Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 08.03.1991, Qupperneq 36
36 MÖRÖONSLAÐIBJ $’Ö9'FÖMrÉl5K(&:-. MÁltó 'l^í Forstöðumeim hjá Dagvist barna í Reykjavík: Mótmæla ummælum félagsmálaráðherra FORSTÖÐUMENN í starfi hjá Dagvist barna í Reykjavík hafa sent Jóhönnu Sigurðardottur, félagsmálaráðherra, hörð mót- mæli í bréfi, með undirskriftum 67 starfsmanna, vegna ummæla ráðherrans í grein sem birtist í Morgunblaðinu 12. janúar sl. I yfirlýsingunni segir:, „I opnu bréfi yðar til foreldra barna á leik- skólum sem birtist í Morgunblaðinu 12. janúar 1991 segir orðrétt: „Þó ég hafi sannreynt að sumar fóstrur hafa kosið sérstakan foreldrafund til að rangtúlka frumvarp um fé- lagsþjónustu sveitarfélaga og mín sjónarmið og lagt mér orð og skoð- anir í munn sem engan raunveru- leika standast, þá hef ég hingað til kosið að leiða hjá mér þessar bar- áttuaðferðir." Við undirritaðir forstöðumenn í starfi hjá Dagvist barna í Reykjavík mótmælum harðlega þessum ásök- unum varðandi foreldrafundi á þeim leikskólum er við veitum forstöðu. Enn fremur vísum við á bug, þeim fullyrðingum er birtust í áður nefndu bréfi að fóstrur noti yður sem „Grýlu“ á foreldra bama á leik- skólum. Slík vinnubrögð eru ekki viðhöfð á okkar vinnustöðum." ■ REYKJA VÍKURDEILD RKÍ heldur námskeið fyrir barnfóstrur. Námskeiðin sem hefjast 3. apríl eru ætluð 11 ára og eldri, verða haldin í Fákafeni 11, 2. hæð, og í Gerðu- bergi. Leiðbeinendur eru fóstra og hjúkrunarfræðingur. í 16 kennslu- stundum verður rætt um æskilega eiginleika barnfóstru, þroska barna, leikfangaval, mikilvægi fæðuteg- unda, matarhætti, umönnun ung- barna, pelagjöf og hirðingu, veik börn, slys í heimahúsum, slysavarn- ir og kennd undirstöðuatriði í skyndihjálp. ?ra slysstaðnum. Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson Slasaðist í hörðum árekstri KONA slasaðist í liörðum árekstri á mótum Reykjanes- brautar og Hafnavegar að morgni fimmtudags. Konan ók Lada-bíl sínum eftir Hafnavegi og inn á Reykjanes- braut í veg fyrír Mazda-bíl sem þar var ekið til norðurs. Áreksturinn varð harður og þurf'ti að flytja konuna á sjúkra- hús þar sem hún var lögð inn vegna áverka, sem þó voru ekki taldir hættulegir. Ökumaður Mazda-bílsins kenndi sér ekki teljandi meins, að sögn lögreglu. Baráttudagur kvenna í dag: leikur svo hljómsveitin Blúsbrot á Púlsinum. Hljómsveitin var stofn- uð fyrir þremur árum og endur- reist sl. haust. Hún spilar mest blús en brot og brot af gullaldar- rokki fær að fljóta með svo sem perlur frá Kinks og Rolling Sto- nes. Hljómsveitina skipa Björn Árnason, leikur á bassa og orgel, Helgi Víkingsson, trommur, Leo Torfason, gítar, og Vignir Daða- son, syngur og leikur á munn- hörpu. Fundur í kvöld um konur o g stríð FUNDUR, undir yfirskriftinni Konur og stríð, verður haldinn í Norræna húsinu í kvöld, 8. mars, á baráttudegi kvenna. Eiías Davíðsson flytur erindi um umbrot í Austurlöndum nær og áhrif stríðsins, og aðrir fjalla um efnið í tónum, ljóðum og frásögnum af svæðinu, m.a. Kristín Ólafsdóttir og Sólveig Hauksdóttir. í ávarpi, sem undirbúningsnefnd 'baráttudags kvenna hér á landi send- Veitingahúsið Fjörðurinn tveggja ára ir frá sér, segir m.a. að á alþjóðlegu þingi kvenna, sem haldið var í Kaup- mannahöfn 1910, hafi áhersla verið lögð á friðar og afvopriunarmál í ljósi yfirvofandi ófriðar. Þótt margt hafí breyst og sumt til hins betra, þá sé engu minni ástæða nú en fyrir 80 árum, að beina athygli manna að þessum málum. Þá segir að þrátt fyrir áralanga baráttu séu réttindamál kvenna enn- þá neðarlega á forgangslista ríkjandi afla. íslenskt þjóðlíf hafi ekki mætt breyttum aðstæðum fjölskyldna og heimila með nægilega mörgum leik- skólum, lengri skóladegi og styttri og sveigjanlegri vinnutíma foreldra. Launakjör kvenna séu í engu sam- ræmi við vinnuframlag leirra og mik- ilvægi í íslensku atvinnulífi. Hljómsveitin Blúsbrot. ■ SYKURMOLARNIR halda sína síðustu tónleika um hríð á Púlsinuni föstudag og laugardag, 8. og 9. mars, en þeir eru á leið utan til tónleikahalds og gæti orð- ið nokkur bið á að tækifæri gefist til þess að hlusta á þessa þekkt- ustu hljómsveit okkar íslendinga úti í hinum stóra heimi. Sykurmol- arnir hafa undanfarið verið við strangar æfingar og hljóðritanir á nýju efni fyrir væntanlega LP- plötu. Sunnudaginn 10. mars UM HELGINA eru liðin tvö ár frá því veitingahúsið Fjörðurinn opn- aði. Stuttu eftir að staðurinn opn- aði var húsnæðið stækkað, og Nilla bar opnaður. Veitingahúsið Fjörðurinn býður upp á góða aðstöðu fyrir árshátíðar- hald og aðra mannfagnaði, ferming- s*ar, erfidrykkju og giftingar. Einnig er boðið upp á heimsendingarþjón- ustu á veitingum í heimahús. Á Nilla bar er boðið upp á grillveislur fyrir samkvæmishópa og að auki létta málsverði. I tilefni afmælisins um helgina mun hljómsveitin Atlantis leika fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld og á Nilla bar skemmtir tríóið Óli blaðasali. Á miðnætti, laugardag verður miðnæturspaug með Ómari Ragnarssyni I KRISTJAN Kristjánsson opn- ar á morgun, föstudaginn 8. mars, kl. 20 sýningu á nokkrum eldri verka sinna í Gallerí B12, Baldursgötu 12 (Nönnugötu- megin). Sýning- in ber nafnið „Bak við tjöld- in“. Sýningin KrisljAn stendur til 24. Kristjánsson mars og er opin virka daga frá kl. 12-16 ogum helgarfrá kl. 14-18. MANMKORN OG mm RRISTJMSDÓTTIR Miöaverö kr. 700. Snyrtilegur klæönaöur Maíargestir Mongotian Barbecue matur + nriði kr. 1280.- PANSBARINN Grensásvegi 7, símar 688311 og 33311 Ath.: Opið sunnudag KOMUM SAMAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.