Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 ,;X;X-P fclk í fréttum Jack Nicholson KUVENDING Nicholson í hnapp- helduna Nú er orðið deginum ljósara að kvikmyndaleikarinn Jack Nic holson er á leiðinni að altarinu og það er hin kornunga barnsmóðir hans Rebecca Broussard sem hefur meitlað það á afrekaskrá sína. Nic- holson er rómaður flagari og hefur yfirleitt talað illa um hjónabandið. Sem dæmi má nefna, að þrátt fyrir að hafa verið meiri og minni sam- býlismaður Anjelicu Houston á ann- an áratug tókst henni aldrei að lokka hann í hnapphelduna og hafði hún þó á því talsverðan áhuga. Upp úr sambandi þeirra slitnaði er það spurðist að Rebecca fyrrnefnd ætti von á barni með hinum 53 ára gamla Nicholson. Brúðkaupið verð- ur í París í næsta mánuði. SKERJAFJÖRÐUR Vel heppn- uð veisla Fyrir stuttu efndu íbúasamtök í Skeijafirðinum til grillveislu fyrir börnin í hverfínu og var í til- efni dagsins reist stórt tjald og kallaðir til skemmtikraftar. Meðal þeirra sem komu voru leikararnir Þórdís Arnljótsdóttir og Jón Hjart- arson og léku leikritið „Tröllið týnda“ við mikinn fögnuð barn- anna. JJm kvöldið voru svo grillaðar pylsur' og sungnir skátasöngvar. Veðrið lék við fólkið og var því sleg- ið föstu að stefna árlega að slíkri skemmtun. Færist mjög í vöxt að íbúa- og hverfasamtök gangist fyr- ir mannfagnaði af ýmsu tagi og er þess skemmst að minnast þegar Þinghyltingar slógu upp útiballi síðia ágústmánaðar. Morgunblaðið/Jón Ögmundur Þormóðsson Ingþór Sigurbjörnsson og Arnór Hannibalsson við fatakassa, sem Ingþór hefur sent til Póllands. Myndin er tekin í kjallara kirkju einn- ar í pólsku borginni Olsztyn, þar sem hjálparstofnun kaþólsku kirkj- unnar tekur við fötunum og dreifir þeim. ^mmmmmtmm POLLANDSFOR Gamall draumur Ingþórs Sigurbjörnssonar rætist Gamall draumur Ingþórs Sigur- um 200-300 tonn af notuðum fatn- björnssonar málarameistara aði, aðallega barnafatnaði, undan- um að heimsækja Pólland rættist farinn áratug. nýlega en Ingþór hefur sent Pólveij- Ingþór fór til Póllands 31. ágúst síðastliðinn, ásamt Jóni Ögmundi Þormóðssyni lögfræðingi og Arnóri Hannibalssyni, sem var túlkur í ferðinni. í Póllandi heimsóttu þeir meðal annars hjálparstofnun ka- þólsku kirkjunnar í borginni Olsztyn en þangað hafa fötin verið send. Að sögn Jóns Ögmundar fengu þeir mjög góðar móttökur í Póllandi og undrast Pólveijar mjög dugnað og úthald Ingþórs við hjálparstarfið en hann er 81 árs að aldri. „Pólveij- ar vilja færa öllum kærar þakkir fyrir fatnaðinn, sérstaklega börnun- um, sem hafa afhent Ingþóri föt,“ segir Jón Ögmundur. Hann segir að Eimskip hafi flutt fatagámana ókeypis til Póllands, svo og hafí Flugleiðir greitt götu Ingþórs með frímiða til Kaup- mannahafnar. Morgunblaðið/Erik Eitt skemmtiatriðanna í veislu Skerfírðinga. * / / LAUGARASBIO Simi 32075 frumsýnir spennu-grínmyndina A bláþræði kl. 5, 7, 9 og 11.10

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.