Morgunblaðið - 22.12.1990, Síða 21

Morgunblaðið - 22.12.1990, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990 21 Fjölbrautaskólinn við Ármúla: Brautskráning 36 nýstúdenta ÞRJÁTÍU OG SEX stúdentar brautskráðust frá Fjölbrauta skólanum við Ármúla fimmtudaginn 20. desember. Af nýstúdentunum eru 17 af viðskiptasviði, 9 af félagssviði, 4 af félagssviði, 4 af málabraut, 4 af náttúrufræðibraut og 2 af íþróttabraut. Brautskráningin fór fram í Langholtskirkju. Dux scholae, varð Guðbjörg A. Guðmundsdóttir af náttúrufræði- braut og hlaut hún jafnframt verð- laun fyrir góðan árangur í tölvu- fræði. Aðrir sem viðurkenningu hlutu voru Anna María Jónsdóttir fyrir góðan námsárangur í dönsku og stærðfræði, Halla Árnadóttir fyrir góðan árangur í samfélags- greinum og Jón Örn Brynjarsson fyrir viðskiptagreinar. Á haustönn tók Fjölbrautaskól- inn við Ármúla við starfsemi Sjúkraliðaskóla íslands og var 41 nemandi á nýju sjúkraliðabrautinni. Einnig hófst í haust kennsla fyrir aðstoðarfólk tannlækna og er sú braut rekin í samvinnu við tann- læknadeild Háskólans. Kennarar við skólann eru 60 og nemendur á haustönn voru 760 talsins. Fjölbrautaskólinn við Ármúla brautskráði 36 stúdenta í Langholtskirkju á fimmtudaginn. Bók um ritun eftir > Olaf M. Jóhannesson ÞAÐ er lejkur að skrifa heitir bók eftir Olaf M. Jóhannesson, sem Iðnskólaútgáfan-IÐNÚ gef- ur út. Bókinni er ætlað að örva menn til að takast á við fjöl- breyttar ritsmíðar og opna þannig leið að upplýsingasamfé- laginu. I bókinni Það er leikur að skrifa er fjöldi verkefna og dæma sem eiga að auðvelda mönnum að fást við hvers kyns greinaskrif í dagblöð og tímarit. Kaflaheiti- bókarinnar gefa hugmynd um fjölbreytnina: Fyrirsagnir, uppbygging greina og fréttapistla, frágangur og uppsetn- ing, siðareglur og meiðyrðalöggjöf, gagnrýni, minningargreinar, íþróttalýsingar, fréttatilkynningar, kjallaragreinar og lesendabréf, slúðurdálkar, forystugreinar og að lokum er kafli um viðtöl. Höfundurinn Ólafur M. Jóhann- esson hefur fengist við íslensku- kennslu og greinaskrif um árabil og sameinar hér á einum stað þessa reynslu. Ólafur M. Jóhannesson. Sálarskipið, 1989-1990. Eitt af verkum Gísla á sýningunni. Kjarvalsstaðir: Sýningu Gísla Sigurðs- sonar lýkur um helgina MÁLVERKASÝNINGU Gísla Sigurðssonar sem staðið hefur í austursal Kjarvalsstaða síðan 8. desember lýkur á sunnudag, Þor- láksmessu, kl. 18. Á sýningunni eru 55 olíumálverk, stærst þeirra er myndröð byggð á Sólarljóðum. Yrkisefni Gísla eru að öðru leyti bæði úr fortíð og samtíð, það er landið sjálft og lífið nú og þegar litið er til uppvaxtarára mál- arans. Þetta er 9. einkasýning Gísla og um leið sú þriðja, sem hann heldur á Kjarvalsstöðum. Myndavél ársins í Evrópu 1990-1991. En láttu ekki dómnefnd Ijósmyndatímaritanna eina um málið. Prófaðu sjálf (ur). Okkur grunar að þú verðir sammála. Engin önnur „compact“ myndavél getur keppt við Pentax. KiiecniEsigtinB Skipholti 31 - Simi 680450 Einnig fást PENTAX myndavélar hjá: Heimilistækjum í Kringlunni, Fuji framköllunarfyrirtækjum um allt land, Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli og víðar. PENTAX ZOOHlIMIcÐafuper Niðurstaðan gat ekki farið á annan veg. PENTAX er frumkvöðull í framleiðslu „compact" myndavéla með súmlinsu. í umsögn dóm- nefndar segir: „Pentax Zoom 105 Super, er fyrirferðarlítil en býður þó þrefalt súm, nærmyndatökur og margar tækni- nýjungar er auð- velda myndatökur. Myndgæði eru frábær".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.