Morgunblaðið - 22.12.1990, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990 '
Flensborgarskóli í Hafnarfírði;
Enginn nýstúd-
entanna reykir
BRAUTSKRÁNING stúdenta frá Flensborgarskóla í Hafnarfírði fór
fram í Hafnarborg föstudaginn 21. desember. Tuttugu og sex stúdent-
ar brautskráðust frá skóianum, níu af hagfræðibraut, sjö af náttúru-
fræðibraut, fimm af eðlisfræðibraut, fjórir af félagsfræðibraut og
einn af íþróttabraut Athygli vekur að enginn nýstúdentanna tuttugu
og sex reykir.
AthöMn í Hafnarborg hófet með
því að kór Flensborgarskóla söng
tvö lög. Þá flutti Kristján Bersi Ól-
afeson, skólameistari, ávarp þar sem
hann opnaði meðal annars sýningu
á myndverkum eftir nemendur skól-
ans á annarri hæð hússins. Kristján
talaði um list- og verkmennta-
kennslu í Flensboigarskóla og sagði
að þar væru nemendur skyldaðir til
að taka að minnsta kosti eitt nám-
skeið í þessum greinum. Einnig
sagði Kristján að í bígerð væri að
endurskoða námsskrá skólans með
tilliti til breytinga sem átt hafa sér
stað á framhaldsskólastiginu.
Eftir ávarpið afhenti Kristján
Bersi nýstúdentunum prófskírteini
sín. Nokkrir nýstúdentanna fengu
einnig viðurkenningar fyrir ágætan
námsárangur í ýmsum námsgrein-
um. Með hæsta meðaleinkunn frá
skólanum var Björg Össurardóttir,
og fékk hún viðurkenningar fyrir
ágætan námsárangur í íslensku,
ensku, þýsku, sögu, efnafræði og
Nýstúdentar frá Flensborgarskóla í Hafnarfírði.
Morgunblaðið/Þorkell
Kffræði. Að lokinni afhendingu við-
urkenninga söng kórinn jólalag og
fulltrúi nýstúdenta færði starfs-
mönnum Flensborgarskóla þakkir
og gjafir fyrir hönd útskriftarhóps-
ins. Því næst flutti Kristján Bersi
skólaslitaræðu þar sém hann kvaddi
nýstúdentana og óskaði þeim vel-
famaðar í framtíðinni.
Sérstaka athygli vekur að enginn
nýstúdentanna frá Flensborg reykir.
Nokkrar stúdínur í hópnum sögðu
í samtali við Morgunblaðið að upp-
götvast hefði að enginn í hópnum
reykti strax í haust þegar hópurinn
hélt samkvæmi og í ljós kom að
enginn hafði not fyrir öskubakka.
Þær sögðu að reykleysið í hópnum
væri að einhveiju leyti tilviljun og
benti á að nokkuð væri um það að
yngri nemendur í skólanum reyktu.
Einnig kom fram að fræðslustarf
Krabbameinsfélagsins ætti sennileg
stóran þátt í því að enginn reykti.
VEÐUR
VEÐURHORFUR IDAG, 22. DESEMBER
YFIRLIT f GÆR: Á vestanverðu Grænlandshafi er víðáttumikil 955
mb lægð sem dýpkar og þokast norðaustur.
SPÁ: Suðvestan stinningskaldi suðvestanlands en víðast kaldi í
öðrum landshlutum í kvöld en gengur í hvassa sunnan- og suðaust-
anátt suðvestanlands í nótt og einnig heldur vaxandi vindur í öðrum
landshlutum á morgun. Sunnanlands og vestan verða skúrir í fyrstu
og síðar él en léttskýjað norðaustanlands. Kólnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Fremur hæg suðvestan-
eða breytileg átt. Él á víð og dreif um mest allt land, þó einkum
vestantíl. Frost 2 til 8 stig.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
y. Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■JO Hitastig:
10 gráður á Celsius
Skúrír
Él
Þoka
Þokumóða
Súld
Mistur
Skafrenningur
Þrumuveður
V
V
9 ?
oo
4
K
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12.00 / gær að fsl. tíma
Akureyri Reykjavik hlti 4 3 veflur rignlng snjóél
Björgvin . hálfskýjað
Helsinki 0 snjóél
Kaupmannahöfn 3 léttskýjað
Narssarssuaq -rð léttskýjað
Nuuk +12 snjókoma
Ósló +7 léttskýjað
Stokkhólmur +5 léttskýjað
Þdrshöfn 4 rlgning
Algarve 14 léttskýjað
Amsterdam 8 skýjað
Barcelona 7 mistur
Berlín 4 rigning
Chicago vantar
Feneyjar 5 þokumóða
Frankfurt 2 rignlng
Qlasgow 7 rigning
Hamborg 4 skýjað
Las Palmas 18 skýjaö
London 10 rigning
LosAngeles B skýjað
Lúxemborg 2 rigning
Madríd 3 lóttskýjað
Malaga 16 léttskýjað
Mallorca 11 léttskýjað
Montreal +9 alskýjað
NewYork 8 rigning
Orlando 18 helðskírt
Parls 7 alskýjað
Róm 9 þokumóða
Vin 0 snjókoma
Washington 7 súld
Winnipeg vantar
Annasamt í inn-
anlandsfluginu
BÓKAÐIR eru á níunda hundrað
farþegar til allra áætlunarstaða
flugfélagana um helgina.
Margar aukaferðir eru áætlaðar
hjá Flugleiðum yfír helgina og fram
á aðfangadag en síðasta brottför úr
Reykjavík fyrir jól er til Akureyrar
kl. 13 á aðfangadag. Á annan í jólum
hefst áætlunarflug að nýju. Flogið
verður á alla áætlunarstaði Arnar-
flugs fram á Þorláksmessu og á alla
staði nema á Strandir á aðfangadag.
Flug hefst að nýju annan í jólum.
Mæðrastyrksnefnd:
Fleiri færa gjafir en áður
í GÆR var fullt út úr dyrum hjá
Mæðrastyrksnefnd að sögn Unn-
ar Jónasdóttur formanns nefnd-
arinnar. Þetta var síðasti dagur-
inn fyrir jól sem Mæðrastyrks-
nefnd veitti framlögum móttöku.
Að sögn Unnar er fjöldi umsækj-
enda um aðstoð nú kominn langt
fram úr þeim fjölda sem leitað hef-
ur áður til nefndarinnar á jólaað-
ventunni. En hún tók einnig fram
að flöldi gefenda væri einnig meiri
en nokkru sinni fyrr. Hún minnti á
að Mæðrastyrksnefnd starfar allan
ársins hring og veitir einnig aðra
aðstoð s.s. lögfræðiaðstoð.
Tryggingaiðgjöld hækka
ekki um áramótin
BOÐUÐ hækkun á iðgjöldum
húseigendatryggingar Sjóvár-
Almennra tekur ekki gildi um
um áramótin. Tryggingaeftirlit
ríkisins hefur farið fram á ítar-
legri gögn frá tryggingafélögun-
um varðandi þessar tryggingar
en þess er ekki að vænta að eftir-
litið taki afstöðu til þessa máls á
næstunni. Ekki hefur borist
formleg beiðni frá Sjóvá-
Almennum né öðrum tryggingar-
félögum um hækkun á iðgjöldum
húseigendatryggingar, að sögn
Erlends Lárussonar, forsljóra
Tryggingaeftirlitsins.
Tryggingaeftirlitinu hefur borist
útreikningar á afkomu Sjóvár-
Almennra og Vátryggingafélags
íslands í þessari tryggingagrein.
Ólafur B. Thors, framkvæmda-
stjóri Sjóvár-Almennra, sagði að
þetta hefði í för með sér að ekki
yrðu sendir út neinir reikningar
fyrr en Tryggingaeftirlitið hefði
tekið afstöðu til þessa máls. „Að
sjálfsögðu munum við hlíta efnis-
dómi Tryggingaeftirlitsins fari svo
að það telji að þetta sé ekki réttur
grundvöllur sem við erum að vinna
á. Meðan beðið er úrslita í þessu
máli höldum við öllum þeim aðilum
sem eru tryggðir hjá okkur eins og
þeir voru tryggðir samkvæmt
gamla samningnum,“ sagði Ólafur.
Tryggingareftirlitið hefur farið
fram á gögn um tjónadreifingu og
aðrar tölulegar staðreyndir sem
þeir telja að þurfi nánari skýringa
við._
Ólafur sagði að deila mætti um
hvort hagnaður Sjóvá-Almennra
hefði verið það mikill að ónauðsyn-
legt væri að hækka iðgjöld. „Ég
held að hagnaðurinn hafí á síðasta
ári verið 55 milljónir kr. af iðgjöld-
um sem voru á bilinu 2,5-3 milljarð-
ar kr. Við erum því ekki að tala
um mjög stórar upphæðir.“
-----♦ ♦ ♦
Þorláksmessa:
Opið í
Glæsibæ og
á Eiðistorgi
VERSLANIR í Glæsibæ við Álf-
heima á Eiðistorgi á SeKjarnar-
nesi verða opnar eftir hádegi á
Þorláksmessu, sem að þessu sinni
ber upp á sunnudag.
í Glæsibæ verður opið frá kl. 13
til 18 og flestar verslanir á Eiðis-
torgi á Seltjamamesi verða opnar
milli kl. 13 og 20. Að sögn Jóns
Siguijónssonar kaupmanns við
Laugaveg mælast samtök verslun-
areigenda við Laugaveg til þess að
verslanir þar verði lokaðar á Þor-
láksmessu. Verslanir í Kringlunni
verða lokaðar.