Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 13 Bókmenntaráðstefna í Þrándheimi: Oræð ásjóna módemismans Fyrri grein Bókmenntir Ingi Bogi Bogason Um mánaðamótin júlí—ágúst sl. var sautjánda ráðstefna Alþjóðlegra samtaka um norræn fræði (Intemati- onal Association for Scandinavian Studies) haldin við háskólann í Þrándheimi. Þátttakendur voru vel yfir 200 talsins og komu sumir langt að. Fyr- ir utan fjölda þátttakenda frá V-Evr- ópu mættu allmargir Bandaríkja- menn, m.a.s. kom einn frá ísrael og annar frá Japan. Mesta athygli vakti þó mikill fjöldi gesta frá aust- antjaldsríkjunum fyrrverandi. Þama voru m.a. rússneskir, armenskir, eistneskir, tékkneskir, pólskir og ungverskir norrænufræðingar. Sum- ir þeirra höfðu ekki átt heimangengt í langan tíma og hungraði því í nýj- ustu bókmenntastrauma á Norður- löndum. Viðfangsefni ráðstefnunnar var að þessu sinni módernismi í norræn- um bókmenntum. Skipulag ráðstefn- unnar var tiltölulega fijálslegt að því leytf að fyrirlestramir höfðu afar mismunandi snertilfleti við megin- þemað. í gangi var hópvinna um fjöl- breytileg efni sem á einn eða annan hátt tengdust módemisma. Nefna má sögu, aðferðafræði og hugmynd- afræði módernismans, lesnir og rýndir voru módernískir textar, og fjallað var um tengsl annarra list- greina við módernisma í bókmennt- um. Daglega voru haldnir þrír almenn- ir fyrirlestrar, auk þess voru flutt stutt erindi innan hópanna. Allt í allt telst mér til að um 70 framsögu- erindi hafi verið haldin á fjórum dög- um! Það sem hér verður rakið er því aðeins brotabrot af því broti sem einn ráðstefnugestur náði að njóta. Segja má að tvenns konar tilhneig- ingar hafí gætt í umfjöllun fyrirlesar- anna um módernisma. Annars vegar ræddu þær um hann sem bók- menntafræðilegt hugtak, sem væri nothæft um ýmis bókmenntaverk á ýmsum tímum, og hins vegar sem bókmenntasögulegt hugtak sem tæki yfir ýmsa strauma á 20. öld, strauma eins og expressjónisma, fútúrisma, dadaisma og súrrealisma. Fyrirlestur Torbens Broström, prófessors við Kennaraháskóla Dan- merkur, tilheyrði seinni hópnum. Ohætt er að segja að fyrirlestur hans, sem fjallaði um upphaf mód- ernisma í norrænum bókmenntum, hafi vakið einna mesta athygli á ráð- stefnunni. Broström talaði í ljóðrænu líkingamáli um fyrirbrigðið módern- isma, líkt því við blekspúandi kol- krabba, margarma skrímsli, sem ætti auðvelt með að koma að óvörum og fanga fórnalömb sín. Leaves of Grass eftir Walt Whitman kom út 1855 og Les Fleur du Mal eftir Baud- elaire kom út tveim árum síðar. Broström bendi á að þessar bækur veittu ólík andsvör við nýjum og sundurlausum veruleika. Whitman reyndi að lyfta sér yfir mótsagnir samtímans en Baudelaire greindi og tókst á við hugmyndaklofninginn sem bauð aftur upp á endurtekinn klofning en enga lausn. Og einmitt í þvi að takast á við hið óþekkta og óskiljanlega sýndist Broström felast módemísk afstaða. Broström skyggndist aftur til upp- hafs módemisma á Norðurlöndum og gaumgæfði þann jarðveg sem hann er sprottin úr. Symbólisminn var örvæntingarfuli tilraun til að skapa brú milli lífsfyllingar og tóms, hann var að mati Broströms „mál- farslegt björgunarbelti". Svar sym- bólismans við klofningi vitundarinn- ar var annað en í módemismanum síðar. Það fólst í sjálfri ljóðagerð- inni, ljóðrænni framsetningu og myndum. Symbólistamir álitu að bókmenntimar gætu orðið akkeri í tættri tilveru. Hjá þeim varð ljóðlist- in friðþæging eða brú milli illsættan- legra andstæðna, í henni fundu Edith Södergran skáldin heild sem ekki var til staðar í tilverunni. Broström nefndi að í skáldskap Einars Benediktssonar, Olafs Bulls og Einos Leinos endur- spegiaðist þessi tilhneiging vel. Meginverkefni Broströms var síð- an að rekja feril módernismans í- norræni bókmenntasögu. Það kom fram hjá honum sem og mörgum öðmm fyrirlesurum, að gildi fmnskra bókmennta verður ekki ofmetið í þessu samhengi. Sérstaklega nefndi hann Edith Södergran, erkiengil norræns módernisma, og rakti menntun hennar og áhrif. Fjölbreyti- legar alþjóðlegar menningaraðstæð- ur hafa líklega átt þátt í mótun henn- ar sem skálds. Hún bjó á Kirjála- eiði, sem lengi hefur verið bitbein Finna og Rússa, en gekk í þýskan skóla í Pétursborg. Hún dvaldist lengi í Sviss og kom áftur til Péturs- borgar rétt eftir októberbyltinguna 1917 full af Nietzsche og þýskum expressjónisma. í Septemberlyran (1918) og í Framtidens skugga (1920) brýst fram ný staða ljóðmæl- andans, „égsins“, sem átti eftir að hafa mikil áhrif á önnur skandínav- ísk skáld (og þar með talið íslensku atómskáld akynslóðina). Broström taldi baráttuskeiði mód- ernismans vera lokið. Hann væri al- mennt viðurkenndur sem bókmenn- taleg staðreynd, orðinn hefð. Samt hlyti að felast í þessari stöðu stór þversögn, því hvernig getur mótþróa- full bókmenntagrein spilað sig í sátt við hefðina? Broström hélt því fram að nú gæti allt gerst, bókmenntirnar væru suðupottur þar sem gamlar og nýjar hreyfingar ýmist blönduðust eða stönguðust á. Runninn væri upp tími nýrra andmælabókmennta sem andmæltu eldri andmælum. Ásjóna þessa skeiðs væri því jafntorkenni- legt og útlit kolkrabbans blekspú- andi. Og þetta væri einmitt einkenni á núverandi, illskilgreinanlega skeiði sem ýmist er nefnt stílmódemismi eða póstmódemismi. í þjónustu grimmdarinnar Bókmenntir Súsanna Svavarsdóttir Blóðugur blekkingaleikur Höfundur: Ion Mihai Pacepa Þýðandi: Ólafur B. Guðnason Útgefandi: Almenna bókafélagið Það er kannski eðlilegt að yfir okkur dembist bókmenntir um hrylling kommúnismans þessa dag- ana — og já, næstu árin. Líkast til liggur allmörgum af þeim milljónum sem hann hafa þurft að þola sitt- hvað á hjarta. Og nú nýverið kom út í íslenskri þýðingu bókin „Blóð- ugur blekkingaleikur," þar sem Pacepa, fyrmm yfirforingi rúm- ensku öryggislögrelgunnar í tíð Ceausescus, afhjúpar spillingu þá sem viðgekkst í hans valdatíð. Pacepa flýði frá Rúmeníu í júlí 1987, þegar hann var sendur til Þýskalands til að falast eftir vest- rænum hernaðarleyndarmálum. Honum var nóg boðið, eftir að hafa þjónað kommúnismanum í 27 ár — og ekki undarlegt. Bókin spannar þó ekki þessi 27 ár, heldur eingöngu tímabilið frá því í mars 1978, til loka apríl, auk Kirkjuhús- ið flutt í Kirkjuhvol VERSLUNIN Kirkjuhúsið er flutt í Kirkjuhvol, Kirkjutorgi 4, gegnt Dómkirkjunni. Kirkjuhús- ið, sem sameinast hefur Skál- holtsútgáfunni, er sjálfseignar- stofnun á vegum þjóðkirkjunnar og annast það margs konar þjón- ustu við einstaklinga og söfnuði. Kirkjuhúsið sér um framleiðslu á og selur fræðsluefni hvers konar og heppilegt lesefni fyrir börn auk margs konar gripa til nota í kirkj- um, svo sem hökla, ljósastikur og krossa. Þá er í Kirkjuhúsinu útsala frá Biblíufélaginu og eru þar seldar allar gerðir Biblíunnar sem fáanleg- þess sem segir frá því í eftirmála hvernig Pacepa flýði. En þetta stutta tímabil segir mikla sögu, einkum og sér í lagi vegna þess að í fyrri hluta bókarinnar stekkur höfundurinn til og frá í tíma. Hann tengir söguþráðinn við löngu liðna atburði og leynimakk Ceausescus — þó sérstaklega þá svikamyllu sem hann setti upp í kringum PLO og ísrael og Hussein í Jórdaníu. Þetta ráp til og frá í tíma gerir bókina eilítið ruglingslega til að byija með, vegna þess að Pacepa er að lýsa svo ótrúlegum hlutum, að maður hreinlega missir tímaskynið. Pacepa dregur ekki upp fagra mynd af leiðtogum kommúnismans né arabaleiðtogum. Hann var aðal- aðstoðarmaður Ceausescus í að koma á samningum og sambandi milli Rúmeníu og Arafats og Rúm- eníu og Gaddafis — og er því lík- lega besti heimildarmaður um spill- inguna og tvöfeldnina sem í því öllu fólst. Ceausescu átti sér þann draum æðstan að fá friðarverðlaun Nóbels og eyddi því töluverðu púðri í að fá Arafat til að slaka á kröfum sínum og breyta hryðjuverkasam- tökum sínum í útlagastjórn. Sömu- leiðis skáldaði hann upp mikið ráða- brugg til að fá vestræn ríki til að ar eru á íslensku. Þá annast Kirkju- húsið einnig útvegun bóka og ann- arra gagna í kirkjulegu starfi og veitt er sérstök þjónusta vegna margs konar kirkjulegra athafna svo sem fermingar og skírnar. Auk Ion Mihai Pacepa viðurkenna PLO-samtökin. í raun og veru var honum alveg sama um þetta allt — vildi bara frá friðar- verðlaun. Pacepa lýsir leyniþjónustunni, DIE, skipulagi hennar og innviðum, sem hafði á sínum snærum allar þess eru seld minningarkort í Kirkjuhúsinu. Stór þáttur í starfi Kirkjuhússins, Skálholtsútgáfunn- ar, er útgáfa á fræðsluefni fyrir safnaðarstarf svo og útgáfa Víð- förla, sem er fréttablað kirkjunnar. tegundir af njósnurum; iðnnjósnara, efnahagsnjósnara og hemaðarn- jósnara, svo eitthvað sé nefnt, blekkingameistara, áróðursmeist- ara — kerfi og efni til að láta fólk tala, veikjast og deyja. Njósnanet Ceausescus náði um allan heim — og um alla Rúmeníu. Sem dæmi um virknina gerist það á einum stað að Ceausescu finnst njósnakerfið innan Rúmeníu ekki nógu fullkomið og skipar svo fyrir, að framleiddir skuli nýir símar og í hverjum þeirra var hljóðnemi — síðan skuli allar aðrar tegundir af símum bannaðar. Annars eyðir Pacepa engum tíma í að segja frá því hvemig innan- landsstjórn Ceausescus vann, held- ur er hann fyrst og fremst að lýsa samskiptum Ceausescus við um- heiminn. Ég verð nú að segja eins og er, að þessi Ceausescu hefur verið aldeilis makalaus maður. Yfir- sýn hans var með ólíkindum og þótt hann hefði mörg þúsund- manna njósnanet er hreint ótrúlegt hvað hann gat meðtekið af upplýs- ingum og tekið ákvarðanir út frá þeim. Þótt löngu sé orðið ljóst að Ceausescu var svo siðlaus og grimmur að jaðraði við ómennsku var hann greinilega ekki heimskur. Enda tókst honum að blekkja hálf- an, ef ekki allan heiminn, lengi vel. En Pacepa lýsir honum einnig sem hégómlegum, sjúklega líf- hræddum og að miklu leyti i haldi hjá Elenu — konu sinni. Myndin sem dregin er upp af Elenu er ótrúleg — og greinilegt að allir aðstoðarmenn Ceausescus hötuðu hana eins og pestina. Hún er kölluð nornin, herfan og þaðan af verra. Hennar mesta yndi var að hlusta á upptökur af ástarleikj- um, sem njósnakerfið sá henni fyr- ir í kílómetravís. Hún var orðljót, ofstækisfull og hafði einstakt yndi af því að niðurlægja alla í kringum sig — og yfirleitt þegar hún kemur fram í bókinni er hún einhvers stað- ar fáklædd að draga karl sinn í rúmið. Síðasti hluti bókarinnar fjallar um heimsókn Ceausescu-hjónanna til Bandaríkjanna í tíð Carters. Elena, sem var yfirmaður Efna- fræðistofnunarinnar — ög átti heilt ritsafn, með sínu höfundarnafni, sem aðrir höfðu unnið, hafði ein- göngu áhuga á heiðursdoktorsnafn- Við opnun nýja Kirkjuhússins á nýjum stað afhenti framkvæmdastjór- inn, Edda Möller, biskupi íslands, herra Ólafi Skúlasyni, fyrsta ein- tak nýrrar bókar fyrir börn og unglinga sem heitir „Jesús, maðurinn sem breytti sögunni.“ bótum og skipaði Pacepa að útvega þær. Einnig vildi hún láta gefa sér pelsa og skartgripi. Ceausescu hafði mestan áhuga á sviðsetning- unni og heilmikið starfslið sá um að safna saman DIE-mönnum í Bandaríkjunum og Kanada til að hafa huggulega móttöku í rúm- enska sendiráðinu. Engin mótmæli, var skipun dagsins. Þrátt fyrir það urðu heiftarleg mótmæli í New York-borg, meðan hjónin dvöldust þar. Og Ceausescu ældi. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru — og bak við þennan ramma birtast ekki aðeins örlög eins manns, eða einnar þjóðar, heldur áhrifin sem spilling þeirra hefur haft á heiminn. Bókin er nokkuð stytt í íslenskri þýðingu — og er það eiginlega miður, því hún er áhugaverð og fremur skemmtileg aflestrar. Pacepa dregur ekkert úr sínum þætti í öllu ógeðinu — hann hlýddi, þar til hann gat ekki meir — rétt eins og aðrir nánir starfs- menn Ceausescus. Og þótt yfir okk- ur hafi dunið mikið magn af upplýs- ingum um ástandið í Rúmeníu í valdatíð Ceausescus er þessi bók ekki endurtekning — heldur viðbót — og hefur að geyma heimildir um hugsunarhátt þessa grimma for- ingja, sem dáði Hitler í leyni og geymdi í kvikmyndasafni sínu, spól- ur með ræðum hans. Pökkunar- límbönd ÁRVÍK ÁRMÚLI 1 -REYKJAVÍK - SIMI 687222 -TELEFAX 687295

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.