Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990 39 Friðrik Sigmarsson, Seyðisfírði - Minning Fæddur 7. maí 1929 Dáinn 17. desember 1990 Seyðfirskir skammdegisdagar eru alla jafnan stuttir og dimmir. Þó virtist mér 17. desember vera sérstaklega dimmur, en langur. Það var þá sem ég visi að Frissi vinur minn og félagi væri dáinn. Ótímabært andlát hans, langt fyrir aldur fram, kemur mér til að stinga niður penna og minnast hans með örfáum orðum. Svo lengi sem ég man eftir mér finnst mér ég muna eftir Frissa. Hann var þess konar maður sem allir tóku eftir, glaðvær í framkomu og ákafamað- ur, hvort sem var í félagsmálum eða vinnu. Ókunnugum gat virst að hann væri stundum eilítið kaldr- analegur, en við sem þekktum hann betur, vissum að undir yfirborðinu sló hlýtt hjarta og viðkvæm sál. Hann var manna fyrstur að koma til hjálpar ef hann vissi um erfið- leika eða bágindi hjá einhverjum. Það var honum eiginlegt því hann var höfðingi í lund og alltaf fús til að gefa af sér. Við Frissi vorum vinnufélagar um tíma, ekki vorum við alltaf sam- mála og stundum var nokkur há- vaði í skoðanaskiptunum, því báðir stóðu fast á sínu. Sá ágreiningur jafnaðist þó ætíð fljótt, enda báðir örir í skapi. Við vorum báðir svo lánsamir að leita til SÁÁ með vandamál okkar. Ég fyrst, Frissi síðar. Ég vona að ég hafi veitt honum örlítin stuðn- ing, þegar hann var að stíga sín fyrstu skref á þeirri braut. A þeim vettvangi vann hann sem annars Sigrún Helgadóttir frá Grímsey — Minning Fædd 8. október 1920 Dáin 2. desember 1990 2. desember sl. lést Sigrún Helgadóttir móðursystir mín á heimili sínu í Hátúni lOa, en hún hafði átt við veikindi að stríða und- anfarin ár og þó sérstaklega undan- farna mánuði. Sigrún var fædd í Grímsey 8. október 1920 og var hún eitt 14 barna hjónanna á Borgum, þeirra Guðrúnar Pálínu Sigfúsdóttur og Helga Ólafssonar smiðs. Af barna- hópnum lifír aðeins Guðlaug móðir mín tæpra 84 ára og býr hún á Akranesi. Ég kann fátt að segja frá æsku Sigrúnar og uppvexti í Grímsey, en veit að fljótlega þurfti hún að taka til hendinni á heimilinu og taka þátt í daglegum störfum þar, enda í mörg hom að líta á mannmörgu heimili. í þá daga höfðu allir sitt hlutverk og átti það jafnt við um börn sem fullorðna. Lífsbaráttan bauð ekki uppá að neinn skærist úr leik. Ég veit að það sem hún lærði til húsverka á æskuheimili sínu reyndist henni góður skóli sem hún bjó að alla ævi, enda varð það hlutskipti hennar og ævistarf að vinna við mat og matargerð. Á þeim vettvangi var hún engin með- almanneskja, eins og þeir mörgu vita sem með henni unnu eða nutu verka hennar á einn eða annan hátt. Allt sem hún gerði, gerði hún á þann veg að betur varð ekki gert. Ein fyrstu kynni mín af frænku minni voru þegar hún sótti mig 12 ára gamlan til Akraness og við fór- um saman í ferðalag, alla leið til Grímseyjar. Þar dvaldi ég sumar- langt hjá ömmu, afa, frændum og frænkum. Þessi dvöl mín í Grímsey er mér svo minnisstæð, að enn þann dag í dag eru mörg atvik jafn ljós- lifandi fyrir mér sem þau hefðu gerst í gær. Sumarið leið við leik og störf og ég hef oft rætt það við frænku. mína, að í Grímsey lék ég minn fyrsta knattspymuleik í marki, því í einhverri neyð var ég settur á milli markstanganna, þegar eyja- skeggjar voru að leika einn af mörg- um leikjum sínum við áhafnir af síldarbátunum, sem oft lágu tugum eða hundruðum saman á Grímseyj- arsundi á þessum árum. Ég kom því oft drullugur heim og þurfti frænka mín oft að setja ofaní við mig, en ég fann það þá og þó betur síðar að ég var í tals- verðu uppáhaldi hjá henni og var því margt fyrirgefið. Sigrún var sérlega ættrækin og einstaklega minnug á allar frænkur og frændur svo ekki sé talað um afmælisdaga og aðra merkisdaga í lífí þeirra. Hún ræddi oft við mig um þetta fólk á þann hátt að ekk- ert væri eðlilegara en ég þekkti það. Þegar ég sagði að ég hefði ekki hugmynd um hvern hún væri að tala um, leit hún á mig sagði með undrunarhreim í röddinni: Ja Mansi. Heldurðu að þú munir ekki eftir honum Jóni? Og til að bjarga andlitinu fór mig að ráma í viðkom- andi og seinna lærði ég að vera alveg með á nótunum og þekkti alla frændur og frænkur sem talað var um. Ég get ekki minnst Sigrúnar án þess að minnast á laufabrauðið hennar. Ég er viss um að hún hefði orðið margfaldur íslandsmeistari ef ekki heimsmeistari í þeirri list að búa til laufabrauð, ef um það hefði verið keppt. Laufabrauðið hennar var slíkt listaverk að orð fá ekki lýst. SI. 18 ár hefur það verið fast- ur liður hjá mér að heimsækja hana að Vífilsstöðum, en þar vann hún allmörg síðustu árin, og sækja til hennar laufabrauð og taka nokkra pakka til ættingja í leiðinni. Nú verða þær ferðir ekki fleiri og laufa- brauðið hennar Sigrúnar tilheyrir fortíðinni. Svona er lífið og við því er víst ekkert að gera. Sigrún giftist aldrei og átti engin börn. En ég held að hún hafi átt marga góða vini og þrátt fyrir að ekki væri hún rík af veraldlegum gæðum gat hún alltaf miðlað ein- hverju til þeirra sem minna máttu sín. Kveðjustundin er runnin upp. Ég þakka frænku minni fyrir allt sem hún gerði fyrir mig og mina. Ég bið henni guðs blessunar um alla eilífð. Helgi Daníelsson ætíð er við kvöddumst, guð veri með ykkur. Blessuð sé minning Þóru Guð- mundu Bjarnadóttur. Guð veri með hennar börnum og fjölskyldum. Jón Guðmundsson. Þóra G. Bjamadóttir Siglufirði Þann 8. október síðastliðinn lést föðursystir mín, Þóra Guðmunda Bjamadóttir, Hvanneyrarbraut 74, Siglufírði. Munda, eins og hún var ætíð kölluð, fæddist á Siglufírði árið 1912 og bjó þar alla sína ævi. Eiginmaður hennar hét Friðrik Steinn Friðriksson, en hann lést 19. apríl 1963. Böm þeirra em: Friðrik Bjarni, sem er elstur og er kona hans Gerða Pálsdóttir. Næst er Björg Sigríður, gift Sveini Sveins- syni og eiga þau dætumar Freyju og Þóru, en þær eiga tvö böm hvor. Yngstur er Jóhannes Guðmundur, en kona hans er Kristín Baldurs- dóttir, böm þeirra eru Fríða Kristín og Bjarni Friðrik. Móðir Guðmundu, Ólöf Þorláks- dóttir, lést 17. janúar 1985, þá 96 ára að aldri. Hafði hún þá búið um 10 ára skeið í sama húsi og Guð- munda sem var alla tíð móður sinni mikil stoð og stytta. - Minning Heimili hennar var í næsta húsi við æskuheimili mitt og lá leið mín oft þangað með vini mínum, syni hennar Jóhannesi. Þangað var ég ætíð velkominn og alltaf var von á góðum móttökum. Eftir að ég flutt- ist frá Siglufirði og kom í heimsókn með fjölskyldu mína var alltaf farið fljótlega yfír til Mundu og vom þá fagnaðarfundir. Hún var mjög gestrisin og tók vel á moti okkur hvenær sem var. Hún heillaði strax konu mína og börn með hlýju og vinsemd. Ég hitti Mundu síðast í ágúst í sumar er ég dvaldist skamma stund á æskuslóðum. Var hún þá þreytt og lasleg en sagði skilmerkilega frá ferðalagi sem hún fór til Svíþjóðar fyrr á árinu til Þóru dótturdóttur sinnar, stolt og ánægð yfír að hafa upplifað allt sem hún hafði ekki áður gert. Hennar síðustu orð voru staðar af ákafa og heilindum til hinsta dags. Með Lionshreyfingunni vann hann mikið og óeigingjarnt starf og var mjög virkur innan hennar. Frissi var ákaflega barngóður og þess fengu litlu dótturdætur hans að njóta. Hann dáði þær og varði með þeim miklu af sínum frítíma. Mér er minnisstætt, er mín börn voru að ganga í hús til að selja eitt- hvað eða safna, þá voru þau fús að fara til Frissa. „Hann kaupir alltaf af okkur og gefur okkur sæl- gæti eða smápening aukalega.“ Ég þakka Frissa fyrir samfylgd- ina og félagskapinn. Elsku Jónína, börn, tengdasonur, barnabörn og ættingjár, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Stefán Pétur Þegar við fengum fregnina um að hann Friðrik væri dáinn setti okkur hljóða. Á slíkum stundum spyr maður gjarnan: Af hveiju? Af hveiju -hann? Hann sem átti svo gott líf og átti svo margt eftir. Hann sem var svo fullur af orku og áhuga á því sem hann var að gera hveiju sinni. Af hveiju hann? Þannig spyijum við oft þegar dauðinn birtist okkur og ber á burt ástvin, vin eða félaga og söknuður- inn situr eftir. Söknuðurinn, sorgin sem í fyrstu er svo sár og virðist svo óyfírstígan- leg en verður seinna að minningum, myndum sem koma upp í hugann öðru hvoru og kalla fram bros og oma manni þannig á lífsleiðinni. Það verður gott að eiga minning- ar um mann eins og Friðrik. Friðrik var trúnaðarmaður SAA á Seyðisfmði og sem slíkur öðmm til fyrirmyndar. Hann var með af- brigðum duglegur og áhugasamur og sinnti þeim störfum vel þann stutta tíma sem hann gegndi því. Það verður mikill missir fyrir sam- tökin að sjá á eftir honum eins og honum. Við félagarnir kveðjum hann með þeirri bæn sem honum var kær. „Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því sem ég get breytt og vit til þess að greina þar á milli." (Æðraleysis- bænin.) Eiginkonu hans og fjölskyldu vottum við okkar innilegustu sam- úð. Jóhann Öm Héðinsson, Guðmundur Örn Ingólfsson, Landsbyggðarþjónustu SÁÁ. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og systir, JÓHANNA S. JÓNSDÓTTIR, Kleppsvegi 144, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum 20. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Guðjón Herjólfsson og dætur, Ásta J. Guðmundsdóttir, Camilla Jónsdóttir, Ásta Júlfa Jónsdóttir, Guðmundur Stefán Jónsson. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRÐUR MAGNÚSSON, Böðvarsgötu 4, Borgarnesi, lést í Landspítalanum þann 20. desember sl. Helga Jonsdottir, Jón Björnsson, Magnús Þórðarson, Gunnar Þórðarson, Hörður Þórðarson, Þórður Þórðarson, Guðrún Þórðardóttir, María Alexandersdóttir, Munda K. Aagestad, María Kristjánsdóttir, Inga Sigurðardóttir, Guðjón Kristjánsson og barnabörn. t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐBRANDAR SKARPHÉÐINSSONAR, Dagverðarnesi, Skorradal. Kristín Guðbrandsdóttir, Jón Jakobsson, Jón Óskar Jónsson, Sólrún Konráðsdóttir, Sæþór Steingrímsson. t Öllum þeim, sem heiðruðu minningu ÁRMANNS ÁRNASONAR, Teigi, Grindavík, og sýndu okkur samúð og styrk, biðjum við guðs blessunar á jólum og komandi ári. Sömuleiðis til starfsfólks deildar 11-E á Landspítala og deildar A-4 á Borgarspítala fyrir ómælda hjálp og hlýju. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðrún Guðmundsdóttir, t Þökkum innilega samúð og vinarhug við andlát og útför EGILS GEIRSSONAR bónda, Múla, Biskupstungum. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahússs Suðurlands. Páll Haukur Egilsson, Guðbjörg Egilsdóttir, Geir Egilsson, Sóley Jónsdóttir, Anna Sigríður Egilsdóttir, Erlendur Guðmundsson, Jónfna Margrét Egilsdóttir, Ásgeir Þorleifsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.