Morgunblaðið - 24.03.1991, Side 28

Morgunblaðið - 24.03.1991, Side 28
K 28 C MORGUNBLAÐIÖ VELVAKANDfixl' 'AGUR 24. MARZ 1991 „ GómoÁu þoeróbar en. þ3tr hamast ínn íbiúsíó-' í hvaða hlutföllum eru spæl- Þeir sem hafa ánægju af eggin söltuð hér? heimilisstörfum gefi sig fram. HÖGNI IlRI KKVÍSl A FORNUM VEGI Námskeið í kanínurækt á Hvanneyri: Urvinnsla margfald- ar verðmæti fiðunnar Hvanneyri. Á NÁMSKEIÐI Bændaskólans á Hvanneyri var nemendum kennd meðferð og fóðrun kanína og úrvinnsla kanínufiðu. Aðalkennarar voru Ingimar Sveinsson ráðunautur Búnaðarfélags Islands og þrír Norðmenn, Inger Lund, Ossian Kidholm og Reider Smidsrod. Nægir ekki ein kirkja? Til Velvakanda. að er margt skrýtið í kýrhausn- um. Ennþá fleira skrýtið er að gerast í Kópavogi. Nú stendur sem sé til að reisa tvær kirkjur þar í Austurbænum, svo til hlið við hlið. Eru þama tveir sértrúarsöfnuðir að byggja yfir sig? Nei, ónei! Kirkju- sóknimar tvær í austurbæ Kópa- vogs, Digranes- og Hjallasókn, ætla báðar að byggja yfir sig. Hjallasókn á lóð sem frá upphafi var ætluð undir kirkju svo þar er allt með friði og spekt. Klerkur Digranes- sóknar vill hins vegar byggja kirkju í gömlu og grónu hverfí, í algjörri óþökk íbúanna. Getur hver litið í eigin barm, að fá skyndilega stór- hýsi í friðsælt íbúðahverfí. Börnum og unglingum til sárra vonbrigða er kirkjunni ætlað að rísa á sparkvellinum sem þau hafa leikið sér á árið um kring að heita má. Og svo skal kirkjan rísa steinsnar frá útsýnisskífunni á Víghól. Og hvað með það? Ekki annað en að þama er verið að stórspilla einum fegursta og víðsýnasta útsýnisstað á höfuðborgarsvæðinu og þó víðar væri leitað. Fólk þyrfti að fara að útsýnisskífunni til að sjá hvað um er að ræða, og reyna að giska á hvað mikið af fjallahringnum hverf- ur ef kirkjan risi innan fímmtíu metra frá útsýnisstaðnum. Þama er í uppsiglingu umhverfisslys í lík- ingu við hraðbrautina sálugu í Foss- vogsdalnum. Síðan mun kirkja Hjallasóknar rísa í næsta nágrenni, nokkur hundmð metmm austar í námunda við íþróttahús Digranes- skóla. Er nokkur glóra í þessu? Er í rauninni nokkur hugsandi maður sem vill byggja tvær kirkjur þama hvora ofaní annarri á Kópavogs- hálsi? Um árabil hafa söfnuðumir í Kópavogi sameinast um notkun á hinni fallegu kirkju á Borgum, hinni eiginlegu Kópavogskirkju. Hvers vegna í ósköpunum ættu söfnuð- umir tveir á Digraneshálsi ekki að geta sameinast um eina kirkju sem risi á stað sem engar deilur standa um? Það hlýtur að vera í kristnum anda að vinna saman og halda frið- 'nn' Sóknarbarn Nemendurnir 15 em víða að af landinu. Þeir sátu og keppt- ust við að spinna fiðuna þegar fréttamann bar að og unnu þar á ýmsar gerðir rokka, suma ný- fengna til kennslu í ullariðn í nýju valfagi Bændaskólans. Meðal nemenda vom aðalkennarar Bændaskólans í þessu valfagi, þau Jóhanna Pálmadóttir handmenn- takennari og Helga Thoroddsen ullarsérfræðingur. Fiðan vandmeðfarin Helga kvað þurfa til nokkra æfingu umfram meðferðina á ull- inni óþveginni en það er vandmeð- famara, en þegar átt er við miklu feitari ull af kindum. Misjafnlega vel gekk mönnum að eiga við hrá- Yíkveiji skrifar Iþingfréttum Morgunblaðsins 16. marz er sagt frá þing- ræðu Áiaia Gunnarssonar, alþingis- manns, þar sem hann gagnrýnir að fjáraukalög fyrir árið 1991 nái ekki afgreiðslu fyrir þinglausnir. Ámi minnti á að formaður ijárveitinga- nefndar hafí heitið því í fjárlaga- ræðu að fjárhagsvandi ríkisspítala yrði leystur með fjáraukalögum. Þingmaðurinn staðhæfði að ef ekki yrði staðið við þau fyrirheit, sem formaður fjárveitinganefndar hefði gefið, stefndi í óefni. Ekki væri við unandi ef neyða ætti rík- isspítala til frekari lokana deilda á árinu, en áform stjórnenda stæðu þegar til. Biðlistar á hjartaskurð- lækninga- og bæklunardeildum eru æmir. Þar er mjög brýnt úr að bæta. Ekki er heldur hægt að tak- marka frekar starfsemi öldrunar- og geðdeilda. - Guðmundur Bjama- son heilbrigðisráðherra hét því í umræðunni að málíð yrði tekið upp innan ríkisstjómarinnar. Loforð formanns fjárveitinga- nefndar, sem gefín em í nafni þing- meirihluta, eiga og verða að standa, að dómi Víkverja. Heilbrigðisráð- herra hlýtur og að búa svo um hnúta, að hægt verði að sinna sjúk- um með viðunandi hætti og fram- kvæma nauðsynlegar og brýnar aðgerðir á heilbrigðisstofnunum, ékki sízt á hjartáskurð- og bæklun- ardeildum. Annað væri ekki veij- andi. Víkveiji dagsins er þeirrar skoð- unar að þeir, sem bera pólitíska ábyrgð á rekstri þessara stofnana, hljóti gera hreint fyrir sínum dyrum að þessu leyti - áður en þeir leita eftir atkvæðum almennings í kom- andi kosningum. xxx Víkveiji dagsins gluggar af og til í Alþýðublaðið sem „þen- ur bijóst og sperrir stél“ þessa dag- ana, eins og þrösturinn í dulitlum söngtexta. Það var mikill „stormur í vatnsglasinu" þriðjudaginn 19. marz sl., sem von var, enda verið að halda upp á sjötíu og fímm ára afmæli Alþýðuflokksins. Á forsíðu var meginfrétt blaðsins: „Einkaleyfi SÍF verður afnumið," segir Jón Baldvin Hannibalsson um útflutn- ing á saltfiski. Og lífið er saltfisk- ur, ef Víkveiji man rétt. I blaðinu var þriggja blaðsíðna viðtal við utanríkisráðherra, form- ann Alþýðuflókksins. Þar var víða komið við en einkum í utanríkismál- um, sem vænta mátti. Þar var og sérstakur kafli með yfirskriftinni: „Stefni að afnámi einkaleyfa SÍF.“ Þetta var annað vers og „það var alveg eins“ og versið á forsíðunni. Nema hvað? Síðan kom þriðja versið. Það var viðtai við Þröst Ólafsson, hagfræð- ing, sem er einn af frambjóðendum Alþýðuflokksins í Reykjavík. Það var heldur betur á skjön við hin tvö fyí-ri versin. Þetta Þrastarvers Al- þýðublaðsins hljóðaði m.a. svo: „Hann sagði að sér sýndist að af hálfu SÍF hefði verið unnið mark- visst að því á undanfömum árum að breyta almennum saltfíski í merkjavöru sem þýddi hærra verð. Markaðsátak SÍF og innflytjenda á Spáni hefði skilað sér mjög vel í norðausturhéruðum Spánar þar sem tekjur væru hvað hæstar í landinu. - Saltfiskurinn okkar er ekki lengur BAKKALAO heldur BAKKALAO ISLANDIA í verzlun- um og veitingahúsum þarna og er hátt metinn. Þessi saltfiskur er seld- ur á helmingi hærra verði í verzlun- um en nautakjöt og því fer ekki á milli mála að þarna hefur náðst mjög góður árangur. Slíkan markað er mjög auðvelt að eyðileggja ef farið er að moka inn á hann ódýr- ari og lélegri saltfiski. Því verður við að gera okkur grein fyrir þeirri áhættu sem felst í að opna fyrir saltfiskútflutning, sagði Þröstur Ólafsson." Víkveiji lætur ógert að gera upp á milli tveggja gagnstæðra sjónar- miða Alþýðubiaðsins í saltfiskmál- um. En gott er að hafa tungur tvær og tala sitt með hvorri, stendur þar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.