Morgunblaðið - 22.12.1990, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990
27
Landssamband iðnaðarmanna;
Mótmælir væntanleg-
um skattahækkunum
í ÁLYKTUN sem Landssamband iðnaðarmanna sendir frá sér er
harðlega mótmælt áformum um stórfellda skattahækkun, sem fram
koma í frumvörpum ríkisstjórnarinnar, er lögð hafa verið fram á
Alþingi, um tryggingagjald og um breytingu á lögum um tekju- og
eignarskatt.
Launahlutfall
eftir atvinnugreinum
(Laun og tengd gjöld sem % af tekjum)
Húsasmíði
Múrun
Húsamálun
Heilbr.þj. einkaað.
Málm- og skipasmi.
Viðsk.b. og sparisj.
Fiskveiðar
Trjávöruiðnaður
Ymis persónul. þjón.
Pappírsiðnaður
Landbúnaður
Veflar- og fataiðn.
Veitínga- og hótelr.
Samgöngur
Iðn. alls án stórið.
Meðalt. allra atvgr.
Steinef naiðnaður
Efnaiðnaður
Fiskiðnaður
Verktakastarfsemi
Plasti. og ýmis iðn
Al- og kfsiljárnfr.
Matvælaiðn.(án fisk)
Tryggingar
Smásöluverslun
Heildverslun
Rafmagns- og hitav.
Vantsveitur
Heimild: Þjóöhagsstof nun
L
20
40
60
80 100
Launahlutfall er mjög misjafnt eftir atvinnugreinum.
Þorleifur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands iðnaðar-
manna, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að ljóst væri að ef gjald-
hlutfall hins nýja tryggingagjalds
yrði 6% annars vegar og 2,5% hins
vegar þá væri hér um að ræða
aukna skattheimtu, sérstaklega á
sjálfstæða atvinnurekendur.
„Það er ekki gerð nein tilraun
til að greina á milli fyrirtækja og
einyrkja, en þeir síðamefndu eru
einmitt fjölmargir innan okkar vé-
banda. Þeir eiga minni rétt í al-
mannatryggingakerfinu og því er
aukinn skattur á þá óeðlilegur.
Ekki verður annað séð en hækkun
á launatengdum gjöldum kalli á
verðhækkunarþörf, meðal annars
hefur verið upplýst að landbúnaðar-
afurðir þyrftu að hækka um nærri
eitt prósent. Einnig er hætta á auk-
inni „svartri atvinnustarfsemi“,“
sagði Þorleifur.
Hann sagði eðlilegt að taka alla
launatengda skatta til endurskoð-
unar í tengslum við aðrar skatta-
breytingar. „í áliti svokallaðrar fyr-
irtækjaskattanefndar, sem fjár-
málaráðherra skipaði og vitnað er
til í athugasemdum frumvarpsins
um tekju- og eignarskatt, var boðað
að tekjuskattshlutfall félaga ætti
að lækka úr 50% í 45%. Þetta er
gert til að halda svipaðri skattbyrði
á milli ára. í athugasemdum með
frumvarpinu er taláð um að fresta
þessu. Við teljum að það þurfí að
.taka þetta allt fyrir á einu bretti,
annars er þetta svipað og að gefa
út óútfylltan víxil.“
Stjórn sambandsins mótmælir
einnig hugmyndum um að afnema
heimild fyrirtækja til að leggja 15%
af hreinum hagnaði í fjárfestingar-
sjóð og benda á að slíkt myndi vinna
gegn því að fyrirtæki gætu byggt
upp sterkari eiginfjárstöðu.
„Vinnuveitendasambandið hefur
víst samþykkt breytinguna á trygg-
ingagjaldinu, þrátt fyrir að um
nokkra hækkun verði að ræða. Þeir
segja eðlilegt að leggja jafnt á öll
rekstrarform. Við teljum að það
þurfi að skoða þetta mál í tengslum
við breytingu á tekju- og eignar-
skatti og einnig í tengslum við al-
mannatryggingakerfið. Það ætti að
draga úr launatengdu gjöldunum
og greiða frekar hærri tekju- og
eignarskatt. Það er eðlilegri skatt-
stofn og einnig er eðlilegra að taka
skatt af virðisauka, heldur en af
hlutfalli launa. Launastofn er
óheppilegur skattstofn og kenlur
mjög misjafnt niður á atvinnugrein-
um,“ sagði Þorleifur.
Fréttasend-
ingar RÚV
til útlanda
FRÁ og með 14. desember 1990
eru fréttasendingar ríkisút-
varpsins á stuttbylgju svo sem
hér segir:
Til Norðurlanda, Bretlands og
meginlands Evrópu:
Daglega kl. 12.15-12.45 á
17493, 15790, 13830 og 11402
kHz.
Daglega kl. 18.55-19.30 á
13855, 11402, 9268, 7992 og 3295
kHz.
Hlustendur á Norðurlöndum geta
einnig nýtt sér sendingar á 17440,
15770 og 13855 kHz kl. 14.10 og
kl. 19.35 og kl. 23.00 á 15770,
13855 og 11402 kHz.
Til Kanada og Bandaríkjanna:
Daglega kl. 14.10-14.40 og
19.35-20.10 á 17440, 15770 og
13855 kHz.
Daglega kl. 23.00-23.35 á
15770, 13855 og 11402 kHz.
Hlustendur í Kanada og Banda-
ríkjunum geta einnig oft nýtt sér
sendingar kl. 12.15 og 18.55.
Að loknum lestri hádegisfrétta á
laugardögum og sunnudögum er
lesið yfirlit yfir helztu fréttir liðinn-
ar viku.
Islenskur tími, sem er sami1 og
GMT.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Halla Haraldsdóttir gler- og
myndlistarkona við eitt verka
sinna á Flughótelinu í Keflavík.
Keflavík:
Halla Haralds-
dóttir sýnir á
Flughótelinu
Keflavík.
HALLA Haraldsdóttir gler- og
myndlistarkona heldur um þess-
ar mundir myndlistar- og sölu-
sýningu á Flughóteli í Keflavík.
Þar sýnir Halla 25 verk, flest
fantasíur og eru myndirnar
ýmist málaðar með vatnslitum,
krít eða með blandaðri tækni.
Einnig eru nokkur glerskurðar-
verk á sýningunni.
Halla hefur magrsinnis hlotið
viðurkenningar og verðlaun fyrir
verk sín og um þessar mundir er
hún að vinna að mosaíkverki sem
prýða mun sundmiðstöðina 1
Keflavík, en Halla sigraði í sam-
keppni um myndskreytinguna sem
verður 10 m á lengd og 2,5 m á
hæð. Einnig er hún að gera altari-
stöflu í kapellu sjúkrahússins í
Keflavík.
Síðast sýndi Halla á Akureyri
um páskana og fékk þar góðar
viðtökur. Þetta er fyrsta málverka-
sýning listamanns á Flughótelinu
og hefur sýningin sem stendur
fram yfir áramót og er í ráðstefnu-
sal hótelsins vakið mikla athygli.
- BB
Hveragerði:
Sérsamningur um raforku
vegna lýsingar í gróðurhúsum
Selfossi.
RAFVEITA Hveragerðis hefur unnið að gerð sérsamnings við
Rafmagnsveitur ríkisins um fastan afltopp, 1.400 kílówött, vegna
sölu á raforku til garðyrkjubænda. Ekki þarf að greiða fyrir orku-
notkun umfram þennan topp en RARIK getur haldið orkuafhend-
ingu við hann á álagstoppum. Orkunotkun til garðyrkjulýsingar
hefur vaxið ár frá ári og næsta ár er gert ráð fyrir að hún nemi
einni gígawattstund en öll orkusala til Hveragerðisbæjar nemur 7
gígawattstundum á ári.
Ný gjaldskrá RARIK sem tekur
gildi um áramót gefur möguleika
á sérsamningum líkt og gerðir
hafa verið við Hveragerðisbæ.
Umræddur samningur er árangur
viðræðna þessara aðila í tvö ár.
„Ég tel þennan samning vera
mjög hagstæðan fyrir garðyrkju-
bændur því ef ekki væri boðið upp
á þennan samning þyrftu þeir að
greiða mun hærra verð fyrir lýs-
inguna," sagði Guðmundur Bald-
ursson rafveitustjóri. Hann sagði
að fyrir dyrum stæði að byggja
upp dreifikerfi til að geta afhent
orku til allra garðyrkjubænda.
Samkvæmt samningnum við RA-
RIK er verð á hveija kflówattstund
þijár krónur en reiknað er með að
leggja ofan á það verð til að standa
undir uppbyggingu dreifikerfis.
Kostnaður við það er áætlaður 10
milljónir króna.
Garðyrkjubændur nota lýsingu
í gróðurhúsum sínum allt upp í 20
stundir á sólarhring. „Við viljum
geta lýst til þess að þjóna markaðn-
um yfir veturinn svo minnka megi
innflutning á blómum. Innflutning-
ur á blómum á sér stað vegna
vöntunar á blómum en ekki vegna
meiri gæða innflutningsins. Aukin
lýsing skapar aukna framleiðslu
og atvinnu hér í Hveragerði,“ sagði
Björn Guðjónsson formaður félags
garðyrkjubænda í Hveragerði.
Björn sagði að samningurinn
gæfi möguleika á því að unnt
væri að lýsa meira í gróðurhúsum
garðyrkjubænda. Hann sagði að
garðyrkjubændur vildu losna við
að búa við það að slökkt væri á þá
á álagstoppum hjá RARIK. Varð-
andi dreifikerfíð þá sagði Bjöm að
garðyrkjubændur vildu kanna
hversu mikil þörfin væri hjá þeim
vegna lýsingar til þess að vita
hversu mikill hluti af dreifíkerfínu
væri vegna þess. Sig. Jóns.
Hljómsveitin Upplyfting leikur í
Firðinum á gamlárskvöld.
■ FJÖRÐURINN veitingahús,
verður með sinn árlega áramóta-
dansleik á gamlárskvöld. Hfjóm-
sveitin Upplyfting leikur fyrir
dansi fram á morgun og mun Tríó-
ið Óli blaðasali leika á efri hæð-
inni (Nilla bar). Húsið verður opnað
kl. 00.30. Boðið verður upp á flug-
eldasýningu, hatta, knöll og verða
ýmsar óvæntar uppákomur. Miða-
verð er aðeins kr. 1.500 og hefst
forsala aðgöngumiða á Nilla bar á
annan dag jóla.
(Fréttatílkynning)
Heilsuhandbók eftir
Jón Ottar Ragnarsson
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Bílnum náð upp úrhöfninni
Keflavik.
BIFREIÐIN sem hafnaði í sjónum í Njarðvíkurhöfn á mánudagskvöld-
ið náðist upp um kvöldmatarleitið á þriðjudaginn reyndist mikið skemmd
. og er talin ónýt. Bifreiðin var á .hvolfi og ljóst er að piltarnir tveir sem
í bflnum voru og björguðust svo giftusamlega hafa komist út um aftur-
hlerann. Talsvert dýpi er við hafnargarðinn eða um 7 m á fjöru.
- BB
FRÓÐI HF. hefur gefið út bók-
ina Bætt heilsa — betra líf eftir
dr. Jón Óttar Ragnarsson sem
er að hluta byggð á sjónvarps-
þáttaröðinni Heil og sæl en hef-
ur verið breytt og endurbætt.
I kynningu útgefanda segir m.a.
að bókin „Bætt heilsa — betra líf
sé handbók heimilisins um forvarn-
ir, sjúkdóma og lækningaaðferðir,
jafnt hefðbundnar sem óhefðbundn-
ar, þar sem um eitt hundrað af virt-
ustu sérfræðingum, þ. á m. flestir
þekktustu læknar landsins, gefa
almenningi góð ráð um allt frá of-
næmi, streitu og þunglyndi upp í
mataræði og megrun.
Bókin svarar spumingum á borð
við hvernig fólk geti hagað lífi sínu
og byggt upp andlega og likamlega
heilsu og notið lífsins til hins ítrasta.
ítarlega er fjallað um helstu for-
varnir gegn mannskæðustu örlaga-
völdum íslendinga, s.s. tóbaki, alkó-
hóli, eiturlyfjum, hjartasjúkdómum
og slysum“.
Bætt heilsa — betra líf er 160
blaðsíður í stóm broti og í henni
Dr. Jón Óttar Ragnarsson
eru 280 myndir. Prentsmiðjan Oddi
prentaði bókina-. Teiknideild Fróða
hannaði bókarkápu.