Morgunblaðið - 24.03.1991, Page 16

Morgunblaðið - 24.03.1991, Page 16
16 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. MARZ 1991 eftir Guðjón Guðmundsson Frank Lacy er þekktastur fyrir að leika á básúnu en hann segir að þótt hann leiki jass sé það fjarri raunveruleikanum að líf hans snú- ist einvörðungu um jassleik. Hann hefur skrifað visindaskáldsögu og ljóð og hefur um tveggja ára skeið unnið að gerð heimildarmynd- ar um bandaríska jassleikara sem flust hafa til Evrópu. Hann er myrkur í máli um stöðu bandarískra blökkumanna og segir að eitt virtasta jassrit í Bandaríkjunum, Down Beat, sé málgagn rasista. Við höfðum mælt okkur mót á Hótel Borg um ellefu- leytið. Hann. var nýkom- inn á fætur, hafði verið við upptökur á nýrri skífu Tómasar R. Einarssonar og félaga fram eftir allri nóttu. Eldhúsið á Hótel Borg var enn lok- að og Lacy ekki farinn að borða morgunverð svo við gengum yfir á Hressó. Á leiðinni þangað spurði ég hann um plötuna. „Hún verður fín. Sigurður [Flosasop] gerði mjög sérstaka hluti í nótt. íslenskur jass er mjög góður, betri en í mörgum borgum Evrópu þar sem ég hef leik- ið. En hér eru of fáir jassleikarar. Þeir sem ég hef verið að leika með gætu allir staðið sig vel í Bandaríkj- unum, erfiðast er að fá fyrsta „giggið““. Lacy hefur leikið með mörgum jassmeisturum, eins og t.a.m. Cörlu Bley, Henry Threadgill, Jaco Pa- storius, Illinois Jacquet og jassboð- berum Art Blakeys þar sem hann var jafnframt tónlistarstjóri. „Eg lék með Jaco skömmu áður en hann lést. Við lékum á stað sem heitir Lone Star Café í New York ásamt Mike Stern og Delmore Brown. Jaco var líka góður vinur minn og það er skrítin saga hvern- ig fundum okkar bar saman. Jam- sessjónir eru á mörgum jassklúbb- um í New York sem loka ekki fyrr kl. ijögur að nóttu. Ég átti leið framhjá einum þessara staða eftir lokun og á móti mér kom síðhærður náungi gangandi með körfubolta í höndunum og segir: „Sæll. Ég heiti Jaco Pastorius og er besti raf- magnsbassaleikari í heimi. Viltu leika körfubolta við mig?“ Og við fórum í körfubolta. Hann var snjall körfuboltaspilari. “ Rasistar hjá Down Beat Lacy var kjörinn fimmti efnileg- asti básúnuleikari heims af gagn- rýnendum jassritsins Down Beat á siðasta ári og viðurkennir að það hafi opnað fýrir honum dyr. Samt ber hann lítinn hlýhug til ritsins. „Á fimmta áratugnum héldu gagn- rýnendur Down Beat því fram að John Coltrane og Charlie Parker lékju anti-jass. Hvernig er hægt að taka mark á umsögnum tímaritsins í dag þegar það hefur haldið því fram að Trane og Bird hafi ekki spilað jass? Ray Andersson hefur þrjú síðustu ár verið kjörinn besti básúnuleikari af gagnrýnendum Down Beat. Ray Anderson er góður vinur minn og snjall básúnuleikari en ekki nógu góður til að vinna kosningarnar þijú ár í röð, þegar menn eins og J.J. Johnson, Curtis Fuller, Slide Hampton og Steve Turre eru á kreiki. Down Beat hef- ur tilhneigingu til að gera hlut hvítra jassleikara stærri en hann er í rauninni. Blökkumenn eru betri jassmúsikantar en ég get að sjálf- sögðu nefnt marga frábæra hvíta jassleikara. Jass er rótgróinn í eðli blökkumanna, hluti af 400 ára sögu þeirra sem minnihlutahópur og ánauðugt fólk, þetta er þeirra tón- list. “ Sannleikurinn er róttækur Þegar hér var komið sögu vatt sér drukkinn maður að Lacy og talaði tungum. Lacy bandaði frá sér og sendi þeim drukkna svo ógnvekj- andi augnaráð að hann olli ekki frekari óþægindum. „í gær var ég á gangi hérna í bænum þegar ég heyri kallað hinum megin götunn- ar: „Hey, fuck you!“. En ég er orð- inn vanur þessu. Þegar ég var tón- listarstjóri hjá Art Blakey var ekki talað við mig um sveitina, ég var tónlistarstjóri og þurfti að snúast í öllu sem snerti hana. Fjölmiðlar reyndu helst að komast hjá því að nefna mig á nafn.“ 100 STK. GTR HURTIG luggutöflur 100 stk. tabletter -------- rFormulatoi mwm I EXTRACT PBWQEB UC PUIS* CAPSULES 250 ABCDm ÚMItr Vnr 19 98 51 siíomca^njamj) >75 019 Kobwitwrm /Eskilegur dagskammlur: 5—6 pertur KIOÐpsog^tMnam W I0o» 1i þarom og kOUum atb i kkuSwi o Súrmjólkin er ein kalkríkasta fæða sem við neytum að jafnaði. Hún er einnig auðug af próteini, fosfóri, ýmsum B-vítamínum ..arffSpMT *•*»**.;?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.