Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990
23
Bretland:
Bretar o g Frakkar
beijast um latnbakjöt
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
VELSKIR bændur kröfðust þess um helgina, að allur innflutningur
á frönskum vörum yrði bannaður vegna árása franskra bænda á
flutningabíla með lömb frá Wales. Bresk yfirvöld hafa mótmælt
árásunum harðlega. I gær stöðvuðu franskir bændur flutningabíl
sem kom frá Bretlandi með 600 fjár. Þeir gáfu kindunum að éta
og drekka, smöluðu þeim aftur inn í bílinn og sendu hann heim.
Þetta gerðu þeir til að sýna að þeir hafa mildað aðferðirnar í barát-
tunni gegn kjötinnflutningi.
í síðustu viku réðust franskir
bændur hvað eftir annað á breska
flutningabíla, sem fluttu lömb frá
Wales til slátrunar í Frakklandi. Á
fimmtudag var franskur flutn-
ingabíll stöðvaður í Englandi og
bílstjórinn barinn til óbóta.
Bresk yfírvöld hafa mótmælt
þessum árásum harðlega og krafist
þess, að árásarmennirnir verði
dregnir fyrir dóm. Hafin var rann-
sókn í fyrsta málinu í Frakklandi
fyrir síðustu helgi, næstum hálfum
mánuði eftir fyrstu árásina.
Velskir bændur hafa krafist
þess, að gripið verði til viðskipta-
banns á franskar vörur í Bret-
landi. Búðir í Wales hafa sumar
neitað að selja franskar vörur
vegna þessara árása. Bændur í
Wales sögðust gn'pa til sinna ráða,
ef yfirvöld gerðu ekki eitthvað.
Dýraverndunarfélög hafa krafist
þess að útflutningi á lifandi fénaði
verði hætt.
Yfirvöld segja, að ekki sé hægt
að banna þennan útflutning vegna
reglna EB. Útflutningur Breta til
Frakklands á lömbum og kjöt-
skrokkum er mikill. Á síðasta ári
fluttu þeir út lömb til slátrunar i
Frakklandi fyrir um hálfan milljarð
ÍSK og skrokka fyrir tæpa 30 millj-
arða ISK.
Mikið framboð á lambakjöti í
Frakklandi hefur lækkað verð þar
svo mjög, að bændur þar segjast
vera á barmi gjaldþrots. Það er
ódýrara að ala lamb í Bretlandi en
Frakklandi.
Markaður fyrir lambakjöt við
“ Persaflóa hefur nú lokast vegna
átakanna þar. írar hafa flutt þang-
að mikið af lambakjöti. Velskir
bændur óttast, að írskt lambakjöt
flæði yfir markaðinn í Bretlandi
og Frakklandi á næstunni og lækki
verð enn frekar.
Hlerunarbúnaður í
kirkjutumi í Tallinn
Hclsinki. Reuter.
ÞINGMAÐUR á eistneska þinginu hefur ásakað sovésku öryggis-
lögregluna, KGB, um að hafa komið fyrir hlerunarbúnaði í kirkju-
turni í höfuðborg Eistlands, Tallinn, og krafíst þess að hann verði
fjarlægður, að sögn dagblaðs í Eistlandi.
Finnska dagblaðið Uusi Suomi
sagði á þriðjudag að eistneska
dagblaðið Paevaleht hefði greint
frá því að búnaðurinn væri notað-
ur til að hlera símtöl í Finnlandi
og Svíþjóð, þ.á m. fjarskipti hers-
ins.
Paevaleht vitnaði í Luri Liim,
þingmann efri deildar eistneska
þingsins, sem sagði að búnaður-
inn, sem hefði verið komið fyrir
árið 1980 fyrir Ólympíuleikana í
Moskvu, væri í Olevist-kirkjunni í
Tallinn.
Keppni í siglingum á Ólympíu-
leikunum fór fram fyrir strönd
Eistlands, um 80 km frá strönd
Finnlands.
Liim, sem gagnrýndi starfsfólk
kirkjunnar fyrir að hafa haldið
vitneskju um búnaðinn leyndri,
krafðist þess að hann yrði fjar-
lægður og að kirkjuturninn yrði
opnaður almenningi, sagði í Paev-
aleht.
GERMANIA 70 ÁRA
Afmælissamkoma
í íslensku Óperunni
laugardaginn 15. septemberkl. 16.00
Dagskrá:
1. Setning: Þorvarður Alfonsson,
formaður Germaniu
2. Kammersveit Reykjavíkur leikur
3. Ræða: Próf. Dr. Ottó Wulff, þingmaður, Bonn.
„Vielfalt der europáischen Kultur-Bereicher-
ung oder uberlebter Regionalismus?"
4. Einsöngur: Gunnar Guðbjörnsson, tenór
við undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
★ ★ ★
Kynnir: GísliAlfreðsson, Þjóðleikhússtjóri.
★ ★ ★
Aðgangur ókeypis
og öllum heimill
Reuter
„Pepsídós “ í Peking
Kínverji virðir fyrir sér risastóra uppblásna „pepsídós“ sem komið
hefur verið upp í Peking til þess að draga athygli vegfarenda að
nýjum veitingastað Pizza Hut-keðjunnar í borginni.
Austur-Þýskaland:
Liðsmanni Stasi
falið að upp-
ræta örygg-
islögregluna
Austur-Berlín. Reuter.
PETER-Michel Diestel, innanrík-
isráðherra Austur-Þýskalands,
staðfesti í gær að erfiðlega gengi
að uppræta öryggislögregluna ill-
ræmdu, Stasi, sem kommúnistar
ráku er þeir voru einráðir í
landinu. Sagði Diestel að m.a.
hefði komið í ljós að aðstoðarmað-
ur hans, sem ætlað var að fylgjast
með framgangi þessa þjóðþrifa-
máls, hefði sjálfur verið á mála
hjá öryggislögreglunni.
Diestel sagði að aðstoðarmaður
sinn hefði verið leystur frá störfum.
Hann gat þess að fyrrum starfs-
mönnum Stasi hefði ýmist tekist að
eyða ýmsum leynilegum skjölum eða
breyta þeim. Þá hefðu nokkrir félag-
ar í borgaranefndunum svonefndu,
sem falið var það verkefni að rann-
saka starfsemi öryggislögreglunnar,
selt skjöl og leynilegar upplýsingar
og hefði það framferði þeirra valdið
nokkrum vanda.
Rainer Eppelmann, sem fer með
afvopnunar- og varnarmál innan
austur-þýsku ríkisstjórnarinnar,
sagði í gær að hann hefði ákveðið
að láta eyða skjölum er Vörðuðu alla
500 starfsmenn leyniþjónustu
austur-þýska. hersins. Hefði það ver-
ið gert til að koma í veg fyrir að
mennirnir yrðu ákærðir fyrir njósnir
eftir að þýsku ríkin tvö hefðu samein-
ast. Lét Eppelmann þess getið að
Wolfgang Schauble, innanríkisráð-
herra Vestur-Þýskalands, hefði talið
þetta eðilegan framgangsmáta.
vsk'4ö
V;
irðisaukaskattur af vinnu manna
sem unnin er á byggingarstað íbúðarhús-
næðis er endurgreiddur.
Endurgreiðslan nærtit:
• Vinnu manna við nýbyggingar
íbúðarhúsnæðis.
• Hluta söluverðs verksmiðjufram-
leiddra íbúðarhúsa.
• Vinnu manna við endurbætur eða
viðhald á íbúðarhúsnæði.
Endurgreiðslu fá þeir sem byggja á eigin
kostnað íbúðarhúsnæði sem ætlað ertil
sölu eða eigin nota á eigin lóð eða
leigulóð.
Sækja skal um endurgreiðslu á sérstökum
eyðublöðum til skattstjóra í því umdæmi
sem lögheimili umsækjandans er.
Eyðublöðin eru:
• RSK 10.17: Bygging íbúðarhúsnæðis
til sölu eða leigu.
• RSK 10.18: Bygging íbúðarhúsnæðis
til eigin nota.
A
i thygli skal vakin á því að um-
sækjandi verður að geta lagt fram umbeð-
in gögn, t.d. sölureikninga þar sem skýrt
kemur fram hver vinnuþátturinn er og að
vinnan sé unnin á byggingarstað.
Uppgjörstímabil vegna nýbyggingar og
verksmiðjuframleiddra íbúðarhúsa er tveir
mánuðir, janúar og febrúar, mars og apríl
o.s.frv. Umsókn skal berast skattstjóra
fyrir 15. dag næsta mánaðar eftir að
uppgjörstímabili lýkur.
Uppgjörstímabil vegna endurbóta eða
viðhalds er aldrei styttra en almanaksár.
Umsókn skal berast skattstjóra eigi síðar
en 15. janúar árið eftir að endurbætur eða
viðhald áttu sér stað.
Nánari upplýsingar veita RSK og skatt-
stjórar um land allt.
^SSu&atts er
ve&na
RSK
RÍKISSKATTSUÓRl