Morgunblaðið - 20.09.1990, Qupperneq 8
8 B
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNULÍF FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1990
Iðnaður
Höfum gætt þess að
hagræða alltafírekstrí
Rætt við Geir Agnar Zoéga framkvæmdastjóra ísaga um starfsemi
fyrirtækisins, sem sænska gasfyrirtækið AGA vill aftur eignast hlut í
eftir 16 ára aðskilnað
FYRIRTÆKIÐ ísaga hefur verið í fréttum að undanfornu vegna
skyndilegs áhuga sænska gasfyrirtækisins AGA og íslenskra verð-
bréfafyrirtækja á kaupum á hlutabréfum fyrirtækisins. Heimildir
Morgunblaðsins herma, að viðskiptaráðuneytið hafi gefið AGA undan-
þágu frá þeim lögum sem kveða á um 49% eignaraðild erlendra
fyrirtækja og heimilað því að eignast fyrirtækið 100%, verði öll hluta-
bréfin til sölu. Heildarverðmæti hlutabréfanna miðað við tilboð AGA
er rúmar 216 milljónir króna. ísaga keypti verksmiðju frá Noregi,
sem tekin var í notkun í maí sl., en þrátt fyrir þessa viðbót segir
forstjóri þess, Geir Agnar Zoéga, að verksmiðjan sé á góðri leið
með að nýtast vel. Hann sér fram á aukin umsvif með fljótandi köfn-
unarefni og súrefni til stórra aðila eins og ÍSAL, Stálverksmiðjunn-
ar og innan tíðar til Járnblendisins. Til að forvitnast nánar um hvað
liggur að baki rúmlega 70 ára starfsemi fyrirtækisins brugðu blaða-
maður og ljósmyndari sér upp í Breiðhöfða, þar sem fyrirtækið
hefur verið til húsa síðan það var endurreist eftir brunann mikla 1963.
„Gasstöðin á Rauðarárstíg brann
til kaldra kola árið 1963,“ segir
Geir Agnar Zoéga. „Svo að við
þurftum að hefjast handa upp á
nýtt og þá var í fyrstu aðeins byggt
húsið, sem þú sérð þama út um
gluggann.“ Og Geir bendir á eitt
húsanna sem stendur á lóð ísaga,
reyndar það minnsta af þremur
byggingum fyrirtækisins. „Nú er
aðeins gasframleiðslan þarna, en
hún fer minnkandi ár frá ári. í stað-
inn fyrir gasið er notuð rafsuða,
argonsuða,
slíkt.“
plasmaskurður og
AGA átti 85% fyrirtækisins
ísaga var stofnað til að framleiða
gas fyrir vita, en áður hafði gasið
verið flutt inn frá Danmörku. Það
var Þorvaldur Krabbe vitamála-
stjóri, sem var aðalhvatamaður að
byggingu verksmiðjunnar og hann
fékk í lið með sér ýmsa framámenn
í þjóðfélaginu. Þeir áttu þó aðeins
HÁMARKSNÝTING
(85-90%) á
geymslurými
• Hjólaskáparnir frá
Havik ieysa vandann.
• Þeir eru þægilegir í notkun,
og ekki mínnst níðsterkir.
• Hf. Ofnasmiðjan hefur áratuga
reynslu í að skipuleggja skjalageymslur.
• láttu okkur um að skipuleggja lagerinn,
við gerum tilboð þér að kostnaðarlausu.
KOMIÐ í VERSLUNINA OG SANNFÆRIST EÐA HAFIÐ
SAMBAND VIÐ SÖLUMENN OKKAR í SÍMA 21220.
IF.OFIUSMIIMAII
HÁTEIGSVEGI 7 - SÍMI 21220
15%, en AGA, sænska gasfyrirtæk-
ið átti 85%, en hafði þó lítil af-
skipti af reksri félagsins. Árið 1947
þegar hlutaféð var aukið, heimilaði
Emil Jónsson ráðherra AGA ein-
ungis 55% eignaraðild, en Ísaga
mátti sjálft með undanþágu eiga
30%. Þannig gekk þetta til ársins
1974, en þá gekk starfsemin ekki
nógu vel hjá AGA í Suður-Ameríku
og seldi fyrirtækið alla starfsemi,
sem var ekki 100% í eigu þeirra.
Þáverandi hluthafar bættu við sig
hlutafé og einhverjir nýir eigendur
bættust við.
„í kringum 1924 var hafin fram-
leiðsla á súrefni með kaupum á
lítilli samstæðu sem framleiddi 3
rúmmetra af súrefni á klukku-
stund,“ segir Geir Agnar. „Til sam-
anburðar má geta þess, að núver-
andi samstæða getur framleitt 750
rúmmetra á klukkustund af súrefni
og 250 rúmmetra af köfnunarefni.
Næsta skref var stigið árið 1936,
þegar byggð var 15 rúmmetra sam-
stæða, sem keyrð var öll stríðsárin.
— Það er í rauninni óskiljanlegt,“
segir hann, „að hún hafi getað
annað allri þeirri eftirspurn, sem
varð á þeim tíma. — En síðan var
ekki bætt við vélum fyrr en árið
1947 að 30 rúmmetra samstæða
var byggð.
Eftir brunann 1963 var farið að
fylla súrefni á hylki uppi í Áburðar-
verksmiðju. En þegar stórir notend-
ur fóru að bætast við varð að
byggja verksmiðju sem framleiddi
fljótandi lofttegundir. Það varð úr
að við keyptum notaða verksmiðju
1984 frá Danmörku, sem fram-
leiddi 150 rúmmetra súrefnis á
klukkustund. Við rifum hana niður
og settum hana upp hér og byrjuð-
um að framleiða súrefni og köfnun-
arefni sjálfir. Núna er fljótandi
súrefni og köfnunarefni fyllt á
geyma hér hjá okkur. Sú verk-
smiðja var orðin of lítil og var þá
keypt önnur frá Noregi nú í vor,
sem við vissum að var vel stór. En
það sýndi sig þegar hún var komin
í notkun í maí síðastliðnum, að
eftirspurnin hefur aukist, og við
Morgunblaðið/Emilía
EFTIRSOKNARVERT — Útlit er fyrir blómlega tíð fram-
undan hjá ísaga og því er fyrirtækið orðið eftirsóknarvert fyrir inn-
lenda sem erlend aðila. „Við höfum farið okkur hægt en sígandi í fjár-
festingum,“ segir Geir Ágnar Zoéga framkvæmdastjóri, en fyrirtækið
tók sl. vor í notkun nýja verksmiðju, sem keypt var frá Noregi.
megum þakka fyrir að vera búin
að koma henni upp.“
Köfnunarefni notað til
humarfrystingar
Helsta framleiðsla Isaga er súr-
efni og köfnunarefni, en flutt er inn
argon, sem Geir segir að borgi sig
ekki að framleiða hér á landi. Einn-
ig er keypt kolsýra frá Hæðarenda
í Grímsnesi, sem fyllt er á hylki.
Kolsýran er síðan notuð við rafsuðu
og í gróðurhúsum. Súrefni hefur
fram til þessa verið aðal uppistað-
an, en notkun köfnunarefnis er að
aukast mjög mikið, til dæmis er
nautasæði á nautabúinu á Hvann-
eyri fryst með köfnunarefni og
hægt er að geyma það ákaflega
lengi. KASK á Höfn í Hornafirði
hefur notað köfnunarefni við hum-
arfrystingu með góðum árangri.
Hægt er að ráða hitastigi köfnunar-
efnisins og þegar fryst er svo
'snöggt sem raun ber vitni eyði-
leggjast frumurnar ekki og gæði
framleiðslunnar verða meiri. Hum-
arinn er frystur með klóm og fæst
þannig hærra verð fyrir hann, enda
er dýrara að frysta hann á þennan
hátt. Sama aðferð er talin góð fyr-
ir hrognafrystingu og lax.
Aukin viðskipti við
stóriðj ufyrirtækin
Súrefnið er notað til logsuðu og
logskurðar, en einnig er það notað
handa sjúklingum á sjúkrahúsum.
„Nú kemur Stálfélagið til með að
nota súrefni í miklum mæli til að
setja í deiglurnar og auka þannig
afköstin. Með þessu geta þeir skipt
þrisvar um í þeim í stað einu sinni,“
segir Geir Ágnar. „Aftur á móti
er köfnunarefni notað hjá ÍSAL til
að hreinsa málminn meira heldur
en gert hefur verið. Talað er um
að búa til meira hágæðaál en áð-
ur. Reyndar er ekki bytjað á því
ennþá, en það mun væntanlega
hefjast innan tveggja mánaða og
þá þýðir það sölu köfnunarefnis í
mjög miklu magni. Nú, svo er slát-
urtíðin að fara í hönd, sem er upp-
skerutími hjá okkur. Þegar haus-
arnir eru sviðnir er notað propang-
as og súrefni.“
Þegar við ræðum velgengi fyrir-
tækisins í gegnum tíðina segir
Geir Agnar: „Það hafa verið sveifl-
ur upp og niður í stárfseminni eft-
ir utanaðkomandi áhrifum, en við
höfum reynt að þjóna þessum
markaði vel. Við höfum farið hægt
í fjárfestingar, ekki flanað að
neinu, það liggur ekki meira á en
svo. Starfsfólkið, sem er 25 manns,
er allt úrvals fólk, sem starfað hef-
ur hér yfirleitt mjög lengi.“ Að-
spurður hvort ekki þurfi að fjölga
starfsfólki miðað við væntanleg
umsvif segir Geir Agnar Zoéga,
að þeir hafi gætt þess að hagræða
alltaf í rekstrinum, þannig að ekki
hafi þurft að bæta við fólki. „Vel-
gengi fyrirtækisins er hversu gott
starfsfólk er hér og að allir hjálp-
ast að við að gera breytingar til
hagræðingar."
1. Þórður Einarsson
2. Geir AgnarZoega
3.
4.
5.
6.
7.
8.
9.
10.
11.
12.
13.
Frímann Jónsson
Pétur Pétursson
Fiskafurðir
Gunnlaugur Björnsson
Guðmundur Björnsson
Björg Valgeirsdóttir
Bjarney Samúelsdóttir
Þorvaldur S. Þorvaldsson
Dagný Valgeirsdóttir
Hallvarður Valgeirsson
Björn Valgeirsson
Nafnverð
12.493.766
11.551.413
5.395.727
4.447.622
3.000.000
2.462.276
2.462.276
1.937.901
1.837.080
1.823.907
1.025.948
1.025.948
1.025.948
SAMTALS:
50.489.812 85,5%
Heildarhlutafé er kr. 59.049.000
HLUTHAFAR — Hér að ofan má sjá hvemig eignaraðild þrettán stærstu hluthafa ísaga hf. var,
áður en Þórður Einarsson, sendiherra í Svíþjóð, sem var stærsti hluthafinn, seldi Kaupþingi sinn hlut.
Stærstu hluthafarnir eru flestir afkomendur stofnenda fyrirtækisins eða tengjast þeim á annan hátt. Þeir
hafa nú til athugunar tilboð sænska fyrirtækisins AGA, sem býðst til að kaupa hlutabréfin á genginu 3,67.
Frestur til að svara tilboðinu rennur út þann 28. september nk.