Morgunblaðið - 22.12.1990, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990
_
I
fe C j .4 j fií DÓ!i"JaKur Skáiholt
hclgir mcnn .1 rWum »u.W« ^ L
1 J \ jgr*/ * '
a®,, i
: ~
, . . ..
:
rr.;. *« ■
Saga íslands V
Saga Islands er ýtarleg umfjöllun um hagi landsmanna,
atvinnuhætti, menningu og lífshætti á hverjum tíma. Þetta
fimmta bindi fjallar aðallega um 15. öld - ensku öldina - vaxandi
umsvif Englendinga allt þar til Danakonungi tókst endanlega að
tryggja yfirráð sín. Greint er frá eflingu kirkjunnar, rakið hvernig
ísland tengdist sögu landafundanna miklu. Bókmennta- og
myndlistarsögu tímabilsins eru gerð rækileg skil. Fjöldi mynda
prýðir bókina. Höfundar eru Björn Þorsteinsson, Guðrún Ása
Grímsdóttir, Sigurður Cfndal, Jónas Kristjánsson
og Björn Th. Björnsson. Ritstjóri er Sigurður Lfndal.
Skálholt II. Kirkjur
Þetta er þriðja bindið í ritröðinni Staðir og kirkjur. Bókin fjallar
um allar þekktar kirkjur sem staðið hafa í Skálholti frá öndverðu.
Leitast er við að gefa sem gleggsta mynd af hverri kirkju, höfundi
hennar og byggingarsögu. Höfundurinn, Hörður Ágústsson,
hefur endurgert nokkrar þeirra utan og innan í teikniformi, m.a.
miðaldakirkju þá, sem stærst var timburkirkna á Norðurlöndum.
( bókinni eru á þriðja hundrað mynda og teikninga.
iæur
lókmeuiitifélagsins
eru lifancii brunnur
fróöleiks
o§ menntui
Almannahagur
Safn 75 ritgerða um hagfræði og
efnahagsmál eftir Þorvald Gylfason.
Ritgerðunum er ætlað að skýra
efnahagsvanda fslensku þjóðarinnar og
vekja lesendur til umhugsunar um
leiðir til úrbóta. Athygli verð bók fyrir
athafnamenn sem almenning.
Lærdómsrit
Þrjár bækur bætast nú f hóp þessa
stórmerka flokks sígildra rita:
Manngerðir eftir Þeófrastos, rituð fyrir
um 2000 árum.
Lof heimskunnar sem Erasmus frá
Rotterdam skrifaði fyrir nærfimm öldum.
Saga tímans eftir Stephen W.
Hawking, sem hefur skipað efstu sæti
metsölulista víða um lönd.
Saga tímans
„Það er ástæða til að hafa nokkurt
mál um þessa bók vegna þess, að
hún er glæsileg afurð mannlegrar
hugsunar og áreiðanlega
. bitastæðasta bók sem kemur út á
fslandi á þessu ári."
GHF. Mbl. 12. des. 1990
1. prentun uppseld
2. prentun væntarileg
»1