Morgunblaðið - 22.12.1990, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990
23
A einshreyfíls sjóvél
umhverfis jörðina
BANDARÍSKUR flugmaður,
Tom Casey, varð fyrstur allra til
að fljúga einn síns liðs á sjóflug-
vél umhverfis jörðina og lenda
eingöngu á sjó er hann lenti eins-
hreyfils Cessna-flugvél sinni í
Seattle í Bandaríkjunum á mið-
vikudagskvöld, að sögn Reut-
er's-fréttastofunnar.
Casey lagði upp í júní frá Wash-
ington-vatni í Seattle og lenti á
sama stað 188 dögum síðar eftir
að hafa lagt 27.000 mílur eða
43.000 km að baki. Var hann fimm
mánuðum lengur í ferðinni en til
stóð í upphafi af ýmsum ástæðum.
Casey hafði viðkomu á íslandi í
hnattflugi sínu. Lenti hann í
Keflavík og gisti þar en flaug næsfa
dag til Reykjavíkur og lenti á Naut-
hólsvík. Þar tók hann eldsneyti til
áframhaldandi flugs. Eitthvað er
það málum blandið hvort fullyrðing
fréttastofunnar um metflug fái
staðist því samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins hafði Casey með
sér aðstoðarflugmann, John Bec-
ker, er hann kom til landsins og
einnig er hann flaug áleiðis til Evr-
Morgunblaðið/Pétur P. Johnson
Tom Casey ekur flugvél sinni,
Liberty II, upp í fjöru í Naut-
hólsvík í hnattfluginu 22. júní sl.
Nýstiginn út á hægra flotholtið
er ferðafélagi hans, John Beck-
er, sem undirbýr landtöku.
ópu. Gerði hann fyrstu tilraun til
hnattflugs í fyrra en þá eyðilagðist
flugvél hans er hún sökk í hvass-
viðri á Skeijafirði.
Geðsjúkrahús í Sidney í Ástralíu:
Meðferðin olli heilaskaða og dauða
Sydney. Reuter.
RANNSÓKN á dauða 24 sjúklinga sem létust eftir að hafa fengið
raflost undir áhrifum lyfja og gengist undir djúpsvefnsmeðferð á
Chelmsford-geðsjúkrahúsinu í Sidney í Astralíu er lokið og málið
upplýst. Tveggja ára rannsókn leiddi í ljós að dauða 24 sjúklinga, sem
létust á árunum 1963-1979, mátti rekja beint til djúpsvefnsmeðferðar
sem þeir fengu. 24 aðrir sjúklingar frömdu ‘sjálfsmorð eftir að hafa
verið útskrifaðir af spítalanum. Alls létust 183 sjúklingar sem fengið
höfðu djúpsvefnsmeðferð á spítalanum eða innan árs eftir útskrift
og 977 voru úrskurðaðir með heilaskaða.
„Djúpsvefnsmeðferðin á Chelms-
ford-sjúkrahúsinu er það versta sem
gerst hefur í sögu geðlækninga í
landinu," sagði Peter Collins, heil-
brigðisráðherra Nýja Suður-Wales,
þegar hann kynnti niðurstöður rann-
sóknanefndarinnar.
John Slattery dómari, sem stjóm-
aði rannsókninni, mæltist til þess
að læknarnir John Herron, Ian Gard-
irter og John Gill yrðu ákærðir fyrir
glæpsamlegt athæfí og aðild að at-
burðunum á Chelmsford-sjúkrahús-
inu. Slattery sagði þó þyngstu sökina
liggja hjá dr. Harry Bailey sem var
yfírmaður djúpsvefnsmeðferðarinn-
ar á sjúkrahúsinu. Bailey gekkst
sjálfur undir meðferðina og framdi
sjálfsmorð árið 1985.
í tólf binda skýrslu Slatterys seg-
ir að Bailey hafí falsað dánarvott-
orð, ofnotað lyf og átt ástarfundi
um nætur með sjúklingum sínum.
Þá segir einnig að í ljós hafi komið
að sjúklingar með fullri meðvitund,
sem hafí verið bundnir naktir við
rúm sín, hafi fengið raflost. Vitað
er um sjúklinga allt niður í 12 ára
gamla.
Slattery sagði að Bailey hefði
verið fullljóst að djúpsvefnsmeðferð-
in var hættuleg. Hann hefði samt
sem áður haldið áfram að beita henni
á sjúklinga. „Það leikur enginn vafí
á því að þegar árið 1967 hafi Bailey
gert sér grein fyrir því að meðferðin
var svo hættuleg að hún orsakaði
ýmis vandamál og jafnvel dauða,“
sagði hann. Hann komst að því að
Bailey falsaði a.m.k. 17 dánarvott-
orð til að komast hjá rannsókn.
Slattery sagði að læknarnir þrír,
Herron, Gardiner og Gill, hlytu að
hafa vitað hversu hættuleg djúp-
svefnsmeðferðin var og þeir væru
allir sekir um hræðilega vajirækslu
í starfí.
Vegna VÖRUTALNINGAR verður
lokað um hátíðarnar sem hér segir:
Bílavarahlutaverslun
vélavarahlutaverslun:
24., 27., 28. og 31. desember.
Smurstöð:
28. og 31. desember.
Ri m:
28. desember.
Aðrar deildir fyrirtækisins verða
opnar á hefðbundnum tímum.
HEKLA HF
Laugavegi 170-174. Sími 695500
• •
Samþykkt Oryggisráðs SÞ um verndun
Palestínumanna á herteknu svæðunum:
A __
Bæði Israelar og Pal-
estínumenn óánægðir
Jerusalem.
Utanríkisráðherra ísraels, David Levy, fordæmdi Bandaríkjamenn
í gær fyrir að hafa ekki beitt neitunarvaldi gegn samþykkt Öryggis-
ráðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) þar sem stefna ísraelsmanna varð-
andi herteknu svæðin. á vesturbakka Jórdanár og á Gaza-svæðinu
er gagnrýnd. Palestínumenn sögðu að samþykktin gengi mun styttra
en vonir hefðu staðið til.
David Levy sagði að Bandaríkja-
menn hefðu veikst í afstöðu sinni
vegna þess hve mikið þeim væri í
mun að halda yfirvöldum í araba-
löndum á sínu bandi í aðgerðum
gegn Saddam Hussein, forseta ír-
aks. „Bandaríkjamenn eru haldnir
þeirri þráhyggju að ef þeir verða
málefnalegir og taki afstöðu með
ísraelsmönnum þá tapi þeir banda-
mönnum sínum í arabalöndunum.
Við erum á annarri skoðun vegna
þess að arabar eru mun háðari
Bandaríkjamönnum en Bandaríkja-
menn eru háðir þeim,“ sagði Levy.
Palestínskir þjóðemissinnar
sögðu að í samþykktinni væri tekið
mun vægar til orða en vonir hefðu
staðið til. Það hefði valdið þeim
vonbrigðum eftir eftir tveggja mán-
aða samningaviðræður að Öryggis-
ráðið hefði ekki tekið á því hvernig
ætti að vernda Palestínumenn. „Við
höfum óskað eftir því að fá friðar-
gæslusveit á vegum SÞ eða a.m.k.
eftirlitsaðila til að koma í veg fyrir
dráp ísraela á Palestínumönnum,“
sagði Riyad al-Malki, virtur pal-
estínskúr menntamaður.
„Það hefði verið betra ef Banda-
ríkjamenn hefðu beitt neitunarvaldi
til að vekja athygli á hræsninni sem
felst í samþykktinni en að sam-
þykkja hana svo óljósa sem hún
er,“ sagði hann.
Malki og aðrir Palestínumenn
sögðust ekki vænta neinna breyt-
inga á meðferð ísraela á Palestínu-
manna í kjölfar samþykktarinnar.
NVJU HÚSOAGNASENDINGUt
Mikið úrval af norskum og ítölskum sófaborðum
Sjónvarpsborð frá kr. 9.900,- stgr.
Petra borð + 4 stólar 35.370,- stgr.
EINNIG HVÍLDARSTÓLAR,
HORNSÓFAR, JÁRNRÚM O.M.FL.
Visa — Euro raðgreiðslur
Opið í kvöld til 23.00
Sunnudag frá kl. 13:00-18.00
□aHHBia
HÚSGAGNAVERSLUN
REYKJAVÍKURVEGI 66 HAFMARFIROI SÍMI 54 100