Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 22

Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 STRÍÐSÁSTAND VIÐ PERSAFLOA Birgðaflutningar til Persaflóasvæðisins: Danskt skipafélag leggnr til tvöskip Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. Reuter. DANSKA skipafélagið A. P. Möll- er hefur boðist til lána tvö af skipum sínum til þess að flytja vopn og vistir frá Bandaríkjun um til Persaflóasvæðisins endur- gjaldslaust. James Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, færði Dönum þakk- ir fyrir boð skipafélagsins á fundi með utanríkisráðherrum Atlants- hafsbandalagsins (NATO) í Brussel í fyrradag. Þar skoráði hann á NATO-ríki að leggja til flugvélar og skip til þess að flytja bandaríska hermenn til Persaflóasvæðisins. Skipin, sem A.P. Möller býður að láni eru Adrian Mærsk og Al- bert Mærsk. Bandaríkjastjórn hefur leigt tvö skip frá Mercandia útgerð- arfélaginu til að flytja vistir og hergögn til Persaflóasvæðisins og er Ieigan fyrir þau bæði samtals 85.000 danskar krónur á dag eða jafnvirði 800.000 ÍSK. Reynst getur erfitt að manna þau því þar sem þau koma til með að flytja hergögn vilja danskir sjómenn ekki skrá sig á þau nema gegn áhættugreiðslum. Frakkar ákváðu í gær að verða við áskorun Bandaríkjamanna og senda fjögur skip til þess að flytja hermenn oggögn til Persaflóasvæð- isins. Talsmaður varnarmálaráðuneyt- isins í Ankara, höfuðborg Tyrk- lands, vísuðu í gær á bug fregnum þess efnis að tvær tyrkneskar frei- gátur væru á leið til Persaflóa til þátttöku í aðgerðum hins alþjóðlega flota sem þar er_ saman kominn vegna innrásar íraka í Kúvæt. Heimildir úr röðum tyrkneska hers- ins hermdu að tregðu gætti hjá yfirvöldum í því að senda herlið til Persaflóasvæðisins. Eftirlíking Reuter Þrettán ára kúvæsk stúlka teiknar nasistaarmband á mynd sem hún teiknaði af Saddam Hussein íraksforseta í sýningarbás á vörusýningu, sem nú stendur yfir í Damaskus í Sýrlandi. Við hlið teikningarinnar er mynd af nasistaforingjan um Adolf Hitler. Skriður kom- inn á brott- flutning flóttamanna Amman. Reuter. UM 300.000 Egyptar og a.m.k. 65.000 Asíubúar bíða þess að komast til Jórdaníu frá Irak, að sögn talsmanns hjálparstofn- unarinnar Rauða hálfmánans í Irak. A hveijum degi flýja þús- undir manna yfír landamærin og bíður þeirra erfíð vist í flóttamannabúðum í steikjandi hita þar sem sporðdrekar heija. Að sögn Klaus Wiersing, full- trúa Neyðarhjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNDRO), hafa vestræn ríki bmgðist vel við beiðni um aðstoð við flóttamenn í Jórdaníu. Berast nú matvæli og hjálpar- gögn í miklum mæli og mun það, að sögn Wiersings, auðvelda að- hlynningu og bæta vist tugþús- unda flóttamanna sem hafast við í hrörlegum búðum í brennandi hita í jórdönsku eyðimörkinni. Verulegur skriður er kominn á brottflutning flóttamanna frá Jórdan og t.a.m. flaug fjöldi flug- véla í gær með rúmlega 3.700 flóttamenn til nokkurra Asíuríkja. Hugmyndir risaveldanna um öryggisbandalag: Egyptar óttast um hlutleysi sitt Rabat, Kairo. Reuter. HUGMYNDIR Bandaríkjamanna um að stofnað verði varnarbanda- lag í Mið-Austurlöndum, sem hlutu góðar undirtektir Sovétmanna á Ieiðtogafundinum í Helsinki á sunnudag, hafa valdið óróa í Egypt- alandi. Þrátt fyrir góð samskipti við Bandaríkin hefur Egyptum verið mikið í mun að halda í hlutleysið og hafa þeir verið í forystu arabaríkja í andstöðu við hernaðarbandalög sem risaveldin eiga aðild að. Þrátt fyrir sameiginlega yfirlýs- ingu Míkahíls Gorbatsjovs Sovét- leiðtoga og George Bush Banda- ríkjaforseta eftir leiðtogafundinn í Helsinki sl. sunnudag um að her- sveitir verði ekki degi lengur í Saudi-Arabíu en þörf krefur, segja sumir stjórnmálaskýrendur að orð Bush um að bandarískar hersveitir verði á svæðinu þar til öryggis verði gætt þar á þann hátt sem Bandaríkjamenn geti sætt sig við, vera merki um að þeir muni ekki kalla hermenn sína heim fyrr en varnarbandalag, hliðhollt Banda- ríkjamönnum, verður stofnað. Ibrahim Faraq, framkvæmda- stjóri Nýja Wafd-flokksins í Egyptalandi, segir vamarsáttmála Arababandalagsins áfram munu standa bestan vörð um öryggi í arabalöndunum. Ákvörðun nokkurra aðila Araba- bandalagsins um að flytja höfuð- stöðvar þess frá Túnis til Kairo hefur valdið deilum innan banda- lagsins. Höfuðstöðvar Araba- bandalagsins voru fluttar frá Kairo til Túnis árið 1979 þegar Egyptar gerðu friðarsáttmála við ísraela og voru reknir úr bandalaginu fyrir vikið. Þeim var leyft að ganga í bandalagið aftur á síðasta ári. Austur-Þýskaland: Eiginkonur sovéskra hermanna mótmæla vegna heimflutnings Burg, A-Þýskalandi. New York Times. EIGINKONUR sovéskra hermanna efndu til óvenjulegra tveggja daga mótmæla í herstöð í Burg í A-Þýskalandi nýlega. Vildu þær láta í ljós óánægju með að verða fluttar heim til Sovétríkjanna. Sovéskir hermenn við hreyfanlega SS-12 kjarnorkuflaug í A-Þýskalandi. ■ STOKKHÓLMI- Sovéski flu- græninginn Míkhaíl Mokretsov var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í gær fyrir að ræna sovéskri flug- vél 5. júlí sl. og neyða flugmennina til að fljúga til Svíþjóðar. Þetta hefur það í för með sér að Mokr- etsov verður ekki framseldur til Sovétríkjanna að afplánun Iokinni, eins og tveir landar hans sem einn- ig rændu flugvélum í sumar og létu snúa þeim til Svíþjóðar. ■ KAUPMANNAHÖFN - Fimm hvalir hafa verið veiddir í leyfisleysi við Grænland í sumar; hnúfubakur við Sukkertoppen, hrefna við Nuuk, tvær langreyður við Kangatsiak, ein við Egedesm- inde og ein í Umanak. 15 smábata- eigendur í Kangatsiak sem stóðu að drápi eins hvalsins hafa verið sektaðir um 1.000 danskar krónur hver, jafnvirði 9.500 ÍSK. ■ KAUPMANNAHÖFN - Mikil reiði hefur gripið um sig í Græn- landi vegna öldu nauðgana. Nýlega var fjögurra og átta ára stúlkum nauðgað og í bæ á vesturströndinni kom maður vilja sínum fram við 24 ára dóttur sína. Þá var 83 ára konu nauðgað á elliheinmil í Nuuk og sömu örlög biðu 69 ára gamallar konu á heimili sínu. Hefur Moses Olsen, sem fer með félagsmál í landsstjórninni, fyrirskipað dóm- stólum að grípa til harðari refsingar en hingað til nauðgunarmálum og ýmis kvennasamtök hafa krafist opinberra umræðna um vandann. Hans Engell, dómsmálaráðherra Danmerkur, hefur látið málið til sín taka í blaðagrein og segir að Græn- lendingar flýi raunveruleikann með- an þeir ræði ekki um áfengisneysl- una og glæpamálin í samhengi. ■ PRAG - Tékkar hafa ákveðið að hætta þátttöku í umfangsmikl- um sameiginlegum heræfingum Varsjárbandalagsins en hyggjast taka þátt í minniháttar æfingum, að sögn Miroslavs Vaceks vamar- málaráðherra. Hann sagði Tékka vera endurskoða skipulag varnar- mála sinna og yrði herinn staðsett- ur meðfram landamærunum í stað þess að safna honum öllum við vest- urlandamærin eins og hingað til. Munu sveitirnar því taka sér stöðu við landamærin sem liggja að Sov- étríkjunum í fyrsta sinn frá árinu 1938. ■ SRINAGAR - Að minnsta kosti 21 maður beið bana í gær er indverskar hersveitir skutu á lang- ferðabíl aðskilnaðarsinna frá Kasmír. Yfirmaður indversku landamærasveitanna sagði að að- skilnaðarsinnar hefðu hafið skothríð er landamæraverðir gáfu bílstjóranum stöðvunarmerki. Henni var svarað og sprakk bíllinn þá í tætlur þar sem hann var hlað- inn vopnum og sprengiefni. ■ NAIRÓBÍ - Jóhannes Páll páfi hefur reitt menn sem eru í forystu baráttunnar gegn alnæmi í Afríku til reiði með yfirlýsingum sínum um getnaðarvarnir. I nýlok- inni 10 daga heimsókn til þriggja Afríkuríkja fordæmdi páfi notkun smokks við samfarir en hann hefur verið talin ein besta vörn við al- næmi. Sagði páfi að eina leiðin til að veijast sjúkdómnum væri að stunda ekki kynlíf utan hjónabands. ■ MOSKVU - Sovéska öryggis- lögreglan, KGB, bauð sovéskum og erlendum blaðaniönnum í gær að heimsækja hið illræmda Lú- bjanka-fangelsi í Moskvu í gær í fyrsta sinn. Þar voru pólitískir fang- ar geymdir og pyntaðir um 30 ára skeið en margir þeirra báru þar bein sín. Einnig var blaðamönnun- um sýnt safn njósnatækja sem sagt var að bandarískir njósnarar hefðu verið gómaðir með. Talsmaður KGB sagði að starfsemi lögreglunnar væri öllu mannúðlegri en áður. Nýlega hafa fyrrverandi og núver- andi KGB-menn hins vegar sagt að engin breyting hefði orðið á lög- reglunni frá tímum Stalíns. Hún væri enn deild í sovéska kommúni- staflokknum og þar væru í forystu menn sem andsnúnir væru umbóta- stefnu Míkhaíls Gorbatsjovs, leið- toga flokksins. í yiðtölum við rússneskar konur fyrir utan óhijálegar fjölskyldubúð- irnar kom fram, að með mótmælun- um væru þær að bregðast við til- kynningu þess efnis, að 200. vélaher- deildin ætti í vetur að flytjast frá þessu austur-þýska sveitaþorpi til Suður-Rússlands. Þar ættu fjölskyld- urnar að búa í bráðabirgðahúsnæði á meðan hermennirnir reistu ný híbýli fyrir sig og fjölskyldur sínar. Sovéskur foringi tók svart-hvíta kvikmynd af mótmælunum og var hún sýnd í fréttatíma vestur-þýsku sjónvarpsstöðvarinnar ZDF. Þar sást kona halda á spjaldi með áletrun- inni: „Félagi Gorbatsjov, láttu okkur hafa húsaskjól í Sovétríkjunum!“ og „Hver á að hugsa um börnin okkar?“ Sjá mátti marga foringja og óbreytta hermenn á meða! kvennanna og studdu þeir baráttu þeirra. Þótt konurnar segðu, að skortur á húsnæði og vitneskjan um að þær þyrftu að hírast í einhvern tíma í óvissu um framtíðina í vetrarkuldum væri ástæðan fyrir aðgerðum þeirra, sögðust sumar einnig vera sáróán- ægðar yfir því, hve skyndilega væri að brottflutningnum frá A-Þyska- Iandi staðið. „Sjáið Bandaríkjamenn og Breta. Hermenn þeirra flytjast á brott með skipulegum hætti,“ sagði ung kona. „Við erum rekin af stað með börn okkar um miðjan vetur og eigum hvergi húsaskjól.“ Herdeildin í Burg er kölluð heim samkvæmt einhliða ákvörðun stjóm- valda í Moskvu á síðasta ári. Brott- flutningur hennar er ekki hluti af almennri heimkvaðningu sovéskra hermanna vegna sameiningar Þyska- lands. Helmut Kohl, kanslari V- Þýskalands, og Mikhaíl Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, sömdu um það í júlí í sumar, að 360.000 manna herlið Sovétmanna og 200.000 manna fylgilið þess skyldi hverfa á brott frá A-Þýskalandi á fjórum árum. Mótmæli kvennanna í Burg endur- spegla almennan kvíða sovéskra her- manna yfir því að hverfa aftur heim til Sovétríkjanna, þar aem almennur skortur ríkir og ekki er neitt hús- næði að finna. Talið er að ófremdar- ástand heima fyrir hafi verið helsta ástæðan fyrir því, að Gorbatsjov fór fram á að heimflutningnum yrði dreift á fjögur ár. Af þessum sökum samþykktu V-Þjóðverjar einnig að reisa tugþúsunda nýrra herskála í Sovétríkjunum. Rainer Eppelmann, varnarmála- ráðherra A-Þýskalands, segir að hver einasti sovéskur hermaður sé kvíða- fullur yfir framtíð sinni. „Þeir verða að kveðja súkkulaði-landið og standa frammi fyrir skortinum heima hjá sér.“ í Þyskalandi hafa sovéskir her- foringjar fengið um_ 1000 vestur- þýsk mörk (36 þús. ÍSK) á mánuði síðan myntbreyting var framkvæmd 1. júlí sl. Austur-Þjóðveijar báru kostnað af dvöl liðsins og V-Þjóðveij- ar öxluðu þá byrði eftir myntbreyt- inguna. Fyrir þessa peninga geta sovésku foringjarnir annað hvort keypt sér birgðir af vestrænum varn- ingi og bíla eða safnað fúlgu af rúbl- um með því að skipta mörkunum á svörtum markaði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.