Morgunblaðið - 14.04.1991, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.04.1991, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ ATVIIMIMA/RAÐ/SMA SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1991 23 A1 AUGLYSINGAR Framkvæmdastjóri Við auglýsum eftir framkvæmdastjóra fyrir Jökul hf. og Fiskiðju Raufarhafnar hf., Raufarhöfn. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu og þekkingu á rekstri útgerðar- og fiskvinnslu- fyrirtækja og hafi til að bera góða kunnáttu á sviði bókhalds og fjármála. Viðkomandi þarf að geta hafið störf ekki seinna en 1. ágúst nk. íbúðarhúsnæði til staðar. Umsóknir skulu sendar undirrituðum fyrir 25. apríl, sem einnig veitir nánari upplýsingar. Endurskoóunar- mióstöóin hf. N.Manscher c/o Björn St. Haraldsson, löggiltur endurskoðandi, Garðarsbraut 15, 640 Húsavík, sími 96-41865. Frá Háskóla íslands Lausar stöður Sérstök tímabundin lektorsstaða í næringarfræði við efnafræðiskor raunvísindadeildar Há- skóla ísiands (75%) og námsbraut í hjúk- runarfræði (25%) við læknadeild Háskóla íslands, er laus til umsóknar. Lektornum er ætlað að stunda rannsóknir og kennslu á sviði næringarfræði. Nánari upplýsingar veitir dr. Ágústa Guð- mundsdóttir dósent í síma 694800. Sérstök tímabundin lektorsstaða í stærðf ræði við stærðfræðiskor raunvísindadeildar Há- skóla íslands er laus til umsóknar. Lektorn- um er ætlað að stunda rannsóknir og kennslu á sérsviði sínu innan stærðfræðinnar auk þess sem hann þarf að geta tekið að sér almenna kennslu í stærðfræði. Nánari upplýsingar veitir formaður stærð- fræðiskorar, Reynir Axelsson dósent í síma 694815. Sérstöktímabundin lektorsstaða í greiningu algoriþma við tölvunarfræðiskor raunvísindadeildar Háskóla íslands er laus til umsóknar. Lekt- ornum er ætlað að stunda rannsóknir og kennslu á sérsviði sínu innan tölvunarfræð- innar auk þess sem hann þarf að geta tekið að sér almenna kennslu í tölvunarfræði. Nánari upplýsingar veitir formaður tölvunar- fræðiskorar, Snorri Agnarsson prófessor í síma 694732. Umsækjendur skulu láta fylgja umsóknum sínum rækilega skýrslu um vísindastörf þau er þeir hafa unnið, ritsmíðar og rannsóknir, svo og námsferil og störf. Með umsóknum skulu send eintök af vísindalegum ritum og ritgerðum umsækjenda, prentuðum og óprentuðum. Ennfremur er óskað eftir grein- argerð um rannsóknir sem umsækjendur hyggjast stunda verði þeim veitt staða. Gera má ráð fyrir að lektorarnir verði í fyrstu ráðnir í stöðurnar til 1 —2ja ára en að loknu 2ja ára starfi verði tekin afstaða til þess hvort þeir verði fastráðnir með gagnkvæm- um 3ja mánaða uppsagnarfresti. Lektorarnir eiga einnig rétt á framgangi í starfi sam- kvæmt almennum reglum sem um það gilda við Háskóla íslands. Umsóknir skulu sendar starfsmannasviði Háskólans, Aðalbyggingu Háskólans við Suðurgötu, 101 Reykjavík fyrir 13. maí 1991. Húsasmíðameistari getur bætt við sig verkefnum stórum og smáum. Tilboð eða tímavinna. Fljót og góð þjónusta. Upplýsingar í síma 686754 eftir kl. 19.00. Tómas Sigurpálsson, húsasmíðameistari. Hugbúnaðarfyrirtæki Óskum að ráða mann til að taka þátt í mark- aðssetningu, aðlögun, uppsetningu og þjón- ustu á viðskiptahugbúnaðnum bústjóra. Við leitum að manni með haldgóðan skilning á bókhaldi, tölvuvinnslu og rekstri fyrirtækja. Viðkomandi þarf að vera atorkusamur, hafa góða samstarfshæfileika og hæfileika til að starfa sjálfstætt að skapandi verkefnum. Háskólamenntun æskileg. Nánari upplýsingarveitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf., merktar „Bústjóri 214“, fyrir 20. apríl nk. Blönduós Starfsfólk óskast til starfa í eftirtaldar stöður á Blönduósi: Blönduósbær 1. Framtíðarstarf flokkstjóra í áhaldahús Leitað er eftir vélvirkja eða manni með sam- bærilega menntun. Starfið felst m.a. í: a) Almennri verkstjórn. b) Vinnu við Bæjarveitur, m.a. við rafsuðu og logsuðu. c) Bakvöktum vegna veitna. d) Almennri bæjarvinnu. Næsti yfirmaður flokkstjóra er verkstjóri (veitustjóri). 2. Framtíðarstarf garðyrkjustjóra, sem hef- ur m.a. umsjón með uppbyggingu og við- haldi opinna svæða og leikvalla, yfirumsjón með skipulagningu og framkvæmd unglinga- vinnu. Umsjón með skógrækt og upp- græðslu og aðstoð við undirbúning og fram- kvæmd allra „grænna málaflokka" á vegum bæjarins. Næsti yfirmaður garðyrkjustjóra er bæjar- tæknifræðingur. Nánari upplýsingar veita bæjarstjóri í síma 95-24181 og verkstjóri (veitustjóri) í síma 95-24175. Umsóknarfrestur er til 30. apríl. Grunnskólinn, Blönduósi 1. Staða skólastjóra. 2. 5 kennarastöður. Meðal kennslugreina danska, stærðfærði, raungreinar, íslenska, íþróttir og kennsla yngri barna. Upplýsingar veitir skólastjóri í síma 95-24229. Héraðssjúkrahúsið á Blönduósi 1. Deildarstjóra á blandaða deild. 2. Hjúkrunarfræðinga í fastar stöður og til sumarafleysinga. 3. Sjúkraliða til sumarafleysinga. Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 95-24206. Fræðsluskrifstofa Norðurlands, Kvennaskólanum, 540 Blönduósi Sálfræðing vantar til starfa á fræðsluskrif- stofu Norðurlandsumdæmis vestra. Mennt- un og/eða reynsla af starfi á sviði skólasál- fræði æskileg. Upplýsingar veittar á fræðsluskrifstofunni í símum 95-24209 og 95-24369. Hagva ngurhf Grensásvegi 13 Reykjavík Sími 83666 Ráðningarþjónusta Reksfrarráðgjöf Skoðanakannanir Lagerstarf útkeyrsla Við óskum eftir að ráða röskan og skipulagð- an starfsmann við iagerstörf og útkeyrslu. Æskilegur aldur umsækjanda er 25 til 40 ára. í umsókninni þurfa að vera handskrifað- ar upplýsingar um viðkomandi, ásamt með- mælum og launahugmyndum. Um er að ræða framtíðarstarf. Reyklaus vinnustaður. Umsóknir skulu sendar auglýsingadeild Mbl. merktar: „E - 221“ fyrir 20. arpíl 1991. Laus störf Sölumaður (205) óskast til starfa hjá heild- verslun til að selja sportfatnað, herrafatnað o.fl. Nauðsynlegt að viðkomandi hafi bíl til umráða, æskilegur aldur 25-30 ára. Laust strax. Sölumaður (212) til að selja efnavörur og sælgæti. Sjálfstætt sölustarf á sendibíl fyrir- tækisins. Æskilegur aldur 20-25 ára. Laust strax. Út á land Verslunarstjóri (213) óskast til starfa hjá- varahlutaverslun í nágrenni Reykjavíkur. Nauðsynlegt að viðkomandi hafi þekkingu á bifreiðavarahlutum, reynsla af verslunar- stjórn æskileg. Verkstjóri (164) óskast til starfa hjá frysti- húsi á Norðausturlandi. Þekking á fiskvinnslu nauðsynleg. Reynsla af verkstjórn æskileg. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. á eyðu- blöðum, sem liggja frammi á skrifstofu okkar merktar númeri viðkomandi starfs. Hagva ngurhf Grensásvegi 13 Reykjavík | Sími 83666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA REYKJANESSVÆÐI Forstöðumaður óskast Svæðisstjórn málefna fatlaðra á Reykjanesi óskar eftir að ráða til starfa forstöðumann í fullt starf við skammtímavistunarheimili fyrir fötluð börn, sem staðsett er við Hnotuberg í Hafnarfirði. Markmið með skammtímavist- un er að veita fötluðum og aðstandendum þeirra hvíld. Einnig að veita úrlausn vegna tímabundinna aðstæðna á heimili vegna veik- inda eða annarra sambærilegra aðstæðna. Um er að ræða skammtímavist fyrir börn og unglinga á skólaaldri og dvelja þar að jafnaði fimm einstaklingar. Innra starf stofn- unarinnar felst í því að búa þeim aðlaðandi og heimilislegt umhverfi, aðstoða þá við tóm- stundir og veita hverjum og einum þá umönn- un og þjálfun sem þörf er á. Æskilegt væri að fá umsóknirfrá þroskaþjálf- um með framhaldsmenntun frá ÞSÍ, og öðr- um þroskaþjálfum svo og fólki með menntun á sviði félagsvísinda og reynslu af stjórnun. Umsóknarfrestur er til 24. apríl. Nánari upplýsingar gefur framkvæmdastjóri svæðisstjórnar í síma 641822. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu svæðisstjórnar, Digranesvegi 5 í Kópavogi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.