Morgunblaðið - 12.09.1990, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990
19
að standa á gömlum mel, fortíðin
óafturkallanleg þarna á horni
Snorrabrautar og Skúlagötu, en
sjórinn þó ennþá hinn sami, Ijaran,
fjöllin blá.
Við sáum nýju dælustöðvarnar á
Skúlagötunni, mikið nýjabrum og
örugglega ágætar til síns brúks,
þær dæla skólpinu þó nokkurn spöl
út í sjó, reyndar bráðfyndið hve vel
mátti greina hvar það kom út, því
þar sat heilt mávager og hossaðist
í hring og át „skít“! En hvers vegna
var ekki byggð hreinsunarstöð, sem
ekki einungis síar burt það allra-
allraversta, fyrst verið var að þessu
á annað borð? Fjaran í Reykjavík
verður hreinni, en hvað um aðrar
strendur. Við Bessastaði höfðu
ýmsir óskemmtilegir afgangar
skolast í land.
Ýmis smáatriði bar fyrir augu
okkar ferðalanganna, t.d. að brúnn
(þ.e. óklórhreinsaður) pappír, virð-
ist óþekkt fyrirbæri á Islandi. Und-
anfarin ár hefur snjóhvítur klósett-’
og eldhúspappír meira eða minna
horfið af markaðnum í Svíþjóð,
einnig er orið sjálfsagt mál að bréf-
kaffipokar (“filter") séu brúnir.
Umslög og annað þess háttar hefur
ennig tekið miklum stakkaskiptum,
þannig að yfirleitt er hægt að velja
vöru sem er „miljövanlig" þ.e.
verndar náttúruauðlindir, ef maður
vill. Einnig er endurnýting á pappír
og innsöfnun hans (þar á ég við
dagblöð, auglýsingasnepla o.s.frv.)
að verða sjálfsagður hlutur meðal
almennings. í hverri einustu mat-
vörubúð er tekið á móti áldósum
til að koma þeim áleiðis til endur-
nýtingar, sama hvað þú ert með
margar eða fáar.
Eftir að austantjaldslöndin opn-
uðust meira og meira, hafa hin
geigvænlegu umhverfisvandamál
sem þau eiga við að stríða orðið
augljós. Þar hefur mengunin gert
vatn ónothæft til drykkjar, sjóinn
of óhreinan til að baða sig í, valdið
sjúkdómum og beinlínis skert
lífslengd manna. Þessi vandamál
hafa opnað augu margra fyrir að
haf og loft eru ekki einkaeign, fyrr
eða síðar berast óhreinindi og eitur
á milli. íslendingar hafa stundum
orð á því í suðaustanátt, að loftið
frá meginlandinu sé ekki eins hreint
að anda að sér og við eigum ann-
ars að venjast. I sömu andrá er
yppt öxlum yfir þeirri mengun (t.d.
af völdum bifreiða) sem á sér stað
hér, því hún ku öll blása á burt í
rokinu!
Fyrsta kvöldið í Reykjavík borð-
uðum við góða ýsu hjá foreldrum
mínum uppi í Breiðholti meðan við
nutum útsýnisins yfir Elliðavatn
gegnum eldhúsgluggann. En svo
hófst pílagrímsferðin á ný: Aburð-
arverksmiðjan í Gufunesi með sinn
gula strók, öskuhaugarnir — sam-
ferðamaðurinn var hissa á að fólk
PliorgiwiiJi-
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁOHÚSTORGI
bjó í raðhúsum alveg „ofaní þessu“,
eitthvað spurði hann út í reykinn
úr Sementsverksmiðjunni á Akra-
nesi sem sást greinilega í góða veðr-
inu, en ég var orðin langþreytt á
að svara honum og stakk upp á að
við færum í Bláa lónið.
Á leiðinni þangað tók ekki betra
við, hann vildi ólmur mynda
Straumsvík og Stáliðjuna og svo
fiskþurrkunina sem er skammt frá.
En eftir þetta var ómögulegt að fá
hann til að borða harðfisk. Loksins
gat ég slappað af í Bláa lóninu og
hann var yfir sig hrifinn. Þetta var
eins og að baða sig upp úr volgri
mjólk! Gufan hafði góð áhrif og
margir verða betri til heilsunnar
eftir böð á þessum stað, þótt ég
hafi ekkert heyrt minnst á geð-
heilsu í því sambandi. Ég tók með
mér fallega, grænleita steina af
botninum til að gefa sænskum vin-
um.
Næsta dag ætluðum við vestur.
Jeppinn var ekki hrokkinn í sundur
ennþá, þótt hann væri eiginlega
„blæju-jeppi“ og eigandi hans
stundum langeygur á eftir upp-
hækkuðum „alvöru-slíkum" á
blöðrudekkjum og með gijótgrindur
að framan.
Höfundur er búsett í Svíþjóð og
er áhugamaður um
umh veríls vernd.
MALA-
SKÓLINN
MÍMIR
HEFUR ÁRATUGA
REYNSLU f TUNGU-
MÁLAKENNSLU Á
ÍSLANDI
ENSKA
ÞÝSKA
SPÆNSKA
FRANSKA
ÍTALSKA
ÍSLENSKA
F. ÚTLENDINGA
ENSKA FYRIR
BÖRN
JAPANSKA
SÆNSKA
O.FL.
INNRITUN
STENDUR YFIR
10 004
216 55
Málaskólinn
Mímir
STJÓRNUNARFÉLAG islands
ER EIGANDI MALASKÓLANS MlMIS
Þ.ÞORGRÍMSSDN &C0
MU RUTLÁND
gHU ÞÉTTIEFNI
Á ÞÖK - VEGGI - GÓLF
ÁRMÚLA 29, SÍMI 38640
NVt ÞWSStóUNN
SKÍLAR BETRI ÁRANGRI
Innritun kl. 13-19, Reykjavík 38830, Hafnarfirði 652285
Kennsla hefst 15. september
BIODROGA
VETURINN 1990
BIODROGA
fagnar vetrinum 1990 með
it 15 nýjum varalitum
it 15 nýjum naglalökkum
it og annarri litavöru í takt við það
Kynntu þér nýjungarnar ó næsta
útsölustað BIODROGA
BIODROGA
lífrænar jurtasnyrtivörur
Útsölustaðir:
Stella Bankastræti, Brá Laugavegi, Ingólfsapótek Kringlunni, Snyrtistofan Rauðarárstíg
27, Snyrtistofa Lilju Grenigrund 7, Akranesi, Kaupfélag Skagfirðinga, Kaupfélag Eyfirð-
inga, Húsavíkurapótek, Vestmannaeyjaapótek.
ATHYGLISVERT!
Frumleg hönnun, gæöi og nýjungar í innri
búnaði eru sterkustu einkenni Ármannsfells
innréttinganna. Leikur aö litum og fjölbreytt
efnisval auövelda þér aö finna nákvæmlega
réttu innréttinguna fyrir þig.