Morgunblaðið - 14.04.1991, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 14.04.1991, Blaðsíða 18
18 MÓRÖÚNBLAÐÍÐ SUNNUDÁGUR 14.' ÁPRÍL 1991 „fiirildi & furöudýr hafa alls konar göng og leynigöng til að ferðast um.“ Og flestar myndir Einars eru neðanjarðar, þar eru bústaðir manna, vopnaverksmiðjur, skotpallar, og brautir sem ná hringinn í kringum blaðið: Vel úthugsaður heimur til að verjast hættunum sem steðja að.“ Ertu ekki í einhveijum íþróttum? „Nei, ekki eins og er. En ég mundi vilja vera í spretthlaupi og er að velta því fyrir mér að byija að æfa í sumar." Hvað gerirðu í frístundum? „Það skemmtilegasta sem ég geri, er að fara úti í kletta á Seltjamarnesi að klifra og svo er gaman að spranga, en það er bara svo hættulegt. Svo finnst mér gaman að sveifla mér í köðlum og ég fann nýjan kaðal í gær.“ Nils, 12 ára „Það skemmtilegasta sem ég veit, er að vinna við stóru dýrin," segir Nils. „Það er að vísu stundum leiðinlegt, en þegar maður sér þau tilbúin, gleymast leiðinlegu stundirnar og manni. finnst bara hafa verið gaman." Hvað finnst þér skemmtilegasta námsefnið? „Mér finnst allt skemmtilegt. Mér finnst bara skemmtilegt að læra. Svo er margt annað sem mér finnst skemmtilegt; eins og að hlaupa og vera í lyftingum. En skemmtilegast af öllu finnst mér að dunda við hjólið mitt. Ég er alltaf eitthvað að gera við það ... heyrðu, ég er að fara með einum kennaranum og nokkrum strákum að skoða Laugarneskirkju og þeir eru að fara. Eg vil ekki missa af því, við ætlum að skoða altaristöfluna, predikunarstólinn og orgelið — bless." Davíð, 11 ára „Strákamir í Bústaðaskóla eru miklir þrautagarpar; þeir eru alltaf að búa til eitthvað sem þeir þurfa að bijóta heilann yfir, og þegar ég er í heimsókn hjá þeim eru þeir að búa sér til kúluspil. Og þeim fínnst undantekningalaust gaman að fást við reikningsþrautir. „Mér fínnst líka gaman í leikfimi," segir Davíð,„sérstaklega í þrautakóng." Og Davíð er fima góður teiknari, eins og þeir flestir eru. „En ertu þá ekki lestrarhestur líka? „Nei, mér finnst bara gaman að lesa ljóð, segir hann og fer með ljóð um stríð fyrir mig. Uppáhaldsljóðabókin mín er Ljóðspor, og við lesum hana hérna í skólanum. Stundum á morgnana á einhver okkar að lesa upp ljóð, sem hann hefur valið heima, og það er mjög skemmtilegt." Þú teiknar ekki mikið af stríðsmyndum. „Nei, ég hef engan áhuga á styijöldum. Mér finnst að vísu gaman að teikna flugvélar, en það er allt og sumt.“ „Hvað gerir þú í frítímanum? „Aðallega eitthvað til að vinna mér inn pening, til að kaupa ýmislegt smádót, eins og blýanta og liti — og stundum sælgæti. Og í sumar ætla ég í sveit að Ástjörn, fyrst, og síðan að Skógarfossi. Ég hef tvisvar verið í sveit áður og það er sko skemmtilegt." Hvað langar þig að gera, þegar þú verður fullorðinn? „Mig langar að verða lögga; leynilögga í útlöndum, þar sem enginn veit hver ég er ...“ Kristján, 9 ára „Kristján byijaði í Bústaðaskóla í haust, en segist vera orðinn leiður á skólanum; „maður verður leiður á öllum skólum á vorin. Þá vill maður gera eitthvað skemmtilegt, eins og að leika sér úti.“ En hvað finnst þér skemmtilegast í skólanum? „Stríða Bjarna smíðakennara,“ segir Kristján og hlær, en það er eitthvað grunnt á illskunni í honum, því hann er í smíðatíma, þar sem hann er að skera út kúluspil sem hann ætlar að leika sér að heima. „En mér finnst skemmtilegast í stærðfræði og Trausti, sem kennir mér stærðfræði, er skemmtilegasti kennarinn. Hann kennir mér líka Iestur og leyfír mér stundum að fara í tölvuna.“ Þú teiknar mikið af drekamyndum. „Já, mér finnst rosalega gaman að teikna dreka.“ Ertu ekkert hræddur við þá? „Nei, ég er ekki hræddur við þá, en ég vildi geta stjórnað þeim.“ Skóladagurinn er á enda í Bústaðaskóla og drengirnir fara hver í sína áttina, sumir í Laugarneskirkju, aðrir í tón- listartíma, eða norskutíma, enn aðrir heim til sín. Sumir gefa mér mynd eftir sig að skilnaði og það er hálferfitt að kveðja þá, því það er svo margt um að spjalla — og lífsfjör þeirra hefur óneitanlega aðdráttarafl, að maður tali nú ekki um hugmyndaflugið ... ■MÉÉÉÉÍÉaMB ÞIÐ GETID SKIPT UM Sjálfvirku Danfoss ofnhitastillarnir endast í áratugi. En steinefni í heita vatninu, sem setjast á lokann, geta valdið því að þeir bregðist seint við hitabreytingum og um ieið verður nýting vatnsins lakari. Oft dugar að skipta um þéttingu og til þess þarf ekki einu sinni að taka vatnið af kerfinu heldur aðeins að skrúfa fyrir stofnleiðslu hitaveitunnar til öryggis. Til að vinna verkið þarf skrúfjárn og skiptilykil - svo einfalt er það. = HÉÐINN = SEUAVEGI 2, SlMI 624260 VERSLUN - RÁÐGJÖF BBMHBBHIHHHHBBHHHBHHMBHBHHBBB

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.