Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 27

Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 27 Minkar skotnir við höfnina á ísafirði ísafirði. MENN sem vinna við Sunda- höfn á Isafirði hafa orðið varir við mink endrum og eins og á síðasta ári var einn drepinn inni á gólfi í einni rækjuverksmiðj- unni. Að morgni sunnudags skaut Birkir Þorsteinsson oliu- afgreiðslumaður tvo minka á grjótgarði við höfnina. Birkir sagði að þarna væri um ung dýr að ræða og nokkuð víst að greni væri þarna í görðunum. í hvassri austanátt og hásjávuðu hafa ungarnir hrakist út úr gren- inu, en þeir fullorðnu gætt sín betur. Þarna er mikið æti frá fisk- iðjuverunum og því gósenland fyr- ir minkinn. Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson Minkurinn virðist vera farinn að búa um sig í nábýli við manninn. Þessi tvö ungdýr voru unnin á athafnasvæði ísaijarðarhafnar og taldi minkabaninrr; Birkir Þorsteinsson, nokkuð víst að þar hafi minkur haldið sig að stað- aldri síðustu árin. FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM - HEIMA 11. september. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verft verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 94,00 79,00 84,06 4,440 373.308 Þorskursmár 73,00 73,00 73,00 0,523 38.251 Ýsa 107,00 90,00 96,55 1,011 97.617 Ufsi 35,00 35,00 35,00 0,153 5.355 Steinbítur 98,00 96,00 96,52 0,058 5.598 Lúða 300,00 300,00 300,00 0,018 5.400 Koli 99,00 99,00 99,00 0,926 91.674 Samtals 86,55 7,130 617.203 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 97,00 80,00 89,48 6,183 553.255 Ýsa 137,00 50,00" 115,72 8,353 966.617 Karfi 38,00 34,00 34,03 3,413 116.130 Ufsi 43,00 10,00 41,21 3,711 152,940 Steinbítur 90,00 79,00 80,11 1,371 109.827 Langa 55,00 55,00 55,00 1,041 57.255 Skarkoli 114,00 30,00 106,77 0,444 47.404 Keila 34,00 34,00 34,00 0,589 20.026 Blandað 20,00 20,00 20,00 0,109 2.180 Undirmál 74,00 74,00 74,00 0,408 30.192 Samtals 370,00 10,00 88,15 25,687 2.264.291 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 94,00 60,00 89,47 2,118 189.504 Ýsa 131,00 50,00 100,13 1,968 197.047 Karfi 52,00 52,00 52,00 2,429 126.309 Ufsi 36,00 36,00 36,00 0,089 3.204 Lúða 340,00 195,00 260,33 0,637 165.830 Skarkoli 64,00 64,00 64,00 0,016 1.024 Koli 72,00 72,00 72,00 0,475 34.200 Lax 155,00 155,00 155,00 0,121 18.755 Keila 40,00 40,00 40,00 0,911 36.474 Langa 53,00 53,00 53,00 0,419 22.207 Skata 74,00 74,00 74,00 0,005 370 Skötuselur 300,00 74,00 149,54 0,078 11.664 Gellur 160,00 160,00 160,00 0,033 5.280 Samtals 87,30 9,230 811.868 Selt var úr dagróðrabátum og úr Happasæl 4 kör af þorski. Einnig var seld- ur afli úr Þuríði Halldórsdóttur. Olíuverð á Rotterdam-markaði 1. ág. -10. sept., dollarar hvert tonn ÐENSIN -407/ 404 W 358/ ~ 354 Blýlaust- 10. 17. 24. 31. 7. sept. 425" 375" 350“ 325' 300 275 GASOLIA 150- A-r^ -TÍr 10. 17. 24. 31. 7. sept. Aðalfundur samtaka sunnlenskra sveitarfélaga: Raforka í heildsölu verði á einni hendi og verðið jafnað Selfossi. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Hluti fundarnianna á aðalfundi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. AÐALFUNDUR Samtaka sunn- lenskra sveitarfélaga var haldinn 6. og 7. september. Fundinn sóttu um 90 sveitarstjórnarmenn úr Suðurlandskjördæmi. I ályktun um orkumál er skorað á sljórn- völd að gera ráðstafanir til jöfn- unar raforkuverðs í landinu og ennfremur að sala á raforku sé þannig skipulögð að- ekki sé nema einn heildsöluaðili. Þá var þeim tilmælum beint til stjórn- valda að veita aukna aðstoð til hitaveitna sem staðið hafa í kostnaðarsainri uppbyggingu á undanförnum árum. I samgöngu- málum er meðal annars skorað á stjórnvöld að taka fullnaðar- ákvörðun um smíði nýs Heijólfs ásamt tilheyrandi aðstöðu í landi. Aðalfundurinn fagnaði fyrirhug- uðum flutningi kjötvinnslu Sláturfé- lags Suðurlands til Hvolsvallar og skorar á ríkisstjórnina að fylgja málinu þannig eftir að flutningurinn geti átt sér stað næsta vor. í álykt- un um atvinnumál er því beint til landbúnaðarráðherra að við gerð nýs búvörusamnings verði tillit tek- ið til nálægðar mjólkurframleiðenda við markaðinn sem þýðir að mjólk- urframleiðsla fái að aukast á Suð- urlandi. Fagnað er fram komnum hugmyndum um byggingu þilplötu- verksmiðju og lagt er til að henni verði fundinn staður í Þorlákshöfn. í samgöngumálum er lögð áhersla á að framkvæmdir við nýja Markarfljótsbrú heíjist nú þegar og þvi verki verði lokið á næsta ári. Skorað er á þingmenn að beita sér fyrir brúargerð á Kúðafljóti í beinu framhaldi af framkvæmdum við Markarfljót. Ennfremur að endur- bætur á þjóðvegi 1 vestan Víkur í Mýrdal frá Eldhrauni að Kirkjubæj- arklaustri verði gerðar hið fyrsta. Skorað er á stjórn vegamála að leggja áherslu á að lítið uppbyggðir og snjóþungir vegir hafi forgang í uppbyggingu vegakerfisins og bendir á að með því megi spara stórfé við snjómokstur þegar til lengri tíma sé litið. Þá er lögð áhersla á að þjóðvegi 1 í kjördæm- inu verði haldið opnum alla virka daga yfir vetrarmánuðina. Fundurinn beinir því til hlutað- eigandi yfirvalda að haldið verði áfram þeirri uppbyggingu á sjó- varnargörðum á ströndinni frá Sel- vogi að Knarrarósi sem hafin var eftir náttúruhamfarirnar 9. janúar síðastliðinn. Fundurinn ítrekar nauðsyn þess að fjármagni sé veitt til fyrir- hleðslna vegna ágangs vatns og sjávar í kjördæminu. Fagnað er byggingu brúar á Tungufljót og minnt á nauðsyn þess að tengja uppsveitir Árnessýslu með brúar- gerð. Aðalfundurinn samþykkti að fela nýkjörinni stjórn að koma með til- lögu fyrir næsta aðalfund í april 1991 um framtíðarskipan samtak- anna og hvaða verkefni þau skuli annast. Jafnframt verði stjórninni falið að leita leiða til að afla auk- inna sértekna vegna sérgreindrar þjónustu. Þá er stjórninni falið að koma með tillögur úm það hvemig húsnæðismálum samtakanna verði háttað miðað við hagkvæma nýt- ingu fjármagns. Fram kom í umræðum að sveitar- stjórnarmenn vilja gera starf sam- takanna markvissara og forðast óþarfa ljárfestingar sem leiði til aukins beins kostnaðar hjá sveitar- félögum í gegnum árgjald til sam- takanna. Argjaldið var hækkað úr 220 krónum 1989 í 350 krónur fyrir 1990 en tillaga stjórnar var um 400 krónur fyrir yfirstandandi ár. Hækkunin er að mestu leyti til komin vegna húsnæðiskaupa sam- takanna en þau eru til húsa á Aust- urvegi 2 á Selfóssi, í gamla Kaupfé- lagshúsinu. Sig. Jóns. ÚR DAGBÓK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 7. -10. september 1990 Um helgina voru 494 verkefni bókfærð í dagbók lögreglunnar. Bókfærð verkefni síðastliðinnar viku, frá mánudegi til mánudags, voru alls um 1.188. Tilkynnt var um 55 umferðar- óhöpp um helgina. Þar af voru 8 umferðarslys og í þremur tilvikum er grunur um að ökumenn hafi verið undir áhrifum áfengis. Um ’hádegi á föstudag slösuðust öku- menn tveggja bifreiða eftir harðan árekstur á Breiðholtsbraut við Norðurfell. Um líkt leyti varð gang- andi vegfarandi fyrir bifreið á Mi- klubraut við Réttarholtsveg. Um miðjan dag á föstudag varð gang- andi vegfarandi fyrir strætisvagni á Lönguhlíð við Skaftahlíð. Að kvöldi föstudags slasaðist tvennt í árekstri tveggja bifreiða á Suður- Iandsvegi við Breiðholtsbraut. Skömmu fyrir hádegi á laugardag slasaðist ökumaður í árekstri á Hringbraut gegnt Landspítalanum og á sunnudagsnótt varð gangandi vegfarandi fyrir bifreið á Hverfis- götu. Ökumaðurinn ók á brott eftir óhappið. Mikið hefur verið um umferðarslys undanfarnar vikur og er full ástæða til þess að hvetja fólk til þess að fara varlega. 30 sinnum var veitt aðstoð við að komast inn f læstar bifreiðir og 7 sinnum inn í læstar fbúðir. Tilkynnt var um 9 innbrot og 7 þjófnaði. M-a. var brotist inn í bif- reiðir við Reiðhöllina á meðan hljómleikar stóðu þar yfir á laugar- dagskvöld, maður var handtekinn við innbrot f hús í vesturbænum aðfaranótt sunnudags, brotist var inn í geymslur húss við Kapla- skjólsveg og brotist var inn í pylsu- vagn í Breiðholti aðfaranótt mánu- dags. í flestum þjófnaðartilvikun- um var stolið úr veskjum fólks á veitingastöðum, bæði starfsfólks og annarra. Þá voru tveir menn kærðir fyrir búðahnupl í Kringlunni á föstudag. Ungur blaðburðardrengur var rændur 12.000 kr. við ísbúðina á Hjarðarhaga á sunnudagskvöld. Þar voru að verki tveir 16-17 ára drengir. Þeir eru ófundnir. Fimm ökutækjum var stolið um helgina. Einu þeirra var ekið á ljósastaur og annað fannst á kafi í Hafravatni. Þrisvar var óskað aðstoðar vegna greiðslukortasvika. 21 var kærður fyrir of hraðan akstur, 8 vegna gruns um ölvun við akstur, 4 fyrir að virða ekki rauða ljósið og 52 fyrir önnur umferðarlagabrot. Einn var stöðv- aður réttindalaus í helgarumferð- inni. í’ilkynnt var um 3 skemmdar- verk, 11 rúðubrot og 4 líkams- meiðsl. í flestum tilvikum Iét fólk skapsmuni sína bitna á mannlaus- um bifreiðum. Ökumaður veittist að farþega í bifreið og tók af hon- um verðmæti. Flytja varð farþeg- ann á slysadeild vegna meiðsla. Ibúi réðst að nágranna sínum. Þá var piltur bitinn f Austurstræti aðfaranótt sunnudags svo flytja varð hann á slysadeild. „Bitvargur- inn“ var færður í fangageymslu. Ekki viðraði vel til útivistar að næturlagi um helgina og setti það mark sitt á dagbókina. 50 manns gistu fangageymslur lögreglunnar. 12 þeirra voru færðir fyrir dómara að morgni og var gert að leggja fram að meðaltali 8 þús. kr. í sáttagreiðslur. Vegna vandamála heima fyrir þurfti áfengisvamarfulltrúi að sinna nokkrum, nokkrir voru færðir til frekari skýrslutöku og öðrum var sleppt. Athyglisvert er að 16 þess- ara 50 óskuðu sjálfir gistingar í fangageymslu lögreglunnar þar sem þeir áttu ekki í önnur hús að venda. Svo er að sjá sem aðkall- andi sé að skoða þróun mála er varðar þessa einstaklinga með hugsanlegar úrbætur í huga. Á síðasta ári voru 1.267 slíkar gist- ingar skráðar hjá lögreglunni og ekki lítur út fyrir að þeim fækki í ár. Hér er um að ræða fólk sem á sér fáa málsvara, ber ekki erfið- leika sína á torg, hefur ekki hátt í fjölmiðlurn en þarfnast hvað mestrar aðstoðar. Taka þurfti áfengi af unglingum fyrir utan verslun ÁTVR í Kringl- unni á föstudag. Þá þurfti að færa mann, sem keypt hafði þar áfengi fyrir unglinga, á stöðina til skýrslu- töku. Hljómleikar voru í Reiðhöllinni á föstudags- og laugardagskvöld. Þeir voru vel sóttir. Lögreglan þurfti lítil afskipti að hafa af gest- um þó ölvun hafi verið talsverð. Flytja varð ungan dreng á slysa- deild á föstudag eftir að hundur hafði bitið hann í nánd við Tungu- veg. Hundurinn fannst ekki. Tveimur „Molotov-kokteilum“ var kastað að Stjórnarráðinu að- faranótt laugardags. Annar lenti í grasinu en hinn á byggingunni. Nálægir lögreglumenn slökktu eld- inn og handtóku skemmdarvarg- inn. Ölvaður maður var handtekinn á heimili sínu eftir að hafa reynt að „gabba“ lögreglu og sjúkralið um helgina. Hann hafði leikið þann ljóta leik að tilkynna um drukkn- andi mann í sjónum við Gullinbrú. r’

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.