Morgunblaðið - 22.12.1990, Blaðsíða 47
47
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARÖAGUR 22. DESEMBER 1990
KNATTSPYRNA
Ómar þjálfar
Grindvíkinga
Omar lorfason, fyrrum landsliðsmaður í knattspyniu, var í gær-
kvöldi ráðinn þjáifari 2. deildarliðs Grindvíkinga. Hann mun einn-
ig leika með liðinu. „Ég er mjög ánægður með að vera kominn í her-
búðir Grindvíkinga. Framundan er skemmtilegt verkefni og ég er ákveð-
inn að standa mig,“ sagði Ómar í stuttu spjalli við Morgunblaðið í
gærkvöldi. Ómar hittir fyrir einn gamlan félaga úr landsliðinu. Það
er Þorsteinn Bjamason, fyrmm landsliðsmarkvörður úr Keflavík. „Það
verður gaman að leika með Þorsteini á ný.“
Ómar Torfason.
HANDKNATTLEIKUR
Tap
Við getum verið ánægðir með
vamarleikinn, en aftur á móti
var sóknarleikurinn ekki nægilega
beittur. Strákarnir náðu ekki að
skora nema sex mörk í seinni hálf-
leik,“ sagði Einar Þorvarðarson,
aðstoðarlandsliðsþjálfari, eftir að
ísland mátti þola tap, 17:20, fyrir
Þýskalandi í gærkvöldi.
Þjóðvetjar höfðu frumkvæðið til
að byija með og komust yfir 5:2.
íslendingar náðu að jafna, 7:7, og
eftir það lokaði Guðmundur Hrafn-
kelsson markinu. ' íslenska liðið
hafði yfir í leikhléi, 11:7. „Slæm
dómgæsla pólskra dómara setti
íLúbeck
Sigurður Bjarnason.
okkur út af laginu í seinni hálfleik,
en við vomm þá í tvígang tveimur
færri. Fyrir utan það misnotuðum
við ijögur vítaköst, sem hafði mikið
að segja,“ sagði Einar.
Þjóðveijar léku með sex A-Þjóð-
vetja í seinni hálfleik og var mark-
vörður þeirra sá eini sem var frá
V-Þýskalandi. Krieter frá Kiel. „Það
var allt annar blær yfir leik þýska
iiðsins eftir að leikmenn úr austur-
hlutanum vom látnir ráða ferðinni"
sagði Einar.
Sigurður Bjarnason var besti
leikmaður íslands og þá átti Guð-
mundur Hrafnkelsson góðan leik.
ÚRSLIT
Alþjóðlegtmót kvenna:
Spánverjar
með fullu húsi
SPÁNVERJAR urðu sigurvegar-
ar á alþjóðamótinu sem haldið
var í Reykjavík og Keflavík.
Spænsku stúlkurnar sigruðu í
öllum sínum leikjum af öryggi
og síðast unglingalandslið Is-
lands 24:18 í Keflavík í gær-
kvöldi. í hálfleik var staðan
10:7 fyrir Spánverja.
Islenska unglingaliðið stóð í Spán-
verjum í fyrstu og þegar hálfleikur-
inn var liðlega hálfnaður var staðan
jöfn 6:6. En þá kom slakur kafli hjá
■■■■■■ íslenska liðinu og það
Björn nýttu spænsku stúk-
Blöndal urnar sér og skoraðu
skrifarfrá 4 mörk í röð. í upp-
Keflavík hafi síðari hálfleiks
náði unglingaliðið að minnka muninn
í eitt mark, 9:10, en síðan ekki söguna
meir og eftir það var spænskur sigur
alltaf í sjónmáli. Bestar í unglingalið-
inu í leiknum voru þær Fanney
Rúnarsdóttir í markinu og þær Halla
M. Helgadóttir, sem nánast hélt
íslenska liðinu á floti í síðari hálfleik,
og Herdís Sigurbergsdóttir.
íslenskur sigur gegn Portúgal
íslenska landsliðið tryggði sér ann-
að sætið á mótinu með sannfærandi
sigri gegn Portúgal 22:16, eftir að
hafa haft fjögurra marka forystu í
hálfleik 11:7. Það sem vakti mesta
athygli í leiknum var að dómaramir
- þeir Rögnvalur Erlingsson og Stefán
Amarsson sýndu þjálfara portúgalska
liðsins og aðstoðarmanni hans rauða
spjaldið fyrir litlar sakir. Portúgölsku
stúlkumar bytjuðu betur, komust í
2:0, en íslenska liðið svaraði með fjór-
um mörkum. Portúgal náði að jafna
4:4, en eftir það réði íslenska liðið
lengstum ferðinni. Um tíma í síðari
hálfleik skapaðist smá spenna þegar
portúgölsku stúlkurnar náðu að
minnka muninn í tvö mörk, 16:14. í
kjölfarið kom svo brottrekstur þjálfar-
ans og aðstoðarmanns hans í hita
leiksins. En íslensku stúlkumar léku
sinn besta leik á síðustu mínútunum
og náðu þá að gulltrygga sér sigur-
inn. Kolbrún Jóhannsdóttir átti ágæt-
an leik í markinu eins og svo oft áður
og þær Björg Gilsdóttir og Elísabet
Þorgeirsdóttir gerðu lagiega hluti und-
ir lok leiksins.
Handknattleikur
Þýskaland - ísland 20:17
Liibeck í Þýskalandi. Vináttulandsleikur í
handknattleik, föstudagur 21. desember
1990.
Gangur leiksins: 1:0, 5:2, 7:7, 7:11.13:13,
15:14, 17:16, 19:17, 20:17.
Islands: Sigurður Bjarnason 8/1, Valdimar
Grímsson 3, Geir Sveinsson 2, Konráð Olav-
son 2, Stefán Kristjánsson 1, Patrekur Jó-
hannesson 1, Bjarki Sigurðsson, Jakob Sig-
urðsson, Jón Kristjánsson, Gylfi Birgisson,
Einar Sigurðsson, Guðmundur Hrafnkels-
son, Hrafn Margeirsson.
Mörk Þýskalands; Sneider 5, Hahn 3,
Winselmann 3, Quarti 3, Ratka 2, Klemm
2, Querengásser 1, Zerbe 1.
Spánn - Island U 24:18
Alþjóðlegt handknattleiksmót kvenna í
Keflavík:
Mör unglingalandsliðsins: Halla M Helga-
dóttir 6", Hulda Bamadóltir 4, Herdís Sigur-
bergsdóttir 3, Sigrún Másdóttir 2, Auður
Hermannsdóttir 1, Harpa Magnúsdóttir 1,
Laufey Sigvaldadóttir 1.
Mörk Spánar: Delores Assin 9, Cristina
Gomez 5, Montse Pushe 4, Julia Aparicio
3, Esperanza Tercero 1, Palous Arranz 1,
Jzaslun Muika 1.
ísland A - Portúgal 22:16
Mörk íslands: Björg Gilsdóttir 4, Andrea
Atladóttir 4, Inga Lára Þórisdóttir 3, Kristín
Pétursdóttir 3, Rut Baldursdóttir 3, Elísa-
bet Þorgeirsdóttir 3, Guðný Gunnsteinsdótt-
ir 2.
Mörk Portúgal: Ana Sorral 6, Paula Castro
3, Luisa Olivera 3, Ligia Conveia 2, Paula
Santo 1, Mara Fernando 1.
Knattspyrna
2. DEILD:
Oldham - Plymouth..............5:3
Portsmouth - Ipswich .........1:1
KNATTSPYRNA
Drengjalandsliðið
fer ekki til ísrael
Hætt við vegna aukinnnarspennu á Persflóasvæðinu
Umjólin
Handknattleikur
Norðurlandamót stúlkna hefst 27. des-
ember i íþróttahúsinu í Kaplakrika kl.
14. Þá leika Island - Danmörk og kl.
16 leika Svíþjóð - Noregur.
■Karlalandsliðið leikur vináttuleik
gegn Svíum 27. desember í Laugar-
dalshöllinni kl. 21. Áður leikur íslenska
21 árs landsliðið gegn Japönum, eða
kl. 19.
Körfuknattleikur
Körfuknattleikslandsliðið leikur fyrsta
landsleik sinn af þremur gegn Dönum
í Stykkishólmi 27. desember kl. 20.
Badminton
Jólamót unglinga verður í dag og á
morgun í TBR-húsinu. Keppni hefst
kl. 14 í dag, en kl. 10 í fyrramáli.
Miðbæjarhlaup
KR-ingar halda sitt árlega Miðbæjar-
hlaup í dag, Hlaupið hefst við í Aðal-
stræti (við Miðbæjarmarkaðinn) kl. 14.
Knattspyrnusamband íslands
hefur ákveðið að hætta við
þátttöku U-16 ára landsliðsins í
jólaknattspymumótinu í ísrael
vegna aukinnar spennu á Persaflóa-
svæðinu.
Knattspyrnusambönd Svisslend-
inga, Þýskalands og Portúgals hafa
einnig hætt við þátttöku í mótinu
af sömu ástæðu. Svíar munu hins
vegar taka þátt í mótinu.
Utanríkisráðuneytið hafði í gær
mjög eindregið ráðlagt KSÍ að
hætta við að senda lið til ísrael.
Ekki er talið ráðlegt að senda unga
drengi til keppni við þessar aðstæð-
ur. í ljósi þessa ákvað KSÍ að hætta
við þátttöku í mótinu og hefur forr-
áðamönnum mótsins í ísrael verið
tilkynnt um ákvörðunina.
Mínar bestu þakkir til allra sem heimsóttu
mig á 70 ára afmœli mínu með heillaóskum
og gjöfum. Sérstakar þakkir til starfsfólks
dvalarheimilisins.
Gleðileg jól til ykkar alíra.
Kristján Jónsson,
Dvalarheimili Stykkishólms.
SKIDAPAKKAR
HAGSTÆTT
VERD!
Barnapakkar fra I ir. 12.600.-
Unglingapakkar Irá 1 ir. 15.360.-
Fullorðinspakkar frá 1 ir. 22.400.-
Gfingupakki frá 1 ir. 12.600.-
ATH.! Tökum notaðan skíðabúnað upp í nýjan.
OPIÐ FRÁ KL. 10-2: SPORTl URINN ÍMI 31290
'MASKAÐ SKIPHOLTI 50C, S
Hjá okkur verður opmmartími um
hátíðirnar sem hérsegir:
Aðfangadagur - Lokað
Jóladagur - Lokað
Annar jóladagur - Opnað kL 18.00
Gamlaársdagur - Lokað
Nýársdagur - Opnað ki. 18.00
Vib óskum landsmönnumglebilegrar
jólahátíbar ogfarsœls komandi árs um
leib ogvib þókkum áncegjuleg samskipti
á libnu ári.
Bergstaðastrœti 37, Stmi 91-25700