Morgunblaðið - 08.03.1991, Side 18

Morgunblaðið - 08.03.1991, Side 18
íeei SíIAM .8 flU0AQUT8Örí GIGAUaMUOflOM MOKU U N BLÁÐIÐ' ItíSTUUAGUR'S: MSEzlðW" Hlutafé Eimskips aukið í rúmlega milljarð á árinu EIN breyting varð á stjórn Eim- skipafélags Islands á aðalfundi félagsins í gær. Baldur Guðlaugs- son var kjörinn í stjórn til tveggja ára í stað Péturs Sigurðssonar sem lét af störfum eftir 37 ára samfellda stjórnarsetu. Á aðal- fundinum voru samþykktar ein- róma tillögur stjórnar um útgáfu jöfnunarhlutabréfa upp á 10% og 15% arðgreiðslu til hluthafa. Engar athugasemdir komu frá hluthöfum þegar skýrsla stjórnar Eimskipafélagsins og ársreikningur voru kynnt og sagði Halldór H. Jónsson, stjórnarformaður félags- ins, það merki þess að hluthafar væru sáttir við reksturinn á síðast- liðnu ári. Með útgáfu 10% jöfnunar- hlutabréfa Eimskips á árinu mun hlutafé félagsins aukast úr tæpum 930 milljónum í rúman milljarð. Á aðalfundinum voru fjórir menn kjörnir í stjóm til tveggja ára. Auk Baldurs Guðlaugssonar voru Hall- dór H. Jónsson, Jón Ingvarsson og Jón H. Bergs endurkjörnir. Ekki bárust aðrar tillögur um stjórnar- menn. Baldur er einn stærsti hlut- hafi Eimskips úr röðum einstakl- inga og að auki einn af forsvars- mönnum Hlutabréfasjóðsins sem á stóran hlut í félaginu. „ Morgunblaðið/KGA Aðalfundur Eimskipafélags Islands var haldinn í gær. A myndinni sést Halldór H. Jónsson, sljórnarform- aður, flytja skýrslu stjórnar. Næst honum er Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, og út frá honum sitja stjórnarmennirnir Jón H. Bergs, Hjalti Geir Kristjánsson, Benedikt Sveinsson og Jón Ingvarsson. Hagnaður Eimskips 341 milljón króna á síðasta ári; Gert er ráð fyrir svipuðum hagnaði á yfirstandandi ári INNLENT HAGNAÐUR Eimskips hf. nam 341 milljón króna eftir að greidd- ur hafði verið tekju- og eignar- skattur, og svaraði það til 4,7% af rekstrartekjum. Það er ívið meiri hagnaður en meðaltal síðustu fimm ára, sem er 305 milljónir miðað við meðalverðlag Bókasafn Cornell-háskóla í Bandaríkjunum: Gefur út Islenska menn- ingu Sigurðar Nordals BÓKASAFN Cornell-háskóla í íþöku í New York hefur gefið út hið sígilda verk Sigurðar Nordals prófessors, íslenska menningu, í enskri þýðingu. Þýðandi bókarinnar var Vil- hjálmur Bjarnar, gamall nem- andi Sigurðar og lengi bóka- vörður við íslenska safnið í Cornell-háskóla, The Fiske Ice- landic Collection. Útgáfan var kynnt fréttamönn- um í gær, og við það tækifæri sagði Jóhannes Nordal, sonur Sig- urðar, að hér væri á ferðinni eitt af meginritunum um foma menn- ingu Islendinga sem kæmi nú fyrst út á erlendu máli. Sagði hann að bókin ætti tvímælalaust erindi við erlenda lesendur sem áhuga hefðu á íslenskri menningu og fyllti skarð sem lengi hefði verið ófyllt í bókakosti á erlendum tungumálum um íslenska menn- ingu. Islensk menning kom fyrst út árið 1942 og telst til tímamóta- verka, og gefur yfirsýn yfir sögu og menningu íslendinga frá upp- hafi til loka hins forna þjóðveldis. Var bókin að nokkru leyti ávöxtur af langdvölum höfundarins er- lendis og skýringar hans og fram- setning því aðgengileg erlendum lesendum jafnt sem Islendingum sjálfum. Sigurður Nordal var allt í senn fræðimaður, heimspekingur og listamaður. Er íslensk menning talin sameina víðtæka þekkingu og skáldlegt innsæi sem höfði til unnenda góðra bókmennta hvar sem þeir finnast. Þýðandinn, Vilhjálmur Bjarnar (1920-1983), lagði mikla vinnu og alúð í þýðingu sína og hafði samráð við höfundinn og ýmsa aðra fræðimenn. Þykir þýðing hans bæði vönduð og læsileg og fylgja henni ítariegar tilvísanir og skýringar. Hérlendis hefur Iceland Review umsjón með dreifingu bókarinnar og mun auk þess kynna hana í bókalistum sínum víðsvegar um heim en útgefandinn, Cornell University Library, mun annast dreifingu hennar í Bandaríkjun- um. Morgunblaðið/Ámi Sæberg. Útgáfa íslenskrar menningar eftir Sigurð Nordal prófessor 1 enskri þýðingu var kynnt fréttamönn- um í gær. F.v. Haraldur J. Hamar ritstjóri Iceland Review, sem hefur umsjón með dreifingu bókar- innar hérlendis, Jóhannes og Sigurður Nordal og Krislján Karlsson, rithöfundur, sem starfaði um árabil sem bókavörður við Cornell-háskóla. 1990, og talsvert meiri hagnaður en á síðasta árþ sem var 189 miHj- ónir króna. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir svipuðum hagnaði á þessu ári og því siðasta en veru- lega minni fjárfestingum. Þetta kom fram á aðalfundi Eim- skips sem haldinn var í gær. í reikn- ingum félagsins kom fram að rekstr- artekjur Eimskips og dótturfélaga þess voru 7,3 milljarðar króna á síðasta ári, samanborið við 6,1 millj- arð árið 1989, sem er 19% tekju- aukning. Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 295 milljónum, sam- anborið við 110 milljónir 1989. Hagnaður af sölu eigna nam 230 milljónum og gengishagnaður um- fram almennar verðlagsbreytingar 177 milljónir. Af þessu greiddi félag- ið 360 milljónir króna í skatta. Arðsemi eigin fjár Eimskips var 11% á síðasta ári en hefur að meðal- tali verið 13% síðustu fimm ár. Eig- ið fé félagsins í árslok var 3,9 millj- arðar og var eiginfjárhlutfallið 45%. Fyrir fímm árum var þetta hlutfall 31%. Eimskip og dótturfyrirtæki þess fjárfestu fyrir 1,9 milljarða króna á síðasta ári. Keypt voru þrjú skip, fyrir samtals 538 milljónir, gámar flutningatæki og áhöld fyrir 579 milljónir og fasteignir fyrir 204. Loks voru keypt hlutabréf í öðrum félögum fyrir 553 milljónir. Fram kom hjá Herði Sigurgestssyni for- stjóra Eimskips á blaðamannafundi í gær, að þótt fjárfestingar hefðu verið miklar á árinu væri það.þó ekki mesta fjárfestingaár félagsins. Á árinu fjölgaði hluthöfum Eim- skips um 1.500 við nýtt hlutafjárút- boð og eru hluthafar nú 14.300. Hlutafé félagsins er nú rúmlega 90 milljónir króna en markaðsverð hlutabréfanna er sex sinnum meira. Heildarflutningar Eimskips voru 993 þúsund tonn á síðasta ári og var það 5% aukning á milli ára ann- að árið í röð. Innflutningur jókst um 3% en útflutningur minnkaði um 2%. Innanlandsflutningur jókst um 10%. Mest varð aukningin í flutningum milli erlendra hafna eða 72%, aðal- lega milli Bretlands og meginlands Evrópu og frá Kanada til Evrópu. Félagið rekur nú sjö skrifstofur erlendis þar sem starfa 116 starfs- menn. Tekjur Eimskips og dótturfé- laga þess af erlendri starfsemi voru 798 milljónir á síðasta ári eða um 11% af rekstrartekjum. Félagið Burðarás hf., sem Eim- skip stofnaði til að annast hluta- bréfakaup og umsýslu, flárfesti í hlutabréfum að kaupverði 522 millj- ónir á síðasta ári. Nú nemur eigið fé félagsins 959 milljónum króna, en bókfært verð hlutabréfanna var 1.250 milljónir. Markaðsverð bréf- anna var á sama tíma 2.048 milljón- ir króna eða næstum tvöfalt meira. Gáfu Öperunni tæplega 6 hundruð þúsund krónur ISLENSKU óperunm var ný- lega færð rausnarleg gjöf; á- vísun að upphæð tíu þúsund dollara (tæpar sex hundruð þús- und íslenskar krónur). Hana gáfu þær systur Þórunn, Berg- ljót og Soffía Wathne, sem eru búsettar og stunda viðskipti í New York. Þær systur hafa styrkt ýmsar menningarstofnanir þar vestra um árabil. Þrátt fyrir langdvalir á er- lendri grund hafa systurnar haldið góðu sambandi við fósturlandið. Þegar þær voru á ferðinni hér fyrir skömmu höfðu þær spumir af þröngum fjárhag íslensku óper- unnar og ákváðu um leið að leggja henni fjárhagslegt lið. Hin höfð- ipglega gjöf sem þær nú gefa Óperunni ber vott um ræktarsemi þeirra við menningarlífinu á Is- landi. Styrkur sem þessi er íslensku óperunni ómetanlegur svo og sá hugur sem að baki liggur. Stjórn Öperannar sendir þeim Wathne- systram sínar bestu þakkir fyrir. (Fréttatilkynning frá íslcnsku ópcrunni.) Amfetamínmálið upplýst: Fékk pening- ana með því að smygla hassi MAÐUR sá sem flutti eitt kíló af amfetamíni til landsins falið í borði hefur einnig játað að hafa flutt til landsins hálft kíló af hassi um mánaðamótin nóvember- desember. Þá beitti hann svipaðri aðferð og við amfetamíninnflutn- inginn. Þetta kom fram við yfirheyrslur þar sem maðurinn var krafinn svara um hvernig hann hefði fjármagnað kaupin á amfetamíninu. Rannsókn fíkniefnalögreglunnar á því máli er nú lokið og hefur það verið sent ríkissaksóknara til ákvörðunar. i iii n-~M*li—mii'

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.