Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 12.09.1990, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 12. SEPTEMBER 1990 ítfámR FOLK FráJóni Halldóri Garóarssyni ÍV-Þýskalandi. ■ BAYER Leverkusen, sem er í 3. sæti í þýsku knattspyrnunni, teflir fram 10 núverandi og fyrrver- andi landsliðsmönnum frá fimm þjóðum í byijunar- liði sínu. Leikmenn- irnir koma frá V- Þýskalandi, A- Þýskalandi, Bras- ilíu, Póllandi og Rúmeníu, en þýski markvörðurinn Vollborn á aðeins unglingalandsleiki að baki. ■ UDO Lattek hefur sterklega verið nefndur sem stjóri hjá Köln, en blaðið Bild, sem hann hefur unnið hjá, hefur gefið grænt ljós á að hann fari. ■ FRANZ Beckenbauer fær sem samsvarar um 216 millj. ísl kr. í laun næstu tvö árin hjá franska liðinu Marseille. Beckenbauer er með gott tilboð frá Knattspyrnu- sambandi Bandaríkjanna um að stjóma málum fyrir HM 1994, en segist ætla að bíða með að taka ákvörðun, því vel geti hugsast að hann verði áfram hjá Marseille. ■ MANFRED Kaltz lék á ný með HSV um helgina eftir árs fjarveru. Kappinn, sem er 37 ára, er næst leikjahæsti leikmaður deildarinnar. ■ THOMAS Kempe, leikmaður Bochum og áður Stuttgart, varð fyrir áfalli á laugardag eftir leikinn gegn Dortmund. Þegar hann kom úr sturtu voru félagarnir á bak og burt og rútan farin! ■ ABERDEEN og Glasgow Rangers mætast í undanúrslitum skosku bikarkeppninnar í lok sept- ember. í hinum leiknum mætast — Celtic og Dundiee United. ■ MICHAEL Klein, sem leikið hefur með rúmenska liðinu Dinamó Búkarest, hefur skrifað undir eins árs samning við Bayer Uerdingen. Hann var um árabil einn sterkasti varnarmaður Rúm- ena og þurfti Uerdingen að borga rúmar 30 milljónir króna fyrir hann. ■ SOVÉTMENN hafa ákveðið að halda opið tennismót fyrir atvinnu- menn í nóvember. Kremlín-bikar- inn verður það kailað og stjörnur á borð við Jimmy Connors, Brad Gilbert og Tim Mayotte hafa þeg- ar boðað þátttöku. Eihnig er gert ráð fyrir að Yannick Noah, Emilio Sanchez og Amos Mansdorf verði _ 'v- með. SEGLBRETTASIGLINGAR Morgunblaðið/Benedikt Guðmundsson Meistari á ferd Aron Reynisson varð íslandsmeistari í seglbrettasiglingum, en keppnin fór fram um helgina. Aron er hér á fullri ferð við Seltjarnarnes. Hann er 85 kg, en seglbiettið, sem hann siglir á, er 10 kg. Hrafnkell Sigtryggsson varð annar og Valtýr Guðmundsson hafnaði í þriðja sæti. HANDKNATTLEIKUR Leikið í níu vinnuvikur ÍSLANDSMÓTIÐ í handknatt- leik hefst um næstu helgi, eða sömu helgina og einni tvísýnustu 1. deildarkeppni í knattspyrnu í langan tíma er að Ijúka. Forraðamenn 1. deildarliðanna í handknattleik hafa ekki getað valið sér óheppilegri tíma til að hefja keppni. Þessi tímasetning kemur aðeins í kjölfarið á vægast sagt vanhugsaðri fjölgun liða í 1. deild og breyttu fyrirkomulagi, sem á eflaust eftir að skaða islensk- an handknattleik. Fjölgun liða í 1. deild, fjölgun leikja og breytt fyrirkomulag, þar sem 1. deildinni er skipl upp I 1. og 2. deild undir lokin, eða Ap þegar úrslita- INNLENDUM keppni hefst, var VETTVANGl verk sem vaðið var ^0 SigmundurÓ. Steinarsson í án þess að hugsa um afleiðingar. Breytingin virðist ekki hafa verið hugsuð til enda. Þegar er búið að riðla fyrstu um- ferð 1. deildar- keppninnar vegna knattspyrnu- leika. Aðeins tveir af sex leikjum sem áttu að fara fram kl. 16.30 á laugardaginn fara fram. Vegna lokaumferðannnar í knattspyrnu hafa þrír leikir verið færðir. Þeir verða leiknir á sunnudag. 1. deildarkeppnin var ekki rishá sl. keppnistímabil, enda mikið af miðlungsleikjum. Gjáin á milli efstu liðanna og neðstu liðanna var djúp og sú gjá hefur ekki verið brúuð. Miðlungsleikjunum mun fjölga. Fjölgun um 136 leiki 90 leikir voru leiknir í l. deild sl. keppnistímabil, en í vetur verða þeir 192. Þetta er 102! leikja fjölg- un í 1. deild karla. í 1. deild kvenna voru leiknir 88 leikir, en í vetur verða þeir 112. Samtals verða leiknir 304 leikir í 1. deild karla og kvenna í stað 178 leikja sl. keppnistímabil. Leikjum hefur því verið fjölgað um 136 í deildun- um tveimur. í vetur verður því boðið upp á nær níu vinnuvikur , af handknattleik í þessum tveimur deildum. Þetta kostar að æfingatímum hjá félögum í íþróttahúsum mun fækka. Það er ekki hægt að vera að keppa og æfa samtímis í íþróttahúsunum. Laugardalshöllin verður t.d nær eingöngu keppnis- hús, því að þar leika Fram, Víkingur og KU í 1. deild kvenna og karla, Þróttur og Ármann í öðrum deildum og KR í úrvals- deildinni í körfuknattleik. Dómarar eru uggandi vegna ástandsins sem mun skapast og segja þeir að margir leikir koma ekki með að fara fram í vetur við óbreyttar aðstæður. Dómarar eru ekki svo fjölmennir að þeir geti með góðu móti mannuð alla leik- ina. Nýja fyrirkomulagið mun auka álagið á dómui-unum, sem eru flestir ungir og óreyndir. Dómarar sem dæmdu tvö til fjóra leiki á viku sl. keppnistímabii koma til með að dæma fjóra til sex leiki á viku í vetur. Þ.e.a.s. að þeir verða að dæma flesta daga vikunnar. Áhorfendafækkun Það er ljóst að áhuginn á hand- knattleik mun ekki aukast hjá áhorfendum. S.l. vetur var áhorf- endafækkun í 1. deild karla. Með nýju fyrirkomulagi er ekki fyrir- sjáanlegt að breyting verði þar á. Áhorfendum á eftir að fækka. Það varða hvorki færri né fleiri en 132 leikir leiknir í forkeppni í 1. deild karla. Forkeppni fyrir úrslitakeppni, en í henni verða leiknir 60 leikir. Þrjátíu leikir í úrslitakeppninni um Islandsmeist- aratitilinn og þijátíu leikir í keppninni um fallið. Fyrir nokkr- um árum var boðið upp á svipaða úrslitakeppni. Þá kom fram áhorf- endafækkun í deildarkeppninni sjálfri. Áhorfendur völdu síðan úrslitakeppnina um meistaratitil- inn, en liðin sem léku um fallið - léku fyrir fáa áhorfendur. Handknattleikur er kominn á hættulega braut. Undirritaður benti á sl. vetur að fjölgun liða í 1. deild myndi skaða og benti á um leið að nær væri að fækka liðum úr tíu í átta, en að fjölga úr tíu í tólf. Það er of seint að fara að ræða aftur um það. Barnið er dottið ofaní brunninn og það þarf þrekvirki til að bjarga því upp aftur. FRJALSAR Um400 manns í Reykja- lundar- hlaupinu Reykjalundarhlaupið ’90 var haldið í Mosfellsbæ um helgina og voru mættirtil leiks um fjög- ur hundruð manns. Fólkið lét ekki rigningarsuddann hafa minnstu áhrif á sig, heldur flykktist ívegalengdirnar sem boðið var upp á, 2 km, 3 km, 6 km og 14 km. Hlaupinu hefur ávallt verið ætlað að höfða til sem flestra, fatlaðra sem ófatlaðra, og lét fólk í hjólastólum og með önnur hjálpartæki sig ekki vanta á laugardaginn og stóð sig með prýði eins og aðrir. Eftir hlaup var síðan boðið upp á léttar veitingar og verðlaun dregin út, bæði siðir sem tíðkast hafa í öllum Reykjalundarhlaupunum. Fjölmennt lið var komið bæði frá Skokkklúbbi Seltjarnarness og Skokkklúbbi Mosfellsbæjar og setti það fólk skemmtilegan svip á hlaupið. Ekki eru menn mikið að keppast við tíma í styttri vegalengdunum held- ur frekar að komast í mark en í 14 km hlaupinu var hörð barátta enda um fímmtíu vanir hlauparar mættir til leiks. Helstu úrslit fara hér á eftir. I tveimur kílómetrum kom Ylfa Osp Áskelsdóttir fyrst í mark af konum og Eyþór Árnason var fyrsti strákur- inn: Rúmlega sjötíu manns voru með í þessari vegalengd sem var reyndar fijálslega túlkuð og má nefna að Edda Bergmann og Jón Sigurðsson fóru mun fleiri hringi í hjólastóium sínum. Haukur Hauksson kom fyrstur í mark karla í þremur kílómetrunum á tímanum 12 mín. og 37 sek., Björn Björnsson varð annar á 13,14 og Jens Hjartarson þriðji á 13,24. Anna Lov- ísa varð fyrst kvenna á 13,02, Kristín Rut Kristinsdóttir önnur á 13,46 og Ragnhildur Pétursdóttir þriðja á 14,01. Flestir þátttakendur voru með í þessari vegalengd, einir tvö hundruð sem skokkuðu eða gengu, já eða hjó- luðu því ekki má gleyma Birni Adolfs- syni sem varð í raun fyrstur í mark og notaði reiðhjól sem hjálpartæki. Jóna Þorvarðardóttir varð fyrst kvenna í 6 km hlaupinu á 27,39, Lilja Þorleifsdóttir önnur á 29,02 og Rikka Mýrdal þriðja á 29,06. Þorgeir Óskarsson varð fyrstur karla á 22,57, Oití Freyr Gíslason annar á 23,24 og Gísli Ásgeirsson þriðji á 23,25. Alls tóku 72 þátt í sex kílómetra leiðinni. Nokkuð erfíður hlaupahringur í kringum Ulfarsfell beið 14 km hlaup- aranna en þeir létu það ekki hafa mikil áhrif á sig og ágætur tími náð- ist. Eymundur Matthíasson varð fyrstur karla á 53,05 og Jakob Bragi Hannesson annar á 55,19. Anne Marie var fyrst kvenna á 66,04 og Fríða Bjarnadóttir önnur á 67,18. Tími annarra fylgir hér á eftir, fyrst kvennanna. Þorbjörg Erlendsdóttir 73,00, Margrét Jóns- dóttir 75,13, Svanfríður Sigurlaug Óskars- dóttir 75,40, Guðlaug Eiríksdóttir 78,48, Kristín Jónsdóttir 79,27, Hafdís Ólafsdóttir 83,33 og Svanhildur Valsdóttir 86,16. Tími annarra karla var eftirfarandi: Jóhann Heiðar Jóhannsson 56,16, Gunnlaugur Nielsen 56,50, Jónas Tryggvason 59,33, Birkir Már Kristins- son 60,03, Hannes Jóhannsson 60,46, Bene- dikt Höskuldsson 60,48, Óskar Ólafsson 61,55, Magnús Öm Friðþjófsson 62,41, Páll Stein- þórsson 63,27, Atli Hauksson 64,06, Gísli Ragnarsson 65,14, Gunnar Jónsson 65,12, Halldór Víglundsson 65,34, Krístinn Bene- diktsson 67,24, Egill Jóhannsson 67,47, Torfi Leifsson 68,03, Jóhannes Bjamason 68,04, Jón Guðmar Jónsson 69,43, Ragnar Siguijónsson 69,25, Magnús Bjarnason 69,36, Hjalti Gunn- arsson 69,54, Guðmundur Sigurðsson 70,12, Guðmundur Atlason 71,02, Björn Magnússon 71,39, Einar Magnússon 72,49, Steinar Hös- kuldsson 74,56, Vöggur Magnússon 74,59, Kristján Sæmundsson 75,13, Anton Sigurðs- son 75,57, Þröstur Lýðsson 76,12, Guðmundur Friðþjófsson 76,44, Ingólfur Sveinsson 78,25, Sigurður Antonsaon 83,21, Sigfús Gunnarsson 85,16 og Jónas Jóhannsson 85,52.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.