóð á borð við Islendinga kynnti
í LÚxemborg. Forseti flutti íslend- sig vel hvar sem fulltrúar hennar
ingunum bestu kveðjur að heiman væruá ferð. „Það er gott að vera
og þakkaði góða gjöf. Hún lagði íslendingur í Lúxemborg, þökk
áherslu á nauðsyn þess að smá- sé ykkur,“ sagði forseti að lokum.
VEÐURHORFUR ÍDAG, 12. SEPTEMBER
YFIRLIT í GÆR: Suðvestankaldi eða stinníngskaldi og skúrir um
vestanvert landið en hægari suðvestanátt og þurrt að mestu aust-
anlands.
SPÁ: Sunnan- og suðvestanátt, vaxandi vestantil á landinu síðdeg-
is. Súld og sföar rigníng sunnanlands og vestan en þurrt og víða
léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti 9-14 stig, hlýjast norðaust-
an- og austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Áfram umhleypingar
með sunnan- og suðvestanáttum. Rigning eða skúrir um allt sunn-
an- og vestanvert landiö en úrkomulftið norðaustanlands. Hiti 6-12
stig, hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi.
-JQ Hrtastig:
10 gráður á Celsíus
y Skúrir
*
V E1
= Þoka
= Þokumóða
’ , ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
Þrumuveður
TAKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
* 'Æ
>
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veiur
Akureyri 12 skýjað
Reykjavik 9 skýjaö
Bergen m rigning
Helsinki 10 skýjað
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað
Narssarssuaq S léttskýjað
Nuuk ■ 8 skýjað
Ósló 16 skýjað
Stokkhólmur 12 skýjað
Þórshöfn 12 léttskýjað
Algarve 25 hálfskýjað
Amsterdam 18 léttskýjað
Barcelona 25 léttskýjað
Bertfn 17 skúr
Chicago 21 þokumóða
Feneyjar 23 léttskýjað
Frankfurt 14 suid
Qlasgow 17 hálfskýjað
Hamborg 17 léttskýjað
LasÞalmas 26 skýjaö
London 21 skýjað
Los Angeles ÍÉIl helðskirt
Lúxemborg 14 skýjað
Madríd 128 skýjað
Malaga 28 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Montreal 13 léttskýjaö
NewYork 22 skýjað
Orlando 24 mistur
París 10 skýjað
Róm 22 þrumuveður
Vin 14 skýjað
Washington 20 alskýjað
Wlnnipeg 18 skúr
Lúxemborg:
Áhersla á að ljúka
sammngum við EFTA
Lúxemborg, frá Kristófer Má Kristinssyni fréttaritara Morgunblaðsins.
Á FUNDI Jóns Baldvins Hannibalssonar með Jacques Poos utanríkis-
ráðherra Lúxemborgar í Lúxemborg í gær kom fram mikill áhugi
á því að samningaviðræðum Evrópubandalagsins við EFTA verði
lokið fyrir áramót.
Jón Baldvin sagði að Poos hefði
sagt að á fundi í Róm nýverið hefði
verið lögð áhersla á að leggja kapp
á að ljúka samningum EFTA og
EB um Evrópskt efnahagssvæði
(EES) á þessu ári. Lúxemborgarar
taka við forsæti í ráðherraráði EB
af ítölum um áramótin og fundur-
inn í Róm var haldinn til að und-
irbúa það. Jón Baldvin sagði að
aðspurður hefði Poos talið að þjóðir
sem sæktu um aðild nú yrði fullgild-
ir meðlimir í fyrsta lagi eftir sjö
ár. Ekki hefði verið á Poos að skilja
að áhugi væri fyrir tvíhiiða viðræð-
'um við þjóðir utan bandalagsins
sem stendur. Samkvæmt heimildum
í Briissel hafa verið uppi efasemdir
innan framkvæmdastjórnar EB um
að gægt verði að ljúka samningum
um EES fyrr en næsta haust.
Heimsmeistaramótið í brids:
*
Islenska kvennaparið í
2. sæti í undanúrslitum
Genf. Fró Joni Baldurssyni, fréttantara Morgunbiaðsins á heimsmeistaramótinu í brids.
HJÖRDÍS Eyþórsdóttir og Jacqui McGraiI eru í öðru sæti þegar undan-
úrslit kvennaflokksins í tvímenning á heimsmeistaramótinu í brids eru
hálfnuð. Þrjátíu og sex pör af 92 í undanúrslitum komast áfram í úrsli-
takeppnina.
I opna flokknum eru Bjöm Ey-
steinsson og Helgi Jóhannsson í 74.
sæti af 192 keppendum í opnum
flokki. Aðalsteinn Jörgensen og Jón
Baldursson eru í 120. sæti og Bragi
Hauksson og Sigtryggur Sigurðsson
eru í 157. sæti. 72 pör komast áfram
I úrslitin.
Þessi þrjú pör voru í hópi para sem
komust áfram úr undankeppni sem
538 pör tóku þátt í. Þijú önnur
íslensk pör náðu ekki í undanúrslitin.
Þess má geta að mörg þekkt brid-
spör náðu ekki í undanúrslitin, og
má þar nefna fyrrum heimsmeistara
í tvímenning, Martel og Stansby frá
Bandaríkjunum, Gullberg og Göthe
frá Svíþjóð og Mello og Janz frá
Brasilíu sem eru núverandi heims-
meistarar í tvímenning.
Heimsmeistaramótinu í sveita-
keppninni lauk á mánudagskvöld og
þar urðu óvænt úrslit, því fjórir lítt
þekktir Þjóðveijar unnu sveit Mike
Moss frá Bandaríkjunum í úrslitaleik.
Þjóðverjarnir komust í úrslitaleikinn
á hálf vafasaman hátt. Þeir unnu
kanadíska sveit í undanúrslitum,
154-150, en síðar kærðu Kanada-
mennirnir úrslitin á þeirri forsendu
að skor eins spilsins hafði verið rangt
færð, og þeir því unnið leikinn
150-147. Keppnisstjóm tók kæruna
ekki til greina, þar sem hún kom of
seint fram, en í mótmælaskyni
mættu kanadamennimir ekki í leik
um 3. sætið. Úrsiitaieikurinn var jafn
framanaf, en svo tóku Bandaríkja-
mennirnir 30 stiga forustu. I íok
leiksins virtust þó Bandaríkjamenn-
imir missa úthaldið og Þjóðverjarnir
skutust fram fyrir þá í síðustu spilun-
um. Þeir heita Bemard Ludewig,
Jochen Bitschene, Georg Nippgen og
Roland Rohowsky. ■ Sá síðastnefndi
er aðeins 23 ára gamall og er, ásamt
Bandaríkjamanninum Bobby Levin,
yngsti spilari sem unnið hefur heims-
meistaratitil.
Sauðárkrókur:
Kaupfélag Skag-
firðinga yfirtekur
rekstur Melrakka
Sauðárkróki.
EINS og fram hefur komið var
fóðurstöðin Melrakki á Sauðár-
króki lýst gjaldþrota síðastliðinn
föstudag. Nú hafa hins vegar mál
skipast á þann veg, að einn stærsti
kröfuhafinn í þrotabúið, Kaupfé-
lag Skagílrðinga, hefur yfirtekið
reksturinn að minnsta kosti fram
til næstu áramóta.
Var ákvörðun þessi tekin í sam-
ráði við fulltrúa Byggðastofnunar,
sem voru hér á Sauðárkróki nú á
mánudaginn. Ef fram fer sem horfir
er gert ráð fyrir að rekstur fóður-
stöðvarinnar verði með eðlilegum
hætti næstu mánuðina, þannig að
Ioðdýrabændur á Norðurlandi vestra
ættu ekki að þurfa að óttast fóðurs-
kort fyrir dýr sín'það sem eftir er
ársins. BB