Morgunblaðið - 07.11.1990, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.11.1990, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR MIÐVIKUDAGUR 7. NOVEMBER 1990 SUND WKIPPNÍN ÍSLENSKIHANDBOLTINN 10. UMFERÐ Miðvikudagur 7.11. KR-Stjarnan Kl. 20:00 Laugardalshöll Miðvikudagur 7.11. Haukar-Valur Kl. 20:00 Strandgata, Hafnarfirði Föstudagur 9.11. ÍBV-Víkingur Kl. 20:00 Vestmannaeyjar Föstudagur 9.11. KA-ÍR Kl. 20:30 Iþróttahöllin, Akureyri Laugardagur 10.11. Grótta-Fram Kl. 16:30 Seltjarnarnes B Ragnheiður sigursæl 11. UMFERÐ Þriðjudagur 13.11. Víkingur-KR | Kl. 20:00 Laugardalshöll I VÁTRYGGIIVGAFÉLAG ÍSIAM)8 HF RAGNHEIÐUR Runólfsdóttir, sundkona frá Akranesi, hefur „ náð góðum árangri á sundmót- um í Bandaríkjunum að undan- förnu. Hún hefur meðal annars synt á betri tíma en íslandsmet hennar í 100 og 200 m bringu- sundi samkvæmt viðmiðunar- töflu. Ragnheiður stundar nám í Ala- bama háskólanum jafnframt því að æfa sund undir handleiðslu, Jonty Skinner, sem er einn virtasti ^■■1 sundþjálfari heims Conrad og fyrrum heims- Cawley methafi. sknfar Hún hefur tekið þátt í þremur mót- um fyrir hönd Alabama-skólans að undanförnu. Á þessum mótum hef- ur hún fimm sinnum náð að sigra 9g synt á betri tíma en gildandi ísiandsmet í 100 og 200 m bringu- sundi, ef tekið er mið af viðmiðunar- töflu. En að öllu jöfnu eru notuð mælieiningin stika (yard) í Banda- ríkjunum. Ragnheiður synti 100 stiku sund á 1.03,92 mín, sem jafngildir 1.10,52 mín. í metrum. íslandsmet hennar er 1.10,66 mínútur. í 200 stiku bringusundi synti hún á 2.18,05 mín., sem jafngildir 2.31,85 mín. í metrum og er það 0,50 sek. betri tími en íslandsmet hennar. KORFUKNATTLEIKUR Valur-KR 71:76 íþróttahús Vals, úrvalsdeildin i körfuknattleik, þriðjudaginn 6. nóvember 1990. Gangur leiksins: 0:2, 21:12, 27:13, 37:26, 43:36, 45:50, 57:61, 59:70, 71:76 Stig Vals: Magnús Matthíasson 22, David Grissom 17, Ragnar Jónsson 14, Helgi Gústafs- son 8, Jón Bender 4, Matthías Matthíasson 4, Guðni Hafsteinsson 2. Stig KR: Páil Kolbeinsson 17, Matthías Einarsson 14, Lárus Árnason 13, Axel Nikulás- son 10, Jonathan Bow 8, Hermann Hauksson 5, Hörður Gauti Gunnarsson 5, Björn Steffensen 2, Böðvar Guðjónsson 2. Dómarar: Leifur S. Garðarsson og Kristinn Oskarsson og dæmdu þeir þokkalega. Áhorfendur: Um 80. Slök vítahittni Valsmönnum að falli Valsmenn geta kennt slakri vítahittni um að þeir náðu ekki að bera sigurorð af KR-ingum á Hlíðarenda í gærkvöld. í-fyrri hálfleik höfðu Valsmenn yfirhöndina. Þeir léku skynsamlega gegn slakri vörn KR-inga. Sóknirnar langar og þeir héldu niðri hraðanum. KR-ingar hófu síðari hálfleikinn með látum, keyrðu upp hraðann og röðuðu körfum á Valsmenn. Allt annað var að sjá til KR-inga í vöminni, mikil barátta og Valsmönnum ekki gefin færi á auðveldum skotum. Þessi barátta kostaði auðvita villur, en það kom ekki að sök þar sem Valsmenn hittu illa úr vítaskotum sínum, eða aðeins úr 12 af 21. í fyrri hálfleik gerðu Vals- menn 19 körfur úr 32 tilraunum en aðeins 8 körfur úr jafnmörgum tilraun- um í síðari hálfleik. Magnús Matthíasson sýndi bestan leik Valsmanna. Einnig var Ragnar Jónsson góður þann stutta tíma sem hann fékk að leika. Grissom var góður í fyrri hálfleik en dalaði í þeim síðari. Hjá KR var Páll Kolbeinsson best- ur, átti 10 stoðsendingar og margar fleiri sendingar sem samherjar hans nýttu ekki. Pétur Hraín Sigurösson skrifar Tindastóll - Snæfell 93:85 íþróttahúsið á Sauðárkróki, úrvalsdeildin í körfuknattleik, þriðjudaginn 6. nóvember 1990. Gangur leiksins: 6:3, 8:10, 19:18, 25:24, 29:30, 35:42, 37:46, 43:48, 51:56, 56:62, 64:68, 69:68, 77:75, 81:81, 85:83, 93:85. Stig Tindastóls: Ivan Jonas 41, Pétur Guðmundsson 17, Einar Einarsson 13, Sverrir Sverrisson 10, Haraldur Leifsson 8, Pétur Vopni Sigurðsson 4. Stig Snæfells: Ríkharður Hrafnkelsson 23, Hreinn Þorkelsson 19, Bárður Eyþórsson 16, Gennadíj Perégued 16, Brynjar Harðarson 10, Sæþór Þorbergsson 1. Dómarar: Bergur Steingrímsson og Víglundur Sverrisson. Dæmdu þokkalega. Áhorfendur: 450. Meistaraefnin í vandræðum Það var lítill meistarabragur á Tindastóli í gær er liðið sigraði Snæ- feil naumlega á heimavelli sínum. Gestirnir náðu yfirhöndinni og héldu henni út hálfleikinn. Munurinn varð mestur níu stig og gestirnir léku skynsamiega með Hrein og Ríkharð sem bestu menn. Heimamenn náðu að jafna um miðjan síðari hálfleik, 68:68, en það var ekki fyrr en þijár mínútur voru eftir, og Snæfellingar í villuvandræðum, að Tindastóli tókst að gera útum leikinn. Ivan Jonas hélt heimamönnum á floti og Sverrir Sverrisson og Einar Einarsson áttu góðan leik. Valur Ingimundarson lék nánast ekkert með vegna veikinda og Pétur Guðmundsson var lítið með af sömu sökum. Hreinn og Ríkharður voru bestir í liði Snæfellinga og Bárður Eyþórsson og Peregued léku vel. vis - KEPPNIN STÓRLEIKUR í kvöld kl. 20.00: HAIIKAR - VALUR Björn Bjömsson skrifarfrá Sauöárkróki í Iþróltahúsinu v/Strandgötu, Hafnarfiröi & PRENTBÆR HF. Síðan Ragnheiður fór til Banda- ríkjanna fyrir næstum tveimur árum hefur hún náð að þroskast bæði andlega og líkamlega. Hún hefur oft synt vel fyrir skólann, en náði þó ekki að sýna sitt besta á Evrópumótinu í Róm í ágúst sl. sumar. Eg held þó að slakur undir- búningur landsliðsins fyrir mótið í Róm hafi haft sitt að segja varð- andi árangur hennar þar. Mm FOLX ■ JÓHANN Kristinsson, fram- kvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram, missti af flugvélinni sem flutti Framliðið frá London til Barcelona í fyrrakvöld. Ástæðan var sú að leigubílinn sem hann var í lenti í umferðarhnút á leiðinni út á flugvöll. Leiðin frá miðborg Lon- don út á flugvöll er vanalega um hálftíma akstur, en tók tvo tíma í þetta skipti og því fór sem fór. Jóhann kom síðan til Barcelona í gærdag. ■ LUIS Bolabuer er ræðismaður Islands í Barcelona. Hann verður meðal áhorfenda á leik Fram og Barcelona í kvöld. Hann er ekki alveg ókunnur í herbúðum Barcel- ona því faðir hans var forseti fé- lagsins á árunum 1925 til 1929. ■ LEIKUR Fram og Barcelona fer fram á Nou Camp-leikvangin- um í Barcelona í kvöld kl. 19:45 að íslenskum tíma. Leiknum verður lýst beint á Rás 2. ■ FORRÁÐAMENN Barcelona hafa sýnt mikinn áhuga á að kaupa danska leikmanninn Jan Mölby frá Liverpool til að taka stöðu Ron- alds Koemans, sem er meiddur. Liverpool vill fá 1,6 milljónir punda, eða um 165 milljónir ÍSK, fyrir Mölby og þykir forráðamönn- um Barcelona það full mikið. ■ TOMAS Brolin, landsliðsmað- urinn ungi sem leikur með Parma á Ítalíu, var um helgin kjörinn knattspyrnumaður ársins í Svíþjóð. Hlaut því gullbolta Aftonblaðsins og sænska knatt- spyrnusambandsins. ■ ÁRID hef'ur ver- ið ævintýri líkast hjá Brolin — hann gerði sjö mörk í jafn mörgum leikjum með Norrköping í vor, er liðið varð meistari, gerði tvö mörk í fyrsta landsleik sínum og fimm alls í þremur leikjum og var sá eini sem stóð sig sæmilega í HM á ít- alíu. Hann hefur staðið sig mjög vel með Parma í vetur og gert 3 mörk í deildinni. Þorsteinn Gunnarsson skrifarfrá' Svíþjóð ■ STEFAN Rehn hjá IFK Gautaborg, sem var á samningi hjá Everton síðasta vetur, er líklega á förum til Bari á Italíu. Hann lék mjög vel á keppnistímabil- inu, sem lauk um helgina. ■ IFK Gautabovg tryggði sér sænska meistaratitilinn á laugar- daginn með því að gera 0:0 jafn- tefli gegn Norrköping heima. IFK vann fyrri leikinn 3:0 á útivelli. Þetta er 12. meistaratitill liðsins. ■ EINS og svo oft áður var Thomas Ravelli, landsliðsmark- vörður, í aðalhlutverki. Hann átti stórleik og tryggði liði sínu titilinn. Þessi sigur Gautaborgar í ár kom mjög á óvart því liðið er ungt; flest- ir enn um tvítugt nema Ravelli og Rehn. Titillinn er mikill sigur fyrir Roger Gustafsson, þjálfara, sem tók við liðinu st. vetur og hafði áður verið yfirumsjónarmaður ungl- ingaflokka félagsins í mörg ár.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.