Morgunblaðið - 22.12.1990, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 22.12.1990, Qupperneq 38
38 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. DESEMBER 1990 Minning: _ Guðjón Eggerts- son bifreiðasijóri Fæddur 20. desember 1914 Dáinn 13. desember 1990 Að kvöldi dags þann 13. desem- ber síðastliðinn, lést á gjörgæslu- deild Landspítalans Guðjón Egg- ertsson, sjö dögum vant í sjötug- asta og sjötta afmælisdaginn sinn. Hinsta lega hans var stutt og óvænt, aðeins einn sólarhringur. Því þó hann hafi nú um nokkura ára skeið háð harða baráttu við óvæginn sjúkdóm, lét hann ekki deigan síga og vann hveija giímuna af annarri af miklu harðfylgi og með einstaklega jákvæðu hugar- fari. Það var enda til þess tekið að aldrei heyrðist hann kvarta né bregða skapi þó þjáður væri á stundum og brá þá jafnvel við glettni. Guðjón var af borgfirsku bergi brotinn. Fæddur 20. desember 1914 að Bráðræði í Innra-Akraneshreppi, en þar bjuggu þá foreldrar hans, þau Unnur Jónsdóttir fædd á Hesti í Andakýl 6. desember 1875 og Eggert Guðnason fæddur á Bjarna- stöðum í Hvítársíðu 27. febrúar 1876 en jafnan kenndur við Kópa- reyki í Reykholtsdal. Guðjón var fjórði í röð sex systk- ina. A undan honum eru farin þau Guðni, Elín og Jóhanna, en eftir lifa þau Guðrún og Páll. Foreldrar Guðjóns brugðu búi árið 1935 og fluttu þá til Reykjavíkur þar sem þau áttu heima uppfrá því í skjóli Guðrúnar dóttur sinnar, með þeim kom Guðjón til Reykjavíkur og bjó þar síðan. Hann fór strax að vinna, þegar kraftar leyfðu, eins og þá var títt, var margar vertíðir á sjó, en stund- aði byggingavinnu þess á milli. Á stríðsárum seinni heimsstyrj- aldarinnar hóf hann bifreiðaakstur og varð það hans ævistarf. Fyrst á vörubflum, en síðan á leigubílum og lengst af á Hreyfli eða þar til hann hætti fyrir aldurssakir. Guð- jón var mikið náttúrubarn og vakn- aði snemma áhugi hans á landinu, útiveru og veiðiskap hverskonar. Slíkra stunda naut hann til fulls og var sérstaklega skemmtil'egur ferð- afélagi, léttur í lund og úrræðagóð- ur, þegar það þurfti. Að ytra útliti var hann meðaimaður á hæð, frísk- legur, kvikur og samsvaraði sér vel, laglegur, móeygður, með mikið brúnt liðað hár. Hann var svipmik- ill, en með mildu yfirbragði og mik- il birta í brosi hans. Hann var ljóðelskur og bók- hneigður og kunni ógrynni kvæða. Sannur höfðingi í sjón og raun. Guðjón átti trúmennsku við sjálf- an sig, fjölskyldu og vini og nú er skarð fyrir skildi. Frændgarðurinn saknar vinar í stað. Sárt er að hugsa til þess, að eiga ekki framar von á honum inn um dymar, á sinn hljóð- láta hátt, flytjandi fréttir af ættingj- um, sem annars bámst ekki, því til margra ára var hann sá eini er hélt sambandi við þá vel flesta og var því mikill aufúsugestur á heimil- unum, þegar hann birtist. Hér skulu honum færðar alúðar þakkir fyrir þá tryggð. Gæfuríkasti dagur í lífi Guðjóns rann upp þann 27. júní 1947 er hann gekk að eiga brúði sína Sól- veigu Guðlaugsdóttur frá Vík í Mýrdal. Þau vom einkar samhent. Elskulegri, fómfúsari og yndislegri eiginkonu, sem stóð með manni sín- um í blíðu og stríðu til hinstu stund- ar, getur enginn maður óskað sér. Hann átti því láni að fagna að búa við einstaka heimilishamingju og mikið bamalán, en þeim hjónum fæddust þijú börn, myndarfólk og hinir nýtustu þegnar, elst er Sigríð- ur Kolbrún, hjúkrunarfræðingur, og á hún fjögur böm, þá Unnur, húsmóðir, og á hún þijú börn, en yngstur er einkasonurinn Eggert verkfræðingur og hann á þijú börn. Óhætt er að fullyrða að leitun muná öðru eins ástríki og Guðjón sýndi bamabörnunum sínum og verður það þeim ómetanlegt vega- nesti á lífsins brautum. Sá sem hér stýrir penna átti því láni að fagna síðastliðið haust að fara í ferðalag dagstund með þeim bræðrum Páli og Guðjóni á æskuslóðir þeirra upp á Akranes, en þar hefur Páll ætíð búið. Þessi minning er perla nú, er þeir bræður kepptust við að flytja kvæði og segja sögur frá löngu lið- inni tíð. Svo kátt var á hjalla, að hlátur tafði för. Reyndar eru flestar minningamar tengdar hlátri og fölskvalausri gleði. Ég ætla að enda þessi fátæklegu kveðjuorð mín til míns kæra móður- bróður með því að þakka honum samfylgdina, leiðsögnina og vinátt- una frá fmmbemsku minni og fyrir hvað hann auðgaði mitt líf því án hans hefði það orðið mun fátæk- legra. Við hjónin og bömin okkar þökk- um honum af hrærðum hug og flytj- um fjölskyldu hans allri innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi minningu hans. Ágúst Karlsson Guðjón Eggertsson, sá mæti maður, hefur nú kvatt þennan heim. Þegar við lítum til liðinna stunda, sem nú virðast allt of fáar, kemur ósjálfrátt upp í hugann hve einstak- ur maður Guðjón var. Líkt og jóla- ljósin sem nú lýsa upp skammdegið lýsti Guðjón upp umhverfi sitt og í dag fer fram frá Selfosskirkju útför Brynjólfs Björnssonar, mjólk- urbflstjóra á Selfossi. Brynjólfur var fæddur 25. júní 1916 að Kolsholtshelli í Villinga- holtshreppi, sonur Bjöms Brynjólfs- sonar og Þórunnar Guðmundsdótt- ur sem bjuggu síðar í austurbænum í Skeiðháholti og þar ólst Brynjólfur upp í foreldrahúsum fram að tví- tugsaldri. Brynjólfur Björnsson vann næst’u sumur á búi foreldra sinna en réðst í vist annað yfir vet- urinn, var marga vetur hjá feðgun- um í Litlu-Sandvík, þeim Guðmundi og Lýði. Árið 1941 réðst Brynjólfur til þeirrar vinnu sem varð hans lífs- starf, gerðist bflstjóri hjá Kaup- félagi Árnesinga og síðar Mjólkur- búi Flóamanna þegar það tók við mjólkurflutningunum árið 1946. Brynjólfur Bjömsson hlaut gott uppeldi og var vel gerður til sálar og líkama, rammur að afli og hug- ur fylgdi hveiju því verki sem hann tók að sér. Hann stóð albúinn til starfa á miklum umbrotatímum í íslensku þjóðfélagi, þjóðin var að vinna sig út úr kreppunni og síðan skall heimsstyijöldin á með hernáminu og öllum þeim svipting- um sem því fýlgdu. Egill í Sigtúnum var að efla Ár- nesinga til dáða í gegnum tvö sterk samvinnufélög, annarsvegar Kaup- félag Ámesinga og hinsvegar Mjólkurbú Flóamanna, en þar var hann stjórnarformaður. Það félag kom áður en lauk með lífsbjörgina inn á nánast öll heimili á Suður- landi. Egill þurfti vaskan her manna sem nenntu að vaka og vinna, tak- ast á við vosbúð og ófærð. Brynjólf- ur var réttur maður á réttum stað í þessu nýja landnámi Suðurlands, dugnaðurinn og þjónustulundin gerðu það að verkum að hann átti auðvelt með að vinna þetta starf. Hann var trúr fyrirtækinu sem hann vann hjá og óvenju lipur að þjóna sveitafólkinu, eins og þeir vom margir mjólkurbílstjóramir. Snún- ingarnir vom margir sem Brynjólf- ur vann fyrir fólkið, annaðist bankaviðskipti, borgaði af víxlum, lagði inn og tók út peninga og keypti hitt og þetta sem fólkið van- hagaði um. Állt var með fullum skilum af hans hálfu og á fjörutíu ára ferli sem bílstjóri varð honum varla misdægurt, veikindadagamir hans urðu ekki margir hjá Mjólkur- búi Flóamanna. yljaði nærstöddum með nærveru sinni og hlýju. Þannig tókst honum jafnan með sinni alkunnu glettni og gamansemi að laða fram bros og allt hið bjarta og jákvæða sem lífið óneitanlega hefur upp á að bjóða. Ofarlega í huga okkar er minning frá því fyrir nokkrum ámm. Við vomm þá ásamt þeim Guðjóni og Sólveigu að dytta að sumarhúsi fjöl- skyldunnar í Vík. Guðjón lék á als oddi, sem endranær og gerði þetta verkefni að skemmtilegu ævintýri. Eitthvað á þessa leið vom allar okkar samverastundir. Þar sem Guðjón og Sólveig stóðu að málun- um vom öll vandamál úr sögunni, svo samhent sem þau hjónin vom. Guðjón naut ferðalaga bæði inn- anlands og utan. Ferðuðust þau hjón mikið hin síðari ár og var gam- an að fá Guðjón í heimsókn eftir að heim var komið. Frásagnarhæfi- leikar hans vom slíkir að segja má að maður hafi farið í ódýra og skemmtilega utanlandsferð þegar hlustað var á ferðasögur Guðjóns. Guðjón hafði yndi af ljóðum og góðum bókmenntum og var góðum gáfum gæddur. Viðbmgðið var hve gott var að koma á heimili þeirra Guðjóns og Sólveigar og þar var öllum tekið opnum örmum. Systkinahópurinn úr Vík var stór og oft þurfti að bregða sér í bæinn. Ávallt var Guð- jón þá reiðubúinn að greiða hvers Árið 1947 gekk hann að eiga eftirlifandi konu sína, Guðbjörgu Sveinsdóttur frá Arnarbæli, og stofnuðu þau sama ár heimili í Ár= túni 6 hér á Selfossi og hafa búið þar síðan. Þau eignuðust íjögur börn sem eru: Kristín búsett í Sví- þjóð, hennar maður var Karl Erik Huldgren, hann er látinn. Svein- björg Þóra, gift Alfreð Guðmunds- syni, þau eiga 1 son. Hulda, gift Fróða Larsen, þau eiga 2 syni. Björn, sambýliskona Rósa Magnús- dóttir, Björn á 2 dætur frá fyrra hjónabandi. Heimili Brynjólfs og Guðbjargar er myndarlegt, húsinu vel við hald- ið, allt fágað og snyrtilegt bæði úti og inni. Þá alltof sjaldan er sá er þetta ritar heimsótti þau í eldhús- krókinn, var gestrisnin söm og þægilegt viðmót þeirra beggja. Kynni okkar Brynjólfs hófust fyrir alvöm þegar hann hætti akstr- inum og gerðist afgreiðslumaður á vömlager/ mjólkurbúsins, þeirri deild sem sá um varahlutaþjónustu og vömr til bænda. Þetta mun hafa verið 1979, man ég enn að ég var hálf kvíðinn að maður, kominn á sjötugsaldur, ætti að taka þetta starf að sér, setja sig inn í og fara að þekkja mjaltavélar o.fl., sem Brynjólfur hafði aldrei komið ná- lægt í lífínu. En þetta fór á annan veg. Á stuttum tíma hafði hann sett sig það vel inn í þetta nýja starf að ekki varð betur gert. Þarna nýttist honum vel þjónustulundin og viljinn til að gera vel, ennfremur sá hann um innkaup á vörulagerinn og fómm við stundum saman til Reykjavíkur í slíkum erindum. Vom það skemmtilegar ferðir. Með Brynjólfí var gott að vera, hann var málefnalegur, tilgerðar- laus og forðaðist deilur. Hvort sem ég hitti hann í önnum á vinnustaðn- um eða á förnum vegi var hann samur og jafn, hlýr í viðmóti og glaður. Það eru margir sem kveðja nú Brynjólf Björnsson með sökn- uði, hann var skyldurækinn heimil- isfaðir og frístundir sínar notaði hann til að vinna heimili sínu gagn, hjálpa bömum og bamabömum sín- um. Hann lifði margan hamingjudag, vann erfítt starf og hlífði sér hvergi, uppskar þakklæti og vinskap margra og dó sáttur við alla. Að lokum sendi ég og fjölskylda mín innilegar samúðarkveðjur til Guðbjargar og barna hennar. Guðni Ágústsson t Eiginmaður minn, faðir og afi, THOMAS HOUHOULIS, Fairfax, Virginia, lést að kvöldi hins 19. desember sl. Fyrir hönd aðstandenda, Kristín Agústsdóttir Houhoulis. Móðir okkar og tengdamóðir, ELÍM GUÐMUIMDSDÓTTIR frá Bæ í Miðdölum, lést í sjúkrahúsi Stykkishólms fimmtudaginn 20. desember. Synir og tengdadætur. t Faðir okkar, , PÉTUIÍ GÍSLASON múrarameistari, Dalseli 24, Reykjavík, lést þann 20. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurður Pétursson, Hörður Pétursson, Bella Pétursdóttir. Brynjólfur Bjömsson Selfossi - Minning Fæddur 25. júní 1916 Dáinn 13. desember 1990 manns vanda, aka fólki um allan bæ og útréttingarnar fyrir Víkur- fólkið vom ófáar. Alltaf var líka pláss í Bugðulæknum og síðar í Álftamýrinni.. Það var til þess tekið hversu góður og þægilegur Guðjón var við tengdaföður sinn og áttu þeir saman margar góðar stundir. Við þökkum af alhug samfyigd- ina við Guðjón. Hann gaf alltaf rétta tóninn og við vonumst til að halda honum áfram. Hann var sátt- ur við lífíð og tilvemna, sem lýsir sér best í því hversu hetjulega hann tók veikindum sínum og kvartaði aldrei. Lífínu lifði hann sem sannur heið- ursmaður og kvaddi það með sæmd. Leiðir hafa nú skilið um stund en við trúum því að Guðjón gangi nú á Guðs vegum um ótroðnar slóðir. Við hlökkum til að heyra ferðasög- una hans þegar yfír móðuna miklu kemur. Lengi heilluðu hugann, heiðríkir dagar, alstimd kvöld. Líf þeirra, ljóð og sögur, sem lifðu á horfinni öld. Kynslóðir koma og fara, köllun þeirra er mikil og glæst. Bak við móðuna miklu, rís mannlegur andi hæst. (Davíð Stefánsson) Sólveigu, börnum og ástvinum öllum vottum við okkar dýpstu sam- úð. Svavar og Ninna Hann elsku afi okkar, Brynjólfur Björnsson, er dáinn. Það er svo ótrúlegt að hann sé ekki lengur hérna hjá okkur því allt frá því við munum fýrst eftir okkur hefur hann verið okkur til halds og trausts. Okkar fyrstu minningar um afa em þegar hann var að leika við okkur með gömlu kubbana seih foreldrar okkar áttu þegar þau vom böm. Afí var svo þolinmóður við okkur að hann gat setið stundunum saman og raðað með okkur ýmsu dóti eða þá spilað en því hafði hann jafn gaman af og við. Það var líka afí sem kveikti hjá okkur áhuga á að rækta garðinn því það vom ófáar ferðirnar sem hann fór með okkur til að taka upp kartöflur, gulrætur og annað grænmeti og svo fengum við alltaf að taka þennan góða mat með okkur heim. Áð-fá að fara með afa í mjólkurbúið var ævintýri út af fyrir sig og þegar eitt af okkur bömunum úr Reykjavík kom með skólanum í skoðunarferð í mjólkur- búið, gerði það að geta sýnt bekkj- arsystkinum sínum afa sinn þessa stúlku ólýsanlega hamingjusama og stolta. Hann afí hefur gengið mörg spor- in fyrir okkur og erum við honum að eilífu þakklát. Og eitt er víst að samveran við ömmu og afa er eitt af því dýrmætasta og lærdómsrik- asta sem við eigum. Afi verður allt- af hjá okkur öllum og við komurn aldrei til með að gleyma honum. Við biðjum góðan Guð um að vera með elsku ömmu á þessum erfíðu stundum. Blessuð sé minning þessa góða manns. Guðrún Þóra, Pálmi, Bent, Kristín Lilja og Karl Bryiýar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.