Morgunblaðið - 07.11.1990, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. NÓVEMBER 1990
Furðufyrirbæri á
sveimi yfir Evrópu
París. Reuter.
UNDARLEG fyrirbrígði sáust á lofti yfir nokkrum Evrópulöndum
í gær. Var þeim lýst sem appelsínugulum boltum, þríhyrningum og
ljósblettum. Frásagnir af fyrirbærunum bárust frá Frakklandi, ít-
alíu, Sviss og Belgíu.
1605. f>ví er fagnað á hverju ári
að tilræðið misheppnaðist.
Lögreglu og slökkviliði í Frakk-
landi bárust ijölmargar lýsingar í
gærkvöldi á óþekktum fyrirbærum
sem oft eru nefnd einu nafni Fljúg-
andi diskar til hægðarauka. Starfs-
maður Reuíers-fréttastofunnar i
Genf sagðist sjá stóran, appelsínu-
gulan bolta er hreyfðist yfir nætur-
himininn frá Júraíjöllum í átt til
Alpanna. Sérfræðingar í Munchen
í Þýskalandi sögðu að e.t.v. hefði
loftsteinn sprungið en belgísk yfir-
völd sögðu að flugherinn væri að
kanna frásagnir af þríhymingi
ásamt þrem ljósum er borist hefði
hægt og hljóðlaust til suðvesturs. Á
Ítalíu sáu sex flugmenn farþega-
véla „dularfull og mjög sterk ljós-
fyrirbæri" suðaustur af Torino.
I Bretlandi sáust engin furðufyr-
irbrigði enda yar fólk önnum kafið
við að skjóta upp flugeldum í tilefni
af degi Guy Fawkes sem reyndi að
sprengja þinghúsið í loft upp árið
Japan:
Vísa á bug
ásökunum
um dráp á
höfrungum
Tókýó. Reuter.
JAPANSKA utanríkisráðuneytið
hefur vísað á bug fréttum um
að sjómenn á eyjunni Fukue hafi
nýlega slátrað 600 höfrungum til
að vernda fiskimið sin. Fréttir
þar að lútandi hafa vakið mikla
reiði á alþjóðavettvangi.
„Þetta var fjöldasjálfsmorð,“
sagði Taizo Watanabe, talsmaður
ráðuneytisins, við fréttamenn.
Hann sagði að sjómenn frá bænum
Mijraku á eyjunni Fukue i suður-
hluta Japans, hefðu árangurslaust
reynt að reka á sjó út stórar höfr-
ungavöður sem nálguðust strönd
eyjarinnar síðastliðinn föstudag.
„Daginn eftir fann fólk 600 höfr-
unga á ströndinni eða svamlandi
rétt fyrir utan,“ sagði Watanabe.
„Sjómenn í þremur bátum reyndu
að reka þá hvali sem eftir lifðu
burt, en sífellt fleiri renndu sér upp
í fjöruna,“ sagði hann.
Watanabe sagði að staðaryfirvöld
hefðu skipað sjómönnunum að
skera þá hvali sem þeir óskuðu eft-
ir til átu, en grafa hina. Sjónvarps-
fréttir af atburðunum á Fukue-eyju
hneyksluðu áhorfendur jafnt í Jap-
an sem annars staðar.
Naoko Kakuta, sjávarlíffræðing-
ur og Grænfriðungur í Japan, sagði
að það væri ákaflega óvenjulegt að
fleiri en fjórir höfrungar syntu
samtímis á land upp. Hún sagði
einnig að höfrungar væru sjaldnast
fleiri en 100 saman í vöðu.
Taylor selur málverk
Reuter
Leikkonan Elizabeth Taylor með málverk Vincents van Goghs, „Hælið
og kapellan í Saint-Remy“ sem hún keypti fyrir nokkrum áratugum.
Hún hyggst láta bjóða það upp hjá Christie’s-uppboðsfyrirtækinu í
London í byrjun desember og er búist við að hún fái allt að 20 milljón-
ir Bandaríkjadollara (1.100 milljónir ÍSK) fyrir listaverkið. Taylor gaf
aðeins nokkur hundruð þúsund dollara fyrir það á sínum tíma.
Nýr erkibiskup á Irlandi:
Harður
andstæð-
ingur IRA
Dyflinni. Reuter.
CAHAL Daly hefur verið valinn
erkibiskup kaþólskra á írlandi.
Athygli vekur að hann hefur
gagnrýnt Irska lýðveldisherinn
(IRA) harðlega. Leiðtogi mótmæl-
enda á Norður-írlandi fagnaði
kjöri Dalys í gær.
Cahal Daly er 73 ára gamall og
hefur verið biskup í Down and Conn-
or og þar af leiðandi verið andlegur
leiðtogi kaþólikka í Belfast. Hann
hefur verið óhræddur við að gagn-
rýna ofbeldisverk IRA og baka sér
óvinsældir á þann máta. Hins vegar
er hann virtur gáfumaður og við-
leitni hans til að auka starfsmögu-
leika í fátækrahverfum Belfast hafa
vakið athygli og aðdáun.
Daly þykir hafa svipaðar skoðanir
og Jóhannes Páll páfi II. Hann hefur
hvatt til einingar kirkjunnar.
Umdeildur rabbíni myrtur í New York:
Ottast að ísraelskir öfga-
menn hefni leiðtoga síns
Npw York. .Ipnisalem. Rpnter.
New York, Jerúsaiem. Reuter.
MEIR Kahane, herskár rabbíni sem barðist fyrir því að arabar yrðu
reknir frá Israel, var myrtur á hóteli í New York aðfaranótt þriðju-
dags. Morðinginn náðist eftir að hafa orðið fyrir byssukúlu og bar á
sér persónuskilríki með arabísku nafni. Fylgismenn Kahane í Israel
sóru þess eið að hefna rabbínans og israelskar öryggissveitir voru
sendar á vettvang til að koma í veg fyrir að ráðist yrði á araba á
svæðum í landinu þar sem þeir safnast saman.
Kahane var myrtur er hann hélt
fyrirlestur um ísrael og Persaflóa-
deiluna í Marriot East-hótelinu á
Manhattan. Um hundrað manns
hlýddu á fyrirlesturinn. „Kahane var
að svara spurningum þegar ungur
maður gekk að honum, brosandi og
ankannalegur, dró upp byssu og
skaut hann í höfuðið og öxlina,"
sagði sjónarvottur. Morðinginn hljóp
síðan út úr salnum og særði 73 ára
gamlan mann, sem reyndi að stöðva,
hann. Morðinginn lagði á flótta frá
hótelinu og reyndi á næstu götu að
neyða leigubílstjóra til að aka sér í
burtu. Hann skaut þar á lögreglu-
mann, sem var í skotheldu vesti og
særðist aðeins á hendi. Lögreglu-
maðurinn skaut á móti og morðing-
inn fékk skot í höfuðið. Þeir voru
báðir fluttir á sjúkrahús og er morð-
inginn ekki sagður í lífshættu.
Talsmaður lögreglunnar sagði að
morðinginn héti E1 Sayed Noseir,
væri 37 ára gamall og kæmi frá
Jersey-borg í nágrenni New York.
Flest benti til þess að hann hefði
verið einn að verki.
Stjórnmálamenn í ísrael for-
dæmdu morðið þótt margir þeirra
Meir Kahane
Reuter
Bretland:
Gervihnattasjónvarpsstöðv-
arnar BSB og Sky sameinast
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
BRESKU gervihnattasjónvarpsstöðvarnar BSB og Sky tilkynntu
síðastliðinn föstudag að þær mundu sameinast í nýju fyrirtæki.
Talsmenn Verkamannaflokksins hafa gagnrýnt sameininguna og
telja að vísa beri málinu til nefndar er fjallar um einokunaraðstöðu
fyrirtækja á Bretlandi.
Sjónvarpsstöðin Sky hóf útsend-
ingar um gervihnöttinn Astra í
febrúarmánuði á síðasta ári. Sala
á viðtökudiskum gekk hægt í
fyrstu, en Sky hafði selt um
800.000 diska við sameininguna.
BSB hóf útsendingar í apríl á þessu
ári og hafði einungis selt um
110.000 diska er ákveðið var að
sameina stöðvamar.
Mikið tap hefur verið á rekstri
beggja stöðvanna. Talið er að Rup-
ert Murdoch, eigandi Sky, hafi lagt
í hana 400 milljónir sterlingspunda
(40 milljarða ísl. kr.) frá upphafi.
Eigendur BSB hafa lagt um 800
milljónir sterlingspunda (80 millj-
arða ísl. kr.) í sína stöð. Búist var
við að Sky færi að skila hagnaði
árið 1992, en BSB ekki fyrr en
töluvert seinna, jafnvel ekki fyrr
en 1994 eða 95.
Eigendur BSB munu eiga hið
nýja fyrirtæki til helminga á móti
News International, fyrirtæki
Murdochs. BSB hættir að selja sína
móttökudiska og eingöngu verður
sent út um gervihnöttinn Astra.
Ástæðurnar fyrir sameiningunni
eru nokkrar. BSB, sem er í eigu
margra aðila, þeirra á meðal
Granada-sjónvarpsstöðvarinnar og
fjölþjóðafyrirtækisins Pearson, sem
á dagblaðið Financial Times, hefur
gengið illa að selja diska. Talið var
nær útilokað að það næði að selja
400.000 diska fyrir lok ársins, en
lánadrottnar þess töldu það skilyrði
fyrir frekari lánveitingum. News
International, fyrirtæki Murdochs,
sem á 35% af öllum breskum dag-
blöðum og er auk þess víðtækt fjöl-
miðlaveldi í Ástralíu og Banda-
ríkjunum, hefur átt við verulegan
skuldavanda að etja að undanf-
ömu. Það hefur verið Ijóst um
nokkurt skeið, að það þyrfti að
líkindum að selja hluta af eigum
sínum til að minnka skuldirnar.
Einnig hefur verið Ijóst, að breski
markaðurinn sé varla nægilega stór
fyrir tvær gervihnattastöðvar. Að
síðustu hefur samdrátturinn í
bresku efnahagslífi valdið því, að
færri keyptu sér móttökudiska en
búist var við og minna hefur verið
um auglýsingar.
Talsmenn Verkamannaflokksins
í fjölmiðlamálum hafa gagnrýnt
þennan samning. Þeir telja óeðli-
legt, að sami eigandi geti verið að
svo stórum hluta breskra dagblaða
og helmingseigandi í gervihnatta-
stöð, sem muni verða í einokunar-
aðstöðu á þeim markaði um fyrir-
sjáanlega framtíð. Þeir hafa kraFist
þess, að einokunamefnd ríkisins fái
málið til meðferðar. Andrew
• Knight, framkvæmdastjóri News
Intemational, hefur vísað þessari
gagnrýni á bug. Ilann segir, að
nýja stöðin sendi einungis út á
fimm rásum, en í Astra-gervihnett-
inum séu 17 rásir nú þegar, öðrum
17 verði bætt við fljótlega og enn
öðrum 17 árið 1992. Það sé því
fráleitt að tala um einokun.
Ekki er ljóst, hvernig útvarpsráð
breska ríkisins bregst við þessari
sameiningu, en BSB hafði gert
samning.við það um útsendingar-
tíðni fram til ársins 2004.
hefðu verið harðir andstæðingar
Kahane." „Það er hægt að andmæla
skoðunum hans, deila við hann, en
pólitískt morð er allt annar handlegg-
ur,“ sagði Abdul Wahab Darawshe,
arabi sem á sæti á ísraelska þinginu.
Fylgismenn rabbínans í Jerúsalem
sóru þess eið að hefna hans. „Ég
lofa því að arabískt blóð mun streyma
eins og fljót á götunum," sagði einn
þeirra.
Tveir aldraðir Palestínumenn voru
drepnir á Vesturbakka Jórdanar og
lögreglan taldi að þeir hefðu verið
myrtir til að hefna Kahanes. Lögregl-
an bjó sig undir frekari hefndarað-
gerðir og taldi einkum hættu á að
ráðist yrði á leiðtoga Palestínumanna
og araba sem sæti eiga á ísraelska
þinginu.
Var þrjú ár í fangelsi
Kahane fæddist í Bandaríkjunum
1. ágúst 1932. Hann hóf ungur af-
skipti af stjórnmálum og gekk í
Betar-hreyfinguna í New York, ung-
liðahreyfingu Heruts, hægriflokks
Menachems Begins, fyrrum forsætis-
ráðherra Israels. Þegar Kahane var
fimmtán ára var hann handtekinn
fyrir að bijóta rúðu í bifreið Ernests
Revins, þáverandi utanríkisráðherra
Bretlands, til að mótmæla umboði
Breta til að stjóma Palestínu.
Kahane stofnaði Vemdarfylkingu
gyðinga (JDL) árið 1968 en hún
naut í fyrstu vinsælda á meðal
bandarískra gyðinga þar sem mark-
mið hennar var að vernda aldraða
gyðinga fyrir árásarmönnum á göt-
um New York-borgar. Hreyfíngin
komst hins vegar brátt í kast við
lögin og var sökuð um aðild að árás-
um á húseignir Sovétríkjanna og
annarra erlendra ríkja í Bandaríkjun-
um. Kahane sat í fangelsi í eitt ár
fyrir að framleiða sprengjur. Alls
mun hann hafa setið í þijú ár í fang-
elsi í Bandaríkjunum og Israel.
Framboð flokksins bannað
Kahane flutti til Israels 1971 og
stofnaði Kach-flokkinn, sem barðist
fyrir því að arabar yrðu reknir frá
ísrael og svæðunum sem ísraelar
hernámu í stríðinu 1967. Hann spáði
því að flokkurinn kæmist brátt til
valda í ísrael en kjósendur sáu til
þess að sú spá rættist ekki. Hann
var fyrst kjörinn á ísraelska þingið
árið 1984 eftir að hafa í kosningabar-
áttunni lagt ríka áherslu á brottflutn-
ing araba, sem hann vísaði stundum
til sem „hunda“. Samkvæmt skoð-
anakönnunum sótti hann einkum
fylgi sitt til gyðinga, sem fluttu til
ísraels frá arabaríkjunum. „Það er
ekki ætlun mín að drepa araba, ég
vil aðeins að þeir lifi hamingjusamir
t- annars staðar," sagði hann við
stuðningsmenn sína. Um 800.000
arabar eru í ísrael og 1,75 milljón á
hernumdu svæðunum.
Kach-flokknuip var hins vegar
bannað að bjóða fram í kosningum
árið 1988 þar sem stefna hans þótti
bera keim af fasisma og kynþátta-
hatri. Flokkurinn var sagður andlýð-
ræðislegur en Kahane hélt því fram
að heimspeki gyðinga hefði aldrei
byggst á vestrænum lýðræðisgildum
heldur á lögum, sem hann sagði
banna náin tengsl gyðinga við aðrar
þjóðir. Hann varaði hvað eftir annað
við hjónaböndum gyðinga og araba
og hótaði að leita uppi gyðingakonur
giftar aröbum í Israel.
Grænland:
SAS vill far-
gjaldahækkun
Kaupniannahöfn. Frá Nils Jergen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
SKANDINAVÍSKA Hugfélagið
SAS hefur sótt um það til sam-
gönguráðuneytisins að fá að
hækka fargjöld á áætlunarleið-
inni milli Kaupmannahafnar og
Syðri-Straumfjarðar á Grænlandi
frá og með 1. janúar 1991.
Leif Petersen, sem hefur yfirum-
sjón með þessari flugleið hjá félag-
inu, sagði í viðtali við Grænlenska
útvarpið að hækkunarbeiðnin ætti
rót sína að rekja til kostnaðarhækk-
ana og olíuverðshækkunarinnar
vegna ástandsins við Persaflóa.