Morgunblaðið - 17.02.1991, Side 13

Morgunblaðið - 17.02.1991, Side 13
MORteUÍÍBLAÐIÐ SONNUbÁÖtjfc-17.1 PÉBfcÚAfc‘Í991 *Í3 S JO KYENNA ÆYI Leiklist Súsanna Svavarsdóttir Ástir Bjartmars ísidórs Fúría — leikfélag Kvennaskólans Höfundur: Sjón Leikstjóri: Grétar Skúlason Leik- mynda- og búningahönnuður: Olafur Engilbertsson Nýtt íslenskt leikrit er nú á fjölum Galdraloftsins við Hafnarstræti; leikritið um ástir Bjartmars ísidórs — eða konurnar í lífí hans. Bjartmar þessi heitir reyndar Sigurður Jón Guðmundsson, en þar sem honum fmnst það fremur óskáldlegt þegar hann ungur að árum ákveður að gerast skáld, tekur hann sér skálda- nafn. í lífi Bjartmars ísidórs eru sjö konur og gerist sagan á áttatíu árum; frá 1910 til 1990. Fyrsta ást- in hans er ung heimasæta í sveitinni — sem þylur upp rómantískar vellur sem Bjartmar skrifar óðara niður. Hún leggur grunninn að skáldskap hans. Hann yrkir um sveitina; fjöllin og lækina og er sáttur við það, allt þar til Halldór Kólumkilli Mossdal, ungur drengur úr sömu sveit, kemur með eintak af fyrstu bókinni sinni til að gefa föður heimasætunnar. Amma hans hafði óskað eftir því. Halldór er á förum til Reykjavíkur og í framhaldi af því til Danmerkur til að forframast fyrir feril sinn. Friðleysið nær tökum á Bjartmari og hann ákveður að halda til Reykjavíkur og yrkja um merkilegri hluti en túnfótinn. Hann kveður elsk- una sína. í Reykjavík eru erfíðir tímar og atvinnuþref en Bjartmar þarf næði til að yrkja. Hann sér því þann kost vænstan að koma sér upp erfiðum sjúkdómi og leggjast á sjúkrahús. Þar fellur önnur konan fyrir honum; hjúkrunarkona sem ein veit að hann er ekkert veikur en vill allt til vinna til að hafa hann nálægt sér — og auðvitað endar það með því að Bjartmar ísidór missir rúmið og hjúkkan starfíð. Lítill heimur, þar sem ekkert má. Bjartmar fer til Noregs. Einn dag þegar hann er á göngu um borgina ' og lítur öðru hverju inn í bakarí og bókabúðir, verður hann fyrir augun- um á vel efnuðu kvenskassi — sem svo gæfulega vill til að er útgef- andi. Það fara góðir tímar í hönd. Bjartmar skrifar og skrifar og þessi kona númer þijú gefur út og allir græða, því bækur Bjartmars seljast vel... allt þar til exexpressjónistam- ir mæta á svæðið. Þeir koma á skrif- stofu frúarinnar í gríðariegum múnderingum og stynja, andvarpa og framleiða alls kyns búkhljóð sem er þeirra skáldskapur. Frúin fellur fyrir þessu og Bjartmar ákveður að yfirgefa útgáfuna. En hann er með seinni skipunum, því nasistar hafa hertekið Noreg — þeir banna skáld- skap exexpressjónistanna og afþví, bækur Bjartmars eru bendlaðar við sömu útgáfu, eru þær líka bannaðar. Aftur til íslands Fjórða konan í lífi Bjartmars er venjuleg íslensk húsmóðir, með svuntu og með skuplu sem bundin er í hnút uppi á höfðinu. Bjartmar er svo lánsamur að vera í hennar umsjá, þegar Halldór Kólumkilli Mossdal fær Prix Concord frá frönskum. Bjartmar verður ótrúlega svekktur en sú fjórða huggar hann. Sú fímmta er geimkona, enda svífur hún inn í líf Bjartmars á árun- um 1950 til 1960. Hún er drottning Vogarmerkisins og ásamt aðstoðar- meyjum sínum gerir hún ýmsar til- raunir á Bjartmari, áður en hún ákveður að hann sé sá rétti til undan- eldis. Á plánetunni hennar eru að- eins konur. Þær hafa lengi leitað að eintaki sem hægt væri að nota til að framleiða sveinbörn og Bjartmar verður fyrir valinu. Þegar hann hef- ur lagt sinn koss af mörkum til fram- lejðslunnar, er hann geislaður til jarðarinnar. Það er sjöundi áratugurinn. Bjartmar er að gamlast og dundar sér við að tala við endurnar á Tjörn- inni. Þá birtist ein hippapía, tryllt í augum, og fer að rifja upp kynni þeirra. Bjartmar kannast ekkert við þessa óvenjulegu stúlku — en hún rekur kynni þeirra mörg líf aftur í tímann og viti menn, nær sambandi við skáldið. Sjöunda og síðasta konan keiriur inn í líf Bjartmars þegar aldurinn nefur skafið af honum veröldina og vökuna. Hann situr í sloppnum sínum í hægindastól og dormar sér. Hún er ljóðskáld og vill öðLast reynslu og þroska í samskiptum við þennan uppáhaldshöfund sinn, sem hefur alltaf skrifað um ást, ást. Á eftir henni er ekkert eftir nema allt- umvefjandi faðmur móður jarðar. Það er margt skemmtilegt í leik- ritinu um ástir Bjartmars ísidórs. Þótt engin tilraun sé gerð til að draga upp neina heildarmynd af lífí hans, er ljóst að verkið er paródía á rithöfunda — með vísunum í nokkra slíka ísienska á þessari öld. Konurn- ar sjö er sýnishorn af hugarástandi og kannski hégóma Bjartmars hveiju sinni og koma fram sem slíkar. Þær em týpur og hverri þeirra SÝNINGAR A GALORALOITINU HAFNARSTIGCTI * fylgir söngur sem lýsir þjóðfélaginu sem þær spretta úr um leið og áhorf- endum er gefin vísbending um hvers konar týpur þær eru. Ástir Bjartmars ísidórs er létt verk sem ætlað er að skemmta áhorfendum og tekst það ágætlega. Það er einfalt og vel fallið fyrir hóp sem hefur litla eða enga leikþjálfun. En það er svosem lítið hægt að finna að vinnu Fúríu-meðlima. Framsögn- in var skýr og hreyfingar frjálslegar upp að því marki sem Galdraloftið býður upp á og lausnir á leikmynd og búningum voru ágætar. Hlutverk Bjartmars ísidórs er eina veigamikla hlutverkið í sýningunni og Eiríki Hilmarssyni tókst ágætlega að koma því til skila. i HOOVER ri FllNAI (?) CARAiEN SPÁÐU í VERÐIÐ HOOVER. / PVOTTAVÉL A 2400 1300 S.iúninga vinduhraði Ryðfrítt stál í tromlu og belg Sparnaðarkerfi Einfaldar og skilmerkilegar ísl leiðb 9>8 69.990,- HOOVER. ÞURKARI D 6380 4,5 kg. ryðfrír stálbelgur Gefur Ijósmerki að burrk loknum 4^0,- 39.990,- HOOVER ÞVOTTAVÉL ÓG ÞURKARI A 8566 Tekur 5 kg. 1300 snúninga vinduhraði Ryðfrítt stál í tromlu og belg Sparnaðarkerfi 1Q 0,- 89.990,- HOOVER. RYKSUGA COMPACT 1000W 11.990,- CJ KUNAI ÖRBYLGJUOFN MO 8 TH 23 lítra 5Í>«^þ,- Blástur 37.815,- HOOVER. RYKSUGA U5096 22.240,- ri fXjnai SJÓNVARP 2003 20" litskjár 60 stöðva innsetningarminni 16 liða þráðlaus fjarstýring Scart beintengi - 21 pinna 39.990,- EMMERSON KLUKKUÚTVARP RE 5515 1.990,- 14" LITSJÓNVARP DT1414 Sjálfleitun að stöðvum Inniloftnet og fjarstýring 30 stöðva minni Skipanir byrtast á skjá Ci F'UNAI VIDEO VCR 8003 HiFi Stereo Nicam Scart tengi Long play Fjölrása fjarstýring m/ upptökuminni 25.990,- 55.670,- * öll verð eru miðuð við stgr. HEIMILISKAU P H F • HEIHIIUSTÆKJADEILD FÁLKANS • Suðurlandsbraut 8 - Sími 84670

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.