Morgunblaðið - 12.09.1990, Side 37

Morgunblaðið - 12.09.1990, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 37 Miniiing: Stefán G. Björnsson fv. ffamkvæmdastjóri Fæddur 17. júní 1906 Dáinn 2. september 1990 í dag er til moldar borinn Stefán G. Björnsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sjóvátryggingafélags íslands hf. Stefán fæddist á Djúpa- vogi þann 17. júní 1906 og var því 84 ára er hann lést 2. september sl. Foreldrar Stefáns voru hjónin Margrét K. Jónsdóttir og Björn Stefánsson, verslunarstjóri. Stefán kvæntistárið 1931 Sigríði Jónsdótt- ur frá Móum, stýrimanns Árnason- ar og konu hans, Ragnhildar Jóns- dóttur. Þau eignuðust þijá syni, Olaf Walter, Björn og Jón Ragnar. Að loknu gagnfræðaprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1922 hóf hann störf á Vátrygginga- stofu Axels V. Tuliniusar. Þar með var starfsvettvangur Stefáns mark- aður, því næstu 49 árin starfaði hann við vátryggingar. Innlend vá- tryggingastarfsemi var á þessum árum að stíga sín fyrstu skref sem hluti uppbyggingar íslensks at- vinnulífs, fyrst með stofnun Bruna- bótafélags íslands 1915 og síðan með stofnun Sjóvátryggingafélags íslands hf. árið 1918. Þann 1. júlí 1925 réðst Stefán sem skrifstofumaður til Sjóvátrygg- ingafélagsins. Ári síðár varð hann gjaldkeri og frá 1938 til 1957 aðal- gjaldkeri og skrifstofustjóri félags- ins. Er Brynjólfur Stefánsson, mag- ister, lét af störfum framkvæmda- stjóra Sjóvátryggingafélagsins 1. desember 1957 tók Stefán við og gegndi því starfi til 1. október 1971, er hann settist í helgan stein, eftir langan og farsælan feril sem vá- tryggingamaður. Hann var þátttak- andi og frumkvöðull í þeirri mikil- vægu þróun er átti sér stað þegar vátryggingastarfsemin var að flytj- ast í hendur íslenskra félaga, en erlend félög, einkum dönsk, höfðu rekið hér umboðsskrifstofur um nokkurt skeið. Eins og nafn Sjóvátryggingafé- lagsins bar með sér annaðist það einungis sjótryggingar fyrstu árin. Nýjum deildum var bætt við smám saman, brunadeild 1925, líftrygg- ingadeild 1934, bifreiðadeild 1937 og ábyrgðardeild 1953, svo nokkuð sé nefnt. En Stefán var ekki einung- is þátttakandi í þessari uppbygg- ingu Sjóvátryggingafélagsins. Þeg- ar íslenskum vátryggingafélögum ijölgaði og þeim óx fiskur um hrygg, þá varð forystumönnum fé- laganna ljóst, að nauðsyn bæri til að standa saman um hagsmuni, er vörðuðu vátryggingafélögin í heild. Við stofnun Sambands íslenskra tryggingafélaga (SÍT) 1960 var Stefán kjörinn fyrsti formaður stjórnar og sat nær óslitið í stjórn SIT til 1972, þar af 7 ár sem for- maður. í viðurkenningarskyni fyrir- gifturík störf í þágu váti-ygginga- starfsemi á íslandi og forystu í málefnum SÍT var Stefán gerður að fyrsta heiðursfélaga Sambands ísl. tryggingafélaga, er hann lét af störfum. Auk þess sat Stefán í ýmsum öðrum stjórnum er snertu vátryggingar, m.a. íslenskrar end- urtryggingar og Björgunarfélags- ins hf. Þá gegndi Stefán starfi framkvæmdastjóra Könnunar hf. (Lloyd’s Agents) árin 1968 til 1971. Áhuga Stefáns á félagsmálum á breiðum grundvelli var við brugðið. Hann var áhugasamur um útivist, bæði ferð.alög og skíðagöngur. Hann sat í stjórnum og var heiðurs- félagi Glímufélagsins Ármanns og Skíðafélags Reykjavíkur. Stefán var félagi í Oddfellow og var kjör- inn til margvíslegra trúnaðarstarfa innan reglunnar. Stefán sat í stjórn Verslunar- mannafélags Reykjavíkur og var jafnframt heiðursfélagi. Hann var í varastjóm og stjórn Verslunar- ráðsins frá 1952 til 1971. Mörg önnur trúnaðarstörf tókst hann á hendur sem ekki verða gerð skil hér. Er Rotaryklúbburinn Reykjavík- Austurbær var stofnaður 1963 var Stefán í hópi stofnenda og enn á ný var Stefán gerður að heiðursfé- laga. Þeim er þessar línur ritar er mjög ljúft að minnast þess hve hugulsamir og nærgætnir synir Stefáns voru, er þeir mættu með honum á fundi í Rotary, þegar heilsu hans tók að hnigna hin síðari ár. Það mátti glöggt skynja ánægju hans, enda þótt hann ætti erfitt með mál. í stjórn Sjóvátryggingafélagsins sátu margir landskunnir athafna- menn á sviði útgerðar, kaupsýslu og iðnaðar. Með þessum mönnum átti Stefán samleið og þeir treystu honum og völdu til forystu. Sjóvátiyggingafélagið átti alla tíð því láni að fagna að hafa gott starfsfólk í þjónustu sinni. Allmarg- ir unnu nær allan sinn starfsferil hjá félaginu eða í um 50 ár. Stefán var í þessum hópi og var hann virt- ur af samstarfsmönnum sínum, sem og viðskiptavinum. Stefán var þekktur fyrir drengskap og velvilja. Að Stefáni G. Björnssyni gengn- um má segja að vissum kafla í þró- un íslenskrar vátryggingastarfsemi sé lokið. Eg votta frú Sigríði, sonum þeirra og öðrum aðstandendum samúð mína. Jafnframt flyt ég inni- legar samúðarkveðjur stjórnar og starfsmanna Sjóvá-Almennra trygginga hf. Einar Sveinsson Stefán G. Björnsson var fæddur á Djúpavogi 17. júní 1906, þar sem faðir hans var verslunarstjóri. Þeg- ar íjölskyldan fiuttist til Reykjavík- ur starfaði Stefán fyrst hjá Vá- tryggingastofu Axels V. Tulinius og seinna hjá Sjóvá, fyrst sem gjald- keri og varð síðan forstjóri. Hjá Skíðafélagi Reykjavíkur starfaði Stefán í mörg ár og þegar Kristján Ó. Skagfjörð hætti sem formaður, tók Stefán við. í for- mannstíð hans breyttist margt í Skíðaskálanum í Hveradölum, ljós voru sett í svigbrekkur og göngu- brautir lagðar. Skíðaskálinn var eftirsóttur áningarstaður fyrir Reykvíkinga, oftast um helgar var fullt út úr dyrum. Mörg skíðamót voru haldin á vegum Skíðafélags Reykjavíkur og var Stefán oftast mótsstjóri. Stefán var félagi í „Litla Skíðafé- laginu“ og fóru þeir félagarnir marga frægðarför um hálendi ís- lands. Stefán var heiðursfélagi í Skíðafélagi Reykjavíkur. Súlurnar tvær ofan við Skíðaskálann lét Stef- án reisa í minningu L.H. Múller og Kristjáns Ó. Skagfjörð. Skíðafélag Reykjavíkur sendir ættingjum Stefáns innilegustu sam- úðarkveðjur. Fyrir hönd Skíðafélags Reykjavíkur, Ellen Sighvatsson. Látinn er á 85. aldursári Stefán G. Björnsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Sjóvátryggingafélags íslands hf. og heiðursfélagi Sam- bands íslenskra tryggingafélaga. Stefán var ungur að árum er hann árið 1925 réðst til starfa hjá Sjóvátryggingafélagi íslands hf., en áður en hann hóf störf þar hafði hann um nokkurt skeið unnið á Vátryggingastofu A.V. Túliníusar. Saga íslenskrar vátryggingastarf- semi var og ekki löng orðin um þær mundir, sem Stefán valdi sér ævi- starf. Stefán gegndi störfum hjá Sjóvátryggingafélagi íslands hf. í ríflega 45 ár, þar af hafði hann gegnt stöðu framkvæmdastjóra í tæp 15 ár, er hann lét af störfum árið 1971. Á þessum árum varð stórstíg þróun í vátryggingum og vátryggingastarfsemi hér á landi. íslensk vátryggingafélag tóku að hasla sér völl í stöðugt fleiri vá- tryggingagreinum og vátryggingar sem áður voru að verulegu leyti sóttar til erlendra vátryggingafé- laga, færðust á íslenskar hendur. Stefán hafði mikil áhrif á þessa framþróun, bæði sem stjórnandi eins hinna stærri almennu vátrygg- ingafélaga, og einnig sem forystu- maður um framgang ýmissa sam- eiginlegra hagsmunamála á sviði vátrygginga. I þessum fátæklegu línum er ekki unnt að gera skil sem vert væri framlagi Stefáns tú íslenskrar vátryggingastarfsemi. Ástæða er þó til að nefna að m.a. fyrir for- göngu Stefáns var Samband íslenskra tryggingafélaga stofnað árið 1960. Var Stefán kjörinn fyrsti formaður SÍT. Sat hann löngum í stjórn þess eða í 10 ár og þar af 7 ár sem formaður. Sem formaður beitti Stefán sér fyrir stofnun Tryggingaskóla SÍT, sem tók til starfa árið 1962. Tryggingaskólinn er enn við lýði og hefur reynst vá- tryggingafélögunum ómetanlegur í sambandi við menntun og fræðslu starfsfólks vátryggingafélaganna. Ýmsum öðrum trúnaðarstörfum innan samtaka vátryggingafélag- anna gegndi Stefán, en fyrir mikil og giftudijúg störf í þágu SÍT og íslenskrar vátryggingastarfsemi var Stefán kjörinn fyrsti heiðursfé- lagi SÍT árið 1972. Er hann annar af aðeins tveimur sem þess heiðurs hafa notið. Eftir að Stefán lét af störfum hjá Sjóvátryggingafélagi íslands hf. leitaðist hann jafnan við að fylgjast með því sem í deiglu var á vátryggingasviði. Jafnframt gerði hann sér far um ásamt ágætri konu sinni, frú Sigríði Jónsdóttur, að halda góðum tengslum við vá- tryggingamenn. Með Stefáni G. Bjömssyni er genginn góður og gegn vátrygg- ingamaður. Undirritaður leyfir sér f.h. Sambands íslenskra trygginga- félaga að þakka honum farsæl störf að vátryggingamálefnum og rækt- arsemi hans við vátryggingamenn. Innilegar samúðarkveðjur eru færð- ar frú Sigríði og sonum þeirra hjóna. Ingi R. Helgason, formaður Sambands íslenskra tryggingafélaga. t 14. BRYNJA RIIS JENSEN, verður jarðsungin frá kapellu Akureyrarkirkju föstudaginn september kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna. Kristján. H. Ingólfsson. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför dóttur minnar og systur okkar, ERLU BRYNJÓLFSDÓTTUR, Suðurgötu 24, Sauðárkróki. Emilía Lárusdóttir og systkini hinnar látnu. t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, ELÍSABETAR TÓMASDÓTTUR, Tómasarhúsi, Eskifirði. Hjalti Jónsson, Tómas Hjaltason, Björg Sigurðardóttir, Guðjón Hjaltason, Elín Hjaltadóttir, Einar Eyjólfsson og barnabörn. t Innilegustu þakkir færum við öllum þeim, sem með minningagjöf- um, þlómum og hlýjum handtökum, auðsýndu okkur samúð og heiðruðu minningu mannsins míns, föður okkar, tengdaföður, afa, og langafa, JÓNS SIGURÐSSONAR, Hrepphólum, Hrunamannahreppi. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Heilsugæslu- stöðvarinnar í Laugarási fyrir margra ára aðstoð. Einnig læknum og starfsfólki Sjúkrahúss Suðurlands. Guð blessi ykkur öll. Elísabet Kristjánsd.óttir, Elín Jónsdóttir, Sólveig Jónsdóttir Ek, Sigurður Jónsson, Stefán Jónsson, Guðjón Jónsson, Kristján Jónsson,. GunnarJónsson, Anna Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Guðrún Guðmundsdóttir, Katrín Ólafsdóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Guðrún Ásta Gottskálksdóttir, Sigríður Karlsdóttir, Sigurður Kristinsson, t Innilega þökk færum við öllum þeim er auðsýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar og afa KJARTANS JÓHANNESSONAR, Karfavogi 34. Sérstaklega þökkum við Tryggva Ásmundssyni, lækni og starfs- fólki á lungnadeild Vífilsstaðaspítala fyrir mikla og góða hjálp. Valgerður Jónsdóttir, börn og barnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför föður, tengdaföður, afa og langafa, GUNNSTEINS JÓHANNSSONAR, Þórufelli 12, Reykjavík. Sigrún Gunnsteinsdóttir Head, Stephen P. Head, Sigurður Gunnsteinsson, Guðmunda Jóhannsdóttir, Egill Gunnsteinsson, Svanhildur Baldursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna fráfalls móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU HALLDÓRU HELGADÓTTUR, Álfaskeiði 4, Hafnarfirði. Guð blessi ykkur öll. Helgi S. Guðmundsson, Hera Guðjónsdóttir, Ragnhildur Aðalsteinsdóttir, Sigurður Jakobsson, Árni Aðalsteinsson, Hlöðver Aðalsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinsemd við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, stjúpföður, sonar, tengdasonar og bróður, PÁLS GÍSLASONAR, Flatahrauni 16B, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks krabbameinsdeildar 11-E, Landspítalanum, fyrir góða umönnun. Herdís Halldórsdóttir, Þórir Jónsson, Sigrún Dagbjartsdóttir, Gísli Friðriksson, Elísabet S. Jónsdóttir, Halldór M. Ólafsson og systkini hins látna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.