Morgunblaðið - 12.09.1990, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990
39
ELFA
„Martröðin," O.D. Wilson, í sjónvarpsviðtali meðan á keppninni stóð.
Hann er heljarmenni að burðum en athygli vakti hve hálssver hann er.
Keppni að hefjast í síðustu grein, þar sem Jón Páll tryggði sér sigur-
inn. Fyrir honuin lá 200 metra spretthlaup með inúrsteinana á bakinu.
AFLRAUNIR
Jón Páll marði sigur í seinustu
keppnisgrein
Þessi keppni var geysilega
spennandi og Jón marði sigur
í síðustu keppnisgrein, sagði Hjalti
„Úrsus“ Árnason í samtali við
Morgunblaðið, en dagana 16.-18.
ágúst fór í bænum Joensuu í Finn-
landi fram keppnin um titilinn
„Sterkasti maður heims,“ en þar fór
Jón Páll Sigmarsson með sigur af
hólmi. Þetta var í fjórða sinn sem
Jon Páil sigrar í þessari keppni, og
er hann einn um að hafa unnið slíkt
afrek.
Keppnin fór fram með hefð-
bundnu sniði. Keppendur voru átta
talsins, og keppt var í jafnmörgum
greinum. Sigurvegari í hverri grein
hlaut átta stig fyrir sigurinn, og svo
koll af kolli, þannig að sá keppandi
sem lökustum árangri náði fékk
eitt stig fyrir þá grein. Mikill við-
búnaður er ætíð þar sem keppni
þessi er haldin. Til dæmis fylgja
henni upptökulið sjónvarpsstöðva,
og varð reyndar að fá leyfi TWI-
sjónvarpsstöðvarinnar, sem á sýn-
ingarrétt á keppninni, til að greina
frá úrslitum hennar í smáatriðum
hér í blaðinu.
Jón Páll var talinn sigurstrang-
legur fyrir keppnina, og í bæklingi
sem aðstandendur hennar gáfu út
til kynningar á keppendum segir,
að létt lund Jons Pals og mann-
blendni, útlit hans og ótrúlegir
kraftar hafi fært honum vinsældir
meðal tuga milljóna sjónvarpsá-
horfenda víða um heim.
Keppinautar Jóns Páls voru eng-
ir aukvisar. Fremstan ber að telja
bandaríkjamanninn O.D. Wilson,
eða Martröðina eins og hann er
nefndur. Þá voru þarna þeir Laszlo
Fekete frá Ungveijalandi, sem tók
þátt í þriðja sinn og Daninn Henn-
ing Thorsen, sem keppti í fyrsta
sinn í keppninni um sterkasta mann
heims, fulltrúi heimamanna, Ilkka
Nummisto, Bretinn Adrian Smith,
sem þjálfaður er af hinum gamal-
reynda Geoff Capes, Rússinn Aap
Uspenski og Hollendingurinn Tjall-
ing Van Den Bosch.
Að morgni 16. ágúst hófst
keppnin, þegar keppt var í drætti
á um 15 tonna þungu fljótandi
tijádrumbabúnti. Draga þurfti
búntið 20 metra vegalengd á móti
straumi árinnar sem rennur um
Joensuu. Að því loknu var keppt í
hinum hefðbundna trukkadrætti,
og „víkingabátslyftum“,'en á öðrum
keppnisdegi byijaði keppnin á kol-
amokstri- og burði við gamla kola-
námu. Þegar þarna var komið sögu
var keppnin hálfnuð, og hafði O.D.
Wilson forystu, með 24 stig, en Jón
var í öðru sæti, hafði nælt sér í
22,5 stig. Forysta O.D. hafði þá
minnkað, því eftir víkingabátalyft-
urnar hafði hann 5,5 stiga forystu
á Adrian Smith, en 7,5 á Jón Pál.
Jón sigraði svo í kolanámunni.
Eftir þetta breyttist keppnin í
einvígi á milli þeirra Jóns Páls og
O.D. Wilsons. Þennan annan keppn-
isdag var einnig keppt í hnullunga-
SKÚLACÖTU 32-34 óvó
Námskeið fyrir byijendur (yngst 4ra ára) og
framhaldsnemendur.
Innritun í síma 72154 frá kl. 11-19.
Afhending skírteina laugardaginn
15. september frá kl. 12-16.
lyftum, þar sem allt að 125 kílóg-
ramma björgum var sveiflað upp
yfir höfuð, og þollyftum með út-
rétta handleggi. Þegar annar
keppnisdagur var að kvöldi kominn
var staðan orðin sú að O.D. hafði
38 stig, en Jón Páll 33,5, og tveim-
ur greinum var ólokið.
A þriðja og síðasta degi keppn-
innar var keppt í burði á steðjum
og spretthlaupi með 100 kílógrömm
af múrsteinum á bakinu. I fyrri
greininni sigraði O.D., hlaut stigi
meira en Jón Páll, og jók forskot
sitt í 5,5 stig. Seinasta greinin var
þannig skipulögð að tveir og tveir
keppendur hlupu brautina saman,
og var hlutunum komið svo fyrir
að tveir efstu menn hlypu brautina
saman. Þarna stakk Jón O.D. bók-
staflega af, náði besta tímanum og
hlaut fyrir 8 stig, á meðan keppi-
nautur hans lenti í næstneðsta sæti,
og bætti því aðeins við tveimur stig-
um. Þannig lauk Jón Páll keppni
með 48,5 stig, og O.D. Wilson ját-
aði sig sigraðan, hlaut 48 stig.
Morgunblaðið/Hjalti Árnason
Verðlaunapallurinn. O.D. Wilson, lengst til vistri, klappar keppinaut sínum lof í lófa, og heimamaður-
inn, Ilkka Nummisto, samfagnar Jóni Páli.
I I II I —
BALLET KLASSISKUR BALLET
Kennslukerfi: ROYAL ACADEMY OF DANCING RUSSIAN METHOD.
Félag íslenskra listdansara
Spaðaviftur - borðviftur - bað-
herbergisviftur - gróðurskála-
viftur - röraviftur - iðnaðarviftur
- fjósviftur
Hagstætt verð.
___________iM_______
Élnar Farestvelt&Co.hf.
BORGUTÚNI28, SÍMI622901.
■lwum
Kennsla hefst 17. september.
9
• í m m i)
Tiutancv
Heílsuvörur
nútímafólks