Morgunblaðið - 12.09.1990, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990
43
Þessir hringdu
Stofna til upplausnar
Sigríður Eymundsdóttir
hringdi:
„Ætlast háskólamenntaðir
kennarar til að fá virðingu nem-
enda sinna og annarra með slíkum
þorskhausaaðgerðum. Mér fínnst
að þeir ættu að skammast sín og
byija að kenna og halda sig við
sæmilega kristna siði. Þessi stétt
er búin að stofna til upplausnar
í skólum landsins ár eftir ár þegar
að vorprófum kemur. Kannski
mín láglaunastétt labbi með
lönguhausa um Miðbæinn til að
kreista út mannsæmandi laun fyr-
ir vinnu sem unnin er alla daga,
jafnt helga daga sem virka. Eg
spyr, enda ekki með neitt háskóla-
próf.“
Sýnið Derrik
Sjánvarpsáhorfandi hringdi:
„Eg vil skora á aðra hvora sjón-
varpsstöðin að hefja sýningar á
Derrik á ný. Þetta eru skemmti-
legir þættir og svo er það góð
æfíng í þýsku að fylgjast með
þeim.“
Heyrnartæki
Eldri maður, sem var á hring-
ferð um landið, tapaði heyrnar-
tækjum, trúlega á austfjörðum.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja í síma 91-37743.
Myndavél
Kodak myndavél í blárri tösku
tapaðist á Vindheimamelum í
sumar. í töskunni var átekin filma
sem sárt er saknað. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 93-71582.
Hjól
Rautt kvenreiðhjól af tegund-
inni Raleigh fannst fyrir skömmu.
Upplýsingar í síma 670676.
Tollpokar
Tveir tollpokar gleymdust í
Flugstöð Leifs Eiriksonar fyrir
skömmu. Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hringja í Sigrúnu í
síma 675371.
Kettlingar
10 vikna læðu vantar heimili.
Upplýsiungar í síma 37788.
Fjórir kettlingar fást gefins í
Reykjavík. Upplýsingar í síma
95-35991.
11 vikna kassavandir kettlingar
fást gefins. Upplýsingar í síma
72288.
Kœrar þakkir fœri ég öllum þeim sem glöddu
mig með heimsóknum og gjöfum eða minnt-
ust mín á annan hátt á 80 ára afmœli mínu
þann. 28. ágúst sl.
Guð blessi ykkur öll.
Kristján Magnússon,
Mýrarholti 14, Ólafsvík.
OLLUM TTL GOÐA
Til Velvakanda.
Það verður líklega aldrei of oft
kveðin vísa að gæði í sérhverri
mynd eru bæði ánægju- og yndis-
aukandi en gæði eru ekki almenn
heldur eru þau aðeins inn á milli.
I þessu sambandi er athyglisvert
að skoða fjölmiðla, sem óneitanlega
snerta daglegt líf fólks, sérstaklega
þó útvarp. Hjá þeim eins og öðrum
eru gæðin aðeins inn á milli. Flest-
ir dagskrárgerðarmenn tala rétt
mál og margir tala góða íslensku.
Þó er fátt eins átakanlegt fyrir
HEILRÆÐI
Það gæti
orðið þitt
barn!
Börnin í umferð-
inni eru börnin
okkar. Þar sem
þau eru á eða við
akbrautir er
nauðsynlegt að
sýna sérstaka
aðgát. Öll viljum
við vemda börn-
in fyrir hættum
í umferðinni. Það
gerum við best
með því að sýna
gott fordæmi.
eyrun og að hlusta á sundurslitið
mál og oft má heyra að undirbún-
ingsvinna þáttanna hefur verið lítil
sem engin. Þar af leiðandi geta
þættir orðið innihaldslitlir. Það er
nefninlega ekki mörgum auðveldur
sá leikur að tala samfellt óundir-
búið stórslysalaust.
En vonbrigði úr útvarpslífi var
ekki kveikjan að þessari grein held-
ur vil ég þakka fyrir einn mjög at-
hyglisverðan og uppbyggjandi þátt
sem Aðalstöðin sendir út á fimmtu-
dagskvöldum. Hann heitir Á nótum
vináttunnar. í þessum þætti, sem
Jóna Rúna Kvaran stjórnar, fær að
njóta sín einlæg og skemmtileg frá-
sögn hennar og gesta þáttarins.
Þættirnir eru augljóslega vel undir-
búnir því annars væri ekki um
fyrsta flokks efni að ræða. Innihald
þáttanna ætti að vera flestum hugs-
andi vemm til góða þ.e. jákvæð
lífsviðhorf og mikilvægi hvers og
eins.
Ég veit að þessi þáttur hefur
stóran hlustendahóp en hann er
alltof sjaldan sendur út. Það væri
mikil bót ef Aðalstöðvarmenn
myndu endurtaka þáttinn svo fleiri
mættu njóta.
,» Hlustandi.
GoldStar símkerfin
eru hvarvetna viður-
kennd fyrir gæði og
hugvitsamlega
hönnun.
• Ótal möguleikar fyrir
allar stærðir fyrirtækja.
• Vönduð uppsetning og
forritun. 100% þjónusta.
• Tugir ánægöra notenda.
• Stöast en ekki síst:
Frábært verö.
KRISTALL HF.
SKEIFAN 11B - SÍMI 685750
Ath! GoldStar síminn
m/símsvara á kr.9.952.
Þú svalar lestraiþörf dagsins
Níðsterkarog
hentugar stálhillur.
Auðveld
uppsetning.
Margarog
stillanlegar stærðir.
Hentar nánast
allsstaðar.
Ávallt fyrirliggjandi.
Leitið upplýsinga
UMBOÐS OG HEILDVCfíSLUN
Merking orðsins skötuhjú
Til Velvakanda.
Skötuhjú er eitt af þeim orðum
sem maður sér og heyrir í fjölmiðl-
um, í allt annarri merkingu en ver-
ið hefur til þessa.
Þekktir erlendir gestir sem vom
hér í heimsókn fyrir skömmu síðan,
urðu að skötuhjúum sem lögðu af
leið sína norður í land, og í síðasta
tölublaði Vikunnar var rætt við
skólafólk sem er í framhaldsnámi
þar sem skötuhjúin voru innt eftir
framtíðaráætlunum sínum.
Þetta er afa hvimleitt orð sem
ávallt hefur verið notað í niðrandi
merkingu. Eyvindur og Halla vom
kölluð skötuhjú, og annað flökku-
fólk sem þótti grunsamlegt. (Pak,
Mand og Kvinde, daariiga personer)
eins og þetta orð er skilgreint í
orðabók Sigfúsar Blöndals.
Þar sem misnotkun á þessu orði
fer í taugarnar á mörgum, ætti fjöl-
miðlafólk að taka þetta til athugun-
ar. G.J.
& Ármúla 29 simar 38640 - 686100
Þ. ÞORGRÍMSSQN & CO
Armstrong LDFTAPLÖTUR
KORk D PLAST GÓLFFLÍSAR
] KORKFLÍSAR
BMF VINKLARÁTRÉ
STÓRIÐJUINIET
í MÁLMIÐNAÐI
Boðað er til kynningarfundar fimmtudaginn 13. september nk. um væntanleg-
ar framkvæmdir við stóriðju og orkuver með sérstöku tilliti til verkefna á sviði
málmiðnaðar. Fundurinn fer fram að Garðastræti 41, Reykjavík, og hefst kl.
15.00. Gerð verður grein fyrir eðli og umfangi framkvæmdanna og kynntar
tillögur um stofnun fyrirtækjaneta um tilboðsgerð í einstaka þætti þeirra.
Framsögumenn:
- Agnar Olsen, verkfræðingur hjá Landsvirkjun.
- Andrés Svanbjörnsson, verkfræðingur hjá Stóriðjunefnd.
- Elías Gunnarsson, verkfræðingur.
- Gylfi Aðalsteinsson, verkefnisstjóri Málms 92.
- Kristján Jóhannsson, rekstrarhagfræðingur hjá VSÍ.
Fundarstjóri: Skúli Jónsson, formaður FMF.
Verkefnisstjórn.