Morgunblaðið - 23.09.1990, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.09.1990, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM SUNNUDAGUR 23. SEPTEMBER 1990 “I LEIKLIST Vagnadans í eistn- eskri kirkju? Leikhópurinn Fantasía er senn á förum til Finnlands, Eistlands og Litháens, en hópnum hefur verið boðið að koma fram í þessum lönd- um og sýna verk sitt „Vagnadans". Raunar er ekki alveg hundrað pró- sent víst að af ferð hópsins verði, því ferðin kostar sitt og félagar í hópnum eru í óða önn að leita sér að styrktaraðilum. Takist það ekki fer ferðin út um þúfur, en áætlaður kostnaður við ferðina mun nema um 1,3 milljónum króna. Sæmundur Andrésson, einn félaga í Fantasíu, sagði í samtali við Morgunblaðið að hópurinn væri óraveg frá því að ná inn umræddri upphæð, en hann vonaði hið besta. Ferð þessi er þannig tilkomin að Fantasía var í leikför í Svíþjóð og kom þá fram á leiklistarhátíð í Vesterás í Svíþjóð. Upp frá því komu menn frá umræddum löndum að máli við félaga í Fantasíu að koma til sín og sína verkið. Sæ- mundur sagði þetta vera spennandi og skemmtilegt verkefni og vonandi yrði hægt að fjármagna leikhópinn. „Vagnadans er þriðja verk hópsins og höfum við samið þau öll sjálf. Þetta er leikur án orða og hentar því prýðilega til sýninga á erlendri grund. Verkið passar hins vegar mun betur fyrir tónlist. Rammi verksins er nokkuð skýr, en mikið frelsi er þó gefið,“ sagði Sæmundur. Fantasía mun sýna verk sitt í Vislu og Tallín og einnig í Hels- inki, en leikhúsaðilar þaðan sáu til Fantasíu í Vesterás í sumar og buðu þeim að vera með gestaleik er hópurinn færi til Eystrasaltsríkj- anna í byijun október. Alls fara, ef farið verður, 10 leikarar og tæknimenn. Verkið Vagnadans er trúlega öðru vísi en hinn almenni leikhús- gestur á að venjast og nægir að benda á myndina sem þessu fylgir. Fantasíumenn lýsa verkinu nánar með þessum hætti: „Sjónleikurinn Vagnadans er leikur án orða. Það er líklega þess vegna sem mönnum ber einatt ekki saman um inntak hans. Sumir vilja túlka verkið sem tilbrigði við sköpunarsöguna eða táknræna útfærslu á lífshlaupinu, jafnvel að það ljalli um lífsgæða- kapphlaupið. Enn aðrir láta sitja við að skellihlæja að öllu saman. Og þetta er prýðilegt og kannski helsti styrkur sýningarinnar: hún stelur engu af áhorfandanum en getur gefið ýmislegt og hver sækir þangað það sem honum hentar." Fantasíúmenn koma til með að gera einhverjar breytingar á út- færslu verksins með hliðsjón af því umhverfi sem verkið verður flutt í. Til dæmis stendur til að flytja Vagnadansinn í eistneskri kirkju! Því verður hönnuð ferðaleikmynd og „yrkja sýninguna síðan inn í nýja umhverfið" eins og leikararnir segja sjálfir. RITSTÖRF LaToya hefur skrifað „Jackson- bókina“ Söngkonan LaToya Jackson hef- ur nú loksins lokið við handri tið að „sögu Jackson-ljölskyldunn- ar“ sem verið hefur í deiglunni all- lengi. Var mikið umtal er hún hóf ritun sögunnar og hinn margfalt frægari bróðir hennar, Michael Jackson, reyndi meðal annars að fá systur sína ofan af því að skrifa bókina með peningagreiðslum, en allt kom fyrir ekki. LaToya segir Jackson-ijölskylduna nú hafa þykk- Njóttu þess besta -útilokaðu regnið, rokið og kuldann • Mjög hátt brotþol. DIN 52290. • Beygist kalt. • Meiri hitaeinangrun en gengur og gerist. • Hluti innrauðra geisla ná í gegn. GENERAL ELECTRIC PLASTICS LEXAN ylplast velur það besta úr veðrinu. SINDRI LEXAN ylplastið er nýjung sem gjörbreytir möguleikum okkar til þess að njóta þess besta sem íslensk veðrátta hefur að bjóða - íslensku birtunnar. LEXAN ylplastið er hægt að nota hvar sem hægt er að hugsa sér að Ijósið fái að skína, t.d. í garðstofur, yfir sundlaugar, yfirbyggingu gatna, yfir húsagarð, anddyri og húshluta. Möguleikamir eru óþrjótandi. LEXAN ylplast • Flytur ekki eld. Er viðurkennt af Brunamálastofnun. BORGARTÚNI 31 • SÍMI 62 72 22 íslensk veðrátta er ekkert lamb að leika við. Þess vegna nýtum við hverja þá tækni sem léttir okkur sambúðina við veðrið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.