Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 Ast er... ... að hæí'a beint í hjartað. TM Rog. U.S. Pat Off.—all righta roaorvad C 1990 Los Angelos Timoa Syndtcato Ég sagdi túbur ekki rakett- ur, bjáni... Slattu ekki eins og auli. — Haltu áfram að blása! HÖGNI HREKKVÍSI BANPH MVICUU/M." Undarleg ummæli Til Velvakanda. Ég gat ekki orða bundist yfir ummælum J.S. í klausu sinni sem birtist í Velvakanda miðvikudaginn 5. september um Whitesnake hljóm- sveitina. Hér er um að ræða stór- kostlegan viðburð í sögu tónleika- halds á íslandi, og er þetta sannköll- uð hátíð fyrir alla unnendur góðs rokks. í klausu J.S. segir m.a.: „Tónlist og boðskapur þeirra á að Bnáka- engun sahliómleika Whitesnake. Tónlist boðskapur þeirra á að y^key ningarvitin. Þú getur lesið textana næstu plötubúð, og serð að þarn. nengandi og sóðalegur boðskapu »rð Þetta eru eins konar vikmg. n gera strandhögg inní hugarheir ._i 'i cíann burtu me yfirkeyra skilningarvitin". Ég held að J.S. hafi alls ekki farið í plötu- búð og lesið texta, eins og hann svo löðurmannlega mælir með að fólk geri, hvað þá hlustað á tónlist um- ræddrar hljómsveitar. Ef hann hef- ur gert það og fundist boðskapurinn svo „mengandi og sóðalegur", eins og kom fram í umræddri klausu, held ég að enskunámskeið myndi skýra málið fljótlega. íris Berg Breytnin skiptir öllu Til Velvakanda. Til þeirra sem eru að rífast um Biblíuna. Hvaða máli skiptir þetta með Jehóva eða Jahve, er það ekki breytni fólk sem skiptir öllu máli? Hættið þessu ef þið viljið teljast siðaðir menn. Elín Eyjólfsdóttir Hluti engils sem á er ritað nafn Guðs, á gröf Klements XIII páfa í Péturskirkjunni í Páfagarði. Rangt að láta nafn Guðs ónotað Kæri Velvakandi. Grúskari nokkur, sem lætur ekki nafns síns getið, skrifar þér grein 5. september síðastliðinn undir fyr- irsögninni Nafn guðs. Það er rétt sem grúskarinn held- ur fram að enginn veit með vissu hvernig nafn guðs JHVH var borið fram. Samt er nafnið Jehóva þekkt- asta mynd nafnsins um víða veröld og mest notað í gegnum aldirnar, svo afar ósennilegt er að nafnið hafi horfið með öllu. Það sem er hið alvarlega í þessu sambandi er að láta nafnið ónotað, þó svo að einhver framburðarmunur geti verið á því nú miðað við sem ,var þegar-Guð opinberaði nafn sitt ísraelsþjóðinni fyrir milligöngu Móses. T.d. má merkja bæði fram- burðarmun og rithátt milli ólíkra þjóða og tungumála. Vottar Jehóva gáfu úr árið 1985 bækling á íslensku sem heitir: „Nafn Guðs sem vara mun að eilífu". Rit þetta er afar vandað vísindalegt rannsóknarrit byggt á áratuga löngum rannsóknum. Vil ég benda mönnum sem grúska í þessum málum á þetta rit. Jafnframt vii ég segja eftirfar- andi: Vottar Jehóva hafa engan einkarétt á nafni Guðs og standa skoðanaskipti ekki um það. En þeir gera þó það sem aðrir kristnir menn gera ekki; þeir nota nafn Guðs og helga það. Einar Ingvi Magnússon Skrifíð eða hringið til Yelvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til fóstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Með- al efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskiptingar, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimilisfong verða að fylgja öllu efni til þáttar- ins, þó að höfhndur óski nafh- leyndar. Ekki verða birt nafhlaus bréf sem eru gagnrýni, ádeilur eða árásir á nafngreint fólk. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. Yíkveiji skrifar Víkveiji rakst á þessa klausu í breska vikuritinu The Spectat or nýlega en höfundur hennar er Alexander Chancellor, fyrrum rit- stjóri blaðsins. Hanr, segir: „Afar sérkennileg grein birtist í síðasta tölublaði Sunday Telegraph — svo sérkennileg, að hefði hún verið birt á þeim tíma, hefði ég tafarlaust talið, að um aprílgabb væri að ræða. Kjarni hennar var sú staðreynd, að konur eiga öll helst laxveiðimetin en ekki karlar. Þetta var þó ekki hið skrýtna í greininni. Það var að finna í kenn- ingu prófessors við háskólann í Glasgow, sem Duff Hart-Davis, hinn virti sérfræðingur blaðsins í veiði- og útivistarmálum, ræddi af virðingu og alvöru, að sigra kvenna í laxveiðum mætti rekja til þess að laxinum þætti þær kynferðislega aðlaðandi. Hart-Davis vitnaði at- hugasemdalaust í þessi orð Peters Behans prófessors: „Það er alveg hugsanlegt að þeir [laxarnir] nemi kynhormóna kvenna og laðist að þeim.“ Getur þetta verið satt? Nú á tímum verður maður að vera undir það búinn að trúa næstum hveiju sem er, en þetta gengur heldur of langt. Hvað sem því líður ætti greinin (sem ég viðurkenni að ég las af ákefð) að hvetja konur til að feta í fótspor drottningarmóður- innar og Diana Rigg og hefja veið- ar í alvöru, þær vita nú um forskot sitt gagnvart hinu kyninu." xxx Grunnskólanemi sem var að fá stundarskrá sína hafði á orði við Víkveija, að undarlegt væri að lesa í skránni, að hann ætti að læra dönsku og ensku en ekki íslensku. Hann sagði, að í stað þess að tala um íslensku settu kennararnir orðið „málrækt" í stundarskrána. Þá væri ekki heldur talað um sögu í skránni heldur væri kennslu í henni að finna á bakvið orðið „samfélags- fræði“. Víkveija finnst þetta jafn undar- legt og grunnskólanemanum og áttar sig ekki að fullu á uppeldis- fræðilegu gildi þess að fella orð eins og „íslenska“, „saga“ og „landafræði“ úr stundarskrám. Dregur hann þó ekki í efa að hinir vísu aðilar í stjórnkerfinu, sem hafa tekið ákvarðanir um þetta, hafi ein- hver rök fyrir því. A hinn bóginn vaknar sú spurning, hvort hin nýju orð „málrækt" og „samfélags- fræði“, sem erfitt er að átta sig á hvað þýða, dragi ekki úr áhuga nemenda. Að vísu hafa ýmsir sér- fræðingar í skólamálum sérstakan áhuga á að fella alla nemendur í sama mót og draga óskýrar línur. Á ef til vill að líta á þetta orðaval í því ljósi? XXX Af hálfu yfirvalda er lögð mikil áhersla á læsi um þessar mundir. Baráttan snýst ekki aðeins um að menn læri að lesa, ekki er síður talið mikilvægt að menn skilji hvað þeir eru að lesa. Ekki er síður brýnt að hvetja þá sem þurfa að festa eitthvað á blað, að þeir setji boðskap sinn fram á ótvíræðan hátt. .Hvergi er þetta mikilvægara en í skólum og helst meðal yngstu nemendanna. Þess vegna ættu yfir- völd skólamála að nota ár læsis til að athuga, hvort ekki eigi að hætta að nota orðin „málrækt“ um íslenskukennslu og „samfélags- fræði“ um sögukennslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.