Morgunblaðið - 14.04.1991, Síða 6

Morgunblaðið - 14.04.1991, Síða 6
76 FRÉTTIR/INNUENT IMttRÖOK&lAbÍÐ SL'.MNUó'ÁGúftÁfy.1 1 Morgunblaðið/KGA Eyjólfur Konráð Jónsson og Guðmundur Hallvarðsson á framboðs- fundi í Kaffivagninum í gær Eyjólfur Konráð Jónsson á framboðsfundi: SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN hefur frá upphafi baráttunnar um 200 mílna landhelgi haft forystu í þeim málaflokki, um lausn Jan Mayen málsins, útfærslu á Reykjaneshrygg og nú um að leysa mál- efni Hatton-Rockall hásléttunnar. í næstu viku munu breskir aðilar koma hingað til Iands til viðræðna um lausn þess máls. Þetta kom fram í máli Eyjólfs Konráðs Jónssonar alþingismanns á framboðs- fundi í Kaffivagninum í gærmorgun. Á fundinum bað hann þann sem mótmælti því að Sjálfstæðisflokkurinn hefði haft alla forystu í land- helgismálum undanfarin ár að gefa sig fram. Það gerði enginn. Eyjólfur Konráð gat þess að ís- lendingar hefðu fyrst séð uppdrátt á sjónvarpsskermi af 200 mílna landhelginni þann 1. september árið 1973, fyrir einungis tæpum tveimur áratugum, á eins árs afmæli 50 mílnanna. Þá hefði það verið skoðun Selfoss: Brauðgerð og- kjötvinnsla KA gjörónýt eftír stórbruna „VIÐ hlupum út og áttum sannarlega fótum okkar fjör að launa,“ sagði Ingólfur Þorláksson bakarameistari í Brauðgerð Kaupfélags Árnesinga sem eyðilagðist af eldi í gærmorgun ásamt kjötvinnslu kaupfélagsins sem var í sama húsi. „Við vorum inni að baka þeg- ar allt í einu varð sprenging ofarlega í bakarofninum. Við hlupum strax í símann og eftir slökkvitæki en síðan strax út og máttum þakka fyrir að komast út,“ sagði Ingólfur sem var við vinnu í brauðgerðinni ásamt tveimur starfsmönnum þegar eldurinn kom upp klukkan 6.50. Slökkviliðið var komið á staðinn eftir nokkrar mínútur en þá þegar var mikill eldur í húsinu og gífur- legur hiti. Eldurinn breiddist ört út og logaði upp úr þaki hússins og út um loftstokka. Slökkviliðs- menn rufu göt á þak hússins til að koma vatnsslöngum að eldin- um. Einnig fóru reykkafarar inn með vatnsslöngur. Mikil hitasprenging varð í hús- inu á meðan þrír slökkviliðsmenn voru inni fengu þeir yfir sig mik- inn þrýsting, svartan reyk og mik- inn hita. Þeir bókstaflega ultu út um dyr kjötvinnslunnar þar sem þeir voru inni en sakaði ekki. Húsið sem brann var byggt 1943 sem pakkhús kaupfélagsins en var endurnýjað fyrir starfsemi brauðgerðarinnar og kjöt- vinnslunnar. Eldurinn kom upp í austurenda hússins og barst þaðan eftir þakinu yfir í kjövinnsluna. „Þetta er tjón upp á tugi millj- óna,“ sagði Sigurður Kristjánsson kaupfélagsstjóri. Unnu við bakarofninn „Þetta gerðist á tveimur til þremur mínútum að allt fylltist af reyk,“ sagði Ingólfur Þorláks- son bakarameistari. „Ég var nýbú- inn að setja í hinn ofninn og svona fimm mínútur í að ég færi að vinna við að setja í þennan sem sprakk. Nokkrum mínútum áður þá tók ég vínarbrauðin úr ofninum án þess að verða var við nokkuð. Það er mjög líklegt að sprengingin hafi orðið í mótor ofna við ofninn. Um leið og rafmagnið sló út þá tók ég það af í töflunni. En loftið og ofninn urðu strax alelda og reykurinn var rosalegur. Við reyndum að nota slökkvitækið og tæmdum það en þá var reykurinn orðinn svo rosalegur að það var ekki annað að gera en hlaupa út,“ sagði Ingólfur. „Manni brá auðvitað alveg rosa- lega,“ sagði Bára Guðnadóttir, „Við litum hvert á annað áður en við hlupum út. Þetta var bara eld- ur og ekkert annað að gera en forða sér.“ Slökkviliðsmenn á Selfossi unnu við slökkvistörf fram eftir degi. Þeim barst aðstoð frá Hveragerði. Rífa þurfti þak hússins til að kom- ast að eldinum en þakið féll niður að hluta yfir kjötvinnslunni. Sig. Jóns. Slökkviliðsmenn unnu ötullega við slökkvistarfið. Morp^inblaðið/Sigurður Jénsson margra að 200 mílna takmarkið ekki nást fyrr en að tólf eða fjórtán árum loknum. „Skömmu síðar tók ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar við og hún leysti landhelgismálið á tveimur árum. Sjálfstæðismenn hafa síðan haft forystu bæði um lausn Jan Mayen málsins, útfærslu á Reykjaneshrygg og eru nú að leysa Hatton-Rochall málin,“ sagði - Eyjólfur Konráð. Eyjólfur Konráð vék að kvóta- málinu og sagði að mál væri þann- ig vaxið að skiptar skoðanir væru um það í öllum flokkum. „Þetta er mál sem taka verður til heildarskoð- unar og Sjálfstæðisflokkurinn mun í stjórnarmyndunarviðræðum gera kröfu um að fá sjavarútvegsráðu- neytið þar sem hann treystir engum öðrum til þess að ná um það þeirri þjóðarsátt sem verður að nást. Mín skoðun hefur alltaf verið sú að sóknarmark sé æskilegra heldur en kvóti. Það dettur hins vegar engum heilvita manni í hug að horfið verði frá kvótanum í einu vetfangi. í þessu máli verður að finna mála- miðlun og ná víðtækri sátt,“ sagði Eyjólfur Konráð. Guðmundur Hallvarðsson, sem situr í níunda sæti á framboðslista Sjálfstæðisflokksins, hafði einnig framsögu á fundinum. Hann lagði áherslu á að hvalveiðum yrði haldið áfram. Öxnadalsheiði: Lægsta tilboð 14 milljónum undir áætlun SAUTJÁN verktakar buðu I lagningu vegar á Öxnadals- heiði. Lægsta tilboðið átti Hött- ur sf., 22,9 milljónir kr., og er það 62,1% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar. Kostnaðar- áætlunin er 36,9 milljónir og er tilboð Hattar því 14 milljónum undir áætluninni. Vegurinn liggur frá Giljareit að Grjótá í Norðurárdal, 4,26 km leið. Verkinu á að ljúka fyrir 1. október í haust. Flest tilboðin eru undir kostnað- aráætlun Vegagerðarinnar. Hæsta Lilboðið var þó 48,7 milljónir kr. SjáJfstæðisflokkurinn hefur haft forystu í hafréttarmálum Kvíði ekki verkefna- leysi í framtíðinni segir Stefán Örn Arnarsson sem lýkur einleikaraprófi á selló STEFÁN ÖRN Arnarsson, sellóleikari, mun leika verk eftir Jo- hann Sebastian Bach, Claude Debussy, Hafliða Hallgrímsson og Johannes Brahms á tónleikum í íslensku óperunni annað kvöld kl. 20.30. Tónleikarnir eru seinnihluti einleikaraprófs Stefáns Arnar frá Tónlistarskólanum í Reykjavík nú í vor. Undirleikari á tónleikunum verður David Knowles. í stuttu samtali við Morgun- Sennilega hef ég valið sellóið blaðið kom fram að Stefán Örn hefði snemma byrjað að læra á hljóðfæri. „Segja má að það sé heilög regla í minni fjölskyldu að fólk fái einhveija nasasjón af hljóðfæraleik. Spumingin er bara á hvaða hljóðfæri maður lærir. vegna þess að foreldrar mínir þekktu Pétur Þorvaldsson, selló- leikara, og ég hef einhvertíma séð hann æfa, annars man maður þetta ekki svo glöggt," sagði Stef- án Örn en sjö ára gamall hóf hann sellónám í Tónmenntaskól- Stefán Örn Arnarson Morgunblaðið/Sverrir anum undir handleiðslu Ólafar Sesselju Óskarsdóttur. Nokkram árum seinna fór hann svo að sækja tíma til Gunnars Kvaran, sellóleikara, sem hefur verið kenn- ari hans síðan. Tónleikarnir á morgun munu hefjast á svítu eftir Johannes Sebastian Bach. „ Svítan er núm- er 5 í c-moll,“ sagði Stefán Öm. „Hún er tvímælalaust ein af perl- um sellóbókmenntanna, stór og mikil, og krefjandi fyrir flytjand- ann og áheyrandann. Á eftir svítunni flyt ég svo impressioníska sónötu eftir Debussy sem er eitt af hans síðustu verkum en þá taka við þjóðlög í útsetningu Haf- liða Hallgrímssonar. Lokaverkið á tónleikunum er sónata í e-moll ópus 38 eftir Brahms en hann samdi tvær sónötur og er þetta sú fyrri, fallegt verk og gífurlega vel samið. Sannur Brahms!" Stefán segist ekki kvíða verk- efnaleysi í framtíðinni. „Ég er með kennara og skóla í Banda- ríkjunum í sigtinu og vona að ég fái inni. Þar stefni ég svo á að læra eins mikið og ég get og jafn- vel taka að mér verkefni erlendis. Þar er mikið af stóram hljómsveit- um og kammersveitum en sam- keppnin auðvitað miklu meiri en hér heima. Annars gæti ég vel hugsað mér að starfa á íslandi. Mér fínnst spennandi að starfa við kennslu, auk þess sem næga vinnu er hægt að hafa við tón- leikahald. Ég kvíði því alls ekki framtíðinni."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.