Morgunblaðið - 22.12.1990, Page 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
294. tbl. 78. árg.
LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Rúmenar minnast byltingarafmælisins
Tugþúsundir Rúmena minntust í gær þeirra sem létust í byltingunni í Rúmeníu fyrir ári, sem varð Nic-
olae Ceausescu einræðisherra að falli, og notuðu tækifærið til að mótmæla núverandi valdhöfum landsins.
Meira en 20.000 manns söfnuðust saman í miðborg Búkarest, þar sem fyrstu fórnarlömb uppreisnarinnar
féllu. Tugþúsundir manna gengu einnig um götur Timisoara, þar sem byltingin hófst, og á myndinni sjást
nokkrir þeirra hrópa vígorð gegn valdhöfum landsins og kommúnismanum.
Sovétríkin:
Shevardnadze sagð-
ur verða áfram í for-
ystusveit Grorbatsjovs
Moskvu, Túnisborg. Reuter.
EINN af helstu ráðgjöfum Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta, Georgíj
Shakhnazarov, kvaðst í gær fullviss um að Edúard Shevardnadze
yrði áfram í forystusveit forsetans þótt hann hefði sagt af sér emb-
ætti utanríkisráðherra í fyrradag.
Sovéska fréttastofan TASS hafði
þetta eftir Shakhnazarov, sem á
sæti i forsætisráði Sovétforsetans.
Shevardnadze og Gorbatsjov ræddu
afsögnina og utanríkisstefnu Sovét-
manna í tvær klukkustundir í gær
og var það fyrsti fundur þeirra frá
þvi utanríkisráðherrann tilkynnti
að hann gæti ekki hugsað sér að
gegna embættinu áfram vegna yfir-
vpfandi valdatöku einræðis- og aft-
urhaldsafla. „Forsetinn er ékki sú
manngerð sem gæti auðveldlega
sagt skilið við svo náinn samstarfs-
mann og Shevardnadze," bætti ráð-
gjafinn við. Ekki var ljóst í gær
hvort Shevardnadze væri reiðubú-
inn að gegna öðru valdamiklu emb-
ætti.
Shakhnazarov kvaðst einnig telja
að Gorbatsjov myndi ekki heldur
segja skilið við Vadím Bakatín,
fyrrum innanríkisráðherra, og
Alexander Jakovlev, fyrrum hug-
myndafræðing kommúnistaflokks-
ins, sem neyddust báðir til að láta
af embættum sínum vegna þrýst-
ings frá harðtínumönnum.
Róttækir umbótasinnar í Moskvu
hafa- af því miklar áhyggjur að
Gorbatsjov sé að einangrast innan
forystunnar í Kreml. „Hver berst
nú fyrir lýðræði og frelsi? Míkhaíl
Gorbatsjov einn?“ spurði dagblaðið
Rabotsjaja Trfbúna, sem styður
umbótastefnu forsetans.
Grikkland:
Papandreou
verði leiddur
fyrir rétt með
lögregluvaldi
Hreyfing róttækra umbótasinna
á sovéska þinginu hvatti öll umbóta-
öfl landsins til að sameinast í eitt
bandalag til að afstýra því að kom-
ið yrði á einræði í landinu. Talsmað-
ur hennar sagði að forysta hins
nýja bandalags yrði einkum skipuð
þingmönnum á rússneska þinginu,
þar sem umbótasinninn Borís Jelts-
ín er í forsæti.
Talsmaður Freisissamtaka Pal-
estínu (PLO) í Túnisborg kvaðst í
gær vonast til þess að afsögn Shev-
ardnadze yrði til þess að Sovétmenn
féllu frá „ögrandi" stefnu sinni í
málefnum Mið-Austurlanda og létu
af náinni samvinnu sinni við
Bandaríkjastjórn.
Sjá fréttir á bls. 22.
Cheney segir líkur á stríði
við Persaflóa fara sívaxandi
ræddi einnig við
George Bush
- Bandaríkjaforseta
um hvernig sam-
hæfa bæri hern-
aðarlegt og pólit-
ískt samstarf ríkj-
anna, sem sent
hafa hersveitir til
Persaflóa, ef til
stríðs kæmi. Maj-
or sagði við blaða-
menn að ekki Cheney umkringdur bandarískum hermönnum í
kæmi til greina að Saudi-Arabíu.
Saddam Hussein sver þess enn eið að kalla ekki hersveitir sínar í Kúvæt heim
Bagdad, Bam Sa d. Reuter, dpa.
DICK Cheney, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði við
bandaríska hermenn er hann heimsótti þá í Saudi-Arabíu í gær
að líkurnar á því að stríð brytist
Saddam Hussein íraksforseti sór
sveitir sínar í Kúvæt heim.
„Líkurnar á því að við verðum
að beita heivaldi til að koma írök-
um úr Kúvæt aukast stöðugt, því
útlit er fyrir að Saddam Hussein
hafi ekki skOið það sem við höfum
verið að segja,“ sagði Cheney,
umkringdur árásarþotum og þyrl-
um í herstöð í Saudi-Arabíu.
út við Persaflóa færu sívaxandi.
þess eið á ný að kalia ekki her-
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að fram-
ganga íraka í málinu væri slík að
ekki væri hægt að vera bjartsýnn
á að hægt yrði að afstýra stríði
við Persaflóa. Baker sagði þetta
eftir fund sinn með John Major,
forsætisráðherra Bretlands, sem
Aþenu. Reuter.
GRÍSKUR dómari kvaðst í gær
hafa ákveðið að fyrirskipa lög-
reglunni að færa Andreas Pap-
andreou, fyrrum forsætisráð-
herra landsins, fyrir rétt. Pap-
andreou hefur verið ákærður fyr-
ir aðild að fjármálahneyksli.
Papandreou, sem er 71 árs að
aldri, hafði áður neitað að hlýða
stefnu dómarans, sem var skipaður
sérstaklega til að rannsaka málið.
Hann kvaðst þegar hafa skýrt þingi
landsins frá öllu sem hann hefði um
málið að segja.
Þing landsins hefur ákært Pap-
andreou, sem var forsætisráðherra
stjórnar sósíalista 1981-89, og ijóra
fyrrverandi ráðherra hans fyrir
mútuþægni og aðra glæpi í tengslum
við fjárdráttarmál í banka. Hneyksl-
ið varð til þess að Sósíalistaflokkur-
inn tapaði þingkosningunum í júní
1989. Hann er þó stærstur stjórnar-
andstöðuflokkanna, með um 40 af
hundraði þingsæta.
Evrópubandalagið með átak
gegn útblæstri frá bifreiðum
Brussel. Reuter.
Evrópubandalagið hefur stigið stórt skref í baráttunni við
mengun frá bifreiðum og verður byrjað á minni gerðum vöru-
flutningabíla sem fjölgað hefur gífurlega á undanförnum árum.
Umhverfismálaráðherrar banda-
lagsins samþykktu einum rómi á
fimmtudag að herða reglur um
útblástur frá bílum frá og með
miðju ári 1992 og verða þær énn
hertar í ársbyijun 1996. Umræður
um reglur þar að lútandi hafa nú
staðið í marga mánuði, enda mun
gildistaka þeirra hafa umtalsverð-
an kostnað í för með sér. Carlo
Ripa, sem fer með umhverfismál
fyrir hönd ráðherranefndarinnar,
sagði að þessi samþykkt tryggði
að bifreiðaiðnaður bandalagsins
yrði í fremstu röð í heiminum á
sviði mengunarvarna.
„Við höfum tekið þá ákvörðun
að búa bifreiðar tíunda áratugar-
ins bestu fáanlegri tækni til að
hreinsa útblástur frá þeim,“ sagði
Klaus Töpfer, umhverfismálaráð-
herra Þýskalands, á fundi með
fréttamönnum í gær.
Ripa og Töpfer sögðu að næsta
skref yrði að ná sams konar sam-
komulagi um þungaflutninga- og
fólksflutningabíla.
Ripa sagði að ráðherranefndin
mundi bráðlega leggja fram tillög-
ur um staðla fyrir eldsneytisnýt-
ingu bifreiða og hámarkshraða til
að draga úr mengun frá þeim.
Skylt verður að hafa hreinsi-
búnað á útblástursrörum allra dís-
ilbíla og er miðað við að hann
hreinsi allt að 90% af eiturefnun-
um úr útblæstrinum.
semja um málamiðlun í deilunni.
Saddam Hussein útilokaði i við-
tali við þýska sjónvarpsstöð að
hersveitir Iraka í Kúvæt yrðu kall-
aðar heim fyrir 15. janúar, en þann
dag rennur út sá frestur sem Sam-
einuðu þjóðirnar hafa gefið Irökum
til að fara úr landinu. „Stríð kost-
ar mörg mannslíf," sagði hann.
„Guð stendur með okkur. Þess
vegna sigrum við árásarherina,“
bætti hann við.
írösk stjórnvöld efndu í gær til
almannavarnaæfinga og fyrirskip-
uðu öllum íbúum eins af úthverfum
Bagdad, alls milljón manna, að
fara úr borginni. Æfingin er liður
í því að búa íbúana undir styijöld.
Ógjörningur er að meta hversu
margir tóku þátt í henni, þvi búist
var við að einhveijir sniðgengju
fyrirskipunina.
Sjá „Andúð á stríði...“
á bls. 22.