Morgunblaðið - 22.12.1990, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ SÞROTTSR LAUGARDÁGUR 22. DESEMBER 1990
SKIÐI
Forskot
á hátíðarhöldin
meðan þá bíður
eftir jólunum
Nýja jólaþrennan kemur þér strax í
hátíðarskap. Hún er skemmtileg í
SKÓINN, kjörin með JÓLAKORTINU
og gerir JÓLAPAKKANN ennþá
meiraspennandi.
HAppAÞRENNA
HAPPDRÆTTIS HÁSKÓLA ÍSLAND^
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
■ÓU 1.ÍT1
fVBRVW ÆW*«***
úmgamte^'2aS
viðbutöato'^'-
MYNDIR UR LIFIPETURS EGGERZ
FYRRVERANDISENDIHERRA - GAMAN OG ALVARA
PÉTUR EGGERZ
Pétur Eggerz segir hér fyrst frá lífi sínu sem
lítill drengur í Tjarnargötunni í Reykjavík,
þegar samfélagið var mótað af allt öðrum
viðhorfum en nú tfðkast. Síðan fjallar hann
um það, er hann vex úr grasi, ákveður að
nema lögfræði og fer til starfa í utanríkis-
þjónustunni og gerist sendiherra. Pétur hef-
ur kynnst miklum fjölda fólks, sem hann
segir frá í þessari bók.
Fyrri bækur Péturs Eggerz, Minningar
ríkisstjóraritara og Lctta Ieiðin Ijúfa, vöktu
mikla athygli á sínum tíma og urðu metsölu-
bækur.
Blaðberar
óskast
Oddagötu og Aragötu.
Ægisíðu.
Ennfremur vantar blaðbera í
Skerjaf jörð, norðan flugvallar.
Hressandi morguntrimm sem borgar sig.
Reuter
Alberto Tomba tókst vel upp í stór-
svingu í gær.
„Góð
afmælis-
9iöf“
- sagðiAlberto
Tomba eftirþriðja
sigurinn á tímabil-
inu. Kronbergerer
óstöðvandi, sigraði
ífjórða sinn ívetur
ÍTALSKI ólympíumeistarinn Al-
berto Tomba vann í gær þriðja
heimsbikarmótið á þessu
keppnistímabiii er hann sigraði
í stórsvigi í Kranjska Gora í
Júgóslavíu. Hann hefur einnig
tekið forystu íheimsbikar-
keppninni samanlagt. Petra
Kronberger er óstöðvandi um
þessar mundir og í gær vann
hún fjórða mótið af sex það
sem af er keppni er hún náði
besta tímanum íbruni, sem
fram fór í Morzine í Frakklandi.
Toma, sem mistókst í sviginu í
Madonna di Campiglio á þriðju-
dag, var ekki á þeim buxunum að
láta það endurtaka sig í gær. Hann
var með næst besta tímann eftir
fyrri umferð og besta tímann í
seinni og var hálfri sekúndu á und-
an Urs Kaelin frá Sviss í mark og
rúmlega sekúndu á undan Marc
Girardelli frá Luxemborg sem varð
þriðji.
„Ég hélt upp á afmælið mitt fyr-
ir tveimur. dögum og mér fannst
það mjög góð afmælisgjöf að vinna
hér í Kranjska Gora. Ég held að
ég sé nú að komast í mína bestu
æfingu,“ sagði Tomba, sem varð
24 ára á miðvikudaginn.
„Að vera í öðru sæti á eftir
Tomba er eins og sigur fyrir mig,“
sagði Kaelin. „Það er nánast útilok-
að að vinna Tomba í slíkum ham.
Hann er svo sjálfsöruggur að hann
gerir aðra keppendur taugaó-
styrka.“
Kronberger að stinga af
„Ég hafði ekkert sérstakt í huga
fyrir keppnina, aðeins að gera mitt
besta og það nægði til sigurs,“ sagði
hin 21 árs gamla Petra Kronber-
ger, eftir Ijórða sigúrinn á tímabil-
inu. Hún var 0,06 sek á undan
Chantal Bornissen frá Sviss, sem
sigraði í risasvigi í síðustu viku.
Sigrid Wolf, Austurríki, varð þriðja.
í brunbrautinni var nýfallinn snjór
og hún því töluvert erfið.
Konurnar keppa í svigi á sama
staða og sunnudag. „Ég ætla mér
ekki að taka mikla áhættu í sviginu
þar sem ég mun hugsa meira um
að klára þar sem stigin í tvíkeppn-
inni skipta miklu máli í heildarstiga-
keppninni," sagði Kronberger, sem
hefur nú 140 stig, eða 94 stigum
meira en Bournissen, sem er í öðru
sæti.